Geometry |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Delight með Domino-ferningum. Stærð S - XXXL
DROPS 151-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. DOMINOFERNINGUR-1: Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf. Endurtakið umf 1 og 2, en í 14.- 16.- 16.- 18.- 20.- 22. hverri umf er prjónað frá réttu – þannig: Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á undan l með prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, takið 1 l óprjónaða, prjónið 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf (í þessari umf er fækkað um 4 l í stað 2). Haldið áfram með þetta mynstur, þ.e.a.s. að það fækkar um 2 l við miðju að ferningi í annarri hverri umf og 4 l í miðju á ferningi í 14.- 16.- 16.- 18.- 20.- 22. hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l. DOMINOFERNINGUR-2: Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að það fækkar um 2 l fyrir miðju á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir í umf, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l. HÁLFUR DOMINOFERNINGUR: Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 fyrstu l á prjóni slétt saman, prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið þar til 2 l eru eftir, prjónið 2 síðustu l slétt saman. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að það fækkar um 2 l fyrir miðju á ferningi og 1 l í hvorri hlið á ferningi í annarri hverri umf þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir 3 l. Næsta umf (= rétta) prjónið þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI: 8 kantlykkjur eru prjónaðar saman þar til fjórði hluti af ferningi hefur verið prjónaður. FERNINGUR 5 og 8: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 8 l sl, prjónið 2 l slétt saman, prjónið þar til 2 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að það fækkar um 1 l í hvorri hlið á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir (+ 8 kantlykkjur) eftir. FERNINGUR 6 og 7: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 l slétt saman, prjónið þar til 10 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 8 l sl. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að það fækkar um 1 l í hvorri hlið á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir (+ 8 kantlykkjur) eftir. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, þegar ferningur 5 er prjónaður = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellt er af fyrir hnappagötum þegar 31 l er eftir á prjóni (meðtalin kantlykkja að framan), endurtakið úrtöku þegar 13 l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið byrjar á að fitjað er upp fyrir ferningi 1 og 2, síðan eru ferningarnir prjónaðir einn og einn, fram og til baka í garðaprjóni. Allar l eru prjónaðar upp frá réttu. Mynsturteikning A.1 og A.2 sýna hvar ferningarnir eru prjónaðir. Ferningarnir eru prjónaðir á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. FERNINGUR 1 og 2: Fitjið upp 342-362-390-430-474-510 l á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið nú DOMINOFERNINGUR 1 – sjá útskýringu að ofan- yfir fyrstu 171-181-195-215-237-255 l – byrjið á 2. umf. (Þær l sem eftir eru verða eftir á prjóni). Þegar ferningur-1 hefur verið prjónaður er Dominoferningur-1 prjónaður yfir síðustu 171-181-195-215-237-255 l á prjóni (= ferningur 2). FERNINGUR 3: Prjónið upp 75-80-87-97-108-117 l meðfram annarri hliðinni af ferningi 1, prjónið upp 1 l á milli ferning 1 og ferning 2 og prjónið upp 75-80-87-97-108-117 l meðfram efri hlið frá ferningi 2 – sjá MYNSTURTEIKNINGU A.1 = 151-161-175-195-217-235 l. Prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan. FERNINGUR 4: Prjónið upp 85-90-97-107-118-127 l meðfram neðri kanti á ferningi 2, prjónið upp 1 l á milli ferning 2 og ferning 1 og prjónið upp 85-90-97-107-118-127 l meðfram neðri kanti á ferningi 1 = 171-181-195-215-237-255 l. Prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan. FERNINGUR 5: Fitjið upp 8 nýjar l á prjóninn (= kantur að framan), prjónið upp 75-80-87-97-108-117 l meðfram efri hlið á ferningi 1 = 83-88-95-105-116-125 l. Prjónið FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI – sjá útskýringu að ofan. