DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Narvik

Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu fyrir herra úr DROPS Merino Extra Fine með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður og prjónaðri húfu. Stærð S - XXXL.

DROPS 185-6
DROPS Design: Mynstur me-119
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca:
650-650-700-750-800-900 g litur 05, ljós grár
150-150-200-200-200-200 g litur 01, natur
100-100-100-100-100-100 g litur 11, rauður

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-600-650-700-750-850 g litur 05, ljós grár
100-100-150-150-150-150 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 11, rauður

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 57/59 - 59/61 cm

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50 g litur 05, ljós grár
50-50 g litur 01, natur
50-50 g litur 11, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá eru prjónaðar ca 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.5.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi):
Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Eftir kant í hálsmáli er hægt að prjóna upphækkun fram og til baka í hnakka til þess að flíkin passi betur þannig að kantur í hálsmáli verður aðeins hærri í hnakka – það er hægt að sleppa þessari upphækkun – sjá útskýringu í uppskrift. Eftir upphækkun er berustykki og fram- og bakstykki prjónað áfram hringinn á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-99-105-108-111-117 lykkjur á hringprjón 3 með litnum rauður Merino Extra Fine.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-33-39-40-41-43 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 124-132-144-148-152-160 lykkjur.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR! Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið nú e.t.v. upphækkun aftan í hnakka eða farið beint áfram í að prjóna berustykki.

UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan.
Byrjið frá réttu með litnum rauður og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-15-16-17 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-30-32-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-45-48-51 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-60-64-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-75-80-85 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-96-102 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er A.1 prjónað hringinn (= 31-33-36-37-38-40 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstrið og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1 eins og útskýrt er að neðan – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð merktri með ör-1 er aukið út um 28-32-36-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 152-164-180-184-188-200 lykkjur.
Í umferð merktri með ör-2 er aukið út um 24-28-36-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 176-192-216-216-224-236 lykkjur.
Í umferð merktri með ör-3 er aukið út um 24-24-28-28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 200-216-244-244-256-272 lykkjur.
Í umferð merktri með ör-4 er aukið út um 24-24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 224-240-272-272-288-304 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 prjónað hringinn (= 14-15-17-17-18-19 mynstureiningar með 16 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Eftir síðustu útaukningu í A.2 eru 280-300-340-374-396-418 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 og aukið jafnframt út 2-6-2-4-0-2 lykkjur jafnt yfir í umferð með ör-5 í A.2 = 282-306-342-378-396-420 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 47-51-57-63-66-70 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð með ör-6 í A.3 er aukið út um 24-32-20-14-16-22 lykkjur jafnt yfir = 306-338-362-392-412-442 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 23-23-23-27-27-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón með llitnum ljós grár þar til stykkið mælist 24-26-28-30-32-34 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-53-59-63-69 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-101-107-118-126-139 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-51-54-59-63-70 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 202-218-234-256-276-306 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 25 cm = 194-210-226-248-268-298 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 35 cm í öllum stærðum. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 43-45-50-55-59-65 lykkjur jafnt yfir = 237-255-276-303-327-363 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til þess að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjurnar (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 13.-9.-7.-6.-5.-5. hverri umferð alls 9-12-15-16-18-19 sinnum = 50-52-54-56-56-58 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-43-42-40-39-39 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-8-6-7-7-8 lykkjur jafnt yfir = 57-60-60-63-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 48-46-45-43-42-41 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 114-123 lykkjur á hringprjón 3 með litnum rauður Merino Extra Fine.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 2-3 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 112-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið mynstur A.4 (= 28-30 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.4 er aukið út um 2-0 lykkjur jafnt yfir = 114-120 lykkjur. Prjónið síðan A.5 hringinn (= 19-20 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 7 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 18-20 cm er fækkað um 2-0 lykkjur jafnt yfir = 112-120 lykkjur. Setjið 8 prjónamerki í stykkið með 14-15 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9 sinnum = 40-48 lykkjur. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman = 20-24 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 27-29 cm ofan frá og niður.

Mynstur

symbols = rauður
symbols = ljós grár
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Narvik

Gillian Johnstone, Cyprus

Narvik

Cathrine Holm, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Lena Jarl wrote:

Jag är så besviken. Jag har stickat en dam och en herr narviktröja i merino extra fine. När jag tvättat dem i maskin 40 grader blev de en till två storlekar större. Läste extra noga på er hemsida vad som gällde för garnet. Varför blir det så? Har ni något förslag på vad jag kan göra för att tröjorna ska kunna användas? /Lena

01.08.2021 - 20:12

DROPS Design answered:

