DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Midnight Cables

Prjónuð peysa með köðlum, gatamynstri og klauf úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 184-12
DROPS Design: Mynstur ai-082
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 17, gallabuxnablár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 19 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
Mynsturteikning A.1 til A.7 mælist 52 cm á breidd á bakstykki. Mynsturteikning A.8 til A.10 mælist 19 cm á breidd fyrir ermi.

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.
Stærð S, M og L: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í garðaprjón þar til alls 6 lykkjur eru í garðaprjóni á undan A.8 og alls 6 lykkjur garðaprjón á eftir A.10, prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.
Stærð XL,XXL og XXXL: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að klauf.
Síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring upp að handveg, fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-92-104-112-116-124 lykkjur á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu a ofan, prjónið 2-0-2-2-0-0 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 0-1-2-3-4-5 sinnum, A.1A (= 14 lykkjur), A.2A (= 8 lykkjur), A.3A (= 12 lykkjur), A.4A (= 10 lykkjur), A.5A (= 12 lykkjur), A.6A (= 8 lykkjur), A.7A (= 14 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 0-1-2-3-4-5 sinnum, prjónið 2-0-2-2-0-0 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 8 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 6. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú eftir mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S-M-L-XL:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 2-4-10-14 lykkjur stroff eins og áður og fækkið um 0-0-2-3 lykkjur yfir þessar, prjónið A.1B yfir A.1A, A.2B yfir A.2A, A.3B yfir A.3A, A.4B yfir A.4A, A.5B yfir A.5A, A.6B yfir A.6A, A.7B yfir A.7A, prjónið 2-4-10-14 lykkjur stroff eins og áður og fækkið um 0-0-2-3 lykkjur yfir þessar og 3 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1B-A.7B er lokið eru 102-106-114-120 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 2-4-8-11 lykkjur sléttprjón, A.1C yfir A.1B, A.2C yfir A.2B, A.3C yfir A.3B, A.4C yfir A.4B, A.5C yfir A.5B, A.6C yfir A.6B, A.7C yfir A.7B, prjónið 2-4-8-11 lykkjur sléttprjón og 3 lykkjur garðaprjón. Nú eru 102-106-114-120 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 18 cm í þessum stærðum. Geymið stykkið.

