DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 154-32
DROPS Design: Mynstur nr db-033
Garnflokkur C+C eða E
-----------------------------------------------------------

Skóstærð: 35/37 - 38/39 - 40/42 - 42/44
Lengd fótar eftir þæfingu: ca 22 - 24 - 26 - 28 cm
Hæð á tátilju eftir þæfingu: ca 15 cm í öllum stærðum

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
200-200-300-300 gr litur nr 01, rósarrunni

DROPS PRJÓNAR NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l og 14 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm á undan þæfingu með 2 þráðum (ca 13 l og 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm eftir þæfingu).
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UPPHÆKKUN Á ÖKKLA / LEGG:
Frá réttu: * Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 6-6-7-7 l til baka – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Prjónið 10-10-12-12 l, snúið við og prjónið 10-10-12-12 l til baka. Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 6-6-7-7 l til baka *. Prjónið 1 umf yfir allar l, endurtakið frá *-* á gangstæðri hlið, með byrjun frá röngu. Prjónið síðan 1 umf til baka frá röngu yfir allar l.

LEIÐBEININGAR:
Í hvert sinn sem snúið er við í miðri umf er 1. lykkjan tekið óprjónuð. Herðið á þræði og prjónið síðan áfram eins og áður. Það kemur til með að myndast gat, en það hverfur við þæfingu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni. Áður en tátiljan er prjónuð er smá þráður tekið til hliðar fyrir hekluðu blómin. Til að ná fram mismunandi liti er hægt að taka þráð innan úr dokkunni og utan með dokkunni. Klippið upp alls 12 þræði ca 2,5 metra.
Byrjað er efst á fæti og endað á tá. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

TÁTILJA:
Fitjið upp 38-42-44-44 l á prjóna nr 9 með 2 þráðum af Big Delight.
Prjónið sléttprjón.
UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið 2 l slétt saman, 34-38-40-40 l sl, 2 l slétt saman = 36-40-42-42 l.
UMFERÐ 2 (frá röngu): Prjónið 2 l br saman, 32-36-38-38 l br, 2 l br saman = 34-38-40-40 l.
UMFERÐ 3 (frá réttu): Prjónið UPPHÆKKUN Á ÖKKLA 1 sinni yfir síðustu l á hvorri hlið – sjá skýringu að ofan!
Prjónið 4 umferð yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 4-4-4-2 l jafnt yfir = 30-34-36-38 l.
Prjónið 2 umf yfir allar l.

AUKIÐ ÚT ÞANNIG:
Frá réttu: * Prjónið 10-10-11-12 l, snúið við og prjónið 9-9-10-11 l til baka, prjónið 2 l í síðustu l á prjóni. Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 5-5-6-6 l til baka, prjónið 2 l í síðustu l á prjóni. Prjónið 1 umf yfir allar l *. Endurtakið frá *-* í gangstæðri hlið, með byrjun frá röngu. Endurtakið frá *-* 2 sinnum í hvorri hlið (= alls 3 sinnum) = 42-46-48-50 l.

FÆKKIÐ LYKKJUM FYRIR HÆL ÞANNIG:
Frá réttu: * Prjónið 10-10-11-12 l, snúið við og prjónið 8-8-9-10 l til baka, prjónið 2 síðustu l saman. Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 4-4-5-5 l til baka, prjónið 2 síðustu l saman. Prjónið 1 umf yfir allar l *. Endurtakið frá *-* í gangstæðri hlið, með byrjun frá röngu. Endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið (= alls 3 sinnum) = 30-34-36-38 l.

PRJÓNIÐ FÓT ÞANNIG:
Setjið 1 prjónamerki í síðustu l í annarri hliðinni, stykkið er nú mælt héðan. Fækkið nú lykkjum frá réttu ofan á fæti þannig: Prjónið 8-8-9-10 l, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið þar til 10-10-11-12 l eru eftir, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið út umf, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls 3-3-4-4 sinnum = 24-28-28-30 l. Prjónið nú áfram án úrtöku þar til stykkið mælist ca 18-21-25-29 cm, mælt frá prjónamerki.

FÆKKIÐ LYKKJUM FYRIR TÁ ÞANNIG:
Fækkið um 3-4-4-4 l jafnt yfir í næstu umf frá réttu. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls 4-4-4-4 sinnum = 12-12-12-14 l á prjóni. Í næstu umf frá réttu eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 = 6-6-6-7 l.
Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Saumið saman við miðju undir fæti og upp að uppfitjunarkanti, saumið kant í kant (yst í lykkjubogann), svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

BLÓM:
Heklið 4 ll með 1 þræði af Big Delight með heklunál nr 4,5 og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið nú þannig: Heklið 1 ll, * 1 fl í hringinn, 1 ll, 1 st í hringinn, 1 ll, 1 tbst í hringinn og 3 ll *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (alls 5 blöð) og endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. Heklið alls 12 blóm. Klippið frá og festið enda.

