DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Port of France

Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, V-hálsmáli, röndum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 250-11
DROPS Design: Mynstur w-918
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-600-650-750-800 g litur 17, natur
150-150-150-200-200-200 g litur 30, gallabuxnablár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (frá réttu):
Aukið út um 1 lykkju til vinstri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út um 1 lykkju til hægri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (frá röngu):
Aukið út um 1 lykkju til vinstri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út um 1 lykkju til hægri:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

V-HÁLSMÁL:
Aukið út fyrir V-hálsmáli á framstykkjum. Öll útaukning er gerð frá réttu!
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig til að koma í veg fyrir göt:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið vinstri prjóni í uppsláttinn og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann.
VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið A.2, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið slétt út umferðina.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig til að koma í veg fyrir göt:
Prjónið uppsláttinn snúið brugðið.

RENDUR:
Prjónið 1 einingu með röndum þannig:
2 umferðir með litnum gallabuxnablár
2 umferðir með litnum natur
2 umferðir með litnum gallabuxnablár
2 umferðir með litnum natur
2 umferðir með litnum gallabuxnablár
2 umferðir með litnum natur
2 umferðir með litnum gallabuxnablár
= 14 umferðir. 1 eining með röndum mælist ca 6½ cm.
Síðan eru prjónaðar 12 umferðir með litnum natur (ca 5½ cm)á undan næstu rönd.
Prjónaðar eru 2 einingar með röndum á fram- og bakstykki og 3 einingar með röndum á ermum. Síðan er stykkið prjónað með litnum natur.

LEIÐBEININGAR RENDUR (á við þegar prjónað er í hring):
Til að ná fram fallegri litaskiptingu í byrjun og lok umferðar þegar rendur er prjónaðar, er hægt að prjóna þannig:
Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkja í 2. umferð er prjónuð þannig:
Lyftið fyrstu lykkju frá fyrri umferð upp á prjóninn, prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkju.

LEIÐBEININGAR:
Þegar stuttar umferðir eru prjónaðar, þá kemur oft lítið gat þegar stykkinu er snúið – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Setjið þráðinn yfir á hægri prjón og herðið á þræðinum vel að aftan (með þessu þá myndast tvær lykkjur á prjóni).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka í umferð. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt er lykkjum aukið út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldinn á breidd á öxlum hefur verið náð. Bakstykkið fær aðeins skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Bakstykkið er síðan sett til hliðar og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjað er á að prjóna kant í hálsmáli, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir annarri öxlinni, prjónað er fram og til baka jafnframt því sem lykkjum er aukið út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Framstykkið er síðan prjónað niður að handvegi. Þá er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjóna og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í hringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.
Kantur í hálsmáli á framstykkjum er saumaður saman og saumað er við kant í hálsmáli aftan í hnakka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 32-32-34-34-36-36 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur í DROPS Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.

Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt.
Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, aukið út til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið.

Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 25-27-29-32-35-38 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 82-86-92-98-106-112 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt!

Prjónið sléttprjón fram og til baka, síðan er aukið út fyrir handveg jafnframt því sem rendur eru prjónaðar. Prjónið RENDUR – lesið útskýringu að ofan, þegar stykkið mælist 13-14-15-15-16-17 cm og aukið JAFNFRAMT út fyrir handveg þegar stykkið mælist 14-15-16-16-16-16 cm eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Aukið út fyrir handveg frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-2-2-3-4 sinnum = 86-90-96-102-112-120 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 16-17-18-18-19-20 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá röngu.
Útaukningu fyrir handveg á nú að vera lokið og prjónaðir hafa verið 3 cm með röndum. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjón 5 með litnum natur í DROPS Paris.
Prjónið kant í hálsmáli frá réttu þannig: 1 kantlykkja í sléttprjóni, A.1.
Prjónið fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-8½-8½-9-9 cm. Klippið þráðinn.

Byrjið með hægri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið upp 25-27-29-32-35-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónuð er upp 1 lykkja í hverri umferð frá réttu meðfram skáhallandi kanti efst á bakstykki), síðan er prjónað yfir kant í hálsmáli frá réttu þannig: 2 lykkjur brugðið saman (= kantlykkju fækkar), 2 lykkjur slétt = 28-30-32-35-38-41 lykkjur.
Öll mál á lengdina eru gerð héðan!
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og með A.1 eins og áður. Þegar stykkið mælist 8-9-9-10-10-11 cm, aukið út lykkjur fyrir V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan. Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 13-13-14-14-15-15 sinnum = 41-43-46-49-53-56 lykkjur. Endið með eina umferð frá réttu, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjón 5 með litnum natur í DROPS Paris.
Prjónið kant í hálsmáli frá réttu þannig: A.2, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Prjónið fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-8½-8½-9-9 cm, síðasta umferð er prjónuð frá röngu.
Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman (= kantlykkju fækkar), prjónið upp 25-27-29-32-35-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki frá réttu (þ.e.a.s. prjónuð er upp 1 lykkja í hverri umferð frá réttu meðfram skáhallandi kanti efst á bakstykki) = 28-30-32-35-38-41 lykkjur.
Öll mál á lengdina eru gerð héðan!
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og með A.2 eins og áður. Þegar stykkið mælist 8-9-9-10-10-11 cm, aukið út lykkjur fyrir V-HÁLSMÁL. Aukið út 1 lykkju í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 13-13-14-14-15-15 sinnum = 41-43-46-49-53-56 lykkjur. Endið með eina umferð frá réttu.

