DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Aegean

Ermalaus peysa með gatamynstri, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.

DROPS 177-24
DROPS Design: Mynstur vs-031
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200-250-250 g litur 14, ljós blár
200-200-200-250 g litur 15, gallabuxnablár

ATH: Ef hekla á flíkina með einum lit þá þarf 350-400-400-450 g Belle.

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verða 10 cm á breidd og 10 cm á hæð – 1 mynstureining A.3 á að mælast 5 cm á breidd og síðustu 4 umferðirnar í mynsturteikningu mælist 3,5 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur
Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning A.1a og A.1b sýna hvernig umferðin byrjar og endar. Mynsturteikning A.2 og A.4 er notað á hliðum í stærð S/M og XXL.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Hægri öxl:
Byrjið með litinn ljós blár með heklunál 4 og heklið 62-66-72-77 loftlykkjur. Snúið stykkinu og heklið 1 st í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið 1 stuðul í hverja af næstu 2-6-5-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 7-7-8-9 sinnum til viðbótar = 52-56-61-65 stuðlar. Haldið áfram frá 2. umferð í mynsturteikningu (= umferð merkt með ör) og heklið mynstur mismunandi eftir stærðum frá réttu þannig:

Stærð S/M og XXL:
Heklið A.1b (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 45-54 stuðla (= 5-6 mynstureiningar), A.4 yfir næstu 5 stuðla (= 1 mynstureining), A.1a (= 1 lykkja). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið 3. umferð til baka frá röngu. Klippið frá.
Stærð L/XL og XXXL:
Heklið A.1b (= 1 lykkja), heklið A.3 yfir næstu 54-63 stuðla (= 6-7 mynstureiningar), A.1b. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið 3. umferð til baka frá röngu. Klippið frá.

Vinstri öxl:
Heklið loftlykkjur og fyrstu umferð alveg eina og hægri öxl = 52-56-61-65 stuðlar.
Haldið áfram frá 2. umferð í mynsturteikningu (= umferð merkt með ör) og heklið mynstur í mismunandi stærðum frá réttu þannig:
Stærð S/M og XXL:
Heklið A.1a, heklið A.2 yfir næstu 5 stuðla (= 1 mynstureining), A.3 yfir næstu 45-54 stuðla (= 5-6 mynstureiningar), heklið A.1b. Heklið 3. umferð til baka frá röngu. Klippið ekki frá!
Stærð L/XL og XXXL:
Heklið A.1b, heklið A.3 yfir næstu 54-63 stuðla (= 6-7 mynstureiningar), heklið A.1b. Heklið 3. umferð til baka frá röngu. Klippið ekki frá!

Allar stærðir:
Heklið vinstri og hægri öxl saman með því að halda áfram frá 4. umferð í mynsturteikningu og heklið nýjar loftlykkjur fyrir hálsmáli þannig:
Heklið mynstur eins og áður yfir vinstri öxl, heklið 36 nýjar loftlykkjur fyrir hálsmáli (= umferð 1 í A.5) haldið áfram með mynstur eins og áður yfir hægri öxl.
Snúið við og heklið til baka yfir hægri öxl þar til 1 lykkja er eftir á undan nýju 36 loftlykkjunum og hoppið yfir þessa lykkju. Heklið frá 2. umferð í A.5 (= umferð merkt með ör) yfir 36 nýju loftlykkjurnar (= 4 mynstureiningar). Hoppið yfir næstu lykkju (= fyrsta lykkjan á vinstri öxl) og heklið mynstur eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu.
Endurtakið 4 síðustu umferðirnar á hæðina og heklið A.3 yfir A.5 (= alls 14-16-16-18 mynstureiningar A.3 á breidd). Þegar 4 síðustu umferðirnar hafa verið heklaðar alls 5-5-6-6 sinnum á hæðina frá öxl og stykkið mælist ca 20-20-23-23 cm frá öxl er skipt yfir í litinn gallabuxnablár.
Síðustu mynstureiningarnar í báðum hliðum á stykki eru ermar og eru ekki heklaðar áfram. Heklið síðan eftir stærðum þannig:

