DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Petite Fleur

Hekluð peysa með marglitu mynstri, blómum og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður með 3/4-löngum ermum. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS 188-8
DROPS Design: Mynstur me-128
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 01, natur
50-50-50-100-100-100 g litur 16, ljós bleikur
50-50-50-50-50-50 g litur 30, sinnep

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð er hekluð fram og til baka og er hekluð saman í lok/byrjun á hverri umferð þannig:
Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu.
Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, snúið stykkinu.
Í 3. umferð í A.1 og 2. umferð í A.4 byrjar umferðin og endar þannig:
Heklið 1 keðjulykkju í hverja og eina af 2 fyrstu lykkjum frá fyrri umferð, 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Heklið bæði frá réttu og frá röngu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 13,28.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju í ca 13. hverja lykkju.
Ef fækka á lykkjum er í þessu dæmi heklaðar saman ca 12. og 13. hver lykkja.

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum.
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn, heklið síðan næstu lykkju.
Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir með.
Þegar ekki eru fleiri stuðlar eftir í umferð sem hekla á í sama lit, þarf liturinn ekki að fylgja áfram með í stykkinu, ef nota á hann í næstu umferð er hann sóttur í næstu umferð en passið uppá að þráðurinn komi alltaf á bakhlið á stykki.
Passið uppá að fylgiþræðirnir verði ekki stífir og að herða ekki á þræðinum þegar hann er tekinn upp frá fyrri umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og frá röngu) og heklað saman í hverri umferð, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Heklið 109-114-118-123-129-133 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 3-1-5-3-2-6 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* = 93-97-101-105-110-114 fastalykkjur.

Heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið út 7-15-23-23-30-30 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 100-112-124-128-140-144 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig – lesið LITAMYNSTUR:
Heklið A.1 yfir 16-20-24-24-24-24 lykkjur (= 4-5-6-6-6-6 mynstureiningar með 4 lykkjum) (= hálft bakstykki), heklið A.2 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar með 1 lykkju), A.1 yfir 12 lykkjur (= 3 mynstureiningar), A.2 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar) (= hægri ermi), A.1 yfir 36-40-44-44-56-56 lykkjur (= 9-10-11-11-14-14 mynstureiningar (= framstykki), A.2 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar), A.1 yfir 12 lykkjur (= 3 mynstureiningar), A.2 yfir 2-2-2-3-3-4 lykkjur (= 2-2-2-3-3-4 mynstureiningar) (= vinstri ermi), A.1 yfir 16-20-24-24-24-24 lykkjur (= 4-5-6-6-6-6 mynstureiningar = hálft bakstykki). Þegar A.1 og A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 140-152-164-188-200-224 lykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 6 cm.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig:
Heklið A.3 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 4 stuðla jafnt yfir = 144-156-168-192-204-228 stuðlar. A.3 er þá endurtekið 12-13-14-16-17-19 sinnum á breidd.
Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 228-247-266-304-323-361 lykkjur í síðustu umferð (2 stuðlar heklaðir saman = 1 lykkja). Stykkið mælist ca 16 cm. Nú er stykkið heklað til loka með litnum natur þannig:

