DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Escape

Heklað pils úr DROPS Safran með stuðlum og gatamynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 162-18
DROPS Design: Mynstur nr e-232
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efn:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
550-600-650-700-800-850 gr litu nr 18, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf verði 10 x 10, eða A.1 verði 5 cm á breidd, A.2 verði 10 cm á breidd og A.3 verði ca 7 cm á breidd.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít) NR 523: 4 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti st í byrjun umf er skipt út fyrir 3 ll. Endið umf á 1 st í 3. ll frá fyrri umf (þegar stykkið er heklað fram og til baka) og endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (þegar stykkið er heklað í hring).
Fyrsta fl í byrjun umf er EKKI skipt út, en hekluð er 1 ll á undan fl í byrjun umf. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st.

ÚRTAKA:
Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður meðfram klauf í hlið, síðan er stykkið heklað í hring.

PILS:
Heklið 186-209-232-258-279-305 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með Safran. Fyrsta umf er hekluð þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 4 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af 6 næstu ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 3-5-7-5-5-3 ll, hoppið yfir 1 ll og endið á 1 st í hverja af síðustu 2-4-6-4-4-2 st = 158-178-198-220-238-260 st. Heklið nú fram og til baka með 1 st í hvern st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar heklaðar hafa verið alls 5 umf á hæðina eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið eftir 14-14-16-20-21-22 st, síðan eiga að vera 26-30-33-36-39-43 st á milli prjónamerkja, þá eru 14-14-17-20-22-23 st eftir síðasta prjónamerki í lok umf. Í næstu umf er aukið út um 1 st á undan öllum prjónamerkjum – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 6-6-7-8-9-10 sinnum til viðbótar – ATH: Aukið er út í annað hvert skipti á undan og á eftir prjónamerkjum = 200-220-246-274-298-326 st. JAFNFRAMT þegar heklaðar hafa verið alls 12 umf á hæðina endar klaufin í hlið og stykkið er heklað í hring með byrjun umf frá hlið – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-26 cm aukið út um 28-32-30-26-38-22 l jafnt yfir í næstu umf = 228-252-276-300-336-348 l. Heklið nú mynstur þannig: Heklið frá 1. umf í A.1 (= 12 st) 19-21-23-25-28-29 sinnum á breidd. Þegar A.X hefur verið heklað til loka 1 sinni á hæðina, endurtakið A.X 1 sinni til viðbótar áður en haldið er áfram með næstu umf í mynstri. Heklið nú 1-2-2-1-2-3 umf með 1 st í hvern st, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 36-36-36-36-24-36 l jafnt yfir = 264-288-312-336-360-384 st. Heklið nú frá 1. umf í A.2 (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar), JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 12 st jafnt yfir í öllum stærðum = 276-300-324-348-372-396 st. Haldið áfram með A.1 (= 23-25-27-29-31-33 mynstureiningar) 1 sinni á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 12-20-12-20-12-20 st jafnt yfir = 288-320-336-368-384-416 st. Heklið nú A.3 (= 18-20-21-23-24-26 mynstureiningar). Þegar A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið A.Z 1-1-1-2-2-2 sinnum til viðbótar á hæðina. Heklið nú þannig: 1 ll (= 1 fl), ** heklið * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 4 ll, hoppið yfir 3 st, 1 fl í næsta st **, endurtakið frá **-** umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll í umf.

HNESLA / LYKKJA:
Meðfram annarri hlið á opi/klauf sem er staðsett á framstykki eru heklaðar lykkjur fyrir hnappagat þannig (byrjið neðst niðri): 2 fl í fyrsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, * heklið 2 fl um hvern og einn af 2 næstu st, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 2 fl um síðasta st efst, snúið við og heklið til baka þannig: 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga.

KANTUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram annarri hlið á opi/klauf eru heklaðar 5 umf með fl fram og til baka (1. umf eru heklaðar 2 fl um hvern st = 24 fl), klippið frá. Saumið tölur í kantinn.

KANTUR:
Heklið kant efst í mitti á pilsi frá réttu þannig: Festið endann með 1 kl yst í kanti fyrir tölur, 1 ll, * 1 ll, hoppið yfir 1 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* með fram öllum kantinum í mitti. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = st í/um l
symbols = st um ll-boga
symbols = ll
symbols = fl í/um l
symbols = fl í ll-boga
symbols = heklið saman 2 st í sömu l þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st í sömu l, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 l á heklunálinni
symbols = þbst
symbols = 8 ll
symbols = Heklið 1 st í næsta st - en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan 1 st í hvern og einn af næstu 2 st alveg eins, þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 4 l á heklunálinni.
symbols = 4 ll
symbols = byrjið hér = 1. umf.
symbols = umf er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Summer Escape

@lindaslantliga, Finland

162-18 Summer Escape

Laurent, France

Summer Escape

Lisa, Greece

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (90)

country flag Mariam Khan wrote:

I diagrammet er det et symbol som forklares slik: Hekle 1 st i neste st - men vent med siste gjennomtrekning (= 2 m på nåla), hekle 1 st i hver av de neste 2 st på samme måte, dra tråden gjennom alle 4 m på nåla. Jeg vet ikke om dere har skrevet feil eller om jeg misforstår. Hvis man skal vente med siste gjennomtrekning på totalt 3 staver, vil det på slutten av stav nr 3 være seks masker på nåla som skal dras gjennom. Er det slik det skal gjøres?

