DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Grey Owl

Hekluð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og stuðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-32
DROPS Design: Mynstur u-905
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-800-900-1000-1050 g litur 69, ljós grágrænn

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina eða 12 umferðir í mynstri á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJU:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. Heklið 2 stuðla í 2 fyrstu loftlykkjurá eftir prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju = 1 stuðull fleiri við prjónamerki.
Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur eru eftir og 3 fastalykkjur á undan prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju, heklið eins og áður þar til 2 stuðlar hafa verið heklaðir um hvora af fyrstu 2 loftlykkjum á eftir prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju = 2 stuðlar fleiri við prjónamerki.
Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur eru eftir og 3 fastalykkjur á undan prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju, heklið eins og áður fram að prjónamerki = 1 stuðull fleiri við prjónamerki = alls 4 stuðlar fleiri í umferð.
Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í hvert skipti sem lykkjur eru auknar út, endurtakið A.1b alls 2 sinnum fleiri á breidd í umferð.

ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. Heklið 2 stuðla um 2 fyrstu loftlykkjur á eftir prjónamerki, * heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni * = 1 stuðull færri við prjónamerki. Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur eru eftir og 3 fastalykkjur á undan prjónamerki, heklið frá *-* um næstu loftlykkju, heklið eins og áður þar til heklaðir hafa verið 2 stuðlar um hvora af fyrstu 2 loftlykkjum á eftir prjónamerki, heklið frá *-* um næstu loftlykkju (þ.e.a.s. hinum megin við prjónamerki) = 2 stuðlar færri við prjónamerki.
Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur og 3 fastalykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið frá *-* um næstu loftlykkju = 1 stuðull færri við prjónamerki = alls 4 stuðlar færri í umferð.
Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað, endurtakið A.1b alls 2 sinnum færri á breiddina í umferð.

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. * Heklið 1 stuðul um fyrstu/næstu loftlykkju í umferð, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri) *, heklið frá *-* um næstu loftlykkju = 2 stuðlar færri. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað, endurtakið A.1b alls 1 sinni færri á breiddina.
Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar (þ.e.a.s. þegar lykkjum er fækkað í lokin er heklað eins og áður þar til 2 loftlykkjur eru eftir í umferð).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað í hring frá hlið, ofan frá og niður. Ermar eru hekaðar í hring, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 84-86-90-96-98-104 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Karisma – sjá HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJU og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju umferðina hringinn = 84-86-90-96-98-104 stuðlar.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Heklið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Heklið 2. umferð í mynstri þannig: (= ein umferð með fastalykkjum / loftlykkjum): Heklið A.1a yfir fyrstu 2 stuðla, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 stuðla (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd), heklið A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd), heklið A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 stuðla (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), heklið A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd með 4 lykkjur), heklið A.1b yfir næstu 20-22-22-24-26-28 stuðla (= 10-11-11-12-13-14 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 stuðla (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), heklið A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-10-12-12-12-14 stuðla (= 5-5-6-6-6-7 sinnum á breidd).
Haldið svona áfram með mynstur, endurtakið 2 síðustu umferðir í A.1a og A.1b á hæðina og aukið út eins og útskýrt er í A.2 – JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan:

Heklið 3. umferð í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig:
Heklið A.1a yfir fyrstu 2 lykkjur, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 lykkjur og aukið út 0-2-2-4-4-4 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur og aukið út 0-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 20-22-22-24-26-28 lykkjur og aukið út 0-4-4-6-6-8 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur og aukið út 0-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-10-12-12-12-14 lykkjur og aukið út 0-2-2-4-4-4 stuðla jafnt yfir = 100-118-122-134-136-144 stuðlar (meðtaldar útaukningar í A.2). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Heklið 4. umferð í mynstri þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 stuðla, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 20-26-26-30-32-36 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 stuðla, heklið A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-12-14-16-16-18 stuðla.

Heklið 5. umferð í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 lykkjur, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 lykkjur og aukið út 0-0-0-0-2-4 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 lykkjur og aukið út 0-2-4-4-0-0 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 20-26-26-30-32-36 lykkjur og aukið út 0-0-2-4-4-8 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 lykkjur og aukið út 0-2-4-4-0-0 stuðla jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-12-14-16-16-18 lykkjur og aukið út 0-0-0-0-2-4 stuðla jafnt yfir = 116-138-148-162-160-176 stuðlar (meðtaldar útaukningar í A.2).