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l á Domino-ferningi. Setjið 8 kantlykkjur að framan á þráð. FERNINGUR 6: Prjónið upp 75-80-87-97-108-117 l meðfram hinni efri hliðinni á ferningi 2. Fitjið upp 8 nýjar l í lok umf (= kantur að framan) = 83-88-95-105-116-125 l. Prjónið FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l á Dominoferningnum. Setjið 8 kantlykkjur að framan á þráð. FERNINGUR 7: Prjónið upp 85-90-97-107-118-127 l meðfram hinum neðri kanti á ferningi 1, prjónið upp 1 l í hverja og eina af þeim 8 kantlykkjum að framan = 93-98-105-115-126-135 l. Prjónið FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI. Fellið af síðustu 9 l. FERNINGUR 8: Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 8 kantlykkjum að framan, prjónið upp 85-90-97-107-118-127 l meðfram hinum neðri kanti af ferningi 2 = 93-98-105-115-126-135 l. Prjónið FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI. Fellið af síðustu 9 l. FERNINGUR 9: Fitjið upp 53-58-62-69-76-83 nýjar l á prjóninn. Prjónið garðaprjón yfir þessar l í 10 cm, endið á 1 umf frá réttu (= ermi). Prjónið upp 1 l frá toppi af ferningi 2, 53-58-62-69-76-83 l frá ferningi 6, setjið til baka þær 8 kantlykkjur að framan á prjóninn = 115-125-133-147-161-175 l. Þær 8 fyrstu l (séð frá röngu) eru kantlykkjur að framan og eru prjónaðar slétt í hverri umf, prjónið DOMINOFERNINGUR 2 yfir síðustu 107-117-125-139-153-167 l. Haldið áfram með úrtöku í Dominoferningi 2, JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 25-35-43-57-71-85 umf fækkið um 1 l innan við 8 kantlykkjur við miðju að framan,prjónið 2 l slétt saman frá réttu. Endurtakið úrtöku við miðju að framan í 4. hverri umf alls 14 sinnum, þ.e.a.s. alveg þar til kanturinn að framan mætir úrtöku á Dominoferningi. Fellið af allar l í Dominoferningi í einni umf frá réttu, haldið áfram í garðaprjóni yfir 8 kantlykkjur að framan í 12 cm. Fellið af. FERNINGUR 10: Fitjið upp 53-58-62-69-76-83 nýjar l á prjóninn. Prjónið garðaprjón yfir þessar l í 10 cm, endið á 1 umf frá röngu (= ermi). Setjið l á þráð. Setjið til baka þær 8 kantlykkjur að framan á prjóninn, prjónið upp 53-58-62-69-76-83 l frá ferningi 5, prjónið upp 1 l frá toppi af ferningi 1 og prjónið til baka 53-58-62-69-76-83 l frá þræði á prjóninn = 115-125-133-147-161-175 l. Prjónið nú yfir allar l (1. umf = frá röngu). Prjónið DOMINOFERNINGUR 2 yfir fyrstu 107-117-125-139-153-167 l (séð frá röngu), þær síðustu 8 l eru á kanti að framan og eru prjónaðar slétt í hverri umf. Haldið áfram með úrtöku í Dominoferningi 2, JANFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 25-35-43-57-71-85 umf er fækkað um 1 l innan við 8 kantlykkjur við miðju að framan, fækkið með því að prjóna 2 l slétt saman frá réttu. Endurtakið úrtöku við miðju að framan í 4. hverri umf alls 14 sinnum, þ.e.a.s. þar til kanturinn að framan mætir úrtöku á Dominoferningi. Fellið af allar l í Dominoferningi í einni umf frá röngu, haldið áfram með garðaprjón yfir 8 kantlykkjur að framan með 12 cm. Fellið af. FERNINGUR 11: Fitjið upp 53-58-62-69-76-83 nýjar l á prjóninn. Prjónið garðaprjón yfir þessar l í 10 cm, endið á 1 umf frá réttu (= ermi). Prjónið upp 1 l frá toppi af ferningi-1 og 53-58-62-69-76-83 l frá fyrsta helming af ferningi 3= 107-117-125-139-153-167 l. Prjónið DOMINOFERNINGUR 2. FERNINGUR 12: Fitjið upp 53-58-62-69-76-83 nýjar l á prjóninn. Prjónið garðaprjón yfir þessar l í 10 cm, endið á 1 umf frá röngu (= ermi). Setjið l á þráð. Prjónið upp 53-58-62-69-76-83 frá seinni helming af ferningi 3, prjónið upp 1 l frá toppi af ferningi 2 og prjónið til baka þær 53-58-62-69-76-83 l af bandi á prjóninn = 107-117-125-139-153-167 l. Prjónið nú yfir allar l (1. umf = ranga). Prjónið DOMINOFERNINGUR 2. FRÁGANGUR: Saumið saman ferning 11 og 12 fyrir miðju að aftan. Saumið erma/axlasauma inn við hálsmál – hálsmál á bakstykki á að vera ca 12 cm breitt, stillið af eftir framstykki – þannig að axlasaumarnir á fram- og bakstykki passi. Saumið sauma undir ermum. Saumið saman kant að framan við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Hanna wrote:
Nur für große und sehr schlanke Damen geeignet!
13.06.2013 - 19:23Elisabeth wrote:
Super flot model
13.06.2013 - 17:46Penandrz wrote:
I love designs with unusual construction techniqus! It would be fun to see this in a non-variegated yarn, with different stitch patterns highlighting the change in the knitting direction. I look forward to reading through the pattern to see how the design team put this one together.
09.06.2013 - 15:06Kathie wrote:
Love it! Please have a long-sleeved version, too!
31.05.2013 - 16:40Molly wrote:
I love all the straight lines and there is the red cowl and hat that is absolutely delightful. I wish I could start right now. All the people on the design team deserve one big bravo.
30.05.2013 - 22:07Paola wrote:
Un quadro, bellissimo! in più questi colori donano a tutte
30.05.2013 - 20:27Auffret Nadine wrote:
Wouah!magnifique!!!
30.05.2013 - 20:03PAVEC wrote:
Superbe modèle avec beaucoup de goût quant au mélange des couleurs
30.05.2013 - 16:48