ÞÆFING:
Festið lítinn plastpoka í tánna á tátiljunni með nælu þannig að táin þæfist ekki saman. Leggið tátiljuna og blómin í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

FRÁGANGUR:
Saumið blómin efst í kringum opið á tátiljunni

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Maria wrote:

DROPS Big Delight is discontinued. What yarns work for this project?

29.08.2023 - 12:08

DROPS Design answered:

Dear Maria, you can use any other feltable yarn from yarn group C - see them here (make sure you choose a yarn group C thanks to the converter) - get the new amount of yarn with our Yarn converter. Happy knitting!

30.08.2023 - 07:42

country flag Susanne wrote:

Buongiorno volevo sapere se i fiori vanno applicati prima di infeltrire o dopo, grazie

07.02.2021 - 14:55

DROPS Design answered:

Buonasera Susanne, anche i fiori sono infeltriti. Buon lavoro!

07.02.2021 - 22:45

country flag Lory wrote:

Hej! Köpte två nystan rose garden av Big delight, men de börjar inte i samma färg, varken inifrån eller utifrån. Spelar det någon roll när man ska sticka med två trådar eller ska man nysta upp tills de har samma färg att starta med?

26.02.2020 - 23:29

DROPS Design answered:

Hej Lory, Nej du behöver inte anpassa färgerna, meleringen kommer bli superfin när den är ihopstickad och tovad. Lycka till :)

27.02.2020 - 08:51

country flag Annika Goldschmidt wrote:

På mönster: DROPS Design: Modell nr db-033 Garngrupp C+C eller E - står stickor nr. 9. Måste väl ändå vara fel. Garnet tunt till att tovade sockor.

02.03.2019 - 14:47

DROPS Design answered:

Hei Annika. Det er den korrekte strikkefastheten med 2 tråder garn fra garngruppe C (som feks Big Delight) eller 1 tråd garn fra garngruppe E (som feks Eskimo). Pinnestørrelsen er kun veiledende, det er strikkefastheten som er viktig å overholde. Her er den 10 masker x 14 pinner glattstrikk = 10 x 10 cm før toving, strikket med 2 tråder. God fornøyelse

04.03.2019 - 13:28

country flag Monique Boshouwers wrote:

Wat doe ik als mijn proeflapje uitkomt op 10 steken x 13 naalden is 10x10 cm? Wanneer ik een maat kleiner naald gebruik heb ik meer steken nodig om aan 10 cm te komen....

20.12.2018 - 17:44

DROPS Design answered:

Dag Monique,

Het is vooral belangrijk dat de stekenverhouding in de breedte klopt, zodat je het aantal steken op kunt zetten, zoals in het patroon is aangegeven, en dat is bij jou dus het geval. In de hoogte kun je tot de gewenste lengte breien, zoals aangegeven in het patroon.

20.12.2018 - 17:56

country flag Susanne Lindfors wrote:

Förstår inte riktigt vad som menas med: "Fäst en liten plastpåse i toppen med en säkerhetsnål så att toppen inte tovas ihop"? Är det uppe vid tåspetsen och hur ska man fästa den då och skall sockan vara inne i plastpåsen? Finns någon bild på detta?

19.08.2018 - 17:11

DROPS Design answered:

Plastpåsen fästs inuti sockan längst in mot tårna så att arbetet inte tovas ihop. Påsen kan du fästa med en säkerhetsnål.

20.08.2018 - 17:49

country flag Glorieux wrote:

Après une lessive a 40C mes chaussons n'ont pas suffisamment rétrécis. Il y a au moins 10cm de trop dans la longueur et le tour de cheville trop large. L'échantillon correspondait bien à la bonne taille. Que puis faire?

24.12.2017 - 15:12

DROPS Design answered:

Chere Glorieux, si l'ouvrage est encore trop grand, lavez-le à nouveau et mettez-le en forme aux mesures indiquées. Bon travail!

31.12.2017 - 22:27

country flag Lemerre Pascale wrote:

Bonjour, ai-je bien compris que ces chaussons se tricotent en fil double ? Du début à la fin ? Et dans ce cas, une seule pelote de laine va suffire ? je vous remercie de votre réponse P. Lemerre

11.10.2017 - 12:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lemerre, ces chaussons se tricotent effectivement avec le fil en double, il faudra 200 g (= 2 pelotes) Big Delight dans les 2 premières tailles et 300 g (= 3 pelotes) Big Delight dans les 2 grandes tailles. Bon tricot!

11.10.2017 - 13:41

country flag Vanhooren Ann wrote:

DROPS 154-32 DROPS design: Model nr. db-033 Kan ik deze slof gewoon breien zonder te vilten ? Is er een groot verschil in het stekenaantal dan? Hartelijke dank Grtjs Ann

29.10.2014 - 01:27

DROPS Design answered:

Dit patroon is alleen geschikt om te vilten, anders zullen de sloffen veel te groot zijn. Als u niet wilt vilten, raden we u aan een van onze andere patronen te kiezen voor gehaakte of gebreide sloffen die zo gedragen kunnen worden.

29.10.2014 - 07:52

country flag Claudia wrote:

Thanks for coming back in a sec.I just couldn't find the hint 18-29 cm. I'll continue happily ever...

03.10.2014 - 21:12