DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 1.11 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19.98€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 209-2
DROPS Design: Mynstur w-799
Garnflokkur C eða A+ A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ: Breidd: ca 80 cm. Lengd: ca 125 cm.

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 64, ametist
100 g litur 66, plóma
100 g litur 62, salvíugrænn
100 g litur 25, mosagrænn
100 g litur 61, lime
100 g litur 17, natur
100 g litur 41, sinnep
100 g litur 65, ryð
100 g litur 63, eyðimerkurrós

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 1.11 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19.98€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Ef þú vilt hafa teppið breiðara, er hægt að bæta við auka einingum með öldumynstri. En mynstureiningin mælist ca 11 cm á breiddina. Bætið við 28 loftlykkjum í loftlykkjuröð fyrir hverja auka einingu sem bætt er við. Ein auka eining = 18 stuðlar fleiri þegar 1. umferð hefur verið hekluð til loka.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

RENDUR:
Heklið 2 umferðir með hverjum lit. Heklið rendur þannig:
2 umferðir með litur 64, ametist
2 umferðir með litur 66, plóma
2 umferðir með litur 62, salvíugrænn
2 umferðir með litur 25, mosagrænn
2 umferðir með litur 61, lime
2 umferðir með litur 17, natur
2 umferðir með litur 41, sinnep
2 umferðir með litur 65, ryð
2 umferðir með litur 63, eyðimerkurrós
2 umferðir með litur 61, lime
2 umferðir með litur 66, plóma
2 umferðir með litur 17, natur
2 umferðir með litur 63, eyðimerkurrós
2 umferðir með litur 62, salvíugrænn
2 umferðir með litur 41, sinnep
2 umferðir með litur 64, ametist
2 umferðir með litur 25, mosagrænn
2 umferðir með litur 63, eyðimerkurrós
2 umferðir með litur 65, ryð
2 umferðir með litur 66, plóma
2 umferðir með litur 41, sinnep
2 umferðir með litur 17, natur
2 umferðir með litur 64, ametist
2 umferðir með litur 61, lime
2 umferðir með litur 62, salvíugrænn
2 umferðir með litur 25, mosagrænn
2 umferðir með litur 65, ryð

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Mynstur og rendur er heklað samtímis.

TEPPI:
Hekli 194 LAUSAR loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum ametist – SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR. Sjá útskýringu á RENDUR að ofan.
Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1 þar sem 1. umferðin er hekluð þannig:
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, 1 stuðull í hvora af 2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 5 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, endurtekið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum = 127 stuðlar. Það eru 7 sikk sakk bogar á breiddina. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 Í MYNSTURTEIKNINGU: 3 loftlykkjur (þessar 3 lykkjur koma í stað fyrsta stuðuls), * 1 stuðull í hvern af næstu 8 stuðlum, 1 stuðull um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 1 stuðull um sama boga, 1 stuðull í hvern af næstu 8 stuðlum, hoppið yfir 2 stuðla *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (skiptið yfir í plóma): Sjá mynsturteikningu A.1. Heklið B 1 sinni, endurtakið C 6 sinnum. Endið umferð með að hekla D 1 sinni.
UMFERÐ 4: Sjá mynsturteikningu A.1. Heklið D 1 sinni, endurtakið C 6 sinnum og endið umferð með að hekla B 1 sinni.

Endurtakið síðan umferð 3 og 4, jafnframt er skipt um lit eins og stendur í útskýringu á RENDUR að ofan. Þegar allar rendur hafa verið heklaðar 1 sinni, endurtakið rendur frá byrjun. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 125 cm, eða að óskaðri lengd. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja

symbols = 1 stuðull í stuðul

symbols = 1 stuðull um boga
symbols = umferðir 3 og 4
symbols = umferðirnar eru einnig útskýrðar í uppskrift
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Pina wrote:

Salve per realizzarla 100x180 quanti gomitoli occorrono? Grazie

19.11.2023 - 22:10

DROPS Design answered:

Buonasera Pina, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

22.11.2023 - 18:10

country flag Stine wrote:

Ønsker å hekle oppskriften med tykkere garn og tykkere nål. men 194 luftmasker gjør at teppet blir enormt. Hvilket antall luftmasker kan jeg redusere til for kunne følge oppskriften?

13.07.2022 - 10:09

DROPS Design answered:

Hej Stine. Det kommer an på hur tjockt garn du har. Det bästa är att du gör en pröve med ett mindre antal maskor och gör några rader för att se hur stort det blir så ser du hur många masker du ska lägga upp efter det. Mvh DROPS Design

13.07.2022 - 14:13

country flag Sigrid wrote:

Den Rand bekomme ich nicht hin. Ich habe auch Stufen. Da stimmt was nicht.