13.09.2016 - 19:01

DROPS Design answered:

Hej Mariam. Det er korrekt hvad der staar. Du skal slaa om og trekke igennem 1 gang hver gang, saa har du 4 m paa naalen naar du har heklet de 3 st. Dvs: du hekler 1 st, men vent med å trekke igjennom den siste løkken av st (det er nå 2 løkker på nålen), hekl st nr 2, men vent med å trekke igjennom den siste løkken av st = 3 m paa naalen, hekl st nr 3, efter förste gennemtraek har du ialt 4 m paa pinden

14.09.2016 - 11:43

Maria wrote:

Very nice and easy to make 🙂

30.08.2016 - 16:29

country flag Mette Munch-Boutrup wrote:

Jeg har hæklet denne flotte nederdel i Safran og er meget glad for den. Nu vil jeg gerne hækle den med garn der giver en lettere nederdel, evt. med en silkeagtigt overflade. Kan I hjælpe mig med hvilket drops garn jeg kan bruge (evt. kombinationer) uden at jeg skal ændrer på opskriften? Mvh Mette

22.06.2016 - 09:03

DROPS Design answered:

Hej Mette. Her er garnalternativerne til Safran, du kan eventuelt lave den i BabyAlpaca Silk. Eller tag en snak med din garnbutik, maaske har de ogsaa et alternativ.

23.06.2016 - 12:35

country flag Sacha Roest wrote:

Can you please explain the last row on the bottom of the skirt? I cant seem to make it look good. When it says skip 3dc; the ch4 stretches out to much and doesnt look right. And the ch4 insert in next ch sp looks a bit awkward aswell. As if they are too close together in certain places.

24.04.2016 - 18:43

Sacha Roest answered:

I just asked you a question but I have figured it out. Thanks anyway!

24.04.2016 - 19:09

country flag Kelly wrote:

I was wondering if you could explain in the A1 pattern and the others, if we are supposed to work stitch/chain for stitch/chain how is it that in the first part of the A1/AX rows the number of stitches go up or down from round to round, how do we maintain the stitch count to be the same (in my case 252 stitches for each round, before we reach the next increase)? I'm confused on this part to be able to match the pattern? Please explain. Thanks Kelly

08.04.2016 - 04:45

DROPS Design answered:

Dear Kelly, A.1 is worked over 12 sts and will be repeated 12 times in total in width, there is no inc in A.1, insert a marker between each repeat so that you can check each row in diagram. After you have worked A.1 (and A.X a total of 2 times), work 12 rounds with dc while inc 36 dc evenly, then work A.2 on next round. Read more about diagrams here and how to inc evenly here. Happy crocheting!

08.04.2016 - 09:05

country flag Kelly wrote:

I was wondering for the graph, if each stitch was individual to each chain. Most diagrams have chain's underneath the symbol to indicate where the stitch is going. Also when it says to work from 1st round in A1 (=12 dc) 21 times in width, and when AX has been worked verticall what does that mean? At this point are you supposed to actually crochet 12dc and turn 21 times? Thanks, Kelly

05.04.2016 - 00:27

DROPS Design answered:

Dear Kelly, the diagram A.1 will be worked a total of 21 times in width on the round (work first round 1 over all sts, then round 2 over all sts etc..) - inserting a marker between each repeat may help - Make 1 ch for each "-" in diagram, so that on row 3 in A.1, you will work 5 ch, 1 sc, 5 ch between the dc - A.X = row 3 to 6 in A.1. When working A.1, work to row 6 = including A.X then work again the row 3 to 6 (= A.X) then continue A.1 with next row (= row 7 in A.1, coming after A.X). Happy crocheting!

05.04.2016 - 09:31

country flag Rendi wrote:

Hello, are the instructions available in English, please? I have not yet learned to use charts. Thank you :-)

31.01.2016 - 17:34

DROPS Design answered:

Dear Rendi, there are only diagrams to this pattern - each symbol represent 1 st/group of st as stated under diagram text, start reading from the right and read every round from the right towards the left. You are welcome to contact your DROPS store for any further individual assistance. Happy crocheting!

01.02.2016 - 11:19

country flag Sacha Roest wrote:

Please look at the terms in the diagram, maybe its a mistake... The little X says "sc in/around st", the little T: "sc in ch-space". My question is how to sc in ch-space. The term: "dc around ch-space" I get... So is this just wrong? Should the little T be called "sc around ch-space"? Or is it the same as the little X?

05.09.2015 - 20:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Roest, you crochet around the ch-space inserting crochet hook in the ch-space, but when you have to crochet in the st (eg in the sc below), you will insert crochet hook under both threads of st (sc in this example) from previous round. Happy crocheting!

07.09.2015 - 10:42

country flag Sacha Roest wrote:

In the diagram explanation one symbol is the "dc around ch-space" another "sc in ch-space". Is there is a difference inbetween "in" and "around"? As far as I know they are the same and the only difference is the dc and sc.. Please let me know if this is true. (I made the mistake by posting this question for uk aswell..)

03.09.2015 - 12:13

DROPS Design answered:

See answer below.

03.09.2015 - 15:35

country flag Sacha wrote:

In the diagram explanation one symbol is the "dc around ch-space" another "sc in ch-space". Is there is a difference inbetween "in" and "around"? As far as I know they are the same and the only difference is the dc and sc.. Please let me know if this is true.

03.09.2015 - 12:11

DROPS Design answered:

Dear Sacha, the video below shows (with another diagram but technique is the same) how to work either "in" or "around" the stitch from row/round below. Happy crocheting!

03.09.2015 - 15:34