DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 136-15
DROPS Design: Mynstur nr E-186
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 09, sæblár
100-150-150-150-200-200 gr litur nr 18, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 20 umf með RANDARMYNSTRI verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RANDARMYNSTUR:
* Heklið 2 umf fl með litnum hvítur, síðan 1 umf st og 1 umf fl með litnum sæblár *, endurtakið frá *-*, ekki klippa þráðinn eftir hverja rönd, heldur látið þráðinn fylgja með upp.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umf með fl byrjar með 1 ll, hver umf með st byrjar með 3 ll – þær koma ekki í stað fyrstu fl/st í umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá vinstri hlið. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR!

PILS:
Heklið 269-292-315-339-374-409 ll með heklunál nr 3 með litnum sæblár. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, nú er hekluð 1 fl í hverja af næstu 1-3-5-1-1-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 230-250-270-290-320-350 fl. Snúið við og heklið 1 umf með 1 st í hverja fl. Snúið við og heklið 1 umf með fl. Haldið áfram með RANDARMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12-14-15-17-17-19 cm, eru sett 10 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið eftir 12-13-14-15-16-18 l, næstu 9 prjónamerki eru sett með 23-25-27-29-32-35 l millibili, þá eru eftir 11-12-13-14-16-17 l eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf er hoppað yfir 1 l á undan öllum prjónamerkjunum, þ.e.a.s. það er fækkað um 10 l. Endurtakið úrtöku með 5 cm millibili 2-2-2-2-3-3 sinnum til viðbótar, síðan með 3 cm millibili 2-2-3-3-2-2 sinnum til viðbótar og síðast með 2 cm millibili alls 4-4-3-3-3-3 sinnum – ATH: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf fyrir og eftir prjónamerkin. Eftir úrtöku eru 140-160-180-200-230-260 l í umf og stykkið mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm. Haldið áfram með randarmynstur þar til stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm, endið eftir rönd með litnum blár, klippið frá.

FRÁGANGUR:
Saumið saman pilsið kant í kant í vinstri hlið, skiljið eftir op ca 18 cm efst.

HNESLA:
Meðfram opinu sem liggur að framstykki eru heklaðar lykkjur fyrir hnappagöt með litnum sæblár (byrjið neðst) þannig: Heklið 2 fl, 3 ll, hoppið yfir 1 cm, * heklið 2 cm með fl, 3 ll, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið með 2 fl efst, snúið við og heklið til baka þannig: 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga.

FALDUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram opinu sem liggur að bakstykki eru heklaðar 3 umf með fl fram og til baka með litnum dökk blár, klippið frá.
Saumið tölur í 1. umf í fald fyrir tölur svo þær passi við hneslurnar.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Anne Wieman wrote:

The number of beginning chains seems excessive for each size— using recommenced materials and following size small, 269 foundation chains is equal to 86 inches across the bottom— finished size according to pattern says a small 41 inches wide, not 86. Please advise. Thanks!

27.03.2019 - 19:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wieman, pattern is correct, you are here casting on more chains than the number of sts required on first round - read more here. Happy crocheting!

01.04.2019 - 09:09

country flag Anna wrote:

Buonasera, domando se è possibile lavorare la gonna in tondo anziché in righe di andata e ritorno (per evitare le cuciture) Grazie in anticipo. Il modello è bellissimo!!! Anna

12.07.2018 - 20:53

DROPS Design answered:

Buonasera Anna. Per un risultato uniforme, le consigliamo di lavorare avanti e indietro. Nella gonna è prevista un'apertura in alto, sul lato sinistro per i bottoni. Lavorando in tondo e volendo comunque i bottoni, l'ultima parte della gonna verrebbe lavorata avanti e indietro e sarebbe diversa dalla parte lavorata in tondo. Buon lavoro!

12.07.2018 - 21:30

country flag Lidia wrote:

What does it mean 'repeat dec. every 5 cm 2 more times"? This means dec 10 sts on next two row? Thank you!

21.11.2016 - 13:01

DROPS Design answered:

Dear Lidia, you will dec 1 st before each marker every 2 cm 2 times - you will dec 10 sts (= 10 markers) on each of these 2 rows - and there will be 5 cm between each dec row. Happy crocheting!

21.11.2016 - 13:20

country flag Lidia wrote:

What does it mean "work 1 sc in each of the next 1-3-5-1-1-1 ch"?Thank you!

19.11.2016 - 22:32

DROPS Design answered:

Dear Lidia, you will crochet 1 sc in each of the next 1 ch (= 1st size) - 3 ch (= 2nd size) - 5 ch (= 3rd size) - 1 ch (= 4th,5th and 6th size). Happy crocheting!

21.11.2016 - 09:46

Ann Marie Salvatore wrote:

I love the skirt! Is there a pattern for the blouse that is in the photos? I would love to make the set. Thank you for your time.

14.08.2015 - 09:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Salvatore, please click here to get the pattern to the matching jacket. Happy crocheting!

14.08.2015 - 10:07

country flag Maureen Chambers wrote:

Ok, I just figured out this skirt must begin from the bottom.

03.06.2014 - 16:24

country flag Maureen Chambers wrote:

I live on the Jersey shore and love this skirt for my 27 year old daughter. My Question concerns the length of the beginning chain and first row down to 230 stitches seams to wide, unless you wrap the skirt. Can you explain? Thanks

03.06.2014 - 16:22

Sophie wrote:

Bonjour, j'ai fait cette jupe et au moment de faire les boutonnières ,je me suis aperçue qu'elle était trop petite. Dans le patron c'est dit qu'après les diminutions il reste 140 mailles en S. Mais il me manque un bon 20 à 25 cm?? Je sais pas si je suis la seule? J'ai fait quelques uns de vos modèles et le S est toujours ok. Que puis-je avoir fait de pas correct? Merci P.S. À bonne grandeur elle sera sublime!

03.12.2012 - 22:44

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie, les diminutions commencent à 12 cm (taille S), puis se font 2 x tous les 5 cm + 2x tous les 3 cm + 4 fois tous les 2 cm = 24 cm + les 12 cm = 36 cm. Après les diminutions, vous continuez en rayures jusqu'à 48 cm en ajustant après une rayure bleu marine. Bon crochet !

04.12.2012 - 09:40

country flag Van Den Bremt wrote:

Sorry,ik dacht dat het van de taille te beginnen was,van de onderkant klopt het! Ik ga er aan beginnen,ik vind het zeer mooie,dank u

04.06.2012 - 21:09

country flag Van Den Bremt Viviane wrote:

Ik vind dat er toch veel losse zijn voor maat L,is dat normaal dat het zo breed is,ik heb een proeflapje gemaakt en 22losse voor 10cm.Klopt het dat er zoveel losse moeten zijn,ik vind het breed.

02.06.2012 - 14:13

DROPS Design answered:

De stekenverhouding klopt. Het rokje wordt heen en weer gehaakt in één stuk. Bereken bijvoorbeeld maat S: 230 v / 22 v per 10 cm = 10,45 x 10 = 104,55 cm (totale breedte) / 2 = ca 52,27 cm breedte voor de voorkant/achterkant. Dit klopt ook met de afmeting op de schematekening.

04.06.2012 - 16:26