DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 29744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lakeside Watercolour Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað neðan frá og upp með röndum, v-hálsmáli, klauf í hliðum og uppábroti á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 245-29
DROPS Design: Mynstur pu-072
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-800-900-950-1050 g litur 02, beige
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-75-75-75-100 g litur 42, mandla
50-50-50-50-50-50 g litur 06, blá þoka
50-50-50-50-50-50 g litur 31, malva
50-50-50-50-50-50 g litur 33, ryð
50-50-50-50-50-50 g litur 41, púður
25-25-25-50-50-50 g litur 43, blár vindur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 512: 4 st í allar stærðir.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 10 umferðir á hæðina (til skiptis 1 umferð með stuðlum / 1 umferð með fastalykkjum) með 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 29744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli / fastalykkju.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Síðasta fastalykkja í umferð er hekluð í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hver umferð með fastalykkjum er hekluð frá röngu, hver umferð með stuðlum er hekluð frá réttu.
A.3 = hægri kantur að framan, A.4 = vinstri kantur að framan.
ATH: Ef 4. umferð í A.2 gengur ekki jafnt upp með lykkjum í umferð þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, heklið eins og útskýrt er í ÚRTAKA-2.

RENDUR:
* Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla.
Heklið A.2 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum malva.
Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum blá þoka.
Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum ryð.
Heklið A.2 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum púður.
Heklið A.1 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði i DROPS Kid-Silk í litnum blár vindur *, heklið frá *-* að loka máli.

ÚRTAKA-1 (á við um handveg):
Fækkið lykkjum í umferð með fastalykkjum.
Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: Skiptið út þeim fjölda lykkja sem fækka á með 1 keðjulykkju í lykkjuna fyrir neðan.
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi lykkja sem fækka á um (það er ekki heklað yfir þær lykkjur sem fækka á um).

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu.
Fækkið um 1 stuðul í 2. eða 4. umferð í A.1 / 2. umferð í A.2 þannig:
Heklið 2 stuðla saman, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
Fækkið um 1 stuðul í 4. umferð í A.2 þannig:
Heklið 1 stuðul í lykkjuna sem venjulega eru heklaðar 2 lykkjur, hoppið yfir næstu lykkju eins og áður.
ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp með 2 lykkjur í mynstri í 4. umferð í A.2 þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, er skipt út fyrir 1 stuðul í lykkjuna fyrir neðan, í stað 2 lykkjur í næstu lykkju og hoppið yfir 1 lykkju.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. Aukið út innan við 1 lykkju í hvorri hlið á stykki.

HNAPPAGAT:
Heklið hnappagöt í hægri kant að framan frá réttu þannig (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum): 1 stuðull í hvora af fyrstu 2 lykkjum, hoppið yfir 1 lykkju, heklið 2 stuðla í næstu lykkju, heklið síðan áfram eins og áður.
Heklið hnappagöt þegar stykkið mælist:
S: 10, 18, 26 og 34 cm.
M: 11, 19, 27 og 35 cm.
L: 12, 20, 28 og 36 cm.
XL: 10, 19, 28 og 37 cm.
XXL: 11, 20, 29 og 38 cm.
XXXL: 12, 21, 30 og 39 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman eins og útskýrt er í uppskrift.

