Christmas KAL 2019 - Efni

Hvað þarf ég til að geta byrjað?

Hvað þarf ég til að vera með?

Magnið af garni sem þú þarft fer eftir stærðinni sem þú prjónar og þess vegna er fyrsta skrefið að velja hvaða stærð á peysu þú ætlar að gera. Mældu peysu sem passar á barnið þitt og berðu saman málin sem eru í stærðartöflunni til að velja þá stærð sem passar!

Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára

Stærð (eftir hæð í cm): 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

Sjá leiðbeiningar hvernig á að lesa úr stærðartöflu hér.

Garn

Að neðan þá sérð þú lista yfir það efni sem þú þarft fyrir peysuna. Við prjónum úr DROPS Air en þú getur einnig notað DROPS Nepal sem valmöguleika. Mundi bara að þú getur valið aðra garntegund frá garnflokki C. Notaðu garn reiknivélina okkar til að reikna út hversu mikið af öðru DROPS garni þú þarft.

DROPS Air
Litur a) 100-100-150-150-150-150 g litur 04 milligrár
(Þú þarft aukalega 50-50-50-50-50-50 g af lit 04 milligrár ef þú ætlar ekki að gera jólasvein á bakhliðinni)
Litur b) 50-50-50-50-50-50 g litur 25 hindber
Litur c) 50-50-50-50-50-50 g litur 01 natur
Litur d) 50-50-50-50-50-50 g litur 02 hveiti
Litur e) Afgangs garn – við notum lit 06 svartur, fyrir augun.

Panta DROPS Air hér


Garn valmöguleikar

DROPS Nepal
Litur a) 200-200-250-250-300-300 g litur 0501, grár
(Þú þarft aukalega 50-50-50-50-50-50 g af lit 0501 grár ef þú ætlar ekki að gera jólasvein á bakhlið)
Litur b) 50-100-100-100-100-100 g litur 3608, djúp rauður
Litur c) 50-50-50-50-50-50 g litur 0100, natur
Litur d) 50-50-50-50-50-50 g litur 0206, ljós beige
Litur e) Afgangs garn – við notum lit 8903 svartur, fyrir augun.

Panta DROPS Nepal hér


Annað efni

- DROPS sokkaprjónar, stærð 5,5 mm
- DROPS hringprjónar, stærð 5,5 mm - lengd 40 og 60 cm fyrir sléttprjón.
- DROPS sokkaprjónar, stærð 4,5 mm
- DROPS hringprjónar, stærð 4,5 mm - lengd 40 og 60 cm fyrir stroff.

Mundu að prjónastærð er einungis til leiðbeiningar.Prjónfestan fyrir þetta mynstur er 16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

Vísbendingar