DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 5-10
DROPS Design
Garnflokkur B
---------------------------------------------------------

Stærð: mán: 0/3 - 6/9 - 12/18 mán: (2-3/4-5/6)
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92-98/104-110/116)
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
250-250-300 (300-350-400) gr nr 1, natur

Eða notið:
Efni:
DROPS Cotton Merino frá Garnstudio
250-250-300 (300-350-400) gr nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3 OG 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með prjóna nr 3,5 og mynsturprjóni M.5 verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA NR 516: 5-6 st.
---------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu.
---------------------------------------------------------

BOLUR:
Fitjið upp 120-132-144 (168-176-184) l (meðtaldar 2 kantlykkjur) á hringprjóna nr 3 með natur og prjónið M.1 (1. umf = rétta þegar stykkið er prjónað fram og til baka) með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan í 4-4-4 (5-5-5) cm.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið l yfir 1. umf þannig:
Stærð 0/3 - 6/9 - 12/18 mán: 1 kantlykkja, 4 l af M.5, 1 l br, M.4, 1 l br, 83-95-107 l af M.5, 1 l br, M.4, 1 l br, 4 l af M.5, 1 kantlykkja jafnframt því sem aukið er út um 1 l við miðju að aftan = 121-133-145.
Stærð 2 - 3/4 - 5/6 ára: 1 kantlykkja, 4 l af M.5, 1 l br, M.4, 1 l br, 5 l af M.5, 1 l br, M.3, 1 l br, 107-115-123 l af M.5, 1 l br, M.2, 1 l br, 5 l af M.5, 1 l br, M.4, 1 l br, 4 l af M.5, 1 kantlykkja jafnframt því sem aukið er út um 3 l jafnt yfir í 1. umf = 171-179-187 l.
Haldið áfram að prjóna mynstur uppúr. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 18-19-22 (26-27-29) cm skiptist stykkið þannig: 33-36-39 (47-49-51) l framstykki, 55-61-67 (77-81-85) l bakstykki, 33-36-39 (47-49-51) l framstykki. Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 33-36-39 (47-49-51) l. Þegar stykkið mælist 25-27-31 (36-40-43) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umf: 9-10-11 (12-14-15) l 1 sinni, 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 28-30-34 (39-43-46) cm jafnframt sem í 3 stærstu stærðunum eru felldar af 3 l jafnt yfir M.3 í næst síðustu umf.

BAKSTYKKI:
= 55-61-67 (77-81-85) l. Þegar stykkið mælist 27-29-33 (38-42-45) cm fellið af miðju 17-19-21 (23-27-29) l fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 l á hvorri hlið í næstu umf við hálsmál. Fellið af þær l sem eftir eru 17-19-21 (25-25-26) l fyrir öxl þegar stykkið mælist 28-30-34 (39-43-46) cm.

ERMI:
Fitjið upp 40-44-44 (48-48-52) l á sokkaprjóna nr 3 með natur og prjónið M.1 í 4-4-5 (5-5-5) cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur yfir 1. umf þannig: 14-15-16 (17-17-19) l af M.5, 1 l br, M.4, 1 l br, 14-15-16 (17-17-19) l af M.5 jafnframt er aukið út um 2-0-2 (0-0-0) l jafnt yfir í 1. umf = 42-44-46 (48-48-52) l. JAFNFRAMT á eftir M.1 er aukið út um 2 l mitt undir ermi 3-4-5 (6-13-13) sinnum í stærð:
0/3 + 12/18 mán:Í 7. hverri umf
6/9 mån: Í 8. hverri umf
2 ára: Í 6. hverri umf
3/4 ára: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf
5/6 ára: Til skiptis í 4. og 5. hverri umf = 48-52-56 (60-74-78) l.
Þegar stykkið mælist 13-17-19 (20-24-28) cm eru felldar af 4 l mitt undir ermi og prjónið til loka fram og til baka. Fækkið síðan lykkjum í hvorri hlið fyrir öxl í annarri hverri umf: 5-5-6 (7-9-10) l 2 sinnum, 4-6-6 (6-9-9) l 1 sinni = 16-16-16 (16-16-16) l. Þær l sem eftir eru halda áfram að prjónast inn í mynstur eins og áður í 7,5-8,5-9,5 (11,5-11,5-12) cm. Fellið af. Prjónið aðra ermi.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið axlasauma frá bol að M.4 frá ermi með lykkjuspori yst í lykkjubogann.
Saumið ermarnar saman við miðju að aftan.

Takið upp ca 63-67-79 (91-99-107) l (deilanlegt með 4 l + 2 l + 1 kantlykkju upp við háls) meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 3 með natur og prjónið M.1 í 2,5 cm fram og til baka, fellið af. Endurtakið meðfram hægra framstykki, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 5-6 hnappagötum jafnt yfir – 1 hnappagat = fellið af 2 l og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.

Takið upp ca 110-112 l í kringum hálsmál (deilanlegt með 4 l + 2 l) á hringprjóna nr 3 með natur og prjónið 1 umf br séð frá réttu og áfram M.1 (1. umf = rétta) fram og til baka í 2 cm, prjónið 2 umf slétt og fellið af. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 5-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Mirjam Goudswaard wrote:

Goede morgen, Moet je na de 4 cm boordsteek van het lijf niet overgaan op nld.nr. 3.5? Hoor graag van U want ik ben bijna zover dat de boord klaar is :) Groetjes Mirjam

10.03.2021 - 09:41

DROPS Design answered:

Dag Mirjam,

Ja, inderdaad, dat denk ik ook! Ik zal het doorgeven ter correctie!