Stærð S/M og XXL:
Haldið áfram með mynstur frá umferð 3 (= frá röngu):
Hoppið yfir A.1a, A.4, 2-1 mynstureiningar A.3 og fyrsta loftlykkjubogann í næstu mynstureiningu A.3 fyrir ermi. Byrjið í næsta loftlykkjuboga á 3 loftlykkjum (= miðju loftlykkjubogann í mynstureiningu A.3) og heklið A.1a um þennan loftlykkjuboga, heklið A.4, heklið A.3 alls 8-12 sinnum, A.2 og endið með A.1a um miðju loftlykkjubogann (með 3 loftlykkjum) í næstu mynstureiningu af A.3. Snúið stykkinu.
Stærð L/XL og XXXL:
Haldið áfram með mynstur frá umferð 3 (= frá röngu).
Hoppið yfir A.1b, 2-1 mynstureining A.3 og hoppið yfir 2 næstu loftlykkjuboga í næstu mynstureiningu A.3. Byrjið í næsta loftlykkjuboga (= síðasti loftlykkjuboginn í A.3) og heklið A.1b um þennan loftlykkjuboga, heklið A.3 alls 10-14 sinnum á breiddina, heklið A.1b um næsta loftlykkjuboga (= fyrsti loftlykkjuboginn í næstu mynstureiningu A.3). Snúið stykkinu.

Allar stærðir:
Nú er búið að hoppa eins yfir alveg eins mynstur í hvorri hlið fyrir ermum.
Haldið nú áfram fram og til baka með mynstur þar til stykkið mælist ca 43-47-51-54 cm frá öxl – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð af A.3.
Klippið frá og festið enda.

FRAMSTYKKI.
Vinstri öxl.
Heklið loftlykkjur og fyrstu umferð alveg eins og á öxlum og á bakstykki = 52-56-61-65 stuðlar.
Haldið áfram frá umferð 2 í mynsturteikningu (= umferð merkt með ör) og heklið mynstur í mismunandi stærðum frá réttu þannig:
Stærð S/M og XXL:
Heklið A.6b yfir fyrstu 10 stuðlana, A.3 yfir næstu 36-45 stuðla (= 4-5 mynstureiningar), A.4 yfir næstu 5 stuðla, A.1a.
Þegar A.1a, A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina eru endurteknar síðustu 4 umferðirnar, en þegar umferð 9 hefur verið hekluð til loka (= umferð merkt með stjörnu í A.6b) klippið frá.
Stærð L/XL og XXXL:
Heklið A.6b yfir fyrstu 10 stuðlana, heklið A.3 yfir næstu 45-54 stuðlana (= 5-6 mynstureiningar), A.1b. Þegar A.1b og A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina eru endurteknar 4 síðustu umferðirnar, en þegar umferð 9 hefur verið hekluð til loka (= umferð merkt með stjörnu í A.6b) klippið frá.

Hægri öxl:
Heklið loftlykkjur og fyrstu umferð alveg eins og í byrjun á hinni öxlinni = 52-56-61-65 stuðlar.
Haldið áfram frá umferð 2 í mynsturteikningu (= umferð merkt með ör) og heklið mynstur í mismunandi stærðum frá réttu þannig:
Stærð S/M og XXL:
Heklið A.1a, heklið A.2 yfir næstu 5 stuðla, A.3 yfir næstu 36-45 stuðla (= 4-5 mynstureiningar), heklið A.6a yfir þá 10 stuðla sem eftir eru.
Stærð L/XL og XXXL:
Heklið A.1b, heklið A.3 yfir næstu 45-54 stuðlana (= 5-6 mynstureiningar), heklið A.6a yfir þá 10 stuðla sem eftir eru.