Heklið A.4 yfir allar lykkjur JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 3-5-4-5-4-5 lykkjur jafnt yfir = 231-252-270-309-327-366 stuðlar. A.4 er þá endurtekið 77-84-90-103-109-122 sinnum á breidd.
Í 3. umferð í A.4 er aukið út um 9-6-9-6-9-6 stuðla jafnt yfir = 240-258-279-315-336-372 stuðlar.
A.4 er þá endurtekið 80-86-93-105-112-124 sinnum á breidd.
Í síðustu umferð í A.4 er aukið út um 6 stuðla jafnt yfir = 246-264-285-321-342-378 stuðlar.
A.4 er þá endurtekið 82-88-95-107-114-126 sinnum á breidd.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá kanti í hálsmáli, stillið af að næsta umferð sé umferð einungis með stuðlum.
Nú skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið A.4 eins og áður yfir fyrstu 33-36-39-45-51-57 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 2-1-1-1-0-0 stuðlum (= hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 53-57-62-68-70-75 stuðla (= ermi), heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í 1-0-1-1-1-0 stuðla, heklið A.4 eins og áður yfir næstu 69-75-78-90-99-114 stuðlum, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 0-1-2-2-0-0 stuðlum (= framstykki), hoppið yfir næstu 53-57-62-68-70-75 stuðla (= ermi), heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 2-1-1-1-0-0 stuðlum, A.4 eins og áður yfir næstu 33-36-39-45-51-57 stuðlum (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-166-177-201-218-244 lykkjur. Heklið mynstur A.4 yfir lykkjur JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-0-0-1-2 stuðla jafnt yfir (A.4 er endurtekið þá 52-56-59-67-73-82 sinnum á breidd) = 156-168-177-201-219-246 stuðlar.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar skiptust er fækkað um 3 stuðla í næstu umferð (stillið af að lykkjum sé fækkað í umferð einungis með stuðlum). Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-4-3-4-2½ cm millibili alls 5-5-3-4-3-5 sinnum = 141-153-168-189-210-231 lykkjur. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað er hekluð 1 mynstureiningu minna af A.4 á breiddina.
Þegar stykkið mælist 14 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar skiptust, er aukið út um 3 stuðla jafnt yfir (stillið af að aukið sé út í umferð einungis með stuðlum).
Aukið svona út í hverjum cm alls 13-13-14-14-14-14 sinnum = 180-192-210-231-252-273 lykkjur. Í hvert skipti sem aukið er út er hekluð 1 mynstureining fleiri á A.4 á breiddina.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar skiptust (= 49-51-53-55-57-59 cm frá kanti í hálsmáli) – endið eftir eina umferð með stuðlum. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og frá röngu) og er heklað saman með 1 keðjulykkju í hverja umferð.
Byrjið á að hekla í 5. loftlykkju af 8 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki með litnum natur þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, 1 stuðull í næstu 1-0-1-1-0-0 stuðla, A.4 yfir næstu 51-57-60-66-69-75 stuðla (= 17-19-20-22-23-25 sinnum á breidd), 1 stuðull í næstu 1-0-1-1-1-0 stuðla og endið með 1 stuðul í hverja af síðustu 4 loftlykkjum undir ermi = 61-65-70-76-78-83 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð.
Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 4-5-4-4-3-5 stuðla jafnt yfir = 57-60-66-72-75-78 lykkjur. A.4 er nú endurtekið 19-20-22-24-25-26 sinnum hringinn í umferð.
Þegar ermin mælist 4 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 3 stuðla jafnt yfir í umferð (stillið af að lykkjum sem fækkað í umferð einungis með stuðlum). Fækkið lykkjum svona með 4-4-3-2-2-1½ cm millibili alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 48-51-54-60-63-66 lykkjur. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað er A.4 endurtekið 1 sinni færri á breiddina.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 16-14-14-13-11-9 cm frá þar sem ermin skiptist á fram- og bakstykki. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið fram og til baka yfir loftlykkjuumferð í hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu með litnum natur): Byrjið við miðju að aftan, festið enda við stykki með 1 keðjulykkju í 1. kantlykkju að framan, heklið 2 loftlykkjur (= 1 hálfur stuðull), heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju út umferðina = 93-97-101-105-110-114 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 2 (= frá röngu með litnum ljós bleikur): Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul = 93-97-101-105-110-114 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = loftlykkja með litnum ljós bleikur
symbols = fastalykkja í lykkju með litnum ljós bleikur
symbols = fastalykkja í fremri lykkjuboga í lykkju frá röngu með litnum natur
symbols = fastalykkja um lykkju/á milli lykkja með litnum natur
symbols = stuðull í lykkju með litnum natur
symbols = stuðull í lykkju með litnum ljós bleikur
symbols = stuðull um loftlykkju með litnum natur
symbols = heklið 4 stuðla saman í sömu lykkju með litnum ljós bleikur þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 3 stuðla til viðbótar í sömu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 4 stuðla saman í sömu lykkju með litnum sinnep þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 3 stuðla til viðbótar í sömu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 2 stuðla saman í sömu lykkju með litnum natur þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð
symbols = loftlykkja með litnum natur
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Nancy wrote:

Por favor, cómo sé la cantidad de ovillos para cada talla? Muchas gracias

03.03.2024 - 11:12

DROPS Design answered:

Hola Nancy, tienes en la sección de materiales la cantidad de lanas de cada color de Merino Extra fine. Cada ovillo de Merino extra fine es de 50g. Por lo tanto, divides la cantidad de gramos que te piden para tu talla entre los 50g y te saldrá la cantidad por color en ovillos. Por ejemplo: 500gr/50gr = 10 ovillos.

03.03.2024 - 23:57

country flag Mada wrote:

Ya sé cómo es, no me había fijado que había que completar todas las filas del esquema. Gracias por el patrón

26.07.2023 - 19:13

country flag Mada wrote:

Estoy al comienzo de la labor y tengo 112 puntos para la talla M. La siguiente vuelta comienzo las repeticiones A1 y A2 pero no consigo los 152 puntos al final de la vuelta,solo 120. Si solo se aumenta en A2 ,como puedo conseguir acabar la vuelta con 40 puntos más?

