DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6402.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ginger Tea Top

Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 244-15
DROPS Design: Mynstur fl-085
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-250 g litur 25, karamella
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-100-100-100-125-125 g litur 42, mandla

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6402.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA-1:
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig:
Á UNDAN MERKIÞRÆÐI:
Lyftið uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR MERKIÞRÆÐI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat.
Síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

LASKALÍNA-2:
Aukið út um 1 lykkju aukalega á undan/eftir merkiþræði á framstykki/bakstykki (ekki á ermum).
Laskalína-1 er prjónuð sem viðbót við Laskalína-1. Þetta er gert þannig:
Á UNDAN MERKIÞRÆÐI:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, svo ekki myndist gat.
Á EFTIR MERKIÞRÆÐI:
Prjónið 3 lykkjur á eftir merkiþræði (hugsanlega uppsláttur frá útaukningu í sömu umferð er ekki talinn sem lykkja hér), notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja í umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð í aftari lykkjubogann, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur slétt saman (2 lykkjur færri).

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna. Prjónuð er upphækkun fram og til baka á hringprjóna, síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf, afgangur af fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-104-104-112-112-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna (merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja) þannig:
Teljið 13-13-13-17-17-17 lykkjur og setjið 1. merkiþráð á undan næstu lykkju (ca hálft bakstykki), teljið 24 lykkjur og setjið 2. merkiþráð á undan næstu lykkju (ermi), teljið 24-28-28-32-32-36 lykkjur og setjið 3. merkiþráð á undan næstu lykkju (framstykki), teljið 24 lykkjur og setjið 4. merkiþráð á undan næstu lykkju (ermi), það eru eftir 11-15-15-15-15-19 lykkjur fram að byrjun á umferð (afgangur af bakstykki).

Nú á að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Klippið þræðina, nú er prjónað áfram á undan 3. merkiþræði. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Byrjið frá réttu – 3 lykkjur á undan 3. merkiþræði. Nú er prjónað fram og til baka þannig:

UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 3. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 4. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur slétt. Það hafa verið auknar út 8 lykkjur = 104-112-112-120-120-128 lykkjur. Snúið stykkinu.

UMFERÐ 2 (ranga):
* Prjónið brugðnar lykkjur fram að uppslætti (á undan merkiþræði), prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann, prjónið 2 lykkjur brugðið (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), lyftið næsta uppslætti af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Prjónið brugðnar lykkjur fram að næsta merkiþræði *, prjónið frá *-* 2 sinnum til viðbótar.
Prjónið brugðnar lykkjur fram að uppslætti (á undan 3. merkiþræði), prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann, prjónið 2 lykkjur brugðið (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), lyftið næsta uppslætti af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Prjónið brugðnar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem fyrri umferð byrjaði. Snúið stykkinu.

UMFERÐ 3 (rétta):
Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 3. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 4. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem fyrri umferð byrjaði. Það hafa verið auknar út 8 lykkjur = 112-120-120-128-128-136 lykkjur. Snúið stykkinu.

UMFERÐ 4 (ranga):
Prjónið á sama hátt og í umferð 2.

UMFERÐ 5 (rétta):
Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 3. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 4. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem fyrri umferð byrjaði. Það hafa verið auknar út 8 lykkjur = 120-128-128-136-136-144 lykkjur. Snúið stykkinu.

UMFERÐ 6 (ranga):
Prjónið á sama hátt og í umferð 2. Upphækkun er lokið, klippið þræðina.

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM.
Prjónið hringinn í sléttprjóni, byrjið umferð við prjónamerki í byrjun umferðar og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

ATH: Það á að auka út auka lykkjum á framstykki / bakstykki, aukið er út sem viðbót við laskalína-1 til laskalína-2 á framstykki / bakstykki með jöfnu millibili.
Lestu LASKALÍNA-1 og LASKALÍNA-2 í útskýringu að ofan og byrjið báðar útaukningar í næstu umferð.

Aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 merkiþræðina í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 3-4-7-14-14-12 sinnum til viðbótar (aukið hefur verið út alls 6-7-10-17-17-15 sinnum með útaukningu í upphækkun). JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA-2 á framstykki og bakstykki – lesið útskýringu að ofan (laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við laskalína-1).
Aukið út fyrir laskalína-2 í 6.-8.-8.-6.-4.-4. hverri umferð alls 6-5-6-8-10-11 sinnum.