Haldið áfram með mynstur og útaukningar í A.2. Þegar síðasta umferð er eftir í A.2, mælist stykkið ca 18-18-19-19-21-21 cm frá prjónamerki við hálsmál og það eru 212-234-260-274-304-320 stuðlar í umferð.

Heklið síðustu umferð í A.2 þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 stuðla, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-16-20 stuðla, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinni á breiddina), 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 stuðla (þ.e.a.s. hoppið yfir 20-20-22-22-26-26 stuðla í A.2, 6-12-14-16-12-12 stuðlar í A.1b og 20-20-22-22-26-26 stuðlar í A.2 fyrir ermi), heklið A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinni á breidd), A.1b yfir næstu 20-26-28-34-36-44 stuðla, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinni á breiddina), 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 stuðla (þ.e.a.s. hoppið yfir 20-20-22-22-26-26 stuðla í A.2, 6-12-14-16-12-12 stuðlar í A.1b og 20-20-22-22-26-26 stuðlar í A.2 fyrir ermi), heklið A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-12-14-16-18-22 stuðla = 136-146-160-174-196-216 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 lykkjur, A.1b yfir næstu 28-30-34-36-42-46 lykkjur, 1 stuðull í hverja af 8-8-8-10-10-12 loftlykkjum undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 8-8-8-10-10-12 lykkjur, heklið A.1b yfir næstu 60-66-72-78-88-96 lykkjur, 1 stuðull í hverja af 8-8-8-10-10-12 loftlykkjum undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 8-8-8-10-10-12 lykkjur og heklið A.1b yfir síðustu 30-32-36-38-44-48 lykkjur. Klippið þráðinn frá og festið enda.
Fram- og bakstykki og ermar er nú heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-146-160-174-196-216 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum á fram- og bakstykki.
Byrjið á að hekla í hlið á fram- og bakstykki – strax eftir prjónamerki þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 1 stuðla, endurtakið A.1b yfir næstu 134-144-158-172-194-214 stuðla. Haldið áfram hringinn.

Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1! Fækkið lykkjum svona með 3½-4-4½-5-5-5½ cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 124-134-148-162-184-204 stuðlar.

Þegar stykkið mælist 14-16-17-18-18-19 cm frá skiptingu, aukið út um 2 stuðla við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 6 sinnum á hæðina = 148-158-172-186-208-228 stuðlar.
Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist ca 35-37-37-38-38-40 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd – endið með umferð með stuðlum. Klippið þráðinn frá og festið enda. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
= 46-52-58-60-64-64 stuðlar + 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur mitt undir ermi.
Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 5-5-5-6-6-7 loftlykkju á 8-8-8-10-10-12 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 1 loftlykkju (= 1 fastalykkja), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3-3-3-4-4-5 loftlykkjum, heklið A.1b (þ.e.a.s. 1 umferð með fastalykkjum og loftlykkjum) yfir 46-52-58-60-64-64 stuðla yfir ermi og endið með 1 fastalykkju í hverja af þeim 4-4-4-5-5-6 loftlykkjum sem eftir eru undir ermi = 54-60-66-70-74-76 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð – mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur undir ermi.
Heklið A.1b hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-2-2-2 cm millibili alls 11-13-15-17-18-18 sinnum = 32-34-36-36-38-40 lykkjur.
Heklið áfram þar til ermin mælist 41-42-42-44-43-45 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd – endið eftir umferð með stuðlum. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.10.2020
Ný stærðarteikning og mynsturteikning (var áður peysa í 216-34)

Mynstur

symbols = 1 stuðull í lykkju að neðan eða 1 stuðul um loftlykkju
symbols = 1 fastalykkja í lykkju að neðan
symbols = 1 fastalykkja á milli 2 stuðla
symbols = 1 loftlykkja
symbols = fyrsta umferð er útskýrð í uppskrift, byrjið á 2. umferð
symbols = útauknings umferð – sjá útskýringu í mynstri
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Sonja Bach Vad wrote:

Hvordan kommer jeg videre efter 5. række? Har prøvet mange forskellige ting, men det kommer ikke til at passe med maskeantallet (260 m i str. L) efter 23. række. Jeg har bl.a. prøvet at følge hhv. lige og ulige rækker i beskrivelsen, men da udtagene er forskellige i alle rækker, er det ikke muligt at følge disse rækker.

