DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 151-29
DROPS Design: Mynstur nr de-100
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 05, beige/grár/bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 46 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA MEÐ GATI, NR 522: 2 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

DOMINOFERNINGUR-1:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf.
Endurtakið umf 1 og 2, en í 14.- 16.- 16.- 18.- 20.- 22. hverri umf er prjónað frá réttu – þannig: Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á undan l með prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, takið 1 l óprjónaða, prjónið 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf (í þessari umf er fækkað um 4 l í stað 2).
Haldið áfram með þetta mynstur, þ.e.a.s. að það fækkar um 2 l við miðju að ferningi í annarri hverri umf og 4 l í miðju á ferningi í 14.- 16.- 16.- 18.- 20.- 22. hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l.

DOMINOFERNINGUR-2:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að það fækkar um 2 l fyrir miðju á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir í umf, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l.

HÁLFUR DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 fyrstu l á prjóni slétt saman, prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið þar til 2 l eru eftir, prjónið 2 síðustu l slétt saman.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að það fækkar um 2 l fyrir miðju á ferningi og 1 l í hvorri hlið á ferningi í annarri hverri umf þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir 3 l.
Næsta umf (= rétta) prjónið þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru.

FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI:
8 kantlykkjur eru prjónaðar saman þar til fjórði hluti af ferningi hefur verið prjónaður.
FERNINGUR 5 og 8:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 8 l sl, prjónið 2 l slétt saman, prjónið þar til 2 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að það fækkar um 1 l í hvorri hlið á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir (+ 8 kantlykkjur) eftir.
FERNINGUR 6 og 7:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 l slétt saman, prjónið þar til 10 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 8 l sl.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að það fækkar um 1 l í hvorri hlið á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir (+ 8 kantlykkjur) eftir.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, þegar ferningur 5 er prjónaður = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellt er af fyrir hnappagötum þegar 31 l er eftir á prjóni (meðtalin kantlykkja að framan), endurtakið úrtöku þegar 13 l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið byrjar á að fitjað er upp fyrir ferningi 1 og 2, síðan eru ferningarnir prjónaðir einn og einn, fram og til baka í garðaprjóni. Allar l eru prjónaðar upp frá réttu. Mynsturteikning A.1 og A.2 sýna hvar ferningarnir eru prjónaðir. Ferningarnir eru prjónaðir á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l.

FERNINGUR 1 og 2:
Fitjið upp 342-362-390-430-474-510 l á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið nú DOMINOFERNINGUR 1 – sjá útskýringu að ofan- yfir fyrstu 171-181-195-215-237-255 l – byrjið á 2. umf. (Þær l sem eftir eru verða eftir á prjóni). Þegar ferningur-1 hefur verið prjónaður er Dominoferningur-1 prjónaður yfir síðustu 171-181-195-215-237-255 l á prjóni (= ferningur 2).

FERNINGUR 3:
Prjónið upp 75-80-87-97-108-117 l meðfram annarri hliðinni af ferningi 1, prjónið upp 1 l á milli ferning 1 og ferning 2 og prjónið upp 75-80-87-97-108-117 l meðfram efri hlið frá ferningi 2 – sjá MYNSTURTEIKNINGU A.1 = 151-161-175-195-217-235 l. Prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan.

FERNINGUR 4:
Prjónið upp 85-90-97-107-118-127 l meðfram neðri kanti á ferningi 2, prjónið upp 1 l á milli ferning 2 og ferning 1 og prjónið upp 85-90-97-107-118-127 l meðfram neðri kanti á ferningi 1 = 171-181-195-215-237-255 l. Prjónið HÁLFUR DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan.

FERNINGUR 5:
Fitjið upp 8 nýjar l á prjóninn (= kantur að framan), prjónið upp 75-80-87-97-108-117 l meðfram efri hlið á ferningi 1 = 83-88-95-105-116-125 l. Prjónið FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI – sjá útskýringu að ofan. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l á Domino-ferningi. Setjið 8 kantlykkjur að framan á þráð.

FERNINGUR 6:
Prjónið upp 75-80-87-97-108-117 l meðfram hinni efri hliðinni á ferningi 2. Fitjið upp 8 nýjar l í lok umf (= kantur að framan) = 83-88-95-105-116-125 l. Prjónið FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l á Dominoferningnum. Setjið 8 kantlykkjur að framan á þráð.

