DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 136-14
DROPS Design: Mynstur nr E-185
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
300-300-350-350-400-400 gr litur nr 09, sæblár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 18, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til þess að 22 l og 20 umf með RANDARMYNSTRI verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 6-6-6-7-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RANDARMYNSTUR:
* Heklið 2 umf fl með litnum hvítur, síðan 1 umf st með litnum sæblár og 1 umf fl með litnum sæblár *, endurtakið frá *-* ca 12 cm, endið eftir heila mynstureiningu.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umf með fl byrjar með 1 ll, hver umf með st byrjar með 3 ll – þessar koma ekki í stað fyrstu fl/st í umf.

ÚRTAKA (á við um hálsmál).
Fækkið lykkjum í byrjun umf með því að hekla kl yfir þann fjölda l sem fækka á.
Fækkið lykkjum í lok umf með því að hekla fram að þeim fjölda l sem fækka á, snúið við.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 192-210-234-257-290-318 ll með heklunál nr 3 með litnum sæblár DROPS Safran.
Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af næstu 1-5-1-3-1-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 164-180-200-220-248-272 fl. Heklið fram og til baka með fl 15-16-17-18-19-20 cm – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Setjið prjónamerki eftir 41-45-50-55-62-68 fl frá hvorri hlið (= 82-90-100-110-124-136 fl milli merkja á bakstykki). Haldið áfram með RANDARMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT í 1. umf í randarmynstri er aukið út um 1 l hvoru megin við merkin í hliðum – aukið út með því að hekla 2 l í 1 l. Endurtakið útaukningu með 2 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 184-200-220-240-268-292 l í umf. Þegar randarmynstri er lokið, mælist stykkið ca 27-28-29-30-31-32 cm. Haldið áfram með litnum blár þannig: * Heklið 2 umf fl, 1 umf st, 1 umf fl *, endurtakið frá *-* að loka máli.
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, er hekluð næsta umf þannig: Heklið á sama hátt og áður yfir fyrstu 41-44-49-53-60-65 l, heklið 62-69-69-76-76-83 ll (= yfir ermi), hoppið yfir 10-12-12-14-14-16 l og heklið yfir næstu 82-88-98-106-120-130 l, heklið 62-69-69-76-76-83 ll (= yfir ermi), hoppið yfir 10-12-12-14-14-16 l og heklið yfir síðustu 41-44-49-53-60-65 l. Snúið við og heklið mynstur eins og áður yfir allar l á fram- og bakstykki, yfir ll-umf á hvorri ermi er heklað þannig: Heklið 1 fl/st (það fer eftir því hvar þú ert í mynstri) í hverja af þeim fyrstu 6 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl/st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* yfir allar ll. Nú eru 272-296-316-344-372-404 l í umf. Setjið 15-16-16-17-17-18 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett í eftir 10-13-16-12-18-15 l, næsta er sett í með 18-18-19-20-21-22 l millibili, nú eru 10-13-15-12-18-15 l eftir síðasta prjónamerki. Heklið 2 umf til viðbótar með mynstri áður en úrtaka byrjar. Nú í næstu umf er fækkað um 1 l á undan hvert prjónamerki (þ.e.a.s. fækkað er um 15-16-16-17-17-18 l) – fækkið lykkjum með því að hoppa yfir 1 l. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 7 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf 2-3-4-5-6-7 sinnum – ATH: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf á undan og eftir prjónamerki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm (mælt frá miðju að framan), fellið af fyrir hálsmáli – SJÁ ÚRTAKA! Fellt er af í hverri umf í hvorri hlið: 8 l 1 sinni, 4 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og síðan 1 l þar til allri úrtöku er lokið á berustykki. Eftir úrtöku eru ca 70 til 90 l eftir í umf, heklið 1 umf til viðbótar, klippið frá.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið ca 85-105 fl með litnum dökk sæblár meðfram vinstri kanti að framan – passið uppá að lykkjufjöldinn hvorki víkki né herði að kantinum. Heklið alls 6 umf með fl fram og til baka, klippið frá.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið á sama hátt og vinstri kantur, en eftir 2 umf er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir – neðsta hnappagatið er ca 2 cm frá uppfitjunarkanti og efsta ca 3 cm frá toppi (það á að vera 1 hnappagat í kanti við hálsmál). 1 hnappagat = 2 ll, hoppið yfir 2 fl og festið með 1 fl í næstu fl. Í næstu umf eru heklaðar 2 fl í hvern ll-boga.

HÁLSMÁL:
Heklið ca 120 til 140 fl kringum hálsmálið (einnig yfir kant að framan) með litnum sæblár. Heklið 4 umf með fl fram og til baka – JAFNFRAMT í umf 2, er fellt af fyrir 1 hnappagati fyrir ofan hin á hægra framstykki. Klippið frá og festið þráðinn.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Andy wrote:

Hola, no puedo encontrarle la vuelta al patron del cuello. Si pudieran darme una explicación sencilla con el talle S. Me quedé barada alli lo demás está terminado

08.04.2024 - 03:40

country flag Vanesa wrote:

¿Después del patrón de franjas se teje todo a p.b o se sigue haciendo como en el patrón de franjas hasta terminar el cuerpo pero solo a 1 color? Gracias

21.05.2023 - 18:41

DROPS Design answered:

Hola Vanesa, como se indica en el patrón: "Continuar con azul marino de la manera sig: * 2 hileras de p.b., 1 hilera de p.a., 1 hilera de p.b. *, repetir de *a* hasta completar las medidas. " Así que tendrás que alternar entre hileras de p.b e hileras de p.a.

