DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Narvik Woof

Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð XS - M.

DROPS 185-34
DROPS Design: Mynstur me-122
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS - S - M

Mál:
Yfirvídd: ca 28/32 – 40/44 – 48/52 cm
Lengd á bakstykki: ca 24 – 32 - 40 cm
Dæmi um hundategundir: XS = Chihuahua, S = Bichon Frisé, M = Cocker Spaniel

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-100 g litur 07, ljós grár
50-50-50 g litur 01, natur
5050-50 g litur 11, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR (fyrir stærð XS og S), HRINGPRJÓNN (40 cm till stærð M) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR (allar stærðir) og HRINGPRJÓNN (40 cm fyrir stærð M) NR 3 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 6,5. Í þessu dæmi þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 6. og 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Þegar A.1 er lokið á hæðina er prjónað áfram með litnum ljós grár og sléttprjóni til loka.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna frá hálsmáli á og niður að opi fyrir framfætur. Stykkið skiptist síðan við framfætur og bakstykki og magastykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan er prjónað í hring niður yfir bak- og magastykki, síðan er prjónað fram og til baka niður að skotti. Kantur í kringum op fyrir framfætur er prjónaður í lokin í hring á sokkaprjóna.

PEYSA FYRIR HUND:
Fitjið upp 52-72-92 lykkjur á sokkaprjón 3 (hringprjón í stærð M) með litnum rauður Merino Extra Fine.
Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6-8-10 cm = hálsmál. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 (hringprjón í stærð M) og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 8-12-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 60-84-108 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 (= 5-7-9 mynstureiningar með 12 lykkjum) – lesið MYNSTUR og LEIÐBEININGAR að ofan. Þegar stykkið mælist 9-13-17 cm fellið af fyrir opi fyrir framfætur þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 9-9-21 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, setjið þessar 11-11-23 lykkjur á þráð (= magastykki) og prjónið umferðina út (= bakstykki).

BAKSTYKKI:
= 47-71-83 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka á sokkaprjóna/hringprjóna þar til stykkið mælist 15-21-27 cm, endið eftir eina umferð frá röngu. Opið fyrir framfætur mælist nú ca 6-8-10 cm – setjið lykkjurnar á þráð.

MAGASTYKKI:
Setjið til baka 11-11-23 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið mynstur fram og til baka – prjónaðar eru jafn margar umferðir og á bakstykki.

PEYSA:
Setjið aftur allar lykkjur á sama sokkaprjón/hringprjón og fitjið að auki upp 1 nýja lykkju hvoru megin á milli bak- og magastykkis = 60-84-108 lykkjur. Haldið áfram með mynstur, þegar mynsturteikning A.1 er lokið á hæðina er haldið áfram með litnum ljós brúnn. Þegar stykkið mælist alls 19-27-35 cm fellið af miðju 9-13-17 lykkjur mitt undir maga og stykkið er nú prjónað fram og til baka = 51-71-91 lykkjur. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-2-3 sinnum, 1 lykkju 8-9-10 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 21-31-41 lykkjur eftir í umferð. Stykkið mælist ca 27-37-47 cm.

FRÁGANGUR:
Prjónið upp lykkjur í kringum affellingarkant með litnum ljós brúnn á sokkaprjón/hringprjón 3 þannig að það verða ca 84-108-140 lykkjur í kringum neðri kant á peysu. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2½-3-3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT:
Prjónið upp ca 36-44-52 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum ljós brúnn í kringum annað opið fyrir framfót. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4-6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.08.2018
Leiðrétting: Litur 05 ljós grár

Mynstur

symbols = natur
symbols = ljós grár
symbols = rauður
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Narvik Woof

Kristin Nordal, Norway

Narvik Woof

Kristin Nordal, Norway

Narvik Woof

Joanna, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Alexandra Tolk wrote:

Når arbeidet måler 9-13-17 cm - er det med eller etter halsen? Mvh Alexandra

09.03.2024 - 16:00

DROPS Design answered:

Hej Alexandra, det er hele arbejdet som skal måle 9-13-17 cm :)

13.03.2024 - 15:15

country flag Maria wrote:

Hej! Jag har kört fast efter att ha stickat de 23 maskorna och lagt på tråd till framstycke. Jag kan inte förstå hur jag gör med frambenen??!!