FERNINGUR 7:
Prjónið upp 85-90-97-107-118-127 l meðfram hinum neðri kanti á ferningi 1, prjónið upp 1 l í hverja og eina af þeim 8 kantlykkjum að framan = 93-98-105-115-126-135 l. Prjónið FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI. Fellið af síðustu 9 l.

FERNINGUR 8:
Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 8 kantlykkjum að framan, prjónið upp 85-90-97-107-118-127 l meðfram hinum neðri kanti af ferningi 2 = 93-98-105-115-126-135 l. Prjónið FJÓRÐI HLUTI AF DOMINOFERNINGI. Fellið af síðustu 9 l.

FERNINGUR 9:
Fitjið upp 53-58-62-69-76-83 nýjar l á prjóninn. Prjónið garðaprjón yfir þessar l í 10 cm, endið á 1 umf frá réttu (= ermi). Prjónið upp 1 l frá toppi af ferningi 2, 53-58-62-69-76-83 l frá ferningi 6, setjið til baka þær 8 kantlykkjur að framan á prjóninn = 115-125-133-147-161-175 l. Þær 8 fyrstu l (séð frá röngu) eru kantlykkjur að framan og eru prjónaðar slétt í hverri umf, prjónið DOMINOFERNINGUR 2 yfir síðustu 107-117-125-139-153-167 l. Haldið áfram með úrtöku í Dominoferningi 2, JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 25-35-43-57-71-85 umf fækkið um 1 l innan við 8 kantlykkjur við miðju að framan,prjónið 2 l slétt saman frá réttu. Endurtakið úrtöku við miðju að framan í 4. hverri umf alls 14 sinnum, þ.e.a.s. alveg þar til kanturinn að framan mætir úrtöku á Dominoferningi.
Fellið af allar l í Dominoferningi í einni umf frá réttu, haldið áfram í garðaprjóni yfir 8 kantlykkjur að framan í 12 cm. Fellið af.

FERNINGUR 10:
Fitjið upp 53-58-62-69-76-83 nýjar l á prjóninn. Prjónið garðaprjón yfir þessar l í 10 cm, endið á 1 umf frá röngu (= ermi). Setjið l á þráð.
Setjið til baka þær 8 kantlykkjur að framan á prjóninn, prjónið upp 53-58-62-69-76-83 l frá ferningi 5, prjónið upp 1 l frá toppi af ferningi 1 og prjónið til baka 53-58-62-69-76-83 l frá þræði á prjóninn = 115-125-133-147-161-175 l. Prjónið nú yfir allar l (1. umf = frá röngu). Prjónið DOMINOFERNINGUR 2 yfir fyrstu 107-117-125-139-153-167 l (séð frá röngu), þær síðustu 8 l eru á kanti að framan og eru prjónaðar slétt í hverri umf. Haldið áfram með úrtöku í Dominoferningi 2, JANFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 25-35-43-57-71-85 umf er fækkað um 1 l innan við 8 kantlykkjur við miðju að framan, fækkið með því að prjóna 2 l slétt saman frá réttu. Endurtakið úrtöku við miðju að framan í 4. hverri umf alls 14 sinnum, þ.e.a.s. þar til kanturinn að framan mætir úrtöku á Dominoferningi. Fellið af allar l í Dominoferningi í einni umf frá röngu, haldið áfram með garðaprjón yfir 8 kantlykkjur að framan með 12 cm. Fellið af.

FERNINGUR 11:
Fitjið upp 53-58-62-69-76-83 nýjar l á prjóninn. Prjónið garðaprjón yfir þessar l í 10 cm, endið á 1 umf frá réttu (= ermi). Prjónið upp 1 l frá toppi af ferningi-1 og 53-58-62-69-76-83 l frá fyrsta helming af ferningi 3= 107-117-125-139-153-167 l. Prjónið DOMINOFERNINGUR 2.

FERNINGUR 12:
Fitjið upp 53-58-62-69-76-83 nýjar l á prjóninn. Prjónið garðaprjón yfir þessar l í 10 cm, endið á 1 umf frá röngu (= ermi). Setjið l á þráð.
Prjónið upp 53-58-62-69-76-83 frá seinni helming af ferningi 3, prjónið upp 1 l frá toppi af ferningi 2 og prjónið til baka þær 53-58-62-69-76-83 l af bandi á prjóninn = 107-117-125-139-153-167 l. Prjónið nú yfir allar l (1. umf = ranga). Prjónið DOMINOFERNINGUR 2.

