DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 139-2
DROPS Design: Mynstur LA-008
Garnflokkur A
---------------------------------------------------------

Stærð:
Breidd að ofan: ca 140 cm eftir strekkingu
Lengd við miðju að aftan: ca 75 cm eftir strekkingu

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio
100 gr litur nr 3620, rauður

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – ATH: Lesið leiðbeiningar um prjónfestu að neðan!

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PRJÓNFESTA:
Þetta sjal er bleytt og strekkt í lokin í óskaða stærð þannig að prjónfestan er ekki svo mikilvæg, en til þess að hafa einhverja hugmynd um stærð ef prjónað er of laust/fast er ágætt að gera prjónaprufu á prjóna nr 3,5, þá þarf ca 23 l og 30 umf til að ná 10 x 10 cm.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Mynstur M.1A er spegilmynd af mynstri M.1B.

ÚTAUKNING:
Prjónaðar eru 5 l í 1 l þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl. ATH: til að forðast að miðjulykkjan verði „ viðkvæm“ þegar aukið er út um 5 l, eru lykkjur prjónaðar upp bæði í gegnum miðjulykkju á prjóni og miðjlykkju frá fyrri umf samtímis.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, prjónað er frá miðju að aftan við hnakka og niður.

SJAL:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með Lace. Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 2 l sl í 1. og 2. l, og 1 l sl í 3. l = 5 l.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 l sl, 2 l sl í næstu l, setjið prjónamerki í næstu l (miðjulykkju), 2 l sl í næstu l, 1 l sl = 7 l.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: (ranga): Prjónið 2 l sl (= kantlykkja), 3 l br og 2 l sl (= kantlykkja).
Haldið áfram þannig: Prjónið 2 kantlykkjur með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, M.1A, 1 miðjulykkja í sléttprjóni, M.1B og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar M.1 er lokið, er haldið áfram með útaukningu á mynstri með sama hætti, þ.e.a.s. aukið er út um 4 l í hverri umf frá réttu.
Prjónið þar til sjalið mælist ca 42 cm – mælið að miðju að aftan og strekkið aðeins á stykkinu þegar mælt er (endið eftir 1 umf frá röngu). Í næstu umf (= frá réttu) er aukið út miðju-lykkju um 5 l – SJÁ ÚTAUKNING. Haldið áfram með M.2 þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, M.2A yfir fyrstu 2 l, setjið 1 prjónamerki, síðan M.2B fram að 3 l við miðju, setjið 1 prjónamerki, þær 3 miðju l eru prjónaðar inn í M.2C, setjið 1 prjónamerki, haldið áfram með M.2D þar til 4 l eru eftir, setjið 1 prjónamerki, prjónið M.2E yfir 2 l og 2 síðustu l eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til prjónaðar hafa verið 20 umferðir í M.2. Nú er prjónað þannig: 2 lykkjur garðarpjón, A.2Ax yfir næstu 8 lykkjur, haldið áfram með mynstur eins og að neðan þar til 10 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið M.2EX yfir næstu 8 lykkjur og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 60 cm við miðju að aftan (mælt þegar strekkt er aðeins á sjalinu).
Fellið af með 2 þráðum þannig: Prjónið 2 l sl, setjið l til baka á vinstri prjón og prjónið þær snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). * Prjónið 1 l til viðbótar (= 2 l á hægri prjón), setjið l til baka á vinstri prjón, prjónið þær snúnar slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til allar l hafa verið felldar af. Þetta verður til þess að kanturinn gefi vel eftir við strekkingu.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki snúa uppá það. Rúllið sjalinu upp í handklæði og þrýstið á til að ná meira vatni úr sjalinu – sjalið á nú að vera rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið sjalið varlega út í óskaðri stærð og notið nálar til að festa það með. Látið þorna. Endurtakið þetta í hvert sinn sem sjalið er þvegið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.02.2012
Ný mynsturteikning
Yfirfarið á vefsvæði: 25.06.2018
Uppfærðar leiðbeiningar hvernig prjóna á M.2

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 139-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Nicci wrote:

Dank voor het antwoord. Wat ik echter bedoel met te veel steken is dat ik op toer 15 omslag - 4 recht gebreit heb (na toer 16 zijn dit dus 5 steken). Hier kan ik dan vervolgens toch geen omslag - 1 recht - omslag - 1 recht (totaal van 2 steken) op kwijt? Dan houd ik steken over wil het patroon niet scheef boven elkaar komen.

28.03.2013 - 14:11

DROPS Design answered:

Ga door op deze manier; Er komen dus steeds meer tricotsteken tussen de eerste en de volgende omslag aan beide zijkanten

28.03.2013 - 14:48

country flag Tineke Van Bergen wrote:

Klaar! Hij is prachtig geworden!