STÆRÐ XXL-XXXL:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið 5-9 lykkjur stroff eins og áður og fækkið um 1-0 lykkjur yfir þessar, prjónið A.6C (= 11 lykkjur), prjónið A.1B yfir A.1A, A.2B yfir A.2A, A.3B yfir A.3A, A.4B yfir A.4A, A.5B yfir A.5A, A.6B yfir A.6A, A.7B yfir A.7A, prjónið A.2C (= 11 lykkjur), prjónið 5-9 lykkjur lykkjur garðaprjón eins og áður og fækkið um 1-0 lykkjur yfir þessar, 3 lykkjur með garðaprjóni. Þegar A.1B-A.7B er lokið eru 128-138 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið 4-9 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.6C (= 11 lykkjur), A.1C yfir A.1B, A.2C yfir A.2B, A.3C yfir A.3B, A.4C yfir A.4B, A.5C yfir A.5B, A.6C yfir A.6B, A.7C yfir A.7B, haldið áfram með A.2C (= 11 lykkjur), prjónið 4-9 lykkjur sléttprjón og 3 lykkjur garðaprjóni. Nú eru 128-138 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 18 cm í báðum stærðum. Geymið stykkið.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 2 stykkin saman á sama hringprjón 6 = 204-212-228-240-256-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur eins og áður, en þær lykkjur sem eru í garðaprjóni í hvorri hlið eru nú prjónaðar í sléttprjóni héðan. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm – passið uppá að næsta umferð sé umferð án uppsláttar í mynsturteikningu, fellið af 2-2-4-6-8-10 lykkjur í hvorri hlið (= 1-1-2-3-4-5 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki). Fram- og bakstykki er nú prjónað áfram hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 100-104-110-114-120-128 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Byrjið frá réttu og haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm byrjar aflíðandi öxl JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm er fellt af fyrir hálsmáli, prjónið þannig:
AFLÍÐANDI ÖXL:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið þar til eftir eru 6-6-6-7-7-8 lykkjur á prjóni (að öxl), snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið þar til 6-6-6-7-7-8 lykkjur eru eftir á prjóni (að öxl), snúið og herðið á þræði.
Endurtakið 1. og 2. umferð 3 sinnum til viðbótar þannig: Prjónið þar til eftir eru 6-6-6-7-7-8 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá sömu hlið, snúið (= 6-8-10-8-10-10 lykkjur eftir á öxl). Prjónið 1 umferð yfir allar 30-32-34-36-38-42 lykkjur, fellið af.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fækkið um 3 lykkjur yfir hvern kaðal með 6 lykkjum og fækkið um 7 lykkjur yfir kaðal með 14 lykkjum. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fellið af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 30-32-34-36-38-42 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 100-104-110-114-120-128 lykkjur. Haldið áfram alveg eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Fækkið nú um 3 lykkjur yfir hvern kaðal með 6 lykkjum og fækkið um 7 lykkjur yfir kaðal með 14 lykkjum. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm setjið miðju 21-21-23-23-25-25 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig JAFNFRAMT er prjónuð aflíðandi öxl eins og á bakstykki. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umverð frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 30-32-34-36-38-42 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.
Fitjið upp 42-42-42-50-50-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, prjónið A.8A (= 12 lykkjur), A.9A (= 6 lykkjur), A.10A (= 12 lykkjur), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, 1 lykkja brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.8B yfir A.8A, A.9B yfir A.9A, A.10B yfir A.10A, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Þegar A.8B-A.10B er lokið eru 46-46-46-54-54-54 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 0-0-0-3-3-3 lykkjur sléttprjón, 5-5-5-6-6-6 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.8C yfir A.8B, A.9C yfir A.9B og A.10C yfir A.10B, prjónið 5-5-5-6-6-6 lykkjur í garðaprjóni, 0-0-0-3-3-3 lykkjur í sléttprjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 13-15-14-12-15-13 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING að ofan. Aukið svona út með 4½-3½-2½-3-2½-2½ cm millibili alls 9-11-12-10-11-13 sinnum = 64-68-70-74-76-80 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 53-52-51-50-49-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fækkið nú lykkjum fyrir lítilli ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fækkið um 7-7-8-8-9-9 lykkjur 2 sinnum og fækkið um 6-8-7-9-8-10 lykkjur 1 sinni – þegar síðasta úrtaka er gerð er fækkað að auki um 1 lykkju yfir hvern kaðal með gati og fækkað um 3 lykkjur yfir kaðla með 6 lykkjum. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 55-54-53-52-51-50 cm með uppábroti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkant þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón ofan á öxl. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Brjótið kant á ermum út að hlið.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 74-80 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið og jafnið lykkjufjöldanum út til 72-72-76-76-80-80 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið uppá kant í hálsmáli saman tvöfaldan inn að röngu og saumið niður með smáu fallegu spori – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.10.2017
Mynsturteikning hefur verið uppfærð
Yfirfarið á vefsvæði: 25.06.2018
Leiðrétting: Eftir leiðbeiningar um hvernig prjóna á öxl eru tvennar leiðbeiningar hvernig maður fellur af. Þetta hefur verið leiðrétt og nú er bara ein leiðbeining: Prjónið 1 umferð brugðna frá réttu yfir allar 30-32-34-36-38-42 lykkjur, fellið af.
Yfirfarið á vefsvæði: 03.12.2018
BAKSTYKKI: UMFERÐ 2:..Endurtakið 1. og 2. umferð 3 sinnum til viðbótar þannig: Prjónið þar til eftir eru 6-6-6-7-7-8 lykkjur fleiri en í fyrri umferð frá sömu hlið, snúið (= 6-8-10-8-10-10 lykkjur eftir á öxl).
Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2019
Mynsturteikning A.7 hefur verið leiðrétt þannig að kaðallinn er gerður framan við stykkið

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat

symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 7 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 7 lykkjur slétt, prjónið 7 lykkjur slétt af kaðlaprjóni.
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Warm & woolen winter sweaters

Teresa, Switzerland

Midnight Cables

Yngvild, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Lily wrote:

Hi! i've re-started the back piece more than five times now because the rib isn't forming, and i have been following the pattern word for word. Please let me know what the problem could be; i'm stressed!

06.04.2024 - 14:49

DROPS Design answered:

Dear Lily, since we cannot see you knitting, and you did not even tell me which size you are knitting, we can't know what you might be doing wrong. However, do not forget, that you can always ask for help (either on the phone or in person) in the store where you bought your DROPS yarn from. Happy knitting!

06.04.2024 - 20:25

country flag Katalin wrote:

Hej! Går det att byta ut garnet till ett tjockare och vilka justeringar behöver man göra för att passformen ska bli rätt i sånna fall?