Allir stuðlar:
Þegar mynstrið hefur verið heklað til loka á hæðina (nema A.6a) eru 4 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu endurteknar. Hægri og vinstri öxl eru heklaðar saman í 10. umferð þannig: Heklið 10. umferð í A.6a yfir hægri öxl, heklið 18 nýjar loftlykkjur og heklið 10. umferð í A.6b yfir vinstri öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina. Snúið við og heklið 1 umferð til baka (= 11. og síðasta umferð í mynsturteikningu). Heklið A.7 alls 2 sinnum um 18 nýju loftlykkjurnar.
Nú eru 14-16-16-18 mynstureiningar A.3 á breidd.
Heklið síðan alveg eins og bakstykki – stillið af að heklaðar séu jafnmargar mynstureiningar á hæðina eins og á bakstykki áður en skipt er um lit yfir í litinn gallabuxnablár. Síðustu mynstureiningarnar í hvorri hlið fyrir ermar eiga ekki að heklast, alveg eins og á bakstykki.
Athugið vel að það séu jafnmargar mynstureiningar á hæðina eins og á bakstykki. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Axlasaumar. Saumið axlirnar saman kant í kant í hverja lykkju með litnum ljós blár.
Saumar undir ermum: Saumið með litnum ljós blár í ystu lykkjuna svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Saumar á hliðum: Saumið með litnum gallabuxnablár í ystu lykkjuna svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Endurtakið í hinni hliðinni. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Á ERMUM:
Heklið kant í kringum ermar þannig: Byrjið mitt undir ermum og heklið með litnum ljós blár með heklunál 4 þannig: * heklið 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum alla ermina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Heklið alveg eins í kringum hina ermina. Klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í hálsmáli með litnum ljós blár með byrjun mitt uppi á annarri öxlinni þannig:
UMFERÐ 1: Festið endann með 1 fastalykkju í axlasauminn. Heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkjur að fyrsta loftlykkjuboga.
Heklið 3 loftlykkjur og 2 stuðla í fyrsta loftlykkjubogann. Heklið 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 3: Heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla, 1 fastalykkja á milli þriðja og fjórða stuðuls *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kantinum í hálsi en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, * heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kantinum í hálsi.
Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga/loftlykkjuröð
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar í sama stuðul, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul um miðju loftlykkju í stuðlahópi en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = heklið stuðlahóp um loftlykkjuboga þannig: Heklið * 1 stuðull, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar um sama loftlykkjuboga, 1 stuðull um sama loftlykkjuboga
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = þegar þessi umferð hefur verið hekluð til loka er klippt frá – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = byrjið hér
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (56)

country flag Ximena wrote:

Buenas Noches! ¿Queria saber si los 75 cm es el ancho desde la manga derecha hasta la manga izaquierda, para la talla S ?

12.02.2021 - 02:32

DROPS Design answered:

Hola Ximena, si, es el ancho desde la manga derecha hasta la manga izaquierda, para la talla S. Buen trabajo!

12.02.2021 - 11:57

country flag Annika Johansson wrote:

Hej. När man ska virka ihop framstyckena på varv 10 visas det 5 lm mot mitt fram i diagrammet. Om man virkar dem blir det ju 28 maskor mellan axlarna, då stämmer inte nästa varv. Där ska man ju virka A7 två gånger. Det behövs ju bara 18 maskor. Hur gör man?

26.08.2020 - 19:24

DROPS Design answered:

Hej Annika, lidt svært at sætte sig ind i når man ikke har arbejdet foran sig... men starter du ikke med første fm i den sidste af de 5 lm fra A.6, så A.7 virkas i de 18 mittersta maskorna?

01.09.2020 - 13:45

country flag Susan Williamson wrote:

Hi - I've made loads of your patterns but found this one particularly difficult - mainly due to the trying to follow several different charts at the same time. It would be really helpful to add one of your clear "how to" videos demonstrating the technique. I've found these invaluable when following your patterns before.

17.06.2020 - 11:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Williamson, could this lesson help you? We explain there how to read several diagrams consecutively. Happy crocheting!

17.06.2020 - 12:25

country flag Silvia wrote:

Buongiorno, non mi è chiaro come unire la spalla sinistra a quella destra. Continuo semplicemente il motivo dopo le 36 catenelle per il collo e questo è il mio aggancio al pezzo della spalla destra?

11.05.2020 - 17:51

DROPS Design answered:

Buonasera Silvia, è corretto: lavora la spalla sinistra, avvia 36 catenelle per il collo e lavora la spalla destra. Buon lavoro!

