DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 167-17
DROPS Design: Mynstur nr de-153
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
Lengd fyrir miðju: ca 50 cm.
Breidd efst: ca 150 cm.

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
100 g litur nr 02, plóma/beige/fjólublár
Og einnig:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100 g litur nr 100, natur

ATH: Ef sjalið er prjónað með einum lit þá fara 150 gr Delight eða Fabel.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
* 2 umf litur plóma/beige/fjólublár Delight, 2 umf litur natur Fabel *, endurtakið frá *-*.

LEIÐBEININGAR:
Til þess að sleppa við að hafa langa þræði meðfram hliðum á sjali þegar rendur eru prjónaðar, prjónið síðustu l í hvorri hlið (bæði frá réttu og frá röngu) með 1 þræði í litnum natur Fabel + 1 þræði í litnum plóma/beige/fjólublár Delight (= 2 þræðir). Til að geta þetta þarf að nota bæði þráðinn innan úr og utan með báðum dokkum eða að vefja upp hnykla í hvorum lit sem fylgja meðfram sjalinu í annarri hliðinni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf (= ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

SJAL:
Fitjið upp 3 l á hringprjónar 3,5 með litnum natur Fabel og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 5 l.
UMFERÐ 3 (= rétta): 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 9 l. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju (= miðjulykkja).
UMFERÐ 4 (= ranga): 1 l sl, prjónið br þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl.
Prjónið síðan sléttprjón með RENDUR – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út þannig – LESIÐ LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA:
UMFERÐ 5 (= rétta): 1 l sl með 1 þræði í litnum natur Fabel + 1 þræði í litnum plóma/beige/fjólublár Delight (= 2 þræðir), prjónið síðan með 1 þræði í litnum plóma/beige/fjólublár Delight þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl með 1 þræði í litnum natur Fabel + 1 þræði í litnum plóma/beige/fjólublár Delight, snúið við.
UMFERÐ 6 (= ranga): 1 l sl með 2 þráðum, prjónið síðan með 1 þræði í litnum plóma/beige/fjólublár Delight þannig: 2 l br, prjónið næsta uppslátt snúinn br svo ekki myndist gat, prjónið br þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið fyrsta uppsláttinn snúinn brugðið, prjónið 2 l br og endið á 1 l sl með 2 þráðum.
UMFERÐ 7 (= rétta): 1 l sl með 2 þráðum, prjónið síðan með 1 þræði í litnum natur Fabel þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl með 2 þráðum, snúið við.
UMFERÐ 8 (= stuttar umf frá röngu): 1 l sl með 2 þráðum, prjónið 2 l sl, 1 l snúin slétt (svo ekki myndist gat), 4 l sl, snúið við.
UMFERÐ 9 (= rétta): Takið 1. l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, herðið á þræði og prjónið 6 l sl til baka með litnum natur Fabel og síðustu l sl með 2 þráðum.
UMFERÐ 10 (= ranga): 1 l sl með 2 þráðum, prjónið síðan með 1 þræði í litnum natur Fabel þannig: Prjónið br þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið fyrsta uppsláttinn snúinn brugðið (svo ekki myndist gat), prjónið 2 l br og endið á 1 l sl með 2 þráðum.
UMFERÐ 11 (= stuttar umf frá réttu): 1 l sl með 2 þráðum, prjónið 7 l sl með litnum natur Fabel, snúið við.
UMFERÐ 12 (= ranga): Takið 1. l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, herðið á þræði og prjónið 6 l sl til baka með litnum natur Fabel og prjónið síðustu l sl með 2 þráðum.
Endurtakið umf 5-12 fram og til baka þar til 297 l eru eftir í umf (stykkið mælist nú ca 40 cm meðfram miðjulykkju), EN í hverri endurtekningu eru prjónaðar 2 l fleiri í stuttu umf þar til prjónaðar hafa verið stuttar umf yfir alls 26 l í hvorri hlið, síðan eru prjónaðar stuttar umf yfir þessar 26 l til loka (aðrar l halda áfram eins og áður). Eftir hverja endurtekningu hafa verið auknar út 12 nýjar l í umf.

