DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Cocoon

Prjónað vesti / bolero úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað fram og til baka með gatamynstri og perluprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-35
DROPS Design: Mynstur ee-663
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – L/XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600-700-800-850 g litur 83, malva

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 9: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út um 1 lykkju innan við 5 lykkjur perluprjón í hvorri hlið. Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni – þangað til að hægt er að prjóna heila mynstureiningu til viðbótar með gatamynstri í hvorri hlið á stykki. ATH: Það á alltaf að vera minnst 2 lykkjur sléttprjón innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni áður er prjónað er eitt auka gatamynstur að hlið, þ.e.a.s. eins og útskýrt er í 13. umferð í mynstri í A.1 og A.3.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur) mínus 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (= 2 lykkjur) og deilið afgang af lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 10,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 11. hverri lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður og saumað saman í hið undir ermum.

VESTI:
Fitjið upp 91-99-107-115 lykkjur á hringprjón 9 með Snow. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 10 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 10 lykkjur, A.2 þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 9-10-11-12 mynstureiningar á breidd), A.3 yfir næstu 7 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 21-23-25-26 cm fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða fyrir ermar = 99-107-115-123 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur þannig: 5 lykkjur perluprjón, mynstur eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, 5 lykkjur perluprjón. Þegar stykkið mælist 52-60-66-70 cm aukið út um 1 lykkju innan við 5 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 10-10-11-11 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-40-44-46 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermar, fellið síðan af fyrstu 4 lykkjur í næstu 2 umferðum (= 1 kantlykkja í hvorri hlið. Þessi kantlykkja er síðan prjónuð í garðaprjóni). Nú heldur útaukningin áfram innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 111-119-129-137 lykkjur eftir í umferð. Haldið síðan áfram með mynstur og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 11-13-15-16 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir ermar – en passið uppá að mynstrið endi eftir heilt gatamynstur á hæðina (þ.e.a.s. eftir 8. eða 16. umferð í mynsturteikningu). Ef ekki er pláss fyrir heila mynsturteikningu á hæðina er prjónað sléttprjón í nokkrar umferðir áður en prjónað er áfram þannig: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-12-14-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 121-131-143-153 lykkjur. Prjónið nú perluprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar í 10 cm. Stykkið mælist ca 80-88-96-100 cm. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja).

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum og hliðarsauma í eitt – strikuð lína í mynsturteikningu. Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = teikningin sýnir hvernig stykkið lítur út eftir frágang
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag María Cristina wrote:

No puedo ver el diagrama en esta explicación en español, podrías ayudarme, gracias Te felicito por lo bien explicadas que están dadas las instrucciones del paso a paso en todos los modelos que he tejido

26.05.2023 - 23:24

DROPS Design answered:

Hola María Cristina, los diagramas deberían estar visibles, en la parte inferior del patrón, después de las instrucciones escritas. A veces puede ser que, por alto tráfico de la página, no se carguen las imágenes de los diagramas; en ese caso recomendamos esperar y probar más tarde o probar con otro navegador.

28.05.2023 - 16:58

country flag Barbara Peterson wrote:

Question: I do not see the yardage required listed for the size I want to make. That info does not appear on the pattern instructions. I already have the yarn I'd like to use for the project, just need to know if I have enough before beginning. Without that info, there is no point in my starting the project if I do not have enough yarn of the same dye-lot to complete it.

22.01.2023 - 22:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Peterson, you will need the required amount of yarn in each size under the header, ie in size S/M for example you need 600 g DROPS Snow /50 g a ball = 12 balls. Read more about the yarn on its shadecard. Happy knitting!

23.01.2023 - 10:16

country flag Barbara Peterson wrote:

My question is not how much yardage is in each skein but the total amount of yardage it takes to complete the pattern? I have the yarn to make it, just need to know if I have enough before starting the project.

22.01.2023 - 08:38

DROPS Design answered:

Hello again, Barbara, Depending on the size you are working, you need the number of skeins stated in the pattern. This will give you the total yardage when you multiply the number of skeins by 55. Happy knitting!

22.01.2023 - 12:31

country flag Barbara Peterson wrote:

I don't see the yardage required for this pattern. I must be missing something?

21.01.2023 - 23:05

DROPS Design answered:

Hi Barbara, Drops Snow has approx. 55 yards per skein. Happy knitting!

