DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 184-11
DROPS Design: Mynstur ai-080
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-450-450-500-550 g litur 17, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 228 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 6,3.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. Hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er fellt af með ½ númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 228-258-258-282-282-312 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-42-42-42-42-48 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING að ofan = 192-216-216-240-240-264 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 96-108-108-120-120-132 lykkjur (= hliðar) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið síðan þannig: Prjónið 31-37-37-43-43-49 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 34 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir þær 127-145-145-163-163-181 lykkjur sem eftir eru. Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 204-228-228-252-252-276 lykkjur í síðustu umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan þannig: Prjónið 31-37-37-43-43-49 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 46 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir þær 127-145-145-163-163-181 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur, A.2 er endurtekið á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 5-5-5-9-9-9 lykkjur á hvorri hlið fyrir handveg (= 2-2-2-4-4-4 lykkjur á undan/3-3-3-5-5-5 lykkjur á eftir báðum prjónamerkjum). Fram- og bakstykki er nú prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 91-103-103-111-111-123 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður, með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm fækkið um miðju 25-25-27-27-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 32-38-37-41-41-46 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af – lesið AFFELLING.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 103-115-115-123-123-135 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-55-57-59 cm fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir A.2 = 91-103-103-111-111-123 lykkjur.
Í næstu umferð eru miðju 13-13-15-15-15-17 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig í sléttprjóni, kantlykkja er prjónuð eins og áður. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 32-38-37-41-41-46 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 16-14-10-9-7-6 cm millibili alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 54-58-60-64-68-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-43-44-42-43-41 cm fellið af miðju 8-8-8-10-10-10 lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónuð er smá ermakúpa til loka fram og til baka á hringprjóninn. Prjónið sléttprjón og fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5-5-6-5-6-6 lykkjur 2 sinnum og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 48-45-46-44-45-43 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón ofan á öxl. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 78-90 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 78-78-84-84-90-90 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Prjónið síða 1 umferð brugðið, fellið af. Brjótið uppá kant í hálsmáli inn þannig að hann verði 6 cm hár, saumið kantinn niður með smáu, fallegu spori á innanverðri peysunni.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur brugðnar af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur brugðnar, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðna, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur brugðnar af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur brugðnar, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Paola wrote:

Nessuno che possa rispondere in italiano? Maniche: lavorare un piccolo arrotondamento della manica avanti e indietro sui ferri circolari. Ho chiuso le 8 maglie centrali sotto la manica, partendo dalle ultime 4 del giro e chiudendo le prime 4 del giro successivo. Ho continuato a lavorare la riga e arrivo alle maglie chiuse. Come continuo? Se uso i ferri circolari, devo sorpassare le 8 maglie. Se devo andare avanti e indietro, devo smontare dai circolari e usare i ferri dritti ?

20.09.2022 - 21:16

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, quando intreccia le 8 maglie poi deve proseguire lavorando in piano. Può comunque continuare ad utilizzare i ferri circolari lavorando avanti e indietro. Buon lavoro!

20.09.2022 - 22:05

country flag PAOLA wrote:

Maniche: lavorare un piccolo arrotondamento della manica avanti e indietro sui ferri circolari. Ho chiuso le 8 maglie centrali sotto la manica, partendo dalle ultime 4 del giro e chiudendo le prime 4 del giro successivo. Ho continuato a lavorare la riga e arrivo alle maglie chiuse. Come continuo? Se uso i ferri circolari, devo sorpassare le 8 maglie. Se devo andare avanti e indietro, devo smontare dai circolari e usare i ferri dritti

17.09.2022 - 13:54

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, quando intreccia le 8 maglie poi deve proseguire lavorando in piano. Può comunque continuare ad utilizzare i ferri circolari lavorando avanti e indietro. Buon lavoro!