31.01.2024 - 14:39

DROPS Design answered:

Hei Sonja. Etter 5. omgang har du 148 masker og nå skal du bare øke etter diagram A.2. Diagram A.1a og A.1b har et stabilt maskeantell, 28 masker x 2 = 56 masker (foran og bak) og 14 x 2 = 28 masker over ermene, mens over A.2 øker maskeantallet til 44 masker x 4 = 176 masker = 176 + 56 + 28 = 260 masker. Bruk maskemarkører / merketråder mellom overgangene mellom diagrammene, da har du en lettere oversikt over hvor det skal økes. mvh DROPS Design

09.02.2024 - 10:41

country flag Delphine wrote:

Bonjour, je ne comprends pas ce qu'il faut faire dès le 2eme tour. Les motifs sont sur combien de rangs? Possibilités d'avoir un schéma du col et des 1ers rangs? Merci.

21.11.2023 - 22:11

DROPS Design answered:

Bonjour Delphine, le col se crochète simplement en brides (1 rang de brides), puis pour l'empiècement, crochetez les diagrammes dans l'ordre indiqué, quand le 1er tour des diagrammes est fait, crochetez le 2ème tour des diagrammes dans le même ordre que précédemment et ainsi de suite jusqu'à c que les diagrammes soit fait, attention, il faudra en même temps augmenter à intervalles réguliers dans les diagrammes A.1b, le nombre de mailles de A.2b va augmenter lui progressivement. Bon crochet!

22.11.2023 - 09:05

country flag Carina Jonsson Nedrén wrote:

Hej. Har kämpat i dagar med att förstå virkmönstret till Grey owl tröjan. Tror att det efter varv 5 är något tokigt i A2. Om man ska virka det 2 ggr som det står, så blir det alldeles för många maskor, med dom ökningarna.Börjar bli väldigt frustrerad över att inte komma vidare. Stickar storlek medium, har just nu 138 m inför nästa varv. Så långt är det rätt. Väldigt fin tröja, jag vill verkligen få svar på detta. Med vänlig hälsning, Carina

07.10.2023 - 16:26

DROPS Design answered:

Hej Carina, kan det være lettere at sætte 1 mærke på hver side af rapporten? A.2 skal virkas totalt 2x4= 8 gange. Så du på pil 2 får mærke 3 st, 2 st, 3 st mærke 3 st, 2 st, 3 st mærke och det virkar du i 4 "hörn" :)

17.10.2023 - 11:54

country flag E Mourik wrote:

Ik kom niet verder dan toer 6. Toer 7 zoals toer 5 met de meerderheden van A2. Hoe ik het ook doe, ik kom niet uit met mijn aantal steken tot op het einde van de toer. Het patroon gevolgd en dan houd ik nog 12 steken (6 vaste en 6 losse) over tot aan het eind-/beginpunt. Kan u mij helpen?

21.08.2023 - 15:03

DROPS Design answered:

Dag E Mourik,

Als je de paragraaf waarin toer 5 beschreven staat gedaan hebt, kun je daarna gewoon verder het telpatroon volgen. De meerderingen zijn al opgenomen in het telpatroon, dus je maakt geen extra meerderingen. Wanneer je gemeerderd hebt over A.1b (zoals beschreven in toer 5), haak je ook A.1b over de gemeerderde steken

22.08.2023 - 20:23

country flag Marieke wrote:

Hallo, Ik loop direct vast bij het tellen van de steken (maat M): je start met 86 stokjes. Voor zover ik het begrijp wordt er in de tweede toer niet gemeerderd. Klopt dat? Aan het einde van de derde toer staat dat er 118 stokjes moeten zijn. Maar volgens mij wordt er maar gemeerderd tot 102 (2+4+4+4+2+86). Waar doe ik het fout?

25.06.2023 - 22:43

DROPS Design answered:

Dag Marieke,

Nee, de eerste toer van A.1a staat een sterretje voor en deze toer sla je dus over als je begint met A.1a. Deze toer staat erbij zodat je kunt zien hoe de steken in de voorgaande toer gehaakt moeten worden. In de tweede toer wordt er over elke herhaling van A.2 gemeerderd van 4 naar 6 stokjes, dat is 16 stokjes en daarnaast meerder je verdeeld over de toer nog eens 16 stokjes in totaal zoals beschreven. Dan kom je op 118 steken.

