Grey Owl |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og stuðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-32 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. Heklið 2 stuðla í 2 fyrstu loftlykkjurá eftir prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju = 1 stuðull fleiri við prjónamerki. Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur eru eftir og 3 fastalykkjur á undan prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju, heklið eins og áður þar til 2 stuðlar hafa verið heklaðir um hvora af fyrstu 2 loftlykkjum á eftir prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju = 2 stuðlar fleiri við prjónamerki. Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur eru eftir og 3 fastalykkjur á undan prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju, heklið eins og áður fram að prjónamerki = 1 stuðull fleiri við prjónamerki = alls 4 stuðlar fleiri í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í hvert skipti sem lykkjur eru auknar út, endurtakið A.1b alls 2 sinnum fleiri á breidd í umferð. ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. Heklið 2 stuðla um 2 fyrstu loftlykkjur á eftir prjónamerki, * heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni * = 1 stuðull færri við prjónamerki. Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur eru eftir og 3 fastalykkjur á undan prjónamerki, heklið frá *-* um næstu loftlykkju, heklið eins og áður þar til heklaðir hafa verið 2 stuðlar um hvora af fyrstu 2 loftlykkjum á eftir prjónamerki, heklið frá *-* um næstu loftlykkju (þ.e.a.s. hinum megin við prjónamerki) = 2 stuðlar færri við prjónamerki. Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur og 3 fastalykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið frá *-* um næstu loftlykkju = 1 stuðull færri við prjónamerki = alls 4 stuðlar færri í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað, endurtakið A.1b alls 2 sinnum færri á breiddina í umferð. ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. * Heklið 1 stuðul um fyrstu/næstu loftlykkju í umferð, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri) *, heklið frá *-* um næstu loftlykkju = 2 stuðlar færri. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað, endurtakið A.1b alls 1 sinni færri á breiddina. Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar (þ.e.a.s. þegar lykkjum er fækkað í lokin er heklað eins og áður þar til 2 loftlykkjur eru eftir í umferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað í hring frá hlið, ofan frá og niður. Ermar eru hekaðar í hring, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 84-86-90-96-98-104 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Karisma – sjá HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJU og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju umferðina hringinn = 84-86-90-96-98-104 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Heklið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Heklið 2. umferð í mynstri þannig: (= ein umferð með fastalykkjum / loftlykkjum): Heklið A.1a yfir fyrstu 2 stuðla, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 stuðla (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd), heklið A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd), heklið A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 stuðla (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), heklið A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd með 4 lykkjur), heklið A.1b yfir næstu 20-22-22-24-26-28 stuðla (= 10-11-11-12-13-14 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 stuðla (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), heklið A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-10-12-12-12-14 stuðla (= 5-5-6-6-6-7 sinnum á breidd). Haldið svona áfram með mynstur, endurtakið 2 síðustu umferðir í A.1a og A.1b á hæðina og aukið út eins og útskýrt er í A.2 – JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Heklið 3. umferð í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 lykkjur, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 lykkjur og aukið út 0-2-2-4-4-4 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur og aukið út 0-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 20-22-22-24-26-28 lykkjur og aukið út 0-4-4-6-6-8 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur og aukið út 0-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-10-12-12-12-14 lykkjur og aukið út 0-2-2-4-4-4 stuðla jafnt yfir = 100-118-122-134-136-144 stuðlar (meðtaldar útaukningar í A.2). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið 4. umferð í mynstri þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 stuðla, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 20-26-26-30-32-36 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 stuðla, heklið A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-12-14-16-16-18 stuðla. Heklið 5. umferð í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 lykkjur, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 lykkjur og aukið út 0-0-0-0-2-4 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 lykkjur og aukið út 0-2-4-4-0-0 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 20-26-26-30-32-36 lykkjur og aukið út 0-0-2-4-4-8 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 lykkjur og aukið út 0-2-4-4-0-0 stuðla jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-12-14-16-16-18 lykkjur og aukið út 0-0-0-0-2-4 stuðla jafnt yfir = 116-138-148-162-160-176 stuðlar (meðtaldar