06.06.2022 - 08:54

DROPS Design answered:

Liebe Sigrid, es kann nicht ganz gerade wie beim nur Stäbchen sein, aber große Stufen sollten auch nicht sein, wenn Sie lieber mehr gerade Ränder möchten, dann können Sie vielleicht mit Abnahmen (anstatt Stb überspringen) am Ende der Reihen versuchen. Oder dann am Ende eine extra Reihe am beiden Längen häkeln. Viel Spaß beim häkeln!

07.06.2022 - 10:06

country flag Laura Pedersen wrote:

Hej, jeg er igang med at hækle det her tæppe. Jeg er knap halvvejs (jeg har 24 rækker ud af de 54) og kan allerede nu se, at det slet ikke er tæt på at måle 62,5 cm. Min hæklefasthed passer ikke, den lyder på 15 stangmasker x 8 rækker, hvilket er helt bevidst, da jeg gerne vil have det større end de 125 cm, som opskriften oprindeligt siger. Når ens hæklefasthed er mindre, så vil arbejdet blive større. Men det er slet ikke tilfældigt hos mig, og jeg forstår det simpelthen ikke

23.05.2022 - 20:42

DROPS Design answered:

Hej Laura, men du gentager bare striberne til arbejdet måler 125 cm eller ønsket længde. God fornøjelse!

25.05.2022 - 13:24

country flag Maria Bodner wrote:

Ich habe Probleme mit dem Ende der 2. Reihe. Der Rand ist nicht gerade. Ich müsste 9 Stäbchen häkeln um ans Ende zu kommen. Wenn ich 8 Stäbchen häkeln entstehen große Stufen. Am Beginn der Arbeit beginnt man ja mit Luftmaschen und dann macht man noch 3 Stäbchen. Ist das korrekt?

30.01.2022 - 07:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bodner, am Ende der 2. Reihe hâkeln Sie bis 1 Stäbchen übrig ist, dann wenden Sie und häkeln Sie so weiter, so wird es gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

31.01.2022 - 09:39

country flag Lisen wrote:

Jeg forstår ikke 1. rad i diagrammet. Det er angitt symboler for "1 stav i staven" - hvorfor blir det ikke i første rad "stav i luftmaske" ?

10.09.2021 - 23:43

DROPS Design answered:

Hei Lisen. Man kunne ha tegnet opp en luftmaskerad der stavene skal hekles i, men siden 1.rad er forklart i teksten er dette utelatt. mvh DROPS design

20.09.2021 - 11:39

country flag Susidus wrote:

Hej. Det här mönstret gör mig virrig! I beskrivningstexten av varv 1 så står det klart och tydligt att man får ihop 9 stolpar inklusive den första "luftmaskstolpen". Men i diagrammet så räknar jag till 10 stolpar med "luftmaskstolpen". Hur ska jag tänka då? Vad blir rätt, följa beskrivningen eller diagrammet? Ibland är det 9 och ibland är det 10!!!

21.07.2021 - 17:36

DROPS Design answered:

Hej Susidus, ja följ diagrammet så du har 9 m på vart annat varv och vänder med 3 lm (så du får 10 i den sidan du vänder). Lycka till :)

05.08.2021 - 14:11

country flag Susanne wrote:

Hej! Jag blir inte klok på detta mönster! I beskrivningen på varv 1 så står det klart och tydligt att man får ihop 9 stolpar inklusive den första "luftmaskstolpen". Men i diagrammet så räknar jag till 10 stolpar inklusive "luftmaskstolpen". Hur ska jag tänka då? Vad blir rätt, följa beskrivningen eller diagrammet? Ibland är det 9 och ibland är det 10

21.07.2021 - 17:33

country flag Verónica Rodríguez Martínez wrote:

Esta corregido el patrón? En una de las partes pone que 5 carencias y creo que son 3. Lo estoy intentando hacer y no me queda bien. Puede mirarlo?

03.06.2021 - 23:20

DROPS Design answered:

Hola Veronika, esta bien 5 carencias 6 veces al inicio del trabajo. Buen trabajo!

04.06.2021 - 09:29

country flag Margret wrote:

Wanneer de zijkanten trapjes vormen wanneer je het diagram volgt is mijn oplossing aan het begin van de toer 3 lossen haken, dan in het eerste stokje een stokje haken en volg daarna het patroon (je hebt dan 1 stokje meer). Aan het eind van de toer eindigen met 2 stokjes in de lossenboog van de vorige toer. Doordat iedere toer begint en eindigt met 2 stokjes in dezelfde steek wordt de zijkant van de deken heel recht en hoef je geen gedraaide steken te gebruiken.

11.01.2021 - 21:50