Haldið nú áfram með útaukningu fyrir laskalína-1 í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið nú einungis á framstykki/ bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 14-16-14-8-10-14 sinnum á framstykki/bakstykki (7-8-7-4-5-7 sinnum á ermum) – munið eftir laskalína-2.

Eftir alla útaukningu fyrir laskalína-1 og laskalína-2 eru 252-276-292-328-348-368 lykkjur í umferð. Það hefur verið aukið út alls 13-15-17-21-22-22 sinnum á ermum og alls 26-28-30-33-37-40 sinnum á framstykki/bakstykki (20-23-24-25-27-29 sinnum fyrir laskalína-1 og 6-5-6-8-10-11 sinnum fyrir laskalína-2). Það eru 50-54-58-66-68-68 lykkjur á milli merkiþráða á ermum og 76-84-88-98-106-116 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki/bakstykki). Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist ca 20-22-23-24-26-28 cm, mælt eftir stroffi mitt að aftan.

Nú skiptis stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig (frá miðju að aftan), prjónið sléttar lykkjur að 1. merkiþræði (tilheyrir bakstykki) = 39-41-43-50-54-57 lykkjur, setjið næstu 50-54-58-66-68-68 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið sléttar lykkjur að 3. merkiþræði (framstykki) = 76-84-88-98-106-116 lykkjur, setjið næstu 50-54-58-66-68-68 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið sléttar lykkjur að byrjun á umferð (afgangur á bakstykki). Nú er fram- og bakstykkið og ermar prjónað áfram hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 172-188-200-220-240-264 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur í hvorri hlið og látið merkiþræðina fylgja með áfram niður stykkið (þeir eru notaðir til að merkja klauf). Byrjið umferð við annan merkiþráðinn og prjónið í hring í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 21-21-22-23-23-23 cm frá skiptingu á að gera klauf í hliðum. Setjið síðustu 86-94-100-110-120-132 lykkjur á þráð og prjónið yfir fyrstu 86-94-100-110-120-132 lykkjur þannig:
Prjónið 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 12-12-14-12-18-14 lykkjur jafnt yfir næstu 78-86-92-102-112-124 lykkjur (aukið út með uppslætti sem prjónaður er snúinn í næstu umferð) og endið með 4 lykkjur í garðaprjóni = 98-106-114-122-138-146 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 3 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið til baka lykkjur sem settar voru á þráð á hringprjón 4,5 og prjónið á sama hátt.
Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 50-54-58-66-68-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 60-64-70-78-82-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu (hann er notaður þegar fækka á lykkjum).
Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-2½-1½-1½-1 cm millibili alls 4-4-3-4-3-3 sinnum = 52-56-64-70-76-78 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 14-12-12-11-10-8 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 4-4-4-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 56-60-68-76-84-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingin dragi ekki stykkið saman. Ermin mælist 17-15-15-14-13-11 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Festið þræðina og saumið nokkur spor efst í klauf þannig að hún haldist aðeins saman efst í skiptingunni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.09.2023
KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-104-104-112-112-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk.
Yfirfarið á vefsvæði: 12.12.2023
Efnismagn hefur verið leiðrétt

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Ginger Tea Top

Renata, Poland

Ginger Tea Top

Kinga, Poland

Ginger Tea Top

Irina, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Maria Hallberg wrote:

Hej! Jag har delat arbetet för fram- och bakstycke resp ärmar, lagt upp för ärmarna och stickat fram till början av varvet = mitt bak. Varför skall jag nu börja från mitt under ärmen (och förmodar jag, klippa garnet), varför kan jag inte bara fortsätta sticka runt?

06.04.2024 - 17:02

DROPS Design answered:

Hej Maria, det får helt fint at starte omgangen ved den mærketråd du allerede har :)

09.04.2024 - 10:33

country flag Elinor wrote:

Vilken storlek är modellens tröja stickad i?

26.03.2024 - 20:56

country flag Destiny wrote:

Continue to increase for raglan-1 every 2nd round but every 2nd increase is only on the front and back pieces (4 increased stitches), i.e., increase on the front and back pieces every 2nd round and on the sleeves every 4th round. Increase like this 14-16-14-8-10-14 times on the front and back pieces (7-8-7-4-5-7 times on the sleeves) – remember raglan-2. this is the part i meant in my previous question, i forgot to add it. does this come before or after the 14 increases on both sides?