Nú eru framstykkin prjónuð saman, næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 41-43-46-49-53-56 lykkjur frá vinstri öxl, setjið lykkjur frá hægri öxl yfir á vinstri prjón og prjónið síðan í sléttprjóni = 82-86-92-98-106-112 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 39-41-44-47-51-54 lykkjur slétt, setjið næstu 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið lykkjur af kaðlaprjóni slétt, prjónið síðustu 39-41-44-47-51-54 lykkjur í umferð.

Prjónið sléttprjón fram og til baka, síðan á að auka út fyrir handveg jafnframt því sem rendur eru prjónaðar. Prjónið RENDUR þegar stykkið mælist 23-24-25-27-28-29 cm og aukið JAFNFRAMT út fyrir handveg þegar stykkið mælist 24-25-26-28-28-28 cm eins og útskýrt er að neðan.

Aukið út fyrir handveg frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-2-2-3-4 sinnum = 86-90-96-102-112-120 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 26-27-28-30-31-32 cm, endið með einni umferð frá röngu. Útaukningu fyrir handveg á nú að vera lokið og það hafa verið prjónaðir 3 cm með röndum – passið uppá að enda á sama stað í einingu með RENDUR eins og á bakstykki.
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið eins og áður yfir 86-90-96-102-112-120 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir 86-90-96-102-112-120 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) = 176-192-204-220-240-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn – lesið LEIÐBEININGAR RENDUR, þar til stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki.
Nú skiptist stykkið fyrir klauf mitt undir ermi í hvorri hlið þannig að það eru 88-96-102-110-120-130 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið síðan stykkið fram og til baka.
Í næstu umferð (rétta) byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 18-18-20-20-22-24 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir garðaprjón) = 106-114-122-130-142-154 lykkjur – prjónið þannig:
Prjónið 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu), prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjum slétt og 2 lykkjum í garðaprjóni.
Prjónið stroff í 5 cm. Skiptið yfir í litinn gallabuxnablár og prjónið að auki 2 umferðir í stroffprjóni.
Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMAR:
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-5-5-6-6-6 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl).
Notið hringprjón 5, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 74-80-84-90-94-98 lykkjur í kringum handveg – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur meðfram handvegi hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin fái betra form og passi betur.
Byrjið mitt undir ermi.

Umferð 1 (rétta): Prjónið slétt 10-10-11-11-12-12 lykkjur fram hjá merki, snúið – lesið LEIÐBEININGAR að ofan.
Umferð 2 (ranga): Prjónið brugðið 10-10-11-11-12-12 lykkjur fram hjá merki, snúið.
Umferð 3 (rétta): Prjónið slétt 10-10-8-9-6-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið.
Umferð 4 (ranga): Prjónið brugðið 10-10-8-9-6-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið.

Endurtakið 3. og 4. umferð þar til snúið hefur verið við 3-3-4-4-6-6 sinnum í hvorri hlið (prjónað hefur verið yfir 30-30-35-38-42-42 lykkjur fram hjá merki mitt ofan á ermi). Prjónið frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð hér, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.

Síðan er prjónað í hring eins og útskýrt er að neðan í sléttprjóni með RENDUR yfir allar lykkjur.
Þegar ermin mælist 4-4-5-5-6-6 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2-3-3-4-4-5 sinnum, síðan er fækkað í hverjum 2½-2½-2-1½-1½-1½ cm 13-15-15-17-17-18 sinnum, fækkað hefur verið alls 15-18-18-21-21-23 sinnum = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-44-43-42-41-40 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Prjónið stroff í 5 cm. Skiptið yfir í litinn gallabuxnablár og prjónið að auki 2 umferðir í stroffprjóni. Fellið af. Ermin mælist 50-50-49-48-47-46 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið kant í hálsmáli mitt að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Petra Zander Deutschland wrote:

Ich finde die Mengenangabe nicht...oder kann ich nur nicht richtig sehen?

26.04.2024 - 15:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zander, die benötige Garnmenge finden Sie für jede Größe im Kopfteil unter Tab "Anleitung", z.B. in S brauchen Sie 500 g DROPS Paris / 50 g das Knaüel = 10 Knäuel in Farbe 17 + 150/50 = 3 Knäuel Farbe 30. Viel Spaß beim Stricken!

26.04.2024 - 15:48

country flag Angelika wrote:

Wieso steht unter dem Namen/Nr. der Anleitung die Garngruppe C oder A+A und dann beim verwendeten Garn DROPS PARIS mit der Garngruppe B? Das verwirrt mich gerade.

03.04.2024 - 13:10

DROPS Design answered:

Liebe Angelika, das ist nur ein Typo, sollte hier C sein und nicht B. Danke für den Hinweis, eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim Stricken!

03.04.2024 - 13:24

country flag Marie Pascale wrote:

Très joli modèle printanier

20.02.2024 - 11:32

country flag Erna wrote:

Sail away

22.01.2024 - 08:23

country flag Katja Salomies wrote:

Four stribes

18.01.2024 - 18:29

country flag Val wrote:

Brittany Coasts

18.01.2024 - 17:23

country flag Signe wrote:

Sailors sweater Or Cottage core cardigan

18.01.2024 - 15:52