DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 149-2
DROPS Design: Mynstur nr bs-054
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð:
Breidd efst: ca 200 cm.
Lengd fyrir miðju: ca 55 cm.

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
250 gr litur nr 4314, gráfjólublár
150 gr litur nr 1760, ljós gráfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf .

LEIÐBEININGAR:
Mjög mikilvægt er að þegar skipt er um lit í röndum í 6 umf garðaprjón með litnum ljós gráfjólublár og 2 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár er að strekkja aðeins á stykkinu og þræðinum svo kanturinn verði ekki of stífur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í tveimur stykkjum, þ.e.a.s. að prjónað er meðfram annarri hornréttu hliðinni á sjalinu. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram annarri langhliðinni á sama stykki og sjalið er prjónað til loka.
LESIÐ LEIÐBEININGAR!

STYKKI 1 (= A í teikningu með máli):
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós gráfjólublár.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 5 l.
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 l sl, 1 l snúin slétt, 3 l sl (síðasti uppslátturinn = gat) = 5 l.
UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið slétt
UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 7 l.
UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, 1 l snúin slétt, 5 l sl (síðasti uppslátturinn = gat) = 7 l.
UMFERÐ 8 (= rétta): Skiptið yfir í litinn gráfjólublár og prjónið slétt.
UMFERÐ 9 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 10 (= rétta): Skiptið aftur yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá, 1 l sl = 9 l.
UMFERÐ 11 (= ranga): Prjónið 1 l sl, 1 l snúin slétt, 7 l sl (síðasti uppslátturinn = gat) = 9 l.
Endurtakið umf 4-11 þar til 45 l eru eftir á prjóni (þ.e.a.s. að aukið er út í hvorri hlið í 4. hverri umf JAFNFRAMT eru prjónaðar rendur með 6 umf garðaprjón með litnum ljós gráfjólublár og 2 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár). Þegar 45 l eru á prjóni mælist stykkið ca 20 cm á breidd ef mælt er meðfram lykkjum). Prjónið 2 umf garðaprjón til viðbótar með litnum ljós gráfjólublár þannig að samanlagt eru 4 umf í garðaprjóni með litnum ljós gráfjólublár á eftir 2 umf í garðaprjóni og litnum gráfjólublár.
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta og haldið er áfram með litinn ljós gráfjólublár): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl = 45 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið allar l slétt (uppsláttur = gat) = 45 l.
UMFERÐ 3 (= rétta): Skiptið yfir í litinn gráfjólublár og prjónið slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 5 (= rétta): Skiptið aftur til baka fyrir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl = 45 l.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið slétt (uppsláttur = gat) = 45 l.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umf 1-8, þ.e.a.s. að aukið er út í annarri hliðinni og lykkjum fækkað í hinni hliðinni í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) og haldið áfram með rendur eins og áður með 6 umf garðaprjóni með litnum ljós gráfjólublár og 2 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár.
Þegar stykkið mælist ca 85 cm meðfram hægri langhlið (séð frá réttu) – endið eftir 4 umf í garðaprjóni með litnum ljós gráfjólublár, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf frá réttu. Nú eiga að vera ca 95 göt meðfram hægri langhlið (séð frá réttu).
Fellið nú af þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta og haldið áfram með litnum ljós gráfjólublár): Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, 2 l slétt saman, 1 l sl = 44 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3 (= rétta): Skiptið yfir í litinn gráfjólublár og prjónið slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 5 (= rétta): Skiptið aftur yfir í litinn ljós grár og prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, 2 l slétt saman, 1 l sl = 43 l.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umf 1-8, þ.e.a.s. að fækkað er um 1 l í lok 4. hverrar umf (þ.e.a.s. í lok annarrar hverrar umf frá réttu) og haldið er áfram með rendur eins og áður með 6 umf garðaprjón með litnum ljós gráfjólublár og 2 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár. Þegar 3 l eru eftir þá er prjónað þannig:
Prjónið 1 l sl, 2 l slétt saman, snúið við, prjónið 2 l sl, snúið við, prjónið 2 l slétt saman, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru.

