DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Renaissance

Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, sólfjaðramynstri og trompetermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-37
DROPS Design: Mynstur sk-160
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-450-500 g litur 13, ljós gallabuxnablár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LOFTLYKKJUR:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

LEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.
Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið heildar lykkjufjöldann í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 7,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 7. hverja lykkju.

ÚRTAKA:
Heklið 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Stykkinu er snúið við á undan hverri umferð sem er hekluð. Þ.e.a.s. önnur hver umferð er hekluð frá réttu og frá röngu þannig:
Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki.
Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptis með umferð frá réttu og umferð frá röngu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki og ermar halda áfram hringinn hvert fyrir sig.

BERUSTYKKI:
Heklið 104-108-112-116-118-122 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS SKY og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð.
Snúið – sjá LEIÐBEININGAR og HEKLLEIÐBEININGAR og heklið fyrstu umferð þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju = 104-108-112-116-118-122 stuðlar.
Heklið 1 umferð með stuðlum í hvern stuðul og aukið út um 13-15-11-7-17-19 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 117-123-123-123-135-141 lykkjur.
Heklið A.1 hringinn yfir allar lykkjur.

Haldið áfram með mynstur og aukið út þannig:
Í 3. hverri og 5. hverri umferð í A.1 er aukið út um 24-27-33-33-30-33 stuðla jafnt yfir í hvorri umferð (þ.e.a.s. aukið er út alls um 48-54-66-66-60-66 stuðla í 1 endurtekningu á hæðina). Endurtakið A.1 á hæðina.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Aukið svona út alls 5-5-5-6-7-7 sinnum = 237-258-288-321-345-372 lykkjur.

Endurtakið A.1 á hæðina þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm, stillið af að næsta umferð sé umferð einungis með stuðlum. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið A.1 yfir 64-72-81-91-97-108 lykkjur, hoppið yfir næstu 54-57-63-69-75-78 lykkjur fyrir ermi og heklið 9 loftlykkjur undir ermi, heklið A.1 yfir 65-72-81-92-98-108 lykkjur, hoppið yfir næstu 54-57-63-69-75-78 lykkjur fyrir ermi og heklið 9 loftlykkjur undir ermi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 147-162-180-201-213-234 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og áður. A.1 er heklað yfir allar lykkjur (þ.e.a.s. A.1 er heklað 49-54-60-67-71-78 sinnum á breiddina).
Þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingu, fækkið um 3-6-6-9-6-6 stuðla jafnt yfir í næstu umferð með stuðlum – sjá ÚRTAKA = 144-156-174-192-207-228 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 6 cm frá skiptingu, fækkið um 3-6-6-9-6-6 stuðla jafnt yfir í næstu umferð með stuðlum = 141-150-168-183-201-222 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 8 cm frá skiptingu, aukið út um 6-9-9-9-9-9 stuðla jafnt yfir í næstu umferð með stuðlum. Aukið svona út með ca 5-6-7-7-5-5 cm millibili alls 4-3-3-3-4-4 sinnum = 165-177-195-210-237-258 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm frá skiptingu, stillið af að endað sé með 1 umferð með stuðlum, klippið þráðinn frá og festið. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá öxl og niður.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, fram og til baka - sjá HEKLLEIÐBEININGAR.
Nú er einungis heklað yfir 54-57-63-69-75-78 lykkjur sem hoppað var yfir fyrir ermi í annarri hliðinni þannig:
Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju sem hekluð var undir ermi. Heklið 3 loftlykkjur, heklið síðan A.1 yfir allar lykkjur = 63-66-72-78-84-87 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 2 cm, stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum, fækkið um 3 stuðla jafnt yfir .
Fækkið lykkjum svona með ca 3-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 7-7-9-10-11-12 sinnum = 42-45-45-48-51-51 lykkjur.
Þegar ermin mælist 27-26-25-24-22-21 cm frá skiptingu, heklið trompetermar með sólfjaðramynstri þannig:
Heklið 1 umferð með stuðlum og aukið út um 0-3-3-0-3-3 stuðla jafnt yfir = 42-48-48-48-54-54 lykkjur.
Heklið nú stykkið í hring án þessa að snúa við í hverri umferð (þ.e.a.s. allar umferðir eru heklaðar frá réttu).
Heklið A.2 yfir allar lykkjur.
Í síðustu umferð í A.2 er aukið út um 12 stuðla jafnt yfir (aukið er út með því að hekla fleiri stuðla um loftlykkjubogana) = 54-60-60-60-66-66 stuðlar.
Heklið A.2 alls 3 sinnum á hæðina og aukið út um 12 stuðla jafnt yfir í síðustu umferð í hverri endurtekningu á hæðina = 78-84-84-84-90-90 lykkjur. Í hvert skipti sem aukið er út er A.2 heklað alls 2 sinnum oftar á hæðina.
Heklið 3 fyrstu umferð í A.2, 1 sinni til viðbótar. Ermin mælist ca 42-41-40-39-37-36 cm frá skiptingu.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmál þannig:
Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju efst í hálsmáli. Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.
symbols = heklið 2 stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = stuðull í lykkjuna fyrir neðan

symbols = stuðull um loftlykkju / loftlykkjubogann fyrir neðan

symbols = fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = fastalykkja um loftlykkjubogann fyrir neðan

symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð, hún sýnir einungis hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjurnar

diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Anežka Nováková wrote:

Dobrý den, už jsem přišla na to kde chybuji- v každém jednom opakování vzoru jsem přidávala místo 27 dlouhých sloupků 54, nedošlo mi že přidávám 5× 27, já místo toho dělala 5× 54.

