DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mikado

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita klukkuprjóni og lettneskum köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-7
DROPS Design: Mynstur sk-098
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-350 g litur 03, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 17, karrí
50-50-50-50-50-50 g litur 12, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 13, ljós gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd og 44 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff og klukkuprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Mynsturteikning A.1 og A.2 er prjónuð í sléttprjóni með tveggja lita mynstri.
Mynsturteikning A.3 og A.4 er prjónuð í tveggja lita klukkuprjóni.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur) og deilið þeim með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 8,71.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftri ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LETTNESKUR KAÐALL:
UMFERÐ 1: Prjónið * 1 lykkja slétt með litnum gallabuxnablár, 1 lykkja slétt með litnum ljós beige *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Dragið þráðinn með litnum gallabuxnablár yfir á bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og dragið þráðinn til baka að framhlið.
Dragið þráðinn með litnum ljós beige undir þráðinn með litnum gallabuxnablár og síðan yfir að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og dragið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur til skiptis með litnum gallabuxnablár og ljós beige, en dragið alltaf þráðinn UNDIR þráðinn frá síðustu lykkju sem var prjónuð.
UMFERÐ 3: Prjónið eins og 2. umferð, en nú er þráðurinn dreginn alltaf yfir þráðinn frá fyrri lykkju sem var prjónuð.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 118-122-126-134-140-146 lykkjur á hringprjón 3 með litnum karrí.
Prjónið 1 umferð slétt.
Skiptið yfir í litinn ljós beige (klippið frá þráðinn með karrí).
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Haldið svona áfram með stroff í 7-8-8-9-9-10 cm, frá uppfitjunarkanti.
Skiptið yfir á hringprjón 4.

BERUSTYKKI:
UMFERÐ 1: Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 14-14-18-18-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 132-136-144-152-162-172 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið.
Skiptið yfir í litinn karrí, klippið frá þráðinn í litnum ljós beige.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 20-20-20-20-26-28 lykkjur jafnt yfir = 152-156-164-172-188-200 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið.
UMFERÐ 5: Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) = 38-39-41-43-47-50 sinnum á breidd.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig:
Skiptið yfir í litinn karrí (það þarf ekki að klippa frá þráðinn í litnum ljós beige, það á að nota hann bráðlega).
UMFERÐ 1: Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 12-12-14-16-20-28 lykkjur jafnt yfir = 164-168-176-188-208-228 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.2 (= 4 lykkjur) = 41-42-44-47-52-57 sinnum á breidd.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 12-13-13-14-14-15 cm.
Prjónið sléttprjón með litnum ljós beige á þar til stykkið mælist 12-13-13-14-15-17 cm.
Prjónið síðan þannig:
Skiptið yfir í litinn gallabuxnablár (klippið frá þráðinn í litnum ljós beige) og prjónið síðan með hringprjón 3.
UMFERÐ 1: Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 4-2-4-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 168-170-180-190-210-230 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.4 (= 4 lykkjur), A.3 yfir 8-6-6-6-6-6 lykkjur (= 4-3-3-3-3-3 sinnum á breidd) *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur (= 14-17-18-19-21-23 sinnum á breidd).
Þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 280-306-324-342-378-414 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt með litnum gallabuxnablár.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið LETTNESKUR KAÐALL – sjá útskýringu að ofan.
Stykkið mælist ca 21-22-22-23-24-26 cm.
Prjónið nú stykkið áfram með litnum ljós beige.
Prjónið sléttprjón.
Útaukningu er lokið í stærð S-M-L, en heldur áfram í stærð XL-XXL-XXXL.

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 12-14-12 lykkjur jafnt yfir = 354-392-426 lykkjur.
Endurtakið útaukningu eftir 2 cm = 366-406-438 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
= 280-306-324-366-406-438 lykkjur. Prjónið sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 22-24-25-28-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið til fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Prjónið 40-44-47-53-59-65 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki, setjið næstu 60-64-68-76-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 80-90-94-108-120-132 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 40-44-47-53-59-65 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 176-194-204-230-254-278 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-2.
Aukið svona út með 3-5-4-4-4-3 cm millibili alls 7-5-6-6-6-7 sinnum = 211-223-237-263-287-315 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 27-27-28-27-28-28 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring í sléttprjóni með litnum ljós beige.
Setjið 60-64-68-76-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-76-84-92-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkja undir ermi (það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-14-17-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 37-36-35-33-32-31 cm frá skiptingu, prjónið lettneskan kaðal.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist ca 4 cm.
Ermin mælist alls ca 42-41-40-38-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.09.2020
Leiðrétting: Mynsturtákn og útskýring í mynsturteikningu hefur verið leiðrétt.

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman
symbols = prjónið 5 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sléttar lykkjur og uppsláttinn aftur slétt saman, án þess að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 5 lykkjur.
symbols = slétt með karrí
symbols = slétt lykkja með ljós gallabuxnablár
symbols = slétt lykkja með ljós beige
symbols = slétt lykkja með gallabuxnablár
symbols = prjónið með ljós gallabuxnablár
symbols = prjónið með karrí
symbols = prjónið með gallabuxnablár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Sylvie Braud wrote:

Que veut dire les deux mailles deA3 au dessus des 6 mailles Je bloque toujours pour commencer le diagramme A3 eA4 Vous remerciant Je fais ce modèle en taille L

19.11.2023 - 23:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Braud, A.3 se tricote sur 2 mailles, quand on doit tricoter A.3 au-dessus de 6 mailles, on va tricoter 3 fois les 2 mailles de A.3 (= 6 mailles du diagramme A.3). Bon tricot!