STYKKI 2 (= B í teikningu með máli):
Prjónið upp frá réttu með litnum gráfjólublár þannig: Prjónið upp 1 l í oddinum á stykki A (merkt með stjörnu í mynsturteikningu), prjónið upp 1 l í gegnum fyrsta gatið, þ.e.a.s. prjónið í gegnum gatið, sækið þráðinn og dragið þráðinn til baka í gegnum gatið, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið upp 1 l í gegnum næsta gat (= 2 nýjar l í umf) *, endurtakið frá *-* meðfram allri hliðinni með götum að prjónamerki, þannig að það verða 190 l á prjóni (ef það þarf að prjóna upp fleiri l til þess að fá réttan lykkjufjölda er hægt að prjóna upp 1 l á milli gata með jöfnu millibili).
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l færri).
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá, prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 3 l slétt saman, 1 l sl (= 1 l fleiri og 2 l færri).
UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og endið á 1 l sl.
UMFERÐ 6 (= rétta): Prjóni sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl (= 1 l færri).
UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós gráfjólublár, prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 4 l eru eftir, prjónið 3 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l fleiri og 2 l færri).
UMFERÐ 9 (= ranga): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og endið á 1 l sl.
UMFERÐ 10 (= rétta): Skiptið til baka fyrir í litinn gráfjólublár og prjónið sl þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l færri).
UMFERÐ 11 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 12 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá, prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 3 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l fleiri og 2 l færri).
UMFERÐ 13 (= ranga): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og endið á 1 l sl.
Endurtakið umf 6-13 þar til stykkið mælist ca 15 cm frá þeim stað þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir 6 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár.
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l færri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Skiptið yfir í litinn gráfjólublár og prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 3 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l fleiri og 2 l færri).
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og endið á 1 l sl.
Endurtakið umf 1-4 þar til stykkið mælist ca 31 cm frá þeim stað þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir 2 umf garðaprjón með litnum ljós gráfjólublár.

Prjónið nú áfram eins og áður, einungis með litnum gráfjólublár, þ.e.a.s. að fækkað er til skiptis um 1 og 2 l í lok hverrar umf frá réttu og aukið er út um 1 l í byrjun á annarri hverri umf frá réttu. Þegar búið er að fækka um allar l, klippið frá og festið alla enda

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Silkelana wrote:

What are the replacing color numbers for Babyalpaca Silk 4314 and 1760? I love this colors but they didn't exist anymore. Thanks for your answer. Kind regards.

03.03.2022 - 11:05

DROPS Design answered:

Dear Silkelana, please contact your DROPS store for any assistance choosing the best matching colours, they will help you even per mail or telephone. Happy knitting!

03.03.2022 - 14:12

country flag Monika Schafus wrote:

Modell DROPS 149-2 - Teil B - habe 190 Maschen aufgenommen und Reihe 1 bis 13 gestrickt. Reihe 8 und 9 hellgraulila gestrickt. Es ergibt sich eine Rippe auf der rechten Seite. Wenn ich die Reihen 6-13 wiederhole, erscheint die hellgraulila Rippe nicht, d.h. Es sieht wie links aus. Was mache ich falsch❓ Danke für schnelle Hilfe Monika Schafus

01.10.2020 - 14:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schafus, die Reihen 6 +7 und 10 bis 13 sind mit graulila gestrickt und die Reihen 8 und 9 sind mit hellgraulila gestrickt so haben Sie mit Reihen 6 bis 13: 1 Krausrippe mit graulila, 1 krausrippe mit hell graulila und 2 Krausrippen mit graulila (= 1 kraus rippe mit hellgraulila nach 4 krausrippen graulila). Viel Spaß beim stricken!