16.09.2022 - 12:07

DROPS Design answered:

Hei Maria. Du har 23 masker på 1 tråd og 83 masker på pinnen (str. M), så skal du nå strikke frem og tilbake over de 83 maskene (ryggstykke) til arbeidet måler 27 cm. Deretter skal magestykket strikkes. Sett de 23 maskene fra tråden tilbake på pinnen og strikk mønster frem og tilbake – like mange pinner som på ryggstykket. Sette alle maskene på samme rundpinne igjen og nå strikkes det rundt igjen. Det er 2 hull til forbeina som skal strikkes ferdig senere. Ta en titt her, lignende teknikk: Översikt hur hundtröjan i DROPS 102-43 stickas - steg för steg mvh DROPS Design

19.09.2022 - 09:47

country flag Joy Fink wrote:

With the dog jumper. I see where you cast off for the front legs but cannot find where you do the same for the back leg. Can you help please? Thank you

02.03.2022 - 10:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fink, there is no cast off for back legs, only for the both front legs - this video shows (for another pattern) how to work a dog coat, it might help you. Happy knitting!

03.03.2022 - 10:49

country flag Sven wrote:

Ich suche jemand, der mir als Auftragsarbeit diesen Pullover für meinen Hund fertigen kann - natürlich bezahle ich das. Bei Interesse gerne melden. LG Sven

24.11.2021 - 18:40

DROPS Design answered:

Lieber Sven, gerne können Sie sich entweder an einem DROPS Laden wenden, oder in unserem DROPS Worskhop fragen.

25.11.2021 - 08:47

country flag Frankie wrote:

Comment faire le jaquard si j’ai seulement 47 mailles et il y a 12 mailles ?

09.07.2021 - 21:13

country flag Frankie wrote:

J’ai 47 mailles pour le dos ( xs) le jacquard est de 12 mailles . Je fais quoi avec le jacquard pour commencer

09.07.2021 - 21:10

DROPS Design answered:

Bonjour Frankie, continuez le jacquard comme avant au-dessus de ces 47 m, autrement dit, vous commencez ces 47 m par la 2ème maille du 2ème motif (les mailles du premier motif sont en attente) et terminez le rang comme avant, sur l'envers, lisez le diagramme de gauche à droite, le dernier motif se terminera par les 11 m du diagramme (lues de gauche à droite). Bon tricot!

12.07.2021 - 07:11

country flag Kristin wrote:

Hei! Skal det være 11 masker på magestykket i både størrelse ekstra small og small?

08.11.2020 - 22:44

DROPS Design answered:

Hei Kristin, Ja, det skal være 11 masker i begge størrelser. God fornøyelse!

09.11.2020 - 09:51

country flag Kristin wrote:

Er det riktig at det skal være 11 masker på magestykket på både på ekstra small og small?

08.11.2020 - 22:17

country flag Caroline Larose wrote:

J’aimerais savoir comment faire le Jacquard en taille S pour le dos si j’ai 71 mailles au lieu de 72 car le motif A1 a 12 mailles donc 6x le motif

17.10.2020 - 05:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Larose, vous tricotez désormais A.2 comme avant en commençant le 1er A.2 du rang par la 2ème maille du diagramme, et répétez les autres motifs comme avant. Sur l'envers, lisez bien les rangs de gauche à droite et terminez les rangs envers par l'avant-dernière maille de A.2. Bon tricot!

19.10.2020 - 10:31

country flag Miele wrote:

Bonjour, Merci pour votre réponse. Mais pour que je sois sûre, la taille XS et S sont identiques;5cms et la taille M; 10 cms? Merci encore et votre site est génial!!

08.09.2020 - 11:22

DROPS Design answered:

Bonjour Miele et merci :) Dans les 2 tailles vous avez 11 mailles pour le devant = le dessous, côté ventre, vous aurez donc bien 5 cm pour les 2 tailles (sur la base des 22 m = 10 cm de la tension) - en revanche, vous avez plus de mailles pour le dos: 47 en XS et 71 en M. Bon tricot!

08.09.2020 - 12:46