Hei Lena. Det var kjedelig å høre. Den spesielle oppbyggingen av DROPS Merino Extra Fine gjør garnet ekstra elastisk. Det er derfor viktig å ha riktig strikkefasthet for å unngå at plagget strekkes. Ved vask må også vaske anvisningen følges (ikke ullvask eller finvask) og den må tørkes flatt i fasong. Ha hørt at mange som har vasket plagg i Merino feil (har blitt for stor), har tørket den i tørketrommel. Har da fått størrelsen og fasong tilbake. Kanskje verdt et forsøk? mvh DROPS design

12.08.2021 - 07:25

country flag Gurli Rasmussen wrote:

Jeg er i gang med diagram A2 til Narvik Sweater nr 185-6. Hvordan gør jeg med udtagningerne med slå om masker, når der er mønsterpinde ? f.eks 3 m hvid 1 m grå og efter 16 m lav et omslag, så bliver der jo 4 m mellem de grå og det hele er forskudt ? eller vil det ikke ses ? På forhånd tak :)

08.07.2021 - 21:56

DROPS Design answered:

Hej Gurli, ja det stemmer og det gør ikke noget. Hvis du absolut ikke vil have 4 masker imellem, så kan du lave udtagningen på næste pind istedet for.... :)

13.07.2021 - 15:37

country flag Spbrkr wrote:

If you want to avoid the jog (or "step") at the beginning of each fair-isle round, go to Youtube and search for "jogless jog". There are techniques that make the start of the new round almost invisible in the fair isle. Happy knitting!

08.06.2020 - 22:08

country flag Julia wrote:

Hallo, gibt es einen Trick, wie man die Stufe am Rundenanfang verhindert, die entsteht, wenn man ein Norweger-Fair Isle Muster in Runden strickt? Die Methode mit dem Aufheben der unteren Masche wie im Vido erklärt fällt auf, wenn man sie mehrere Runden hintereinander macht. Viele Grüße/ Hello, is there a trick on how to avoid the "step" at the beginning of each round that comes from circular knitting? The method described in the video is unfortunately visible. Greetings

03.03.2020 - 12:44

country flag Christina wrote:

Guten Abend! Ich möchte zur Bestimmung der zu strickenden Größe gern wissem wie sich das Garn nach dem Waschen verhält. Für diese Anleitung habe ich mir die Drops Lima ausgesucht. Mir ist so, als würde Schurwolle nach dem Waschen ein wenig 'ausleiern', also das Strickobjekt größer werden?! Dann müsste ich für die gewünschte Größe XL (eigentlich nur wegen der breiten Schultern) eine L stricken? Viele Grüße!

30.12.2019 - 20:31

DROPS Design answered:

Liebe Christina, am besten waschen Sie immer Ihre Maschenprobe bevor Sie das Modell stricken, Maschenprobe auch mal trocknen lassen, und nochmal messen, und wenn nötig die Nadlegrösse anpassen. Ihr DROPS Laden wird für Sie noch mehr Tipps haben. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2020 - 17:13

country flag Frøydis wrote:

Jeg har strikket en annen genser hvor det også skulle legges ut masker nederst på bolen før man skulle strikke vrangbord. Det ble ikke pent, altfor romslig. Jeg tok det opp igjen og strikket vrangborden uten å legge opp nye masker, og det ble bedre. Jeg kommer ikke til å øke maskeantallet før jeg strikker vrangborden nederst på denne.

23.08.2019 - 16:24

country flag Cecilie Horn wrote:

Stemmer det virkelig at man skal legge ut masker like før vrangborden nederst på genseren? Det normale er jo at det er færre masker i vrangborden.

10.02.2019 - 15:07

country flag Naida wrote:

Buon giorno che tg ha il modello

04.02.2019 - 16:33

country flag Mette wrote:

Hej Hvorfor er der valgt at udtagning gøres med omslag i stedet for at gøre det med usynlige udtagning som i også har i jeres teknik videoer? Med venlig hilsen Mette

14.09.2018 - 01:39

DROPS Design answered:

Hej Mette, vi vælger gerne at bruge lidt forskellige udtagninger, men du skal naturligvis bare bruge den du synes bliver pænest. God fornøjelse!

17.09.2018 - 12:54

country flag Anne wrote:

Hei, jeg får ikke sett på oppskriften og aner ikke hvordan denne genseren ser ut. Får ikke opp bilde. Har prøvd Google og Microsoft og Firefox. Gjelder oppskrift Drops 185-6

10.09.2018 - 09:13

DROPS Design answered:

Hei Anne. Vi har for øyeblikket tekniske problemer med siden vår, dette medfører at diagrammer og bilder dessverre ikke lastes ordentlig. Vi jobber med å løse problemet, og siden vil være tilbake som normalt så snart som mulig. Du kan følge med på vår twitter eller facebookside for oppdateringer. Beklager dette

10.09.2018 - 11:50