20.03.2024 - 16:04

DROPS Design answered:

Dear Destiny, you first increase 8 sts a total of 14 times for the raglan (raglan-1) ie 2 sts on each sleeve, 2 sts on front and 2 sts on back piece (+ Raglan-2 when needed); then afterwards start increasing alternately only on front and back piece (on every 2nd rond) and on both front/back pieces and sleeves (+ Raglan-2). Happy knitting!

21.03.2024 - 08:33

country flag Destiny wrote:

Hello, i’m having trouble understanding when to do raglan-1 on just the back and front every 2nd increase. do i do that before or after the other 17 increases on all sides (including the short rows).

20.03.2024 - 15:15

DROPS Design answered:

Dear Destiny, you first increase for short rows a total of 3 times (every row from RS) as explained under Row 1 to 6 then you work in the round and increase 14 times (size XL and XXL) as explained under RAGLAN-1: on both front/back pieces and sleeves, this means you will increase 14 times on both sides of the 2 stocking stitches for raglan lines just as you worked before on rows from RS, at the same time, increase for body only, see RAGLAN-2. Happy knitting!

20.03.2024 - 15:37

country flag Destiny wrote:

Thank you for the response. I think my webpage may have been glitched because i reopened it and now the pattern is there. thank you!

23.02.2024 - 18:20

country flag Destiny wrote:

There is no pattern for the back elevation starting after the 2x2 rib. all the tutorials i can find made by you have no explanation on stitch count or anything. this is my first time working an elevation with no direction.

22.02.2024 - 19:08

DROPS Design answered:

Dear Destiny, to make this elevation you will have to first cut the yarn and slip all stitches until 3rd marker (in the placement position = beg of front piece, seen from RS) without working them, then start the rows here. In this video we show how to work such short rows, but remember to follow the instructions for the pattern as the raglan increases are worked another way (K2 on each marker instead of K1 in the video). Happy knitting!

23.02.2024 - 08:16

country flag Suzanna Davidson wrote:

Hi - finding it difficult to understand which marker is which for the body-only increases. Does front piece lie between marker 3 and marker 4 and the back piece between marker 1 and marker 2? Confused because you say marker 1 is at 'half back'. Hope you can help me! Thanks.....

22.02.2024 - 18:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Davidson, beg of the round is on mid back, then stitches from beg of round to 1st marker are for half back piece, stitches between 1st and 2nd marker are for left sleeve; stitches between 2nd and 3rd marker are for front piece; stitches between 3rd and 4th marker are for right sleeve and stitches after 4th marker to the end of the round are for the 2nd half of back piece. Happy knitting!

23.02.2024 - 08:09

country flag Marta wrote:

Hola, como se hace la elevacion despues de tejer el cuello?

08.02.2024 - 18:04

DROPS Design answered:

Hola Marta, la elevación se explica en la sección del canesú: son 6 filas acortadas trabajadas en la parte del cuello de la espalda para que la espalda quede ligeramente más elevada que en el delantero. Puedes ver un ejemplo en el siguiente video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=894&lang=es

11.02.2024 - 21:06

country flag Herbert wrote:

Hallo, kann ich statt Flora auch Alpaca nehmen und statt kid silk das Garn brushed alpaca silk? Das entspräche A+A :)

04.02.2024 - 21:33

DROPS Design answered:

Lieber Herbert, also Brushed Alpaca Silk gehört Garngruppe C so können Sie anstatt Flora + Kid-Silk (A+A) mit 1 Faden Brushed Alpaca Silk (C) stricken. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2024 - 09:43

country flag Iris wrote:

Je fais la taille M. :)

19.01.2024 - 09:42

DROPS Design answered:

Bonjour Iris, donc en taille M, après les rangs raccourcis augmentez 3 fois tous les 2 tours, raglan-1 puis la fois suivante, augmentez 1 fois pour le raglan-1 + pour le raglan-2; continuez ensuite à augmenter pour les manches tous les 4 tours puis tous les 2 tours pour le dos/le devant et continuez au même rythme: tous les 2 tours pour le dos/devant, raglan-1 mais tous les 8 tours pour le raglan-2 (= 4 fois (1 tour avec augm raglan-1, 1 tour sans augm) x 3, puis (1 tour avec augm raglan-1 + raglan-2) x 1 fois) jusqu'à ce que toutes les augmentations du raglan-2 (5 fois au totla) aient été faites, ensuite, vous n'augmentez que pour le raglan-1. Bon tricot!

19.01.2024 - 15:44