útaukningar í A.2). Haldið áfram með mynstur og útaukningar í A.2. Þegar síðasta umferð er eftir í A.2, mælist stykkið ca 18-18-19-19-21-21 cm frá prjónamerki við hálsmál og það eru 212-234-260-274-304-320 stuðlar í umferð. Heklið síðustu umferð í A.2 þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 stuðla, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-16-20 stuðla, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinni á breiddina), 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 stuðla (þ.e.a.s. hoppið yfir 20-20-22-22-26-26 stuðla í A.2, 6-12-14-16-12-12 stuðlar í A.1b og 20-20-22-22-26-26 stuðlar í A.2 fyrir ermi), heklið A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinni á breidd), A.1b yfir næstu 20-26-28-34-36-44 stuðla, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinni á breiddina), 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 stuðla (þ.e.a.s. hoppið yfir 20-20-22-22-26-26 stuðla í A.2, 6-12-14-16-12-12 stuðlar í A.1b og 20-20-22-22-26-26 stuðlar í A.2 fyrir ermi), heklið A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinnum á breidd) og endið með A.1b yfir síðustu 10-12-14-16-18-22 stuðla = 136-146-160-174-196-216 lykkjur í umferð. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 lykkjur, A.1b yfir næstu 28-30-34-36-42-46 lykkjur, 1 stuðull í hverja af 8-8-8-10-10-12 loftlykkjum undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 8-8-8-10-10-12 lykkjur, heklið A.1b yfir næstu 60-66-72-78-88-96 lykkjur, 1 stuðull í hverja af 8-8-8-10-10-12 loftlykkjum undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 8-8-8-10-10-12 lykkjur og heklið A.1b yfir síðustu 30-32-36-38-44-48 lykkjur. Klippið þráðinn frá og festið enda. Fram- og bakstykki og ermar er nú heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-146-160-174-196-216 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum á fram- og bakstykki. Byrjið á að hekla í hlið á fram- og bakstykki – strax eftir prjónamerki þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 1 stuðla, endurtakið A.1b yfir næstu 134-144-158-172-194-214 stuðla. Haldið áfram hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1! Fækkið lykkjum svona með 3½-4-4½-5-5-5½ cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 124-134-148-162-184-204 stuðlar. Þegar stykkið mælist 14-16-17-18-18-19 cm frá skiptingu, aukið út um 2 stuðla við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 6 sinnum á hæðina = 148-158-172-186-208-228 stuðlar. Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist ca 35-37-37-38-38-40 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd – endið með umferð með stuðlum. Klippið þráðinn frá og festið enda. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: = 46-52-58-60-64-64 stuðlar + 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur mitt undir ermi. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 5-5-5-6-6-7 loftlykkju á 8-8-8-10-10-12 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 1 loftlykkju (= 1 fastalykkja), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3-3-3-4-4-5 loftlykkjum, heklið A.1b (þ.e.a.s. 1 umferð með fastalykkjum og loftlykkjum) yfir 46-52-58-60-64-64 stuðla yfir ermi og endið með 1 fastalykkju í hverja af þeim 4-4-4-5-5-6 loftlykkjum sem eftir eru undir ermi = 54-60-66-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð – mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur undir ermi. Heklið A.1b hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-2-2-2 cm millibili alls 11-13-15-17-18-18 sinnum = 32-34-36-36-38-40 lykkjur. Heklið áfram þar til ermin mælist 41-42-42-44-43-45 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd – endið eftir umferð með stuðlum. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Wendy Wilkerson wrote:
Hello! I am having a great deal of difficulty maintaining the stitch count. In Row 1 of the Medium Size, there are 96 double crochets. Then beginning Row 2 (yoke), the increases start. In A.2 how many double crochets are added to each section of A.2? Thank you.
27.01.2021 - 15:20DROPS Design answered:
Dear Mrs Wilkerson, the number of stitches will increase in each A.2 section just as shown in diagram, ie in XL you start working each A.2 over 4 dc, but on 2nd round you will have 6 dc in each A.2 (= 3 dc around each ch-space) - on 4th round you will have 8 dc in each A.2, etc.. then at the same time, you will increase in the A.1 repeats as explained for your size on round 3 and 5. Then you will only increase in the A.2 repeats and not anymore in the A.1 repeats. Happy crocheting!
28.01.2021 - 08:41Solange Reverdy wrote:
Bonjour, concernant les explications en taille L, je ne comprends pas comment faire au 3ème tour pour augmenter de 4 brides en faisant A1b au dessus de 6 mailles (je ne parvient qu'à augmenter de 3 brides) Merci de votre aide
23.01.2021 - 13:41DROPS Design answered:
Bonjour Mme Reverdy, à ce niveau vous répétez 3 fois A.1b en largeur, au lieu de crocheter 2 brides autour de chacun des 3 arceaux, crochetez 4 brides autour de chacun de ces arceaux (= vous augmentez 2 brides x 3 = 6 brides). Bon crochet!
25.01.2021 - 08:41Anna wrote:
Hallo, was bedeutet "= 2 x in der Breite à 4 Maschen"? Vielen Dank und viele Grüße Anna
27.10.2020 - 16:56DROPS Design answered:
Liebe Anna, A.2 über die nächsten 8 Stäbchen (= 2 x in der Breite à 4 Maschen) bedeutet, man muss hier A.2 zwei Mal in der Breite wiederholen, je 4 Maschen = A.2 wird über die nächsten 8 Maschen gehäkelt. Viel Spaß beim stricken!
28.10.2020 - 07:39