26.06.2023 - 21:31

country flag Cielle wrote:

Goeiedag, Ik heb veel moeite bij het minderen van het lijf van de maat s-m ik hoop dat u mij verder kan helpen

20.10.2021 - 17:51

DROPS Design answered:

Dag Cielle,

Je mindert op een toer van stokjes en niet op een toer van vasten. Als je mindert haak je 2 stokjes samen om de 2 eerste lossen na de markeerdraad. Dit doe je door te wachten met de laatste doorhaling van het eerste stokje. Je haakt het tweede stokje en als je de laatste doorhaling maakt, haal je de draad zowel door het tweede als het eerste stokje. Lees ook de 'tip voor het minderen' bij de instructies voor het patroon.

22.10.2021 - 15:15

country flag Amy wrote:

I can't figure out how increases happen in the smallest size, as it is always indicated as "0". Please advise, Thank you!! (If you do a search on the word "increase," you'll see that the first number of six given to show increases for different sizes is always "0"). How should increases be done for size "small?"

15.03.2021 - 21:56

DROPS Design answered:

Dear Amy, when you see "0" increase, this means that in your size you will not have to increase, ie you just work as explained but without increasing any stitch - just work diagram as shown. Happy crocheting!

16.03.2021 - 08:40

country flag Sabine wrote:

Ich habe nun ab Reihe 6 Gr. L wie folgt gehäkelt: A1a 2M, A1b 2M dann A2 dann wieder A1a 2M, A1b 2M dann A2. Nun habe ich in der letzten Runde von A2 320 Maschen statt 260 Maschen. Bitte wo ist der Fehler. Ich verzweifle langsam an dieser Anleitung! Ich trenne nun zum zweiten mal alles auf. Ich bin kein Anfänger und habe schon einige Drops Anleitungen nachgehäkelt und auch gestrickt.aber hier komme ich überhaupt nicht klar.

07.02.2021 - 15:44

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, wenn Sie die 5. Runde gehäkelt haben, haben Sie 148 Maschen, jetzt werden Sie nur in A.2 zunehmen (keine Zunahmen mehr in A.1), so daß die Arbeit sieht bei der letzte Reihe so aus: A.1a (= 2 M), A.1b (= 12 M), A.2 (= 2 x 22 M), A.1b (14 M), A.2 (= 2 x 22 M), A.1b (28 M), A.2 (2 x 22 M), A.1b (= 14 M), A.2 (= 2 x 22 M), A.1b (= 14 M) = 2+12+44+14+44+28+44+14+44+14=260 M. Viel Spaß beim häkeln!

08.02.2021 - 10:12

country flag Sabine wrote:

Hallo, In der Anleitung steht (ab Reihe 6) : Im Muster und mit den Zunahmen in A2 weiterhäkeln. Beginne und beende ich die Reihen direkt mit A2 oder beginne ich die Reihen mit A1a und beende sie mit A1b.

30.01.2021 - 19:21

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, es wird wie zuvor mit A.1a und A.1b sowie A.2 gehäkelt, aber jetzt wird es nur in A.2 zugenommen, also wie im Diagram A.2 gezeigt, A.1a und A.1b häkeln Sie wie zuvor (ohne Zunahmen mehr). Viel Spaß beim häkeln!

01.02.2021 - 09:01

country flag Béatrice wrote:

Bonjour, je ne comprend pas le 3eme tour de l'empiècement. En taille M, on a 102 B au tour précédent. On doit augmenter de 2 B sur chacun des 8 A2 et en même temps augmenter de 16 B sur les A1b, soit au total 32 augmentations sur le tour. On devrait donc avoir 134 B à la fin du tour. Or les instructions indiquent 118 N à la fin du tour. Comment est ce possible ?

29.01.2021 - 22:03

DROPS Design answered:

Bonjour Béatrice, au 2ème tour vous crochetez les diagrammes sur 86 mailles: A.1a(2m), A.1b (8m), A.2 (8m), A.1b (6m), A.2(8m), A.1b (22m), A.2 (8m), A.1b (6m) A.2 (8m) et A.1b (10 m) - au 3ème rang, vous aurez 6 x2 m dans chaque A.2 (soit 12 m au total) et vous augmentez dans A.1b, autrement dit vous aurez: A.1a(2m), A.1b (10m), A.2 (12m), A.1b (10m), A.2(12m), A.1b (26m), A.2 (12m), A.1b (10m) A.2 (12m) et A.1b (12 m)= 2+10+12+10+12+26+12+10+12+12= 118 brides. Bon crochet!

01.02.2021 - 08:13