DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 167-27
DROPS Design: Mynstur nr n-178
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
Lengd fyrir miðju: ca 88 cm.
Breidd: ca 176 cm.

Efni:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
250 g litur nr 17, ljós beige
150 g litur nr 24, dökk bleikfjólublár
150 g litur nr 28, ljós bleikur
100 g litur nr 02, natur

ATH: Ef sjalið er heklað með einum lit þá þarf 550 g Cotton Viscose.

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st x 12 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.19.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st, heklið 5 ll, ll kemur ekki í stað fyrsta st.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður með heklunál nr 3,5 með Cotton Viscose – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!

SJAL:
Heklið mynsturteikningu A.1 þannig:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Heklið með litnum natur. Heklið 4 ll, 4 st í 4. ll frá heklunálinni, 4 ll (= horn), endið á 4 st í sömu ll = 8 st með 4 ll á milli.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 1 st í hvern af næstu 3 st, 3 st í síðasta st = 16 st og 4 ll (= horn).
UMFERÐ 3: Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í næsta st, * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 1 st í næsta st, * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 3 st í síðasta st = 18 st, 6 ll og 4 ll (= horn).
UMFERÐ 4: Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st, * 1 st um næstu ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 st í næsta st, 2 st í næsta st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 2 st, * 1 st um næstu ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 st í hvern af næstu 2 st, 3 st í síðasta st = 34 st og 4 ll (= horn).
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Heklið mynsturteikningu A.2, A.3 (= 4 sinnum), A.4, A.3 (= 4 sinnum), A.5 þannig:
UMFERÐ 5 (= frá röngu): Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í hvern st fram að horni, (2 st, 4 ll, 2 st) umf hornið, 1 st í hvern st þar til 1 st er eftir, heklið 3 st í síðasta st.
UMFERÐ 6 (= frá réttu): Heklið 3 st í fyrsta st, 1 ll, hoppið yfir 2 st, (1 st, 1 ll, 1 st) í næsta st, * hoppið yfir 2 st, (1 st, 1 ll, 1 st) í næsta st *, endurtakið frá *-* fram þar til 2 st eru eftir á undan horninu, 1 ll, hoppið yfir 2 st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 1 ll, hoppið yfir 2 st, * (1 st, 1 ll, 1 st) í næsta st, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* þar til 1 st er eftir, 1 ll, 3 st í síðasta st.
UMFERÐ 7 (= frá röngu): Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 1 st um næsta ll-boga, 3 st um hverja ll þar til eftir eru (1 ll, 2 st) á undan horni, 1 st um ll, 1 st í hvorn af næstu 2 st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 1 st um næstu ll, 3 st um hverja ll fram þar til eftir er (1 ll, 3 st), 1 st um ll, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 3 st í síðasta st = 29 st hvoru megin við horn (fyrsta skipti sem mynstureiningin er hekluð).

Heklið mynsturteikningu A.6, A.7 (= 8 sinnum), A.8, A.7 (= 8 sinnum), A.9 þannig:
UMFERÐ 8 (= frá réttu): Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, * 1 st í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* þar til 1 st er eftir á undan horni, 2 ll, 1 st í næsta st, 1 ll, (2 st, 4 ll, 2 st) um horn, 1 ll, 1 st í næsta st, * 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* fram þar til 1 st er eftir, 3 st í síðasta st.
UMFERÐ 9 (= frá röngu): Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st um næsta ll-boga, 3 st um hvern ll-boga fram þar til 1 ll er eftir og 2 st á undan horni, 2 st um ll, 1 st í hvern af næstu 2 st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 1 st í hvern af næstu 2 st, 2 st um næstu ll, 2 st um næsta ll-boga, 3 st um hvern ll-boga fram þar til 4 st eru eftir, 1 st í hvern af næstu 3 st, 3 st í síðasta st = 38 st hvoru megin við horn (fyrsta skipti sem mynstureining er hekluð).

