DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bonnie Blue

Hekluð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður með hringlaga berustykki, stuttum ermum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 250-9
DROPS Design: Mynstur vs-112
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 15, gallabuxnablár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

HEKLFESTA:
20 stuðlar á breidd og 10 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur (þetta er 1 stuðull), þessi stuðull kemur sem viðbót við lykkjurnar sem heklaðar eru í mynsturteikningu A.1. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. A.x sýnir hvernig mynstrið endurtekið á hæðina.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið er út í umferð þar sem 1 stuðull er heklaður í hvern stuðul. Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla til skiptis í 4. og 5. hverja lykkju.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Lykkjum er fækkað í umferð þar sem heklaður er 1 stuðull í hvern stuðul. Fækkað er um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta stuðul, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring frá miðju að aftan og heklað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið heklað til loka, skiptast lykkjurnar fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað niður á við í hring, á meðan ermarnar eru látnar bíða. Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf, framstykkið og bakstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru heklaðar niður á við í hring. Í lokin er hekluð 1 umferð með fastalykkjum í hálsmáli.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 100-106-109-115-118-130 loftlykkjur með heklunál 3,5 og DROPS Belle – lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan.
Tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan og heklið 1 umferð með stuðlum jafnframt því sem aukið er út um 22-22-22-25-25-25 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 121-127-130-139-142-154 stuðlar.

BERUSTYKKI.
Byrjið umferð með 3 loftlykkjum (= 1 stuðull), endurtakið síðan A.1 hringinn í umferð. Í umferð merktri með ör er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

ÖR 1: Aukið út 24-27-27-30-36-39 stuðlar jafnt yfir = 145-154-157-169-178-193 lykkjur.
ÖR 2: Aukið út 24-27-30-36-36-42 stuðlar jafnt yfir = 169-181-187-205-214-235 lykkjur.
ÖR 3: Aukið út 27-27-30-39-42-45 stuðlar jafnt yfir = 196-208-217-244-256-280 lykkjur.
ÖR 4: Aukið út 27-30-33-39-42-45 stuðlar jafnt yfir = 223-238-250-283-298-325 lykkjur.
ÖR 5: Aukið út 27-30-33-39-42-45 stuðlar jafnt yfir = 250-268-283-322-340-370 lykkjur.
ÖR 6: Aukið út 27-33-36-39-45-45 stuðlar jafnt yfir = 277-301-319-361-385-415 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.x þar til stykkið mælist 20-20-23-23-25-27 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem heklaður er 1 stuðull í hvern stuðul. Héðan er nú stykkið mælt!

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 43-48-49-55-60-64 stuðla (ca hálft bakstykki), heklið 9-9-12-12-15-18 loftlykkjur (í hlið undir ermi) og hoppið yfir næstu 52-55-61-70-73-79 stuðla (ermi), heklið 86-95-98-110-119-128 stuðla (framstykki), heklið 9-9-12-12-15-18 loftlykkjur (í hlið undir ermi) og hoppið yfir næstu 52-55-61-70-73-79 stuðla (ermi) og heklið 43-47-49-55-59-64 stuðla (ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 190-208-220-244-268-292 lykkjur. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) og mynstur A.x eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 6-6-7-7-7-9 cm frá skiptingu, aukið út 6-6-6-6-6-6 stuðla jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 196-214-226-250-274-298 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 13-13-14-14-14-16 cm frá skiptingu, aukið út 9-6-9-6-6-6 stuðla jafnt yfir = 205-220-235-256-280-304 lykkjur.
Heklið síðan eftir mynstri þar til stykkið mælist 24-26-25-26-26-26 cm frá skiptingunni. Klippið þráðinn. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Leggið stykkið flatt, setjið eitt merki í hvora hlið þannig að það eru 102-110-117-128-140-152 lykkjur á framstykki og 103-110-118-128-140-152 lykkjur á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið heklað fram og til baka hvort fyrir sig með stuðlum.

FRAMSTYKKI:
= 102-110-117-128-140-152 lykkjur. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til klaufin mælist ca 4 cm. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

BAKSTYKK:
= 103-110-118-128-140-152 lykkjur. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til klaufin mælist ca 4 cm.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMAR:
Byrjið umferð ca mitt í 9-9-12-12-15-18 loftlykkjum sem voru heklaðar í hlið á fram- og bakstykki. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) og heklið mynstur A.x hringinn eins og áður = 61-64-73-82-88-97 lykkjur. Þegar ermin mælist ca 3-3-4-4-5-5 cm, fækkið um 3-3-3-3-3-3 stuðla jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 58-61-70-79-85-94 stuðlar.

STÆRÐ XL:
Þegar stykkið mælist ca 8 cm er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 76 stuðlar.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið mynstur eins og áður, en stillið af að það séu minnst 2 umferðir án gatamynsturs neðst á ermi. Heklið þar til ermin mælist ca 17-17-15-16-14-12 cm.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að aftan, festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið 1 fastalykkju á milli hverra stuðla frá fyrstu umferð, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.
symbols = 1 stuðull í lykkjunni fyrir neðan
symbols = 1 stuðull um loftlykkju fyrir neðan
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Marion Gelder wrote:

Ik heb pijl 1 gehad, dan volg ik instructie verder ben nu bij de toer dat ik 3stokjes om de losse moet maken maar dan heb ik toch teveel stokjes ik kom nu uit op 234 stokjes? En dan zou ik nu in rij twee moeten gaan meerderen naar 187 stokjes, u begrijpt ik snap het niet. Help Marion

26.04.2024 - 14:00

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Als je na het meerderen van pijl 1 157 stokjes hebt en je haakt de 2 daaropvolgende toeren, dan zou je nog steeds 157 stokjes op de toer moeten hebbe. Op de toer na pijl 1 haak je namelk 1 stokje + 1 losse + 1 stokje in een steek en daar tussen sla je steeds 2 steken over. Misschien dat je hier steeds 1 steek hebt overgeslagen.