11.05.2020 - 22:09

country flag Bodil Kirstine Zaar wrote:

Når jeg har hæklet de 36 lm til hals og hæklet videre over højre skulder, står der: Vend og hækl tilbage, til der er 1 m tilbage..... hvilke masker skal jeg bruge ?? Jeg går efter str L/XL

24.09.2019 - 09:53

DROPS Design answered:

Hej Bodil, Hækl fra 2.række af A.5 (= række markeret med pil) over de 36 nye luftmasker (= 4 rapporter). God fornøjelse!

26.09.2019 - 08:48

country flag Thiebaud Annie wrote:

Bonjour \' je ne peux arriver à faire ce point pourriez-vous me suggérer un point pour concrétiser ce modèle ou un autre où je pourrai réaliser avec belle ile merci

03.09.2019 - 09:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thiebaud, avez-vous lu ce point de notre FAQ pour pouvoir lire un diagramme crochet? Chaque symbole représente une maille/un groupe de mailles décrit dans la légende. Suivez ensuite les diagrammes comme indiqué dans la FAQ et dans l'ordre expliqué dans le modèle. Bon crochet!

03.09.2019 - 14:47

country flag Annie Thiebaud wrote:

Bonsoir je voudrai savoir la façon de crocheter l'épaule gauche et la droite ensemble en continuant à partir du 4 rd de diagramme et crocheter de nouvelles mailles en l 'air pour l'encolure merci

27.08.2019 - 22:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thiebaud, crochetez le 4ème rang des diagrammes de l'épaule gauche, puis montez 36 ml, et crochetez maintenant le 4ème rang des diagrammes sur l'épaule droite = les 2 épaules sont réunies, tournez et crochetez comme avant (= rang 5 des diagrammes) et 4 x A.5 (en commençant par le rang avec la flèche) au-dessus des 36 mailles en l'air de l'encolure. Bon crochet!

28.08.2019 - 08:54

country flag Helma wrote:

Ik heb ook een vraag over de derde toer. Er staat eerst haak de linker en rechter schouder verder vanaf de 4e toer in patroon. Daarna staat er: Ga verder in patroon vanaf de derde toer, Sla over: A.1b, 2-1 herhalingen van A.3 enz. Wat moet ik nu precies haken?

10.07.2019 - 15:48

DROPS Design answered:

Dag Helma,

Voor beide schouders geldt dat je eerst lossen haakt waarop je de eerste toer haakt. De eerste toer is beschreven in de tekst. Dan ga je verder met de 2e toer in het telpatroon, dit is de toer met de pijl. De 3e toer haak je terug aan de verkeerde kant. Bij de rechter schouder knip je na de 3e toer de draad af, maar bij de linker schouder niet. Want vanaf de 4e toer haak je de rechter en linker schouder samen zoals beschreven in de tekst.

12.07.2019 - 08:19

country flag Thiebaud Annie wrote:

Vous ayant posé une question ce matin au sujet de ce tricot je voudrai avoir un complément sur ĺa suite on me dit de sauter a1b 2fs a3 et sauter les 2 arceaux mais comment?en maille glissée? Merci

04.07.2019 - 19:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thiebaud, vous coupez le fil à la fin du rang précédent et crochetez le 3ème rang en sautant les mailles du début du rang pour la manche (= A.1b, 2xA.3 + 2 arceaux), et crochetez maintenant la largeur du dos: A.1b, 10 x A.3 et A.1b (les mailles de la fin du rang ne sont pas non plus crochetées = 2ème manche). Bon crochet!

05.07.2019 - 08:29

country flag Annie Thiebaud wrote:

Pour la taille l xl crocheter le 3 rg sur l'envers quel dia gramme suivre? Ceci pour commencer l'épaule droite mercit

04.07.2019 - 11:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thiebaud, vous avez crocheté sur l'endroit: A.1b, 6 x A.3 et A.1b. Au rang suivant sur l'envers, crochetez: A.1b, répétez 6 x A.3 en lisant cette fois le diagramme de gauche à droite et terminez par A.1b. Bon crochet!

04.07.2019 - 12:47