20.11.2023 - 11:28

country flag Sylvie Braud wrote:

Je ne comprends pas très bien le diagramme a3 et a4 Je tricote a3 et a4 simultanément ? Sue le diagramme a3 je ne vois que 3 mailles alors qu il faut 4 mailles Vous remerciant pour votre aide

08.11.2023 - 22:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Braud, vous allez effectivement tricoter (au tour 3) alternativement les diagrammes A.3 et A.4 en commençant par les 4 mailles de A.4 puis vous répétez 4 ou 3 fois (cf taille) les 2 mailles de A.3, ainsi, vous répétez ces (4+8 ou 6 m = 12-10 mailles 14 à 23 fois tout le tour. Augmentez en même temps comme indiqué dans A.4. Bon tricot!

09.11.2023 - 08:30

country flag Anita Roos wrote:

Oerhört svårt att fatta beskrivningen. Efter lång tid tror jag att tecknen till höger i diagrammen enbart visar vilken färg man ska använda på den raden, eller?? Har sett alla videor ni rekommenderar men själva beskrivningen är väldigt snårig. Jag är absolut ingen nybörjare och har stickat många mönstertröjor men här får jag ge upp och hitta på ett eget mönster till oket

09.02.2023 - 14:07

country flag Anita Roos wrote:

Förstår inte diagrammet. När man ska börja på A3 visar första symbolen "stickas med ljus jeansblå " och nästa maska/symbol "rätmaska med ljus jeansblå". Fattar inte skillnaden. Det är ju samma färg.

09.02.2023 - 09:40

DROPS Design answered:

Hej Anita, du starter diagrammet nederst i højre hjørne og første pind strikker du med ljus jeansblå, så både retmasken og omslaget gør du med ljus jeansblå :)

10.02.2023 - 11:18

country flag Sue wrote:

I'm about to start row 10 of A4, the previous row is now all one colour and I'm struggling to know which stitch needs slipping as opposed to brioche-purling. The help video only shows what to do with the basic rib, not with the additional stitches (the 'work 5 stitches' section). Is there a further support video?

26.07.2022 - 18:54

DROPS Design answered:

Dear Sue, note that the diagrams are showing all the rows, ie the row with the increase is worked on 5th row in A.4 (not on 10th row). On 6th row, work all stitches with curry - this video also shows how to increase 4 sts in 2-colours-English rib and might help you to understand how to work the new stitches on next round. Happy knitting!

01.08.2022 - 11:23

country flag Berbett wrote:

Bonjour, J'utilise le fil Nepal pour ce modèle. L'échantillon de 10X10 en jersey aiguille n° 4 correspond au nombre de mailles en largeur et en hauteur. Le problème est pour l'échantillon en côtes anglaises, je l'ai fait avec une taille d'aiguilles plus petites (n°2,5 au lieu du 3) malgré cela l'échantillon est encore trop grand 12X12 et tricoter avec une d'aiguilles plus petites seraient inesthétique. Comment faire ? Merci pour votre aide. Pia.

15.12.2021 - 23:02

DROPS Design answered:

Bonjour Pia, ce modèle se tricote en DROPS Sky qui est un flil du groupe B alors que Nepal est un fil du groupe C et n'est pas ici une alternative; découvrez ici les pulls du groupe de fils C que vous pourrez réaliser en Nepal (utilisez le convertisseur pour calculer la quantité si nécessaire). Ou bien choisissez une autre laine du groupe B pour réaliser ce modèle (à l'aide du convertisseur). Bon tricot!

16.12.2021 - 07:27

country flag Outi wrote:

Thanks a lot! Now the instructions are perfect also in Finnish.

02.12.2021 - 11:56

country flag Outi wrote:

Hello again! Couple of weeks ago I askel if it could be possible to have the diagrams with Finnish instructions as well. Now, under the head line ” Piirros” (diagram in Finnish) has appeared two link-like boxes with the text ”diagram measurements”, but nothing opens. Dear Drops design, could you still help me and other Finnish knitters (at least two have asked the same before me)?🙏

01.12.2021 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Outi. It should be ok now. Happy knitting!

02.12.2021 - 11:12

country flag Anne wrote:

Når jeg begynner på diagram a4 og a3 har jeg 180 masker på pinnen, etter å ha strikket første rad med a4 og a3,dobler antall masker seg til 360 fordi annenhver maske er kast og ta av…. hvordan kan jeg ende på 324 til slutt da?

20.11.2021 - 18:05

DROPS Design answered:

Hei Anne. Kastet du gjør er ikke en økning, men tilhører patentmasken. På neste omgang strikkes kastet og patentmasken sammen = ingen økning. Om du ser på diagramikonet X, så er dette en økning (= 4 økte masker hver gang du strikker et X). I str. L strikker du A.4 18 ganger i bredden (= 1. omgang med X, så økes det med 72 masker og i A.4 er det 2 omganger med X , altså det økes 2 omganger med 72 masker = 180 + 72+72 = 324 masker når A.4 er strikket 1 gang i høyden). mvh DROPS Design

23.11.2021 - 11:03

country flag Outi wrote:

Is it possible to have the diagrams also with Finnish instructions? Thank you!

15.11.2021 - 17:57

DROPS Design answered:

Dear Outi, please check back in a couple of days, we will do our best to correct the technical error. Happy Stitching!

15.11.2021 - 18:19