22.01.2023 - 08:25

country flag Janne wrote:

Hello, I have been alternating the instructions between English and Estonian. There is a mistake in the Estonian version doesn't specify when stitches for the sleeve should be cast off. Both instructions don't clarify my question- states to cast on stitches, start with moss stitches and then it directs to follow the pattern. But when the pattern directs to cast on sleeve stitches it states to continue 5 stitches in moss stitch, which wasn't mentioned before. Could you please clarify?

01.09.2021 - 00:20

DROPS Design answered:

Dear Janne, the stitches for the sleeves are cast on when the piece measures 21-23-25-26 cm. From here on, the farthest 5 stitches on each side are worked in moss stitch for the sleeve edges. When the piece measures 36-40-44-46 cm, cast off stitches for the sleeves and continue working only the pattern. Happy knitting!

01.09.2021 - 13:11

country flag Marie Lefèvre wrote:

Bonjour, merci bcp pr ce très joli modèle. Je suis arrivée aux augmentations 1, mais je ne comprends pas à quel moment je peux ajouter un nouveau motif ajouré. J'ai déjà 105m en aillant rabattu 2 fois les 4mailles pr de riz. Pourriez-vous m'aider svp ? Merci d'avance pour votre bonne attention

19.08.2021 - 11:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lefèvre, vous devez tricoter les nouvelles mailles en point fantaisie ajouré. En début de rang, il vous faudra avoir augmenté 2 m (= 1 motif ajouré toutes les 3 m) pour la 1ère moitié du diagramme et après avoir augmenté 6 m pour la 2ème moitié du diagramme (= 1 motif ajouré = 5 m, espacés chacun de 3 m). Bon tricot!

19.08.2021 - 14:35

country flag Vineeta Bhandari wrote:

This is a pretty design for the cocoon shrug. Can I knit this design on straight needles. If so can you please can you share the written instructions instead of pictorial as I find it easier to work with the written instructions for the pattern. Thank you.

09.08.2021 - 09:33

DROPS Design answered:

Hi Vineeta, The reason we recommend circular needles is the number of stitches used when working the shawl. Sadly, we don't have written instructions for this pattern at the moment. Kind regards, Drops Team.

09.08.2021 - 09:52

country flag Morgane Tralala wrote:

Bonjour. Votre modèle est vraiment très beau mais je ne suis pas sure d’avoir bien compris. Après avoir tricoter les 10cm en point de riz, on vient tricoter A1, puis A2 le nombre de fois nécessaire selon la taille du modèle choisi puis terminer avec A3. Est-ce que c’est bien ça ?

14.06.2021 - 12:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tralala, pas exactement, vous tricotez d'abord vos 10 cm point de riz, puis vous tricotez les diagrammes ainsi, vu sur l'endroit: 1 maille lisière au point mousse, puis les 10 mailles suivantes en suivant le diagramme A.2, puis vous répétez A.2 jusqu'à ce qu'il reste 8 mailles (on répète 9 à 12 fois A.2 en largeur selon la taille) et on termine le rang par A.3 (= 7 mailles) et 1 maille lisière au point mousse. Cette leçon explique comment tricoter plusieurs diagrammes à suivre sur un seul rang. Bon tricot!

14.06.2021 - 16:27

country flag Cathy wrote:

I love this pattern but I am allergic to wool. Which acrylic yarn would be a good match?

06.05.2021 - 11:44

DROPS Design answered:

Dear Cathy, please understand, that these patterns are made available to support DROPS yarns, so we cannot advise you on other brands. From the DROPS selection, you might find something suitable, with the help of THIS lesson. Happy Crafting!

06.05.2021 - 12:11

country flag Saloua Ben Romdhane wrote:

Bonsoir, j’ai presque terminé le travail, mais je n’ai pas compris compris la manière de le coudre ! Vous dîtes « faire la couture sous les manches et celles des côtes d’une seule traite » puis-je avoir une explication plus simple merci

06.12.2020 - 21:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ben Romdhane, la couture correspond aux lignes pointillés du schéma: commencez par la bordure des manches (les mailles montées et rabattues de chaque côté) jusqu'au bout des manches puis prolongez cette couture en assemblant les côtés. Bonnes finitions!

07.12.2020 - 08:41