09.11.2023 - 15:33

country flag Anežka Nováková wrote:

Dobrý den, potřebuji pomoc se vzorem, v návodu se píše že ve vzoru A1 mám přidávat v 3. a 5. kruhové řadě 27 DS (dělám velikost M). Problém je, že z nějakého důvodu mám potom na sedlu o hodně dlouhých sloupků víc, a já nevím kde dělám chybu. Práce se mi potom hodně krabatí. Správně mám mít na konci 258. Děkuji za odpověď:)

07.11.2023 - 22:38

country flag Mária Vetráková wrote:

Už som prišla na to, kde som robila chybu. Takže moja otázka je už bezpradmetná.

25.06.2023 - 21:21

DROPS Design answered:

Dobrý den, paní Vetráková, díky za zprávu! Jsem ráda, že se vše vyjasnilo. Ať se vám hezky háčkuje a model vám dělá radost!

28.06.2023 - 13:49

country flag Mária Vetráková wrote:

Nechápem??? Vzor A1 sa už v druhom rade rozšírí, keď do oblúčka dáme 3dlhé stĺpiky. Potom sa ešte má pridávať v treťom a piatom rade, rovnomerne. Robím velkosť S, no a bude tam oveľa viac očiek ako má byť ( 237 má byť). Nejak to pribúdanie sţĺpikov mi nie je jasné. Ďakujem za vysvetlenie.

22.06.2023 - 15:56

country flag Lori Wolfe wrote:

Is the chain stitch at the beginning of A.1 a 2sctog? If not, how do you do a single chain stitch into two 2dctog?

07.06.2023 - 14:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wolfe, start each round with double crochets (US-English) with 3 chains, these 3 chain stitches do not replace the first double crochet; then crochet A.1: *slip 1 double crochet, work 2 double crochet together, 1 chain, 2 double crochet together in the next double crochet, skip 1 double crochet*; repeat from *-* -make sure you are following the appropriage English-terminology by clicking on the scroll down menu below the pictures and choose "US-English" to get US-English terms. Happy crocheting!

07.06.2023 - 14:41

country flag Catherine Lecocq wrote:

Na het haken van de 2de rij ttz de 3 stokjes in de losse steek heb ik al veel steken gemeerderd. Als ik dan in de 3de en 5de rij 33 steken moet meerderen heb ik in totaal al meer dan 288 steken gemeerderd. Dus moet ik 123 + 288 steken hebben? Waar maak ik een fout ?

14.03.2023 - 09:43

DROPS Design answered:

Dag Catherine,

Je meerdert in totaal 5 keer, dus je meerdert 5 x 33 (niet 5 x 66).

14.03.2023 - 20:41

country flag Nathalie wrote:

Je repose ma question pour le 1er rang A1 car je pense ne pas avoir eu ma réponse... Combien de brides du rang du dessous entre les éventails ?

21.02.2023 - 11:07

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, vous aurez 2 brides non crochetées entre chaque éventail, mais attention, chaque A.1 se crochète ainsi (sautez 1 bride, 1 éventail dans la bride suivante, sautez 1 bride). Bon crochet!

21.02.2023 - 17:30

country flag Nathalie wrote:

Bonjour Sur le modèle A1, 1er rang combien de brides entre les éventails de brides écoulées ensemble ? Et pour le rang 2, on pique bien dans la maille en l'air ?

20.02.2023 - 23:47

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, A.1 se compose de 6 rangs: 1 rang d'éventails, 1 rang de 3 brides autour de l'arceau (ne piquez pas dans la maille en l'air mais dans l'arceau = autour de la maille en l'air du rang précédent) et 4 rangs de brides. Bon crochet!

21.02.2023 - 10:10

country flag Lena wrote:

Hej Jag får alla 66 maskorna ökade på varv 3 redan. På varv 2 virkas det 3 stolpar om lmbågen och då blir det ökat alla maskor. Undrar vad jag gör för fel?

18.02.2023 - 19:50

DROPS Design answered:

Hei Lena. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan. Men hvilken str. hekler du og hvor nøyaktig er du i oppskriften? Bol, bærestykket, erme? mvh DROPS Design

27.02.2023 - 12:47

country flag Smilla Sivsdotter wrote:

Jag får 288 maskor efter 1 repetition av A1. Det ökas ju 66 m på en repetition av A1: Storlek L;112 maskor, öka 11, det blir 123, plus 66 m, 288. Om jag upprepar A1 med ökningar blir maskantalet ofantligt. Jag förstår inte var jag gör fel då jag följer diagrammet till punkt och pricka som det står.

14.02.2023 - 20:01

DROPS Design answered:

Hej Smilla, du har 123 masker, øger 33 på én rad, det kan du gøre 5 ggr inden du har 288 masker

16.02.2023 - 13:51