28.04.2024 - 10:19

country flag Arina wrote:

Kan ik dit truitje ook met muskat haken ik heb 14 bollen Spring Renaissance Top Voor dit truitje moet het wel lukken

22.04.2024 - 00:41

DROPS Design answered:

Dag Arina,/p>

Muskat valt ook in garencategorie B, dus dat kan prima. Om te berekenen hoeveel je nodig hebt in een ander garen, kun je trouwens ook de garenververvanger gebruiken. Hiervan vindt je een link onder de materialenlijst bij ieder patroon.

22.04.2024 - 20:40

country flag Paula wrote:

Ik haak dit in XL en wat doe ik na de pas met de 12 lossen? Blijven die gewoon bungelen of ?

19.04.2024 - 17:49

country flag Karin Hahn wrote:

Hallo, so schön der Pullover auch ist verzwefle ich gerade an den Zunahmen...... Toll dass Sie uns ein beispiel für das Zunehmen zeigen. jedoch ist das sicherlich aus gutem Grund so gewählt dass man immer abwechselnd in jeder 4 und 5 Masche verdoppeln muss. Nun seien Sie doch bitte so lieb und erklären mir wie das zum Beispiel bei einer Maschenzahl von 130 Stk, Zunahme 27 x auf eine Maschenanzahl von 157 Stk ausgerechnet wird ,dass die Zunahmen gleichmäßig verteilt sind. I Danke

17.04.2024 - 13:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hahn, in dieser Lektion erklären wir, wie man regelmäßig verteilt, je nach dem Ergebnis von der Division., je nach der Zahl eine halbe oder ganze Zahl abgerundet wird. Viel Spaß beim Stricken!

17.04.2024 - 15:26

country flag Paula wrote:

Ik krijg niet zo’n gaatjespatroon in de pas wat doe ik verkeerd?

05.04.2024 - 19:18

country flag Irmeli Andersson wrote:

Perun kysymykseeni. Huomasin etten ollut huomioinut ollenkaan 1. kerroksella tehtäviä lisäyksiä, vaan hyppäsin suoraan 1. lisäykseen. Pitäisi lukea ohjeet tarkemmin:) yst terveisin Irmeli A

04.04.2024 - 20:02

country flag Irmeli Andersson wrote:

Hei, kysyisin lisäyksestä, jota en aivan tajua. Minulla on aloituksessa 100 pylvästä ja lisään 24 pylvästä ja ohjeessa sanotaan että tuloksena on 145 s. Onko siis p ja s eri asia? En ole juurikaan tehnyt neuleita virkkaamalla, joten tämä on minulle outo asia. T Irmeli A

04.04.2024 - 18:59

DROPS Design answered:

Hei, oletko tehnyt pääntien reunuksen lisäykset? Työssä on aluksi 100 ketjusilmukkaa ja ne suljetaan renkaaksi 1 piilosilmukalla (= 99 ketjusilmukkaa kerroksella). Ensimmäisellä pylväskerroksella työhön lisätään 22 pylvästä ja työssä on tämän jälkeen 121 pylvästä.

05.04.2024 - 18:15

country flag Pirjo Irmeli Andersson wrote:

Hei, en oikein käsitä näitä lisäyksiä; aloituksessa minulla on 100 pylvästä, lisätään 24 pylvästä ja tulos on 145 silmää. Ovatko siis pylväät ja silmukat eri juttu? Olen tehnyt neuleita harvemmin virkkaamalla joten tämä on minulle outo asia. Terveisin Irmeli A

04.04.2024 - 18:55

country flag Marie wrote:

Bonjour, à la séparation des manches (+9 mailles en l’air) faut-il de suite crocheter ces 9 mailles lors de du 1er rang en aller-retour dos/devant ? Ou bien faut-il les laisser en attente ? Car mon ouvrage s’arrondit malgré le bon nombre de mailles , alors que d’après le modèle il devrait descendre droit. \r\nMerci pour vos explications

01.04.2024 - 10:05

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, après la division, crochetez toutes les mailles du tour = les mailles de l'empiècement partie devant et dos + les 9 mailles en l'air de chaque côté à la place des manches. Bon crochet!

02.04.2024 - 15:04

country flag Inge Mollet wrote:

Ik snap het gedeelte na de pas niet goed. Ik heb voor het lijf 48+48+86 steken maar geen 190. Waar gaat het mis. En moeten die 9 lossen daar blijven bungelen?

31.03.2024 - 16:29

DROPS Design answered:

Dag Inge,

Als je maat S haakt, dan haak je eerst 43 stokjes (in plaats van 48), dan 9 lossen (onder de mouw, dus bij de oksel), 86 stokjes, 9 lossen en tot slot weer 43 stokjes. Hiermee kom je op een totaal van 43+9+86+9+43 = 190. De eerste 3 lossen op het begin van de toer worden aanvullend op de toer gehaakt (zie bovenaan bij informatie voor het haken).

04.04.2024 - 20:25