21.05.2023 - 19:55

country flag Therese Kristensen wrote:

I had a very difficult time understanding the decrease. 1. When it says \"every 4th row\" is that decrease a row, then crochet three rows, then decrease another row? \r\n2. Is the 8-4-2-1 decrease on the sides repeated until you have completed all of the decreases in the body? Or do you only do that one time?

23.04.2023 - 02:58

DROPS Design answered:

Dear Therese, for question nº1: yes, that's right, you work decreases on 1 row and then work 3 rows without decreases. Now decrease on the next row and work the next 3 rows without decreases. Repeat in this way. for question nº2: decrease 8 sts 1 time, 4 sts 1 time, 2 sts 1 time. From here on, decrease 1 st on every row in each side until the decreases are done. Happy knitting!

23.04.2023 - 20:17

country flag Fransien wrote:

Ik heb alle minderingen van de pas van het vestje gemaakt en moet nu met de halsrand beginnen; ik krijg dan een soort sprong tussen de laatste mindering (middenvoor hals) en de laatste toer van de pas. Ik weet niet hoe ik verder moet! Kunt u mij advies geven?

29.03.2022 - 23:36

DROPS Design answered:

Dag Fransien,

Je kunt halve vasten minderen over het aantal steken dat geminderd moet worden aan het begin van de toer. Op die manier heb je geen sprong. (Dit staat ook aangegeven bovenaan bij 'tip voor het minderen').

04.04.2022 - 13:32

country flag Bieke Van Bauwel wrote:

Beste, Ik ben aan het einde van het vestje, maar ik kom na alle minderingen aan de markeerders en de hals op veel meer dan 70 tot 90 steken? Bij XL start je bij 372 steken en minder je 7x17 en 6x17 steken op 40 toeren, dan nog 28 aan de zijkanten, dan kom ik op 123 steken en is de hoogte nog niet bereikt, en de hals is te breed. Doe ik iets verkeerd? Verder heel leuk model, hopelijk kan ik het tot een goed einde brengen. 🙏 Alvast bedankt. Bieke

26.07.2021 - 19:29

DROPS Design answered:

Dag Bieke,

Je mindert in totaal 8 x 17 steken en 6 x 17 steken op de pas = 238 steken geminderd. Voor de hals minder je in totaal minimaal 14 steken aan beide kanten (8 + 4 + 2), dus 28 steken. 372-238-28=106 steken. Vervolgens minder je steeds 1 steek aan elke kant van de hals totdat alle minderingen voor de pas klaar zijn. Waarschijnlijk kom je dan wel op ongeveer 70 tot 90 steken (70 voor de kleinste maat, 90 voor de grootste maat).

19.08.2021 - 14:03

country flag Josefin wrote:

Hej! Vad syftar "sida" på när man börjar maska av till hals? Förstår inte riktigt

21.03.2021 - 11:04

DROPS Design answered:

Hej Josefin, når du maskar av till hals gør du det i hver side mod midt foran, altså først 8 masker i den ene side (foran) og så 8 masker i den anden side (foran). God fornøjelse!

23.03.2021 - 13:52

country flag Maddalena wrote:

Risulta strana la quantità per la tg. XL Raffaella 28.08.2017 - 17:23: Buongiorno, credo che sia sbagliata l indicazione dei gr da usare per la tg XL . Grazie Raffaella

22.08.2019 - 22:33

country flag Annette wrote:

Jag ställde en fråga den17/4 jag har inte fått något svar ännu

23.04.2019 - 09:44

country flag Annette wrote:

När jag har virkat 41 fm in och gjort den första ökningen, hur gör jag vid nästa ökning? Virkar jag 41fm igen innan jag gör ökning igen, det blir ju fyra maskor mer för varje ökning

17.04.2019 - 11:31

DROPS Design answered:

Hej. Du gör ökningarna på varje sida av markörerna varje gång, totalt 5 gånger (2 cm mellan varje ökning). Det blir alltså 4 maskor mer per ökningsvarv. När ökningarna är färdiga har du 20 mer maskor totalt. Lycka till!

23.04.2019 - 10:29

country flag Janni wrote:

Jeg er lidt i tvivl. Skal man forsætte med mønsteret: 2 rækker fm, 1 række st og 1 række fm, resten af stykket efter stribemønsteret, og helt op til alle aflukningerne?

27.09.2018 - 19:33

DROPS Design answered:

Hej Janni, ja det stemmer, se her: Når stribemønsteret er færdig, måler arb ca 27-28-29-30-31-32 cm. Fortsæt med marineblå således: * 2 rækker fm, 1 række st, 1 række fm *, gentag fra *-* til færdig mål. God fornøjelse!

28.09.2018 - 15:14