BAKSTYKKI:
Heklið 70-76-84-88-98-108 LOFTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla.
Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 69-75-83-87-97-107 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja, þ.e.a.s. það á ekki að hekla í þessa loftlykkju).
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið RENDUR fram og til baka – lesið útskýringu að ofan (fyrsta umferð í A.1 hefur nú þegar verið hekluð – byrjið í 2. umferð í A.1). Rendurnar eru endurteknar á hæðina að loka máli – ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 3-4-4-4-7-8 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1 = 63-67-75-79-83-91 lykkjur. Haldið áfram með mynstur – munið eftir að í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju.
Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm og hekla á næstu umferð frá réttu, heklið hægri öxl þannig: Heklið 22-24-28-28-30-34 stuðla, heklið 2 stuðla saman – lesið ÚRTAKA-2 = 23-25-29-29-31-35 lykkjur á öxl. Heklið fram og til baka eins og áður yfir axlalykkjur þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þræðina frá og festið.
Heklið vinstri öxl frá réttu þannig: Hoppið yfir fyrstu 15-15-15-19-19-19 lykkjur eftir hægri öxl (hálsmál), heklið 2 stuðla saman, heklið 1 stuðul í hverja af 22-24-28-28-30-34 lykkjum sem eftir eru = 23-25-29-29-31-35 lykkjur á öxl. Heklið fram og til baka á sama hátt og á hægri öxl þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þræðina frá og festið.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 43-45-49-51-55-61 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla.
Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 42-44-48-50-54-60 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja).
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig (fyrsta umferð í mynsturteikningu hefur nú þegar verið hekluð – byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu): Heklið A.3 yfir fyrstu 7 lykkjur (kantur að framan), heklið A.1 yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið áfram með mynstur fram og til baka í röndum á sama hátt og á bakstykki með A.3 yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju.
Þegar heklað hefur verið ca 1 cm á eftir síðasta hnappagati, fellið af fyrir V-hálsmáli. Að auki á að fækka lykkjum fyrir handveg. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú heklar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við ystu 7 lykkjur við miðju að framan (fækkið lykkjum frá réttu í umferð með stuðum) – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með stuðlum alls 9-8-8-10-9-10 sinnum. ATH: Þegar lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli er hekluð 4. umferð í A.2 eins og útskýrt er í ÚRTAKA-2.

HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 3-4-4-4-7-8 lykkjur fyrir handvegi í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1.

Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmál eru 30-32-36-36-38-42 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka eins og áður yfir þessar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, heklið A.3 fram og til baka einungis yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan (ekki er heklað yfir þær 23-25-29-29-31-35 lykkjur sem eftir eru á öxl) = kantur í hálsmáli aftan í hnakka. Heklið fram og til baka í röndum þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8-8-8-9-9-9 cm frá öxl – kantur í hálsmáli strekkist aðeins þegar sauma á við hálsmál aftan í hnakka. Klippið þræðina og festið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 43-45-49-51-55-61 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla.
Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 42-44-48-50-54-60 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja).
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig (fyrsta umferð í mynsturteikningu hefur nú þegar verið hekluð – byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu): Heklið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð við miðju að framan, heklið A.4 yfir síðustu 7 lykkjur (kantur að framan). Haldið áfram með mynstur fram og til baka í röndum á sama hátt og á hægra framstykki með A.4 yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan
ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir á undan kanti að framan, endið með 1 stuðul í lykkju á undan kanti að framan.
Fækkið síðan lykkjum fyrir V-hálsmáli og handvegi. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en heklað er áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við ystu 7 lykkjur við miðju að framan (fækkið lykkjum frá réttu í umferð með stuðlum) munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með stuðlum alls 9-8-8-10-9-10 sinnum.

HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 3-4-4-4-7-8 lykkjur fyrir handveg í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1.

Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmál eru 30-32-36-36-38-42 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka eins og áður yfir þessar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, heklið A.2 fram og til baka einungis yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan (ekki er heklað yfir þær 23-25-29-29-31-35 lykkjur sem eftir eru á öxl) = kantur í hálsmáli aftan í hnakka. Heklið fram og til baka í röndum þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8-8-8-9-9-9 cm frá öxl – kantur í hálsmáli strekkist aðeins þegar sauma á við hálsmál aftan í hnakka. Klippið þræðina og festið.

ERMI:
Heklið 40-40-42-42-44-46 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum mandla.
Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 39-39-41-41-43-45 fastalykkjur og 1 loftlykkja (loftlykkjan í þessari umferð er ekki talin með sem 1 fastalykkja).
Heklið A.1 fram og til baka (byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu). Þegar stykkið mælist 10 cm, setjið 1 prjónamerki í stykkið. Héðan er nú stykkið mælt.
Heklið síðan rendur á sama hátt og á bakstykki og framstykki, en byrjið með A.2 í 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum malva – ATH: Í 4. umferð í A.2 er heklað A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju.

