DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8778.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Paride

Heklað vesti / slipover úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-25
DROPS Design: Mynstur sk-110
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-200-200-200-250 g litur 06, sægrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-75-100-100-100 g litur 24, bensín

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 7 umferðir á hæðina (með annarri hverri umferð með fastalykkjum og tvíbrugðnum stuðlum) og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8778.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJU:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð þegar heklað er í hring.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar 4 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð þegar heklað er í hring.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í eina lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vestið er heklað fram og til baka í stykkjum ofan frá og niður. Síðan eru axlasaumarnir saumaðir saman og að lokum er kantur í hálsmáli heklaður í hring. Allar umferðir frá röngu eru heklaðar með fastalykkjum og allar umferðir frá réttu eru heklaðar með tvíbrugðnum stuðlum.

VESTI:
BAKSTYKKI:
Hægri öxl:
Heklið 18-18-18-18-18-19 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJUR, með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Snúið og heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 4 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju frá uppfitjunarkanti = 18-18-18-18-18-19 tvíbrugðnir stuðlar.
UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og geymið stykkið.
Vinstri öxl:
Heklið 18-18-18-18-18-19 loftlykkjur með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Snúið og heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 4 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju frá uppfitjunarkanti = 18-18-18-18-18-19 tvíbrugðnir stuðlar.
UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
UMFERÐ 3: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af fyrstu 17-17-17-17-17-18 lykkjum, heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), heklið 17-18-19-21-22-22 lausar loftlykkjur (= hálsmál), heklið síðan yfir lykkjur að hægri öxl frá réttu þannig: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla í fyrstu lykkju, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af síðustu 17-17-17-17-17-18 lykkjum = 55-56-57-59-60-62 lykkjur í umferð.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram fram og til baka með tvíbrugðnum stuðlum frá réttu og fastalykkjum frá röngu þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm mælt frá öxl – jafnframt í síðustu umferð með fastalykkjum er aukið út um 0-1-0-0-1-1 lykkju í umferð með því að hekla 2 lykkjur í eina lykkju = 55-57-57-59-61-63 lykkjur.
Heklið nú kant með stuðlakrókum þannig:
Heklið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkjuna í A.1. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka mælist stykkið alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

FRAMSTYKKI:
Vinstri öxl:
Heklið 18-18-18-18-18-19 loftlykkjur með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Snúið og heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 4 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju frá uppfitjunarkanti = 18-18-18-18-18-19 tvíbrugðnir stuðlar.
UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
Haldið síðan áfram með tvíbrugðna stuðla frá réttu og fastalykkjur frá röngu, jafnframt í 3. umferð byrjar útaukning fyrir hálsmáli – sjá ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju í 2. lykkju frá kanti í hægri hlið á stykki (= að hálsmáli) – þ.e.a.s. í byrjun á umferð frá réttu og í lok umferðar frá röngu. Aukið svona út í hverri umferð alls 4 sinnum = 22-22-22-22-22-23 lykkjur. Þegar 6. umferð hefur verið hekluð til loka er klippt frá. Geymið stykkið og heklið hægri öxl.