25.07.2023 - 23:31

DROPS Design answered:

Hola Mada, 152 pts no son al final de la primera vuelta. Son los aumentos después de haber trabajado 1 vez TODAS las vueltas de A.2 y A.1. En el diagrama A.2 comienzas con 1 pt. En la primera vuelta de los diagramas vas a tener 8 repeticiones de A.2 en total. En la última vuelta de A.2 tienes 6 pts, por lo que has aumentado 5 pts por repetición de A.2. 5 pts x 8 repeticiones = 40 pts. 112+40 = 152 pts.

26.07.2023 - 16:00

country flag Vasileia wrote:

..after finishing every "piece" of flowers in every row, i mean..

07.04.2023 - 09:54

DROPS Design answered:

Dear Vasileia, it's better to carry the yarn in every row. Happy knitting!

08.04.2023 - 20:37

country flag Vasileia wrote:

Hello there! Is it a good idea to cut the coloured strands after finishing every flower, or is it more preferable to "carry" them in every row? Many thanks in advance.

07.04.2023 - 09:43

DROPS Design answered:

Dear Vasileia, it's better to carry the yarn in every row. Happy knitting!

08.04.2023 - 20:37

country flag Veronika wrote:

Hallo,\r\ndanke für die Info. jetzt noch eine Frage, bei ser Blume habe ich eine Breite von 10 cm nur 15 Stäbchen, ist das in etwa richtig oder sollte ich es nochmal mit einer kleineren Häkelnadel versuche? ich häkel sehr selten, aber ich wollte mal eine neue Herausforderung.\r\nliebe Grüße

21.02.2022 - 15:48

DROPS Design answered:

Liebe Veronica, also ja am besten mit einer kleineren Nadeln versuchen, die Noppen (= 4 Stb zusammengehäkelt) sollen genauso breit wie 1 Stäbchen. Viel Spaß beim häkeln!

21.02.2022 - 16:29

country flag Veronika wrote:

Hallo, ich habe mehr oder weniger eine Frage. Ich bin bei der 2.Blume und ich finde es wellt sich so, ist dies normal, gibt sich das irgendwann?? Nach Zählmuster stimmt alles, oder liegt es daran, daß ich es mit Cotton light häkel?? Liebe Grüße Veronika

19.02.2022 - 21:36

DROPS Design answered:

Liebe Veronika, Cotton Light und Merino Extra Fine sind beide Garngruppe B solange Ihre Maschenprobe stimmt, sollte es auch stimmen, beachten Sie, daß die Reihen mit den Blumen nicht locker gehäkelt haben. Viel Spaß beim häkeln!

21.02.2022 - 09:52

country flag Dagmar wrote:

It makes no sense to add 4 stitches evenly on beginning of chart A3, it disrupts the repeats , it has to be on the last row of chart A1/A2, chart A3 has 156 stitches on first row

11.04.2021 - 18:26

DROPS Design answered:

Dear Dagmar, these increases have to be worked evenly on the first row in A.3 (extra to the increases in the diagram) - this lesson explains how to increase evenly. Happy crocheting!

12.04.2021 - 11:41

country flag Anna wrote:

Hallo, leider komme ich ab dem Teil mit dem Diagramm A.3 nicht weiter. Ich habe die vorherigen Runden mit den Diagrammen A.1 und A.2 abwechselt gehäkelt. Jetzt habe ich für die Gr. M 152 Maschen. Was muss ich jetzt häkeln?

13.06.2019 - 08:22

DROPS Design answered:

Liebe Anna, bei der 1. Reihe in A.3 häkeln Sie wie im Diagram gezeigt und gleichzeitig nehmen Sie 4 Stb regelmäßig verteilt (die sind nicht im Diagram gezeigt - siehe hier wie man so zunimmt), A.3 wird insgesamt 13 Mal in der Breite wiederholt (= über 12 M), am Ende der 1. Reihe haben Sie 156 M +1 Zunahmen in jedem den 13 Rapporte von A.3 = 169 M. Weiter wie in A.3 häkeln, wenn A.3 fertig ist haben Sie 19 M in jedem A.3 x 13 Rapporte sind 247 Stb. Viel Spaß beim häkeln!

13.06.2019 - 09:23

country flag Margarita wrote:

Excelente patrón, gracias por compartir

19.03.2019 - 12:27