28.03.2013 - 14:02

country flag Nicci wrote:

Ik heb eenmaal M2 in de hoogte gebreid. Ik begrijp dat ik de laatste 2 toeren van 2B, 2C en 2D steeds moet gaan herhalen en na de 2 kantsteken moet beginnen met 2A vanaf toer 1 (en vervolgens 2B zoals in de laatste 2 rijen enz). Dan kom ik echter qua stekenaantal en patroon niet meer uit...waar zit 'm de fout?

26.03.2013 - 13:46

DROPS Design answered:

Beste Nicci. Als je de laatste 2 toeren moet herhalen van M2B, C en D, dan brei je M.2A en E zoals beschreven, 1e rij M2A: 2 r, begin M2A opnieuw over de volgende 2 st, M2B over de volgende 8 st, 1e rij van van M2E: brei M2D over de eerste 8 st en begin M2E opniew over de volgende 2 st. Waarom je aantal st niet correct is weet ik niet. Veel breiplezier.

28.03.2013 - 13:19

country flag SewSassy1 wrote:

Hi again. This is where I am, I have worked M.2 once, where the pattern asks to repeat the last 2 rows of M2B, C & D, do I work those without doing A 1st and E last? thank you

13.02.2013 - 19:38

DROPS Design answered:

Dear Sewsassy1, when you repeat the last 2 rows in M.2B,C & D, you work M.2A and E as stated, 1st row M.2A : K2, start M.2A from beg again over next 2 sts, M2B over next 8 sts, and 1st row M.2E : work M.2D over first 8 sts then start M.2E from beg again over next 2 sts, K2. Happy knitting !

14.02.2013 - 09:12

country flag SewSassy1 wrote:

OK, that helps me visualize. Now when it refers to M.2B and the 3 sts in the middle what does this mean? I thought I had 5 sts in the middle from increasing earlier on. What happens to the 5 mid back sts? thanks

30.01.2013 - 13:46

DROPS Design answered:

Dear Sewsassy, it means you will work M.2B until the 3 mid sts (mid st + 1 st either side), on these 3 sts you will work M2C (=3 sts on 1st row), then continue with M2D and M2E. on 2nd row of M2, you will have 5 sts on M2C work them as indicated. After you have worked M2 oce in height, repeat the last 2 rows of M2B, C and D until the end and M2A and M2C as stated in pattern. Happy knitting !

30.01.2013 - 14:56

country flag SewSassy1 wrote:

I would like help with this pattern starting with M.2, I do not understand what is required or where I will be with the work when I finish M.2E

30.01.2013 - 04:54

DROPS Design answered:

Dear Sewsassy, after you have worked M.2E 1 time in height, just repeat the diagrams as before, you will have 1 more repeat of M2B and M2D each time. Happy knitting !

30.01.2013 - 09:44

country flag Jessica Andersen wrote:

Mönstret på M2 stämmer inte när man ökat mittmaskerna med 5 maskor. Hur gör man? Hittar nämligen inget svar på min fråga under rubriken Rättelser.

28.12.2012 - 10:51

country flag Therese Lepold wrote:

Kann man das mittlere Muster auch als Quadratisches Tuch stricken? Wenn ja, was muß ich dann evtl. ändern. Oder gibt es ein ähnliches Muster welches man dann nehmen kann?

20.11.2012 - 23:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lepold, das Muster wurde so entworfen, dass es diese Form ergibt. Vielleicht finden Sie ja in unserer Musterdatenbank ein Modell, das Ihren Vorstellungen genauer entspricht.

21.11.2012 - 09:07

country flag DROPS Design NL wrote:

We hebben de beschrijving wat aangepast n.a.v. vragen over de werkwijze. Hopelijk wordt het op deze manier duidelijker.

03.10.2012 - 12:37

country flag Cornen wrote:

Je ne comprends pas trop car moi je me retrouve avec beaucoup de mailles en jersey endroit au début ( après les 2 mailles en mousse et le jeté) et à la fin ( avant le jeté et les 2 mailles en mousses) et ce n'est pas très joli... :-(

17.09.2012 - 11:18

DROPS Design answered:

Vous devez continuer en suivant les diagrammes M.2 comme indiqué, (et sans mailles jersey après/avant les 2 m au point mousse). Ainsi, au 1er rang de M2, vous suivez ces indications, les jetés pour augmenter sont compris dans chacun des diagrammes M2A et M2E. Après les 16 rangs des diagrammes, vous reprenez dès le 1er rang. Pour toute aide personnalisée, je vous demande de bien vouloir contacter votre magasin DROPS. Il pourra vous expliquer plus facilement. Bon tricot !

17.09.2012 - 13:38