Narvik Jacket |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 183-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 107 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3,5. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 3. og 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka): Setjið 1 prjónamerki í miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum vínrauður og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-15-16-17 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-30-32-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-45-48-51 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-60-64-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-75-80-85 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt). MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Í þeirri umferð þar sem mynstubekkur er með 2 litum er grunnlitur í mynsturbekk einnig prjónaður yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef að það herpist saman. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, síðan er síðasta lykkjan prjónuð slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 hnappagötum með ca 10-10-9-9-8½-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 107-110-116-119-122-128 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum vínrauður Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 28-33-39-40-41-43 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 135-143-155-159-163-171 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir kanta að framan. Til þess að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 31-33-36-37-38-40 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1A eins og útskýrt er að neðan – lesið ÚTAUKNING-1 (aukið alltaf út í umferð frá réttu) og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð með ör-1 er aukið út um 28-32-36-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 163-175-191-195-199-211 lykkjur. Í umferð með ör-2 er aukið út um 24-28-36-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 187-203-227-227-235-247 lykkjur. Í umferð með ör-3 er aukið út um 24-24-28-28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 211-227-255-255-267-283 lykkjur. Í umferð með ör-4 er aukið út um 24-24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 235-251-283-283-299-315 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 14-15-17-17-18-19 mynstureiningar með 16 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.2A eru 291-311-351-385-407-429 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 og aukið jafnframt út um 2-6-2-4-0-2 lykkjur jafnt yfir í umferð með ör-5 í A.2A = 293-317-353-389-407-431 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 47-51-57-63-66-70 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð með ör-6 í A.3A er aukið út um 5-13-5-1-3-3 lykkjur jafnt yfir = 298-330-358-390-410-434 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 23-23-23-27-27-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár og 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ef prjónfestan passar á hæðina hefur þetta mál náð stærð S þegar A.3 hefur verið prjónað til loka). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 47-51-55-61-65-70 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-100-112-120-130 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-51-55-61-65-70 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-230-254-274-298 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 51-55-60-66-71-77 lykkjur inn frá hvorri hlið = 92-100-110-122-132-144 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár og 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð (ca 3. hverjum cm) alls 10 sinnum í hvorri hlið = 234-250-270-294-314-338 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 47-49-53-59-63-69 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 281-299-323-353-377-407 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju JAFNFRAMT er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með ljós grár. Þegar stykkið mælist 3-2-2-3-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 40-39-37-36-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-8-6-7-8-6 lykkjur jafnt yfir = 51-54-54-57-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-42-40-39-38-36 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (23)
Eva Sandberg wrote:
Fick svar att storlek M har bara 4 ökningar till 20 maskor i A.2A , det finns inte i pappersmönstret som kom med garnet. Hittar inga diagram på denna sida heller. Hur får jag tag på korrekt beskrivning?
11.08.2023 - 20:59DROPS Design answered:
Hej Eva, jo du finder diagrammet A.2A (str S+M+L) her nederst på siden, lige under diagrammet for de store størrelser. :)
16.08.2023 - 11:31Eva Sandberg wrote:
Har tappat bort mig i slutet av A.2A . Stickar storlek M , dvs 15 rapporter a 22 maskor (= 330) plus 2x5 kantmaskor plus 1 . Det blir 341 maskor på mina stickor, men texten säger att vid pil 5 skall ökas med 6 maskor till 317 !! Jag har 341 innan ökning vid pil 5. Vad har jag gjort för fel??
03.08.2023 - 15:45DROPS Design answered:
Hej Eva, I A.2A - S+M+L har du bara 4 ökningar i varje rapport, det vill säga 15 rapporter á 20 maskor + 6+1 = 311 maskor :)
10.08.2023 - 13:22Bente Røbekk wrote:
Finner ikke diagram A3.?.?
01.07.2022 - 18:00DROPS Design answered:
Hei Bente, A.3 er til høyre for målskissen. God fornøyelse!
04.07.2022 - 07:10Lis Hedelund wrote:
Jeg kan ikke se diagrammet til model 183-1
01.04.2021 - 10:52DROPS Design answered:
Hej Lis, du finder diagrammerne nederst i opskriften. :)
06.04.2021 - 13:45Mick wrote:
Bonjour, Je tricote ce modèle en XXL Quand je commence A2A, j'ai un total de maille de 299. Comment se fait-il qu'à la fin de A2A, j'ai un total de maille de 305 au lieu de 407? Où est- ce que je me suis trompée?
19.02.2021 - 09:21DROPS Design answered:
Bonjour Mick, en XXL vous devez augmenter 6 mailles dans chaque A.2A, autrement dit, à la fin du diagramme, vous avez: 5 m point mousse, 18x22 m de A.2A (= 396), 1 m (A.2B) et 5 m point mousse = 5+396+1+5= 407 m. Vérifiez bien votre nombre de mailles dans chaque A.2A (un marqueur entre chaque diagramme peut aider à bien vérifier). Bon tricot!
19.02.2021 - 10:18Randi wrote:
Jeg ønsker å strikke rundt da jeg ikke syns å få til mønsterstrikk fra vrangen. Hva gjør jeg, har kjøpt garn og mønster, men kommer ikke igang.
19.01.2021 - 17:54DROPS Design answered:
Hej Randi, Du kan vælge at strikke jakken rundt og klippe op bagefter. Se video: Hvordan klippe opp for armhull Eller så vælger du genseren med samme mønster: Narvik DROPS 183-2
20.01.2021 - 08:52Randi wrote:
Meget innviklet mønster, ønsker å strikke rundt da å strikke mønster fra vrangt er vanskelig. Hva gjør jeg da .?
19.01.2021 - 17:51Hilde wrote:
Hvor finner jeg målene på størrelsene i mønsteret?
31.08.2020 - 20:46DROPS Design answered:
Hei Hilde, Det er en skisse på bunnen av oppskriften, med målene til de forskjellige størrelsene. God fornøyelse!
01.09.2020 - 09:54Laila Olsen wrote:
Hei. Jeg har funne ut hvor mange masker det skal økes ved de sorte utheva merkene i mønsteret.
14.03.2019 - 14:46Laila Olsen wrote:
Hei. Jeg skal begynne med mønsterA.2A. Skjønner ikke hvor mange masker det skal økes hver gang? Og skal det økes der hvor det er merket med uthevet svart på mønsteret?
13.03.2019 - 10:21DROPS Design answered:
Hei Laila. I A.2A øker du der de svarte ovalen er, det stemmer. Du øker ved å lage kast om pinnen. Du øker i hver rapport av A.2A. Så feks strikker du en størrelse L skal du øke på slutten av hver rapport av A.2A på omgang 5. altså du strikker 16 masker, øker, strikker 16 masker og øker øsv. Du strikker 17 rapporter av A.2A, så det vil se det økes 17 masker på omgang 5. God fornøyelse
21.03.2019 - 14:38