Heklið mynsturteikningu A.10, A.11 (= 11 sinnum), A.12, A.13 (= 11 sinnum), A.14 þannig:
UMFERÐ 10 (= frá réttu): Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, hoppið yfir 1 st, * 3 st í næsta st, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* fram þar til 1 st er eftir á undan horni, 1 st í næsta st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 1 st í næsta st, * hoppið yfir 2 st, 3 st í næsta st *, endurtakið frá *-* þar til 4 st eru eftir, hoppið yfir 1 st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 3 st í síðasta st.
UMFERÐ 11 (= frá röngu): Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í næsta st, 4 ll, 1 st á undan fyrsta st-hóp (þ.e.a.s. á milli 2 l), * 4 ll, 1 st á undan næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* þar til 3 st eru eftir á undan horni, 4 ll, 1 st á undan næsta st, 4 ll, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 4 ll, hoppið yfir 3 st, * 1 st á undan næsta st-hóp, 4 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru (1 st-hópur, 5 st), heklið 1 st á milli st-hóps og næsta st, 4 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st, 3 st í síðasta st.
UMFERÐ 12: Heklið 3 st í fyrsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, * 2 ll, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* fram þar til 2 st eru eftir á undan horni, 2 ll, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, 2 ll, * 1 st um næsta ll-boga, 2 ll *, endurtakið frá *-* fram þar til 4 st eru eftir, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 3 st í næsta st.
UMFERÐ 13: 3 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 3 st um næstu ll, 3 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga, 3 st um hvern ll-boga þar til eftir eru (1 ll-bogi, 1 st, 1 ll-bogi, 1 st, 1 ll, 2 st) á undan horni, heklið 4 st um hvorn af næstu 2 ll-bogum, 3 st um ll, 1 st í næsta st, 2 st í næsta st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 2 st í næsta st, 1 st í næsta st, 3 st um næstu ll, 4 st um hvorn af næstu 2 ll-bogum, 3 st um hvern ll-boga þar til eftir eru (2 ll-bogar, 1 ll, 4 st), heklið 4 st um næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga, 3 st um næstu ll, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 3 st í síðasta st= 61 st hvoru megin við hornið (fyrsta skipti sem mynstureiningin er hekluð). Klippið frá og festið enda.

Heklið mynsturteikningu A.15, A.16 (= 7 sinnum), A.17, A.18 (= 7 sinnum), A.19 þannig:
UMFERÐ 14 (= frá réttu): Heklið með litnum ljós beige. Heklið 3 st í fyrsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st, * 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* fram þar til eftir eru 2 st á undan horni, 3 ll, hoppið yfir 2 st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 3 ll, hoppið yfir 2 st, * 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st *, endurtakið frá *-* þar til
3 st eru eftir, 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, 3 st í síðasta st.
UMFERÐ 15 (= frá röngu): Heklið 3 st í fyrsta st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, (1 fl, 2 ll, 1 fl) í næsta st, 2 ll, 1 st í næstu fl, * 2 ll, (1 fl, 2 ll, 1 fl) í næsta st, 2 ll, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* fram þar til 2 st eru eftir á undan horni, 2 ll, (2 fl, 2 ll, 1 fl) í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 2 ll, hoppið yfir 1 st, (1 fl, 2 ll, 1 fl) í næsta st, 2 ll, * 1 st í næstu fl, 2 ll, (1 fl, 2 ll, 1 fl) í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* fram þar til eftir eru (1 fl, 1 ll-bogi, 3 st), 1 st í næstu fl, 2 ll, (1 fl, 2 ll, 1 fl) í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 3 st í síðasta st.
UMFERÐ 16: Heklið 3 st í fyrsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st, hoppið yfir 1 ll-boga, (3 st, 2 ll, 3 st) um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl í næsta st, * hoppið yfir 1 ll-boga, (3 st, 2 ll, 3 st) um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* þar til 1 st er eftir á undan horni, 3 ll, hoppið yfir 1 st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, 3 ll, hoppið yfir 1 st,, * 1 fl í næsta st, hoppið yfir 1 ll-boga, (3 st, 2 ll, 3 st) um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* fram þar til eftir eru 3 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, 3 st í síðasta st.
UMFERÐ 17: Heklið 3 st í fyrsta st, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, 3 ll, 1 st í næstu fl, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st í næstu fl, * 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* fram þar til eftir eru (1 ll-bogi, 2 st) á undan horni, 3 ll, 1 st í næsta st, hoppið yfir 1 st, (2 st, 4 ll, 2 st) um hornið, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, 3 ll, * 1 st í næstu fl, 3 ll, 1 st um næsta ll-boga, 3 ll *, endurtakið frá *-* fram þar til eftir eru (1 fl, 1 ll-bogi, 3 st), 1 st í næstu fl, 3 ll, 1 st í næsta st, hoppið yfir 1 st, 3 st í síðasta st.
UMFERÐ 18: Heklið 3 st í fyrsta st, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, * 2 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, * 3 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st, 3 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* fram þar til eftir eru (3 ll-bogar, 5 st) á undan horni, * 2 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 3 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern og einn af næstu 3 st, (2 st, 4 ll, 2 st um hornið), 1 st í hvern og einn af næstu 3 st, 3 st um næsta ll-boga, * 1 st í næsta st, 2 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, * 1 st í næsta st, 3 st um næsta ll-boga, 1 st í næsta st, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* fram þar til eftir eru (3 ll-bogar, 7 st, * 1 st í næsta st, 2 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 st í næsta st, hoppið yfir 2 st, 3 st í síðasta st = 83 st hvoru megin við hornið (fyrsta skipti sem mynstureiningin er hekluð). Klippið frá og festið enda.
Stykkið mælist ca 16 cm í heklstefnu.