ÖLDUKANTUR:
Prjónið með 1 þræði í litnum plóma/beige/fjólublár Delight, en í síðustu l er prjónað með 2 þráðum í litnum plóma/beige/fjólublár Delight til loka.
Prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l með útaukningu í hvorri hlið og hvoru megin við miðjulykkju eins og áður = 303 l á prjóni – ATH: Frá röngu er fjórða l prjónuð inn frá hvorri hlið (þ.e.a.s. uppslátturinn) snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Prjónið 1 umf slétt frá réttu með útaukningu í hvorri hlið og hvoru megin við miðjulykkju eins og áður og aukið út að auki 17 l jafnt yfir á undan miðjulykkju og 17 l jafnt yfir á eftir miðjulykkju – LESIÐ ÚTAUKNING (aukið er út til skiptis á eftir ca 8. og 9. hverja l) = 343 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt til baka, en fjórða l inn frá hvorri hlið (þ.e.a.s. uppslátturinn) er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.1 til A.4 þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 yfir 2 fyrstu l (fyrsta l er prjónuð með 2 þráðum), endurtakið A.2 yfir næstu 168 l (= 14 mynstureiningar 12 l), prjónið A.3 yfir miðju 3 l, endurtakið A.2 yfir næstu 168 l (= 14 mynstureiningar 12 l) og endið með A.4 yfir 2 síðustu l (síðasta l er prjónuð með 2 þráðum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 551 l á prjóni og fellið af með picotkanti eins og útskýrt er frá að neðan.

PICOTKANTUR:
Fellið laust af með sl frá réttu með litnum plóma/beige/fjólublár Delight þannig: Prjónið 1 l sl, ((** stingið inn hægri prjón á milli 2 fyrstu l á vinstri prjón (þ.e.a.s. á milli l á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, dragið uppsláttinn fram á milli l og setjið uppsláttinn á vinstri prjón **, endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar (= 3 nýjar l á vinstri prjóni). * Prjónið fyrstu l á vinstri prjóni slétt, steypið fyrstu l á hægri prjóni yfir síðustu l sem var prjónuð *)), endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endurtakið frá ((-)) meðfram öllu sjalinu þar til 1 l er eftir, klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu l.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.03.2019
Leiðrétting: Mynsturteikning A.4 hefur verið uppfærð, þannig að það verði rétt bil á milli gatamynsturs A.2 og A.4

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt í sömu lykkju (= 2 lykkjur fleiri)
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig að það myndist gat (þ.e.a.s. uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn)
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (= ekki gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Dorthe Larsen wrote:

Jeg er ny strikker, og følger opskrifterne slavisk. Men her bliver jeg meget i tvivl om hvornår jeg skal stikke bølgekanten? Den er jo nederst på sjalet. Men beskrives som om den kommer til sidst. Hjælp!

15.12.2019 - 16:43

DROPS Design answered:

Hej Dorthe, ja det stemmer, du starter med sjalet med de 3 masker foroven og strikker udad og nedad ifølge opskriften. God fornøjelse!

16.12.2019 - 14:38

country flag Ula wrote:

Witam. W 8 rzedzie na koncu w opisie jest: '4o.p. obrocic'. Obrocic bez zaciskania nitki na nastvoczku? Kiedy wykonuje zgodnie z tym opisem w rzedzie 9 zaczyna sie od obrotu (znowu) i na lewym drucie zostaje mi 7 oczek a w opisie ani slowa jak je przerobic. Cos nie tak ale wykonuje zgodnie z opisem. Prosze o pomoc

11.03.2019 - 13:24

DROPS Design answered:

Witaj Ulu! 8-my rząd (na lewej stronie robótki) jest skrócony: tzn. przerabiamy tylko kilka pierwszych oczek następująco: 1 o.p. 2 nitkami, 2 o.p., 1 o. przekręcone na prawo (= wkłuwając drut z tyłu robótki zamiast z przodu aby uniknąć dziur), 4 o.p., obrócić (bez zaciskania nitki). 9-ty rząd jest na prawej stronie robótki i jest przerabiany tylko ponad 8 oczkami następująco: zdjąć 1-sze o. jak do przerobienia na prawo, zacisnąć nitkę i przer. 6 o.p. włóczką Fabel ecru, przer. ost. oczko na prawo 2 nitkami (po 1-szym oczku i po jego zaciśnięciu nie obracać robótki). Powodzenia!