Þegar stykkið mælist 13-12-13-11-13-11 cm frá prjónamerki, auki út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 6-5-4-4-3-3 cm millibili alls 7-8-9-10-11-11 sinnum í hvorri hlið = 53-55-59-61-65-67 lykkjur. ATH: Þegar hekla á 4. umferð í A.2, heklið á sama hátt og áður, þ.e.a.s. A.2 er heklað þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju.
Þegar stykkið mælist 53-51-49-49-47-44 cm frá prjónamerki, setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið. Heklið áfram þar til stykkið mælist 55-54-52-52-52-50 cm frá prjónamerki neðan á ermi (öll ermin mælist alls ca 65-64-62-62-62-60 cm frá uppfitjunarkanti). Klippið þræðina og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana.
Saumið hliðarsaumana frá handvegi og niður þar til ca 11 cm er eftir í hvorri lið fyrir klauf.
Saumið sauma undir ermum frá uppfitjunarkanti og upp að prjónamerki sem var sett efst á ermi, saumið kant í kant þannig að saumurinn verði flatur og passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar brotið er uppá neðstu 10 cm. Það er klauf ca 2-3-3-3-5-6 cm efst á ermi.
Strekkið létt á ermakúpunni þannig að hún passi við handveginn og saumið ermakúpuna við handveginn. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.
Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið tölur í vinstra framstykki.
Brjótið uppá neðstu 10 cm á ermum og festið uppábrotið með nokkrum sporum í hvora hlið.

Mynstur

symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Els Roelandt wrote:

Bij het minderen aan de V hals staat in het patroon: minder 1 steek aan de binnenkant van de 7 voorbiessteken. Haak je dan eerst de 7 biefstukken en de daaropvolgende steek minderen?

01.03.2024 - 18:15

DROPS Design answered:

Dag Els,

Ja, het is de bedoeling dat je de minderingen vlak naast de biessteken maakt, dus zodat de 7 biessteken in tact blijven en mooi doorlopen.

05.03.2024 - 22:54

country flag Els Roelandt wrote:

Ik begrijp niet hoe ik verder moet met het achterpand: werk is nu 63 cm,maat L. Ik moet beginnen aan re schouder: 28 stokjes haken, dan 2 st samenhaken dus in totaal 29 stokjes. Haak ik dan heen en weer tot de gevraagde lengte of miet ik in rij 4 A2 nogmaals 1 keer minderen?

29.02.2024 - 19:40

DROPS Design answered:

Dag Els,

Ja, in totaal inderdaad 29 stokjes en je haakt dan heen en weer in stokjes tot de gevraagde lengte.

01.03.2024 - 07:27

country flag Sophie Chermin wrote:

Hallo, hoeveel garen heb ik nodig van Kid Silk als ik het effen wil maken?

10.11.2023 - 17:46

DROPS Design answered:

Dag Sophie,

Dat is mij helaas niet bekend. Om een idee daarvan te krijgen zou je kunnen kijken naar een vergelijkbaar werkstuk waarin Kid-Silk gecombineerd wordt met een garen uit garengroep B.

12.11.2023 - 17:40

country flag Livia wrote:

Bonjour, Fidèle cliente, j'aimerais faire ce modèle mais en 1 couleur Puna et 1 de Kid Silk Connaissez vous la juste quantité de pelotes de 25g de kid silk pour les tailes M et L ? Par avance merci !

30.10.2023 - 10:51

DROPS Design answered:

Bonjour Livia, malheureusement non car le gilet a été tricoté avec des rayures, n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS, on saura vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

30.10.2023 - 18:02

country flag Jo wrote:

Hi! I would like to know if it is possible to make this with any other yarn? I have some allergies and yarns like kid silk ( that have that halo) are not very good for me! do you think i could make it with any other alternetives? thanks!

27.10.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Dear Jo, sure use our yarn converter to see all alternatives to Kid-Silk as well as the new matching amount of yarn. Happy knitting!

28.10.2023 - 09:08

country flag Anna wrote:

Coastal path

04.08.2023 - 21:52

country flag Vanilla wrote:

Autumnal tea

04.08.2023 - 17:38

country flag Anni wrote:

Autumn Sun

04.08.2023 - 09:34

country flag Nadia Trappeniers wrote:

Waiting for spring

04.08.2023 - 08:54

country flag Dianne wrote:

Coastal Views

04.08.2023 - 01:10