Hægri öxl:
Heklið 18-18-18-18-18-19 loftlykkjur með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Snúið og heklið mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 4 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju frá uppfitjunarkanti = 18-18-18-18-18-19 tvíbrugðinn stuðull.
UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju.
Haldið áframa með tvíbrugðna stuðla frá réttu og fastalykkjur frá röngu, jafnframt í 3. umferð byrjar útaukning fyrir hálsmáli – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju í 2. lykkju frá kanti í vinstri hlið á stykki (= að hálsmáli) – þ.e.a.s. í lok umferðar frá réttu og í byrjun á umferð frá röngu. Aukið svona út í hverri umferð alls 4 sinnum = 22-22-22-22-22-23 lykkjur. Þegar 6. umferð hefur verið heklað til loka er næsta umferð hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af fyrstu 20-20-20-20-20-21 lykkjum, heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju, 1 tvíbrugðinn stuðul í síðustu lykkju, heklið 9-10-11-13-14-14 lausar loftlykkjur (= hálsmál), heklið síðan áfram yfir lykkjur frá vinstri öxl frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í fyrstu lykkju, 2 tvíbrugðnir stuðlar í næstu lykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja af síðustu 20-20-20-20-20-21 lykkjum = 55-56-57-59-60-62 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með tvíbrugðna stuðla frá réttu og fastalykkjum frá röngu þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm mælt frá öxl – jafnframt í síðustu umferð með fastalykkjum er aukið út um 0-1-0-0-1-1 lykkjur í umferð með því að hekla 2 lykkjur í eina lykkju = 55-57-57-59-61-63 lykkjur.
Heklið nú kant með stuðlakrókum þannig:
Heklið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.1. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka mælist stykkið alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með 1 þráð í hvorri tegund. Saumið í lykkjur eina og eina til að saumurinn verði ekki stífur.
Klippið 3 þræði Sky + 3 þræði Kid-Silk (= 6 þræðir) ca 100 cm. Þræðið þræðina í gegnum stykkið innan við 2 fastalykkjur meðfram hlið og ca 22 cm upp frá neðri kanti.
Leggið þræðina þannig að þeir liggi tvöfaldir = 12 þræðir, skiptið þráðunum niður í 3 hluta með 4 þráðum í hverjum hluta, fléttið fléttu. Gerið einn hnút neðst á fléttunni þannig að hún rakni ekki upp. Klippið þræðina til. Endurtakið á framstykki/bakstykki í hvorri hlið á stykki. Hnýtið flétturnar saman í slaufu til að tengja stykkin saman.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni og heklið 68 til 76 fastalykkjur frá réttu í kringum kant í hálsmáli með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) með heklunál 5,5. Heklið í hring þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja lykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð.
Endurtakið 1. og 2. umferð hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með fastalykkjum. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju

symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 stuðlakrókur-fjórbrugðinn stuðull. Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, en utan um sjálfan tvíbrugðna stuðulinni) þannig: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja.
symbols = Byrjið í þessari umferð. Fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð.
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Barbara Hell wrote:

Hallo möchte gern dieses Teil häkeln, aber ich möchte anstatt 2 Fäden gern nur eine Wolle nehmen ! was könnt ihr ihr ihr da empfehlen?Vielen Dank

11.01.2021 - 07:59

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hell, hier finden Sie Modellen, die mit einer Häkelnadel 5,5 auch gehäkelt werden, prüfen Sie mal die Maschenprobe in der Breite und so können Sie Alternativen mal schauen - am besten immer eine Maschenprobe zuerst häkeln, so sehen Sie ob der Strucktur Ihnen gefällt. Ihr DROPS Händler wird Ihnen gerne weiterhelfen, das richtige Garn zu finden - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim häkeln!

11.01.2021 - 10:55

country flag Catherine wrote:

Bonjour, je souhaite faire ce débardeur mais avec un seul fil, quel fil pourrait correspondre ? je voudrais également assembler les côtés, y a t-il des mesures à modifier? ou y aurait-il un modèle de débardeur avec col roulé ou cheminée en crochet ? Merci C.

14.10.2020 - 22:53

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, en fonction de la texture que vous préfèrerez, vous pouvez utiliser DROPS Air (ex de modèles crochetés sur la même base) ou bien DROPS Melody (= laine du groupe D) suggéré en alternative à DROPS Sky+ DROPS Kid-Silk ici - Rappelez-vous quoi qu'il en soit de toujours bien vérifier votre échantillon. Bon crochet!

15.10.2020 - 11:38

country flag Isah wrote:

Bonsoir je ne vois aucun diagramme dans le dessin juste les mesures, c'est bien dommage, pour les explications :(

19.09.2020 - 19:35

DROPS Design answered:

Bonjour Isah, vous trouverez le diagramme A.1 juste à côté du schéma des mesures, c'est un, tout petit diagramme de 2 mailles sur 3 rangs (dont 2 à répéter). Bon crochet!

21.09.2020 - 15:47

country flag Maria Cecchinato wrote:

Posso usare un filato di tipo C (tipo Big Merino) invece dei proposti A+B? Grazie

01.09.2020 - 22:13

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, il gruppo filati C corrisponde a 2 capi del filato A. Se lo vuole utilizzare in questo modello, deve lavorare un campione e verificare che corrisponda a quello indicato. Buon lavoro!

01.09.2020 - 22:54