12.03.2019 - 19:52

country flag Ula wrote:

Witam. W 8 rzedzie na koncu w opisie jest: '4o.p. obrocic'. Obrocic bez zaciskania nitki na nastvoczku? Kiedy wykonuje zgodnie z tym opisem w rzedzie 9 zaczyna sie od obrotu (znowu) i na lewym drucie zostaje mi 7 oczek a w opisie ani slowa jak je przerobic. Cos nie tak ale wykonuje zgodnie z opisem. Prosze o pomoc

11.03.2019 - 13:23

country flag SYLVIE wrote:

Je n'ai pas reçu la réponse à ma question. C 'est dommage...Il a fallu que je compose seule

06.03.2019 - 23:51

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, votre question a été transmise à nos stylistes, désolée pour le retard, si une correction doit être faite, elle sera alors ajoutée et les diagrammes corrigés si nécessaire. Merci. Bon tricot!

07.03.2019 - 09:13

country flag SYLVIE wrote:

Sur les rangs 1 et 15 de la bordure ondulée, il faudrait faire 2 jetés de suite à la jonction de A2 et de A4. N'est ce pas une erreur? comment faire cela?

03.03.2019 - 23:27

country flag Joan Elliott wrote:

Do you need a circular needle for this or can you knit this shawl on two needles?

30.10.2018 - 23:05

DROPS Design answered:

Hi Joan,We recommend that you use a circular needle as there are so many stitches at the end of the piece that keeping them on ordinary needles is difficult. Happy knitting!

31.10.2018 - 08:06

country flag NANOU wrote:

BONJOUR lors de vacances dans le midi de la France, une personne m'avait parlé de vos modèles! depuis je suis fan! aussi bien avec le crochet qu'avec les aiguilles (droites ou circulaires) tricotant depuis plus de 50 ans, je peux dire que le fil n'a plus de secret pour moi FELICITATIONS POUR VOS MODELES CLAIR MAIS UN PEU DIFFICILE POUR LES NEOPHYTES

06.08.2018 - 10:31

country flag Inga Lis Hermansen wrote:

Desværre har jeg købt garn til Drops sjal i Delight og fABEL med striber og bølgekant, nu kan jeg ikke fortsætte da mønster nr a1og a2 kun kan printes ca halvt ud, kan ikke se hele mønstret Venlig hilsen Inga ps kan i hjælpe med det

06.02.2018 - 15:30

DROPS Design answered:

Hei Inga. Det skal ikke være noe feil med utskriften, men husk å trykk på "Skriv ut" ikonet ved bildet og ikke print ikonet på din PC. Evnt sjekk med dine innstillinger på din PC. mvh Drops Design

09.02.2018 - 11:25

country flag Sergine Souquet wrote:

Bonjour Je réalise ce chåle,faut'il augmenter 2 mailles de chaque coté des rangs racourci?.... Merci

18.04.2016 - 15:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Souquet, après le rang 12, on répète les rangs 5 à 12 en augmentant le nombre de mailles des rangs raccourcis de 2 m jusqu'à ce que 26 m ait été tricotées de chaque côté dans ces rangs raccourcis, mais aux rangs raccourcis (5&6 + 11&12), on ne fait pas d'augmentations. Bon tricot!

19.04.2016 - 12:57

country flag Frederique Audran wrote:

Tout d'abord , bravo à vos stylistes ! Je suis en train d'étudier les explications , je comprends tout, sauf que je ne vois pas bien à quoi servent les rangs raccourcis . Pouvez-vous m'éclairer à ce sujet ? Merci

03.04.2016 - 19:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Audran et merci, les rangs raccourcis permettent d'obtenir ici l'effet voulu. Bon tricot!

04.04.2016 - 11:55