28.05.2023 - 19:06

DROPS Design answered:

Hej Katalin, for at få pasformen som på billedet er du nødt til at overholde den strikkefasthed som står i opskriften. Lav en strikkeprøve :)

29.05.2023 - 11:49

country flag Ines wrote:

Vielen Dank ! Dank dem Video habe ich meinen Fehler entdeckt. :)

16.01.2023 - 19:11

country flag Ines wrote:

Guten Tag, ich stricke dieses Muster in der Grösse XXL und habe ein Problem mit der Maschenzahl . Wenn ich nach den 3 kraus rechts in den 5 M Rippenmuster ein Masche abnehme, fehlt mir eine M im Diagramm A.6C. Kann ich das Problem lösen, indem ich im Rippenmuster keine Masche abnehme, oder habe ich dann später zu viele Maschen?

16.01.2023 - 15:25

DROPS Design answered:

Liebe Ines, in A.6B muss man 3 Maschen zunehmen- der Umschlag in A.6C gehört zu dem Zopf (siehe dieses Video) - vielleicht kommt es von hier?

16.01.2023 - 16:52

country flag Ann Brown wrote:

Firstly why are the pattern diagrams on different scales. Very confusing. Just started the sleeve… hopeless…. The pattern 8,9,10 is 30 sts, one has 42 or 50 sts on the ndls. No mention on pattern placement. Also the garter st on the side panels, only 6 sts ? Then stockingnet ??? And why incr by measuring???? Not one of your best patterns …

22.11.2021 - 15:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brown, maybe you could tell us which size you are working so that we could help you with the full detail of the first rows? And yes correct, increases are repeated in height when measuring (measure your work to get the number of rows you need to can of course work too).

22.11.2021 - 16:26

country flag Sofie wrote:

Jeg er gået i stå inden jeg kom igang. \r\n1. Pind går op med diagrammet og mine 92 m (str M). Men når jeg skal til anden har jeg jo flere masker fordi jeg har slået om, hvordan skal jeg fortsætte diagrammerne i træk, når jeg har flere masker end anvist i diagrammerne?

19.10.2020 - 21:23

country flag Chris wrote:

Lovely pattern but I'm stuck at the diagonal shoulders instructions. I'm doing size L, and I don't understand the sentence "work until 6 stitches more remain on the needle more than on previous row from the same side, turn (= 10 stitches left on the shoulder)" I have 24 stitches on each shoulder, after doing rows 1 and 2 flour times. Puzzled!

18.04.2019 - 19:12

DROPS Design answered:

Dear Chris, when working the diagonal shoulder, you are leaving unworked 6 sts more at the end of every row: at the end of 1st row there will be 6 sts left on one side, then on 2nd row 6 sts left on the other side, then 12 sts left at the end of next 2 rows, then 18 sts left at the end of next 2 rows and so on. When all short rows have been worked, 10 sts remain for shoulder. Now work 1 ridge over all stitches (also the one left unworked for the short rows). At the same time, you will shape neckline (decrease sts and cast off the middle stitches + 1 st towards neck). Happy knitting!

23.04.2019 - 11:53

country flag Ruth wrote:

Könntet ihr bitte die Anleitung korrigieren: am Ende der Beschreibung für das Rückenteil fehlt der Hinweis auf die Krausrippen, dies konnte ich mir nur aus der Anleitung für das Vorderteil erschließen. Herzlichen Dank für alle tollen Anleitungen!

03.03.2019 - 23:16

country flag Diana April Mikkelsen wrote:

Hej. Diagram A7 viser over 4 felter en skrå streg, der går nedefra og op. Jeg kan ikke se i symbol forklaringen, hvad der skal strikkes. Jeg kan kun se i symbol forklaringen hvad der skal strikkes hvis stregen går oppe fra og ned.

24.02.2019 - 10:39

DROPS Design answered:

Hej Diana, tak for info, vi tjekker om stregen vender fejl vej eller om vi skal lægge en mere symbol forklaring ud. Vi lægger en rettelse ud om nogle dage. :)

05.04.2019 - 12:07

country flag Jacqueline wrote:

Bij A1c moet ik (volgens mij) bij de kabels een omslag maken en dus steken meerderen. Die nieuwe steken zie ik niet in het telpatroon terug. Bij A2c zou ik van 3 naar 1 steek moeten minderen, en op de volgende 1 steek door omslag vermeerderen., maar dan kom ik steken tekort. Ik vermoed dat ik iets over het hoofd zie, kan je mij helpen?

09.01.2019 - 09:37

DROPS Design answered:

Dag Jacqueline,

Bij A.1c maak je inderdaad 2 omslagen, maar je mindert ook 2 steken (schuine streepjes), waardoor je weer op het zelfde aantal steken uitkomt. Bij A.2c minder je 1 steek: van 3 steken naar 2 steken (de afgehaalde steek over de 2 gebreide steken halen) en op de volgende naald maak je een omslag, zodat je weer op het zelfde aantal steken komt.

11.01.2019 - 11:44