18.03.2021 - 11:03

country flag Mirjam Goudswaard wrote:

Worden van een telpatronen alleen de heengaande naalden afgebeeld en moeten de teruggaande naalden worden gebreid zoals de steken zich voordoen of toont het schema alle naalden. bv patroon M.1 zijn dat in totaal 6 naalden of 12 naalden? Hoor graag van U. Groetjes Mirjam

08.03.2021 - 00:43

DROPS Design answered:

Dag Mirjam,

Nee, zowel de heengaande als de teruggaande naalden worden weergegeven. Op de teruggaande naalden worden de steken gebreid zoals ze zich voordoen, dus recht op de goede kant is averecht op de verkeerde kant en averecht op de goede kant is recht op de verkeerde kant. M.1 zijn dus in totaal 6 naalden.

09.03.2021 - 11:46

country flag Mona wrote:

Hei Angående mønster Drops baby 5 - 10 Finner ikke diagrammene. Vennligst legg ut en link til mønsteret som inneholder flette diagrammene.

09.09.2018 - 21:10

DROPS Design answered:

Hei Mona. Vi har for øyeblikket tekniske problemer med siden vår, dette medfører at diagrammer og bilder dessverre ikke lastes ordentlig. Vi jobber med å løse problemet, og siden vil være tilbake som normalt så snart som mulig. Du kan følge med på vår twitter eller facebookside for oppdateringer. Beklager dette

10.09.2018 - 11:52

country flag Mona wrote:

Hei Begynte på dette mønsteret i går, men nå kommer jeg ikke inn igjen på riktig mønster, for på dette mønsteret mangler diagrammene.

09.09.2018 - 21:06

country flag Siri Olsson wrote:

Cotton Merino Mod.U027 str. 12/18 mnd Forstykke: "når arb. måler 31 cm fell hver 2. Pinne 11m ... hva betyr: "x1,3m x 1,2 m x2"?? Oh hvor mange masker skal det være igjen på pinnen når det felles av?

09.05.2018 - 19:48

DROPS Design answered:

Hei Siri, Du skalle felle av til hals annenhver pinne på forstykket. Da skal du felle av 11 masker 1 gang, 3 masker 1 gang, og 2 masker 2 ganger. Det skal det være 21 masker igjen etter alle fellinger. God fornøyelse!

11.05.2018 - 08:11

Camilla Danielsson wrote:

Tillägg till min tidigare fråga: insåg nu att det helt enkelt väl är så att den lilla flätan inte alls ska finnas i storlekarna under 1 år 😊

29.01.2018 - 10:28

DROPS Design answered:

Hej Camilla, bra att du löste det :)

12.02.2018 - 16:10

Camilla Danielsson wrote:

På bilden syns en snodd fläta på sidan om den fläta som beskrivs i M4, men när man stickar enligt beskrivningen så saknas ju de snodda flätorna helt? Vad är det för fel? Kan det möjligen vara så att det borde stå 1 kantm, 5m av M4 osv istället för 1 kantm, 4m av M5 osv ? Fast då stämmer ju inte stickans totala maskantal längre. Eller vad är det jag gör för fel? Hoppas ni förstår vad jag menar, stickar enligt beskrivningen för storlek 6-9 mån.

28.01.2018 - 22:42

DROPS Design answered:

Hej du stickar nog korrekt. Jackan på bilden är stickad i en större storlek, där det blir fler flätor.

31.01.2018 - 13:31

country flag Edi Sime wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas comment tricoter les manches. Que veut dire Joindre après avoir monté les mailles? Merci pour votre réponse

17.12.2017 - 17:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sime, la vidéo ci-dessous montre comment monter les mailles sur aiguilles doubles pointes, joindre (= fermer en rond) et tricoter en rond sur ces mêmes aiguilles. Bon tricot!

18.12.2017 - 08:58

country flag Laurence wrote:

Bonjour, je suis arrivée aux diminutions de la manche. Je fais la taille 6/9mois. J'ai donc après les augmentations 52 mailles.Rabattre 2mailles de chaque côté restent 48mailles, puis 5 mailles deux fois=28mailles, puis 6 mailles de chaque côté= 16mailles. Si je rabats 16 mailles comme indiqué, comment continuer sur 8,5 cm de plus pour l'épaule? Est ce qu'il faut en fait tricoter ces 16 mailles avant de rabattre? merci pour votre aide.

11.05.2016 - 15:37

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, effectivement, une erreur s'était glissée dans la traduction, on rabat (en taille 6/9 mois): 1 fois 4 m, puis 2 fois 5 m, il reste 16 m. On continue sur ces 16 m comme avant pour la petite bande au-dessus de l'épaule. Bon tricot!

11.05.2016 - 16:10

country flag Marja wrote:

Dag mevrouw/meneer Als ik baby patroon 5-10 vergelijk met 6-1 zijn er grote verschillen in de maten en het aantal te meerderen steken. Patroon 6-1 wil ik maken. 12/18 mnd 146 steken opzetten en na de boord 32 steken meerderen!!! Bij patroon 5-10 144 steken opzetten voor het lijf en NIET meerderen. Hoe kan dat??? hartelijke groet Marja

29.10.2014 - 12:53

DROPS Design answered:

U vergelijkt twee verschillende modellen, met elk hun eigen pasvorm. Het aantal steken is afgestemd op het garen, de gebruikte naalden en de kabelpatronen - verschillende soorten structuurpatronen vragen om verschillende aantallen steken om tot het juiste resultaat te komen.

31.10.2014 - 08:39