Heklið síðan með litnum vínauður:
Endurtakið umf 5-7 = 95 st hvoru megin við horn í síðustu umf.
Endurtakið umf 8-9 = 104 st hvoru megin við horn í síðustu umf.
Endurtakið umf 10-13 – JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 2 st jafnt yfir mynstureiningu með A.11 – LESIÐ ÚRTAKA – og fækkið um 2 st jafnt yfir mynstureiningu með A.13 = 125 st hvoru megin við hornið í síðustu umf. Klippið frá og festið enda, skiptið yfir í litinn ljós beige.
Endurtakið umf 14-18 JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 2 st jafnt yfir á undan horni – LESIÐ ÚTAUKNING – og aukið út um 2 st jafnt yfir á eftir horni = 149 st hvoru megin við horn.
Stykkið mælist ca 28 cm í heklstefnu.

Heklið síðan þannig:
Endurtakið umf 14-18 (ATH: fyrsta umf byrjar frá röngu) – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 2 st jafnt yfir á undan horni og aukið út um 2 st jafnt yfir á eftir horni = 173 st hvoru megin við horn. Klippið frá og festið enda, skiptið yfir í litinn natur.
Endurtakið umf 14-18 – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 2 st jafnt yfir á undan horni og aukið út um 2 st jafnt yfir á eftir horni = 197 st hvoru megin við horn. Klippið frá og festið enda, skiptið yfir í litinn ljós bleikur.

Heklið síðan þannig:
Endurtakið umf 5-7 = 209 st hvoru megin við horn í síðustu umf.
Endurtakið umf 8-9 = 218 st hvoru megin við horn í síðustu umf.
Endurtakið umf 10-13 – JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 4 st jafnt yfir mynstureiningu með A.11 og fækkið um 4 st jafnt yfir mynstureiningu með A.13 = 237 st hvoru megin við horn í síðustu umf. Klippið frá og festið enda, skiptið yfir í litinn vínrauður.
Endurtakið umf 14-18 JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 2 st jafnt yfir á undan horni og aukið út um 2 st jafnt yfir á eftir horni = 261 st hvoru megin við horn. Klippið frá og festið enda, skiptið yfir í ljós beige.
Stykkið mælist ca 48 cm í heklstefnu.

Heklið síðan þannig:
Endurtakið umf 14-18 JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 2 st jafnt yfir á undan horni og aukið út 2 st jafnt yfir á eftir horni = 285 st hvoru megin við horn í síðustu umf.
Endurtakið umf 14-18 (ATH: fyrsta umf byrjar frá röngu) – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 2 st jafnt yfir á undan horni og aukið út um 2 st jafnt yfir á eftir horni = 309 st hvoru megin við horn í síðustu umf. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 56 cm í heklstefnu og ca 88 cm meðfram horni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.07.2017
SJAL:..Endurtakið umf 8-9 = 218 st hvoru megin við horn í síðustu umf.
Endurtakið umf 10-13 – JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 4 st jafnt yfir mynstureiningu með A.11 og fækkið um 4 st jafnt yfir mynstureiningu með A.13 = 237 st hvoru megin við horn í síðustu umf.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = st í l
symbols = st um ll/ll-bogi
symbols = st á milli 2 st
symbols = síðasta umf er útskýrð í mynstri, þessi umf hefur nú þegar verið hekluð
symbols = 4 ll
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Marga Hoogeboom wrote:

Ik heb het al gehaakte na geteld. In toer 13 zit ik, zoals er in het patroon staat, op 61 steken. Vanaf toer 14 tot 17 staat er niet bij hoeveel steken je er hebben moet. In toer 18 moet je er 83 hebben, maar ik kom niet verder dan 70 steken. Ik heb alle ruimtes die open moet laten volgens het patroon volgehaakt, dan zijn er 83, maar dan golft het enorm.

23.04.2024 - 23:12

DROPS Design answered:

Dag Marga,

Ja, dat maakt het lastig als er geen totaal aantal steken staan aan het einde van de andere toeren. Bij toer 8 sla je op 2 plekken 2 stokjes over, namelijk aan het begin en aan het eind. Verder niet. Dus dat zou een verschil van 2 stokjes zijn aan elke kant, maar nu heb je een verschil van 13 aan elke kant. Ik vermoed dan toch dat er in een eerdere toer iets mis is gegaan.

24.04.2024 - 11:15

country flag Marga Hoogeboom wrote:

Ik heb een vraag over toer 18. Ik heb de drie beginstokjes en 20 boogjes. Met af en toe een stokje overslaan kom ik nooit aan 83 stokjes. Wat doe ik fout?