FRÁGANGUR:
Saumið saman ferning 11 og 12 fyrir miðju að aftan. Saumið erma/axlasauma inn við hálsmál – hálsmál á bakstykki á að vera ca 12 cm breitt, stillið af eftir framstykki – þannig að axlasaumarnir á fram- og bakstykki passi. Saumið sauma undir ermum. Saumið saman kant að framan við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

diagram measurements
diagram measurements
diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Doris Kubena Linder wrote:

Hej, 4 år senare förstår jag fortfarande inte mönstret! Kan man få prata med någon? Mönster 151-29 070-314 15 46.

03.05.2017 - 04:24

DROPS Design answered:

Hej Doris, jag kan se att vi har försökt att förklara tidigare. Du får bättre hjälp om du tar med din stickning till en DROPS butik om du har köpt garnet där. Titta även på videoen nederst i mönstret om hur man stickar domino! Lycka till!

03.05.2017 - 13:52

country flag Maryse wrote:

Bonjour, je n'ai pas compris quand changer de couleurs dans ce magnifique modèle .

27.05.2016 - 20:28

DROPS Design answered:

Bonjour Maryse, on ne change pas de couleur en tricotant, c'est la laine qui comporte des changements de couleurs qui forment les rayures, vous trouverez le nuancier de Delight ici. Bon tricot!

30.05.2016 - 08:42

country flag Christine Poetsch wrote:

Ich habe diese Jacke in 2 Farben (safran,rost und marineblau) gestrickt und es ist ein absuluter Hingucker

22.06.2014 - 09:54

country flag Doris Kubena Linder wrote:

Jag fattar ingenting av mönstret. Kan jag få hjälp. Har stickat ruta 1, antar att jag nu ska göra ruta 3? där står sticka upp 97 m på översidan av ruta ett och 97 m längs översidan av ruta 2 som ska stickas efter ruta 9, jag har kört fast.

17.02.2014 - 18:16

DROPS Design answered:

Hej Doris. Du skal rigtig nok strikke ruta 3 som du strikker op fra 97 paa oversiden af ruta 1, 1 m mellem ruta 1 og 2 og 97 m fra oversiden af ruta 2 (se överste diagram A.1). 1 og 2 er de to hele dominorutar og nummer 3 er en HALV DOMINORUTA, du kan laese hvordan du skal strikke den överst ogsaa.

19.02.2014 - 14:56

country flag Gerda wrote:

Hallo Zusammen, habe das Modell nachgearbeitet- EINFACH SUPER!! Beachten sollte man jedoch unbedingt: Großes Probemuster stricken, da man danach erst beurteilen kann, welche Größe/Maschenzahl man stricken muss - danach unbedingt an die Musterangaben halten, sonst klappt es nicht.

31.01.2014 - 14:09

country flag Doris Kubena Linder wrote:

Ska inte Dominoruta 2 stickas lika som Dominoruta 1, med extra avmaskningar, tex var 16:e varv?

25.11.2013 - 17:06

DROPS Design answered:

Ruta 1 och 2 stickas som DOMINORUTA-1 med extra avmaskningar.

27.11.2013 - 10:48

country flag Doris Kubena Linder wrote:

Undrar om mönster 151-29, ska inte dialogruta 2 stickas som ruta 1? Alltså med minskning med 4 m vart 18:e varv stl XL?

14.11.2013 - 07:22

DROPS Design answered:

RUTA 1 och 2 stickas enligt beskrivningen för DOMINORUTA-1 med extra minskning på varv 18. DOMINORUTA-2 stickar du först när du kommer till RUTA 9 i beskrivningen

15.11.2013 - 09:11

country flag Gerda wrote:

Super Modell, habe mir das Garn bestellt und kann kaum erwarten zu beginnen; ich hoffe, dass die Jacke nicht nur an schlanken Damen gut aussieht!

15.09.2013 - 13:33

Kerstin wrote:

Ha-ha, ich muß meine Augen untersuchen lassen! ;)

18.06.2013 - 17:04

country flag Sissel wrote:

Godt varmt plagg,i glade farger, må vel stemmes inn.. Kunne vært,til fordel m kort og, lang arm.

16.06.2013 - 12:56