20.09.2022 - 22:06

country flag PAOLA wrote:

Maniche: lavorare un piccolo arrotondamento della manica avanti e indietro sui ferri circolari. Ho chiuso le 8 maglie centrali sotto la manica, partendo dalle ultime 4 del giro e chiudendo le prime 4 del giro successivo. Ho continuato a lavorare la riga e arrivo alle maglie chiuse. Come continuo? Se uso i ferri circolari, devo sorpassare le 8 maglie. Se devo andare avanti e indietro, devo smontare dai circolari e usare i ferri dritti

10.09.2022 - 17:08

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, quando intreccia le 8 maglie poi deve proseguire lavorando in piano. Può comunque continuare ad utilizzare i ferri circolari lavorando avanti e indietro. Buon lavoro!

20.09.2022 - 22:06

country flag Patricia wrote:

I am interested in knitting this sweater, but from the dimensions shown in the graph for the smallest size (3 + 56 + 17) would be 76 cm. Divide by 2.54 to get 29.9 inches from shoulder to hem. This is way too long. The hem would be at the middle of my knee cap. Are the dimensions incorrect?

22.03.2021 - 18:15

DROPS Design answered:

Dear Patricia, according th ethe scematic drawings the FULL LENGTH of the sweater in the smallest size is 56 cm alltohgetherm including the armhole (17 cm), and the the 3 cm ribbing at the bottom. This way you have 36 cm between the ribbing and the lowest point of teh armhole. I hope this helps. Happy Knitting!

22.03.2021 - 23:45

country flag Catherine wrote:

Bonjour, pourquoi les manches du modèle Small sont-elles plus longues que les manches du modèle XXXL? Merci

12.07.2020 - 02:08

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, dans les grandes tailles, l'encolure et les épaules sont plus larges, les manches seront donc plus courtes - retrouvez toutes les mesures dans le schéma - comparez-les à un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et ajustez si besoin. Bon tricot!

13.07.2020 - 09:02

country flag Eileen wrote:

Thank you for clarification. My tension is correct..It would be helpful if instead of just labelling sizes S M L etc you could state the body measurement, or just say something like 'designed to be worn with, for example, 10cm ease'. This would make it easier to judge what the style of the pattern is and whether it is the shape we want. Many other knitwear designers do this.

29.02.2020 - 23:02

country flag Eileen wrote:

After checking my knitting tension and getting the correct stitch and rows, I began knitting this pattern in Size M and it was coming up HUGE - far more oversized than it looks on the female model in the photograph. I have unpicked it, planning to work out reduced dimensions for myself. But I have now looked at the Winter Love pattern for Men, and I think you may have mixed up the instructions and diagrams, as the ones accompanying the Mens' version is smaller than the Womens'.

27.02.2020 - 21:49

DROPS Design answered:

Dear Eileen, if your tension is right you should have same measurement as in chart - the man pattern requires less stitches but the shape is also different. The woman version is more "oversized". Happy knitting!

28.02.2020 - 08:08

country flag Caillard Micheline wrote:

Merci pour votre réponse. Mon problème c’est que Big Merino et Air n’ont pas la même longueur de fil pour 50g l’un 75 m l’autre 150m. Je commande 8 pelotes Big au lieu de 3. Mais cela veut dire que le fil n’est pas épais. Donc il faut plus de mailles ou pas ? Merci

19.08.2019 - 10:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gaillard, ces fils sont du même groupe car on aura la même tension, le métrage est différent car la texture des deux fils est différente, il vous faudra juste bien vérifier votre échantillon/tension - Votre magasin DROPS pourra vous apporter toute assistance complémentaire individuelle, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

19.08.2019 - 11:48

country flag Caillard Micheline wrote:

Je fais connaître autour de moi votre site et vante toutes ses qualités. Merci d’existe

18.08.2019 - 14:50

country flag Caillard Micheline wrote:

Puis je réaliser le modèle Winter love en Big mérinos pour ma petite fille qui vient d’entrer à l’opera D’Oslo. Merci

18.08.2019 - 14:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Caillard, félicitations à votre petite fille! Comme Air et Big Merino sont toutes deux du même groupe de fils (= C) vous pouvez tout à fait utiliser Big Merino, pensez à bien vérifier votre échantillon au préalable, utilisez notre convertisseur si besoin, vous trouverez ici plus d'infos sur les alternatives. Bon tricot!

19.08.2019 - 10:29