01.10.2020 - 16:13

country flag Christiane Grenier wrote:

Pour le modèle 149-2 pour débuter la deuxième partie je fais une maille dans chaque trou et entre les trous je fais une jeté pour atteindre 190 mailles c’est ce que je comprends juste me confirmer merci

15.04.2018 - 21:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Grenier, tout à fait, vous relever 1 m dans chacun des jours le long du côté et vous faites 1 jeté entre les mailles relevées. Si vous n'arrivez pas à 190 m ainsi, relevez des mailles entre les jours à intervalles réguliers. Bon tricot!

16.04.2018 - 09:51

country flag Amandine wrote:

Bonjour je voudrais le faire beaucoup plus grand . comment faire sil vous plait ? merci

02.01.2015 - 17:03

DROPS Design answered:

Bonjour Amandine, vous pouvez ajuster la longueur souhaitée dès la réalisation de la partie A - pensez à ajuster également la quantité de fil - votre magasin DROPS pourra volontiers vous aider et vous conseiller. Bon tricot!

02.01.2015 - 17:08

country flag Bärbl Rupp wrote:

Der Schluß (einfärbiger Teil) funktioniert nicht, da in der deutschen Anleitung in der letzten Reihe steht, dass man in jeder zweiten Hin-Reihe 1 Masche ABNEHMEN soll. Es sollte jedoch wie in der englischen Fassung 1 Masche AUFNEHMEN heißen (siehe auch jenen Teil, wo abwechselnd nach jeder Krausrippe der Farbwechsel gemacht wird.). Das Tuch macht sonst einen ziemlichen Hacken.

08.11.2014 - 13:12

DROPS Design answered:

Sie haben Recht, vielen Dank für den Hinweis, das wird gleich korrigiert!

09.11.2014 - 22:26

country flag Sabine Habke wrote:

Vielen lieben Dank für Eure Hilfe. Jetzt klappt alles wunderbar.

02.07.2014 - 15:56

country flag Sabine Habke wrote:

Bitte um genaue angabe für die zweiten 11 reihen. meine löcher sind nicht da wo sie sein sollen

21.06.2014 - 12:01

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, Sie wdh. die 4.-11. (das was leider etwas falsch angegeben, es stand dort, dass Sie die 11 R wdh, das wurde nun korrigiert). Sie stricken den LETZTEN Umschlag jeder 2. Rück-R immer re, sodass sich ein Loch ergibt. Also: 12.R (= 4.R = Hin-R): re stricken, 13.R (= 5.R = Rück-R): re stricken, 14.R (= 6.R = Hin-R): 1 re, 1 Umschlag, re bis zur letzten M, 1 Umschlag, 1 M re, 15.R (= 7.R = Rück-R): 1 re, 1 re veschr., die R re zu Ende stricken (der LETZTE Umschlag = Loch) usw.

23.06.2014 - 17:50

country flag Sabine Habke wrote:

Leider komme ich nicht mit der Anleitung klar. Die ersten 11 R. und dann wiederholen. Die Löcher sind dann nicht da wo sie sein sollen. Ich bitte um Hilfe

12.06.2014 - 08:23

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, die Zunahmen (= Umschläge) erfolgen in jeder 4. R immer nur nach der ersten und vor der letzten M(also 2 Umschläge pro Zunahme-R), dazwischen stricken Sie einfach rechts. In der darauffolgenden Rück-R stricken Sie den 1. Umschlag verschränkt, damit sich kein Loch ergibt, und den 2. Umschlag normal, damit sich ein Loch ergibt. Die Streifenfolge stricken Sie wie in R 4-11 beschrieben.

13.06.2014 - 15:14

country flag Ruth wrote:

Der einfarbige Schluss funktioniert nicht wie beschrieben. Auch nach drei Interpretationsvarianten wurde das Tuch nicht symetrisch. Trotzdem schön.

19.05.2014 - 07:23

country flag Johanna wrote:

Jag har precis stickat färdigt min och den blev fin. Jag behövde dock bara 4 nystan av den färg som motsvarar grålila och har mycket kvar på de sista använda nystanen av båda färgerna, så det blir till att göra tillbehör med allt överblivet garn. Det gör i och för sig absolut ingenting =)

05.02.2014 - 15:04