21.04.2024 - 18:00

DROPS Design answered:

Dag Marga,

Je hoeft geen (extra) stokjes over te slaan, maar je kunt gewoon de beschrijving volgen van toer 18 om op 83 stokjes uit te komen aan beide kanten van de punt. Kom je op veel minder uit of op juist meer? Ik kan zo niet zien wat er precies verkeerd gaat.

22.04.2024 - 21:02

country flag Marga Hoogeboom wrote:

Ik heb een probleem met toer 18. Ik zie veel vragen uit verschilende talen. Waarom zit er geen vertaalknop onder, misschien staat mijn antwoord daar wel tussen. Waarom moet iedereen dezelfde vraag stellen maar dan in haar eigen taal?

21.04.2024 - 17:59

country flag Sylvie Habran wrote:

Le modèle est truffé d'erreurs

22.12.2023 - 12:02

country flag Melcitron wrote:

Hi, I don’t understand when you say ’’repeat line 10-13 and in the same in the last do an increase/decrease tip’’. Does it mean we have to do the increase tip only only in line 13 or also for line s10,11,12 and 13?

03.10.2022 - 17:38

DROPS Design answered:

Hi Melcitron, This means that you decrease 4 stitches on the 13th row when you repeat rows 10 - 13, and only over the stitches in A.11 . Happy crafting!

04.10.2022 - 06:55

country flag Janni wrote:

Hej Skal man begynde med 5 luftmasker i hver række

13.09.2021 - 20:51

DROPS Design answered:

HeiJanni. På begynnelsen av hver rad med STAVER hekles det 5 luftmasker. Luftmaskene erstatter ikke første stav. mvh DROPS design

20.09.2021 - 12:47

country flag Alejandra wrote:

Buenas, Me gustaría saber si cuando pone A2,A3 (=4 veces)etc, significa que tengo que repetir las hileras 5-7 cuatro veces en ese momento o si se van a repetir 4 veces a lo largo del chal... y si se repiten seguidas sería 5-6-7-5-6-7-5-6-7-5-6-7. Gracias

14.05.2020 - 19:41

DROPS Design answered:

Hola Alejandra! Comienzas con A2 (vuelta 5), entonces A3 (=4 veces) significa que tienes que repetir vuelta 5 de esto diagrama 4 veces (uno después del otro), etc. Como leer los diagramas de ganchillo encontraras AQUI. Buen trabajo!

22.11.2020 - 20:30

country flag Stefaniae wrote:

Buongiorno, vorrei un chiarimento sulla RIGA 15, si dice fino a quando rimangono 2 m.a prima della punta, 2 cat, (2 m.b, 2 cat, 1 m.b) nella m.a successiva, 2 cat, saltare 1 m.a, punta, 2 cat, saltare 1 m.a, (1 m.b, 2 cat, 1 m.b) nella m.a successiva. Perchè il numero di maglie basse nella penultima maglia alta prima e dopo la punta non è lo stesso? grazie

11.04.2020 - 15:42

DROPS Design answered:

Buongiorno Stefania. Segnaleremo l'errore. In entrambe le parentesi le maglie da lavorare sono (1 m.b, 2 cat, 1 m.b). La ringraziamo della segnalazione. Buon lavoro!

14.04.2020 - 09:53

country flag Pepa wrote:

Cuando dice repetir las hileras al mismo tiempo, ¿Qué quiere decir, que en la misma hilera se mezclan dos? Y cuando pone repetir las hileras 7-9. Son sólo la 7 y la 9 o 7, 8 y 9? Gracias por su atención.

07.01.2019 - 23:52

DROPS Design answered:

Hola Pepa. Si pone repetir las filas 7-9 = trabajar las filas 7,8,9. Cuando pone, por ejemplo, "Repetir las hileras 10-13 – AL MISMO TIEMPO, en la última hilera, disminuir 4 p.a. distribuidos...", quiere decir que, en la fila 13, aparte de trabajar el dibujo como antes, disminuir 4 p.a. trabajando 2 p.a. juntos.

03.02.2019 - 19:41

country flag Lilie wrote:

On row 7, you're supposed to wind up with 29 sts, including the first repeat pattern stitch (?), on one half of the pattern. Row 7 instructions: It says "3 dbl around every ch until 1 ch 2dc remain." Every ch sp? There are chs between sts, chs between spcs. The number doesn't work. Checked row 6, and it is correct. Thank you for your help. Lilie Allen

24.06.2018 - 17:04

DROPS Design answered:

Dear Lilie, you work 3 dc around every chain in A.3 (= around the chain between 2 dc worked in the same st on previous row) until 1 ch and 2 dc remain before the middle ch-space. See also diagrams to line up all sts. Happy crocheting!

25.06.2018 - 09:09