DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Calm Shores

Heklað sjal úr 2 þráðum DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er heklað með gatamynstri og röndum.

DROPS 211-21
DROPS Design: Mynstur bs-158
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 67 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 156 cm.

EFNI:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 0100, natur
150 g litur 8108, ljós grár
50 g litur 8465, milligrár

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina með 2 þráðum = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 hálfur stuðull/stuðull/tvíbrugðinn stuðull.

RENDUR:
ATH: Rendurnar eru mældar í heklstefnu mitt á milli útaukninga í annarri hliðinni og útaukninga mitt í sjali. Óháð því hvort búið sé að hekla heilt mynstur á hæðina, heklið nýja rönd eftir málinu að neðan:
RÖND 1: 12 cm með 2 þráðum milligrár.
RÖND 2: 11 cm með 1 þræði milligrár og 1 þræði ljós grár.
RÖND 3: 9 cm með 2 þráðum ljós grár.
RÖND 4: 8 cm með 1 þræði ljós grár og 1 þræði natur.
RÖND 5: Heklið með 2 þráðum natur til loka (= ca 7 cm).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sjalið er heklað fram og til baka með gatamynstri og röndum.

SJAL:
Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 5 með 2 þráðum í litnum milligrár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð – sjá LOFTLYKKJA.
Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur A.1 fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðirnar 1 sinni til viðbótar = 6 umferðir og það eru alls 12 stuðlahópar í síðustu umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú mynstur þannig: A.2a (= útaukning í hlið), A.3a alls 4 sinnum á breiddina, A.4a (= útaukning fyrir miðju), A.3a alls 4 sinnum á breidd, A.5a (= útaukning í hlið). Haldið áfram fram og til baka þar til A.2a til A.5a hefur verið heklað til loka á hæðina. Það eru nú 59 stuðlar hvoru megin við útaukningu við miðju að framan (ystu tvíbrugðnu stuðlarnir / 4 loftlykkjur í byrjun á umferð, er ekki talið með).
Heklið nú mynstur þannig: A.2b (= útaukning í hlið), A.3b alls 13 sinnum á breidd, A.4b (= útaukning fyrir miðju), A.3b alls 13 sinnum á breidd, A.5b (= útaukning í hlið).
Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör í A.2a, A.3a, A.4a og A.5a alveg eins og áður (það eru heklaðar eins margar einingar A.3a og pláss er fyrir á milli mynsturteikninga með útaukningu).
Heklið nú mynstur frá umferð með ör í A.2b, A.3b, A.4b, A.5b alveg eins og áður (það eru heklaðar eins margar einingar með A.3b og pláss er fyrir á milli mynsturteikning með útaukningu).
Haldið svona áfram með mynstur þar til rendur hafa verið heklaðar til loka og stykkið mælist ca 47 cm í heklstefnu (= ca 67 cm meðfram útaukningu fyrir miðju) – eða að óskaðri lengd. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = Byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift. Haldið áfram frá tákni yfir punkti á hring og heklið til vinstri
symbols = byrjið á þessari umferð. Fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 hálfur stuðull/stuðull/tvíbrugðinn stuðull.
symbols = 4 loftlykkjur - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 hálfur stuðull/stuðull/tvíbrugðinn stuðull.

symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 hálfur stuðull í lykkju
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Malin wrote:

Hej Jag håller precis på med sista varvet av A.2a-A.3a-A.4a-A.3a-A.5a. Ska jag öka fler gånger på detta varvet än de ökningar som är markerade? Eller hur får jag fram 59 stolpar? Är det längs ena sidan eller från ökning höger till ökning vänster? Väldigt svårt att förstå detta. Ska jag repetera A.2a ännu en gång med ökningen?

11.04.2024 - 17:23

DROPS Design answered:

Hei Malin. Når A.1 er ferdig heklet har du 36 staver (stolpar) / 12 stavgrupper og nå skal A.2a, A.3a, A.4a, A.3a, A:5a hekles. Når dun har heklet diagrammene 1 gang i høyden har du: A.2a (= 24 staver) + A.3a ((x4)= 16 staver) +A.4a 19 staver før midt foran + 24 staver etter midt foran) +A.3a ((x4) = 16 staver) + A.5a(=19 staver) ferdig i høyden skal du ha 118 staver på raden. Skrevet med tall: 24+16+19 = 59 masker før midt foran OG 24+16+19 = 59 masker etter midt foran. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 13:01

country flag Christine SANCHEZ BARBER wrote:

Bonjour, existe-t-il des explications écrites ou vidéo, car j'ai un problème de compréhension des schémas seuls. Avec tous mes remerciements. Cordialement.

17.09.2022 - 18:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sanchez-Barber, nous n'avons que des diagrammes pour ce modèle, peut-être que cette leçon peut vous aider, sinon n'hésitez pas à nous indiquer à quel niveau vous coincez. Bon crochet!

19.09.2022 - 09:47

country flag Karolina wrote:

Hello I would like to ask you if you would mind if the pattern was written out by me using the international signs used in crochet patterns? Obviously no changes have been made, it is just an easier to read version. On a crochet group on FB that I belong to, we would like to crochet Calm Shores together however the graphic scheme and description is quite complicated in places. Using more accessible graphic signs, would allow a larger audience to crochet your shawl. Thank you in advance

18.08.2022 - 22:53

country flag Gudrun Ebeling wrote:

Hallo.ich versuche die häkelschrift zu Modell 211-21 zu lesen und komm nicht klar.bei A.1 ist der luftmaschenkreis und soll von da an nach links gehäkelt werden. Aber fängt denn das Tuch nicht an der Spitze an? Also mit 4luftmaschen im Kreis in den ich drei stäbchen 4luftmaschenen ,1Stäbchen häkele.Dann wenden.Also von unten nach oben lesen?

08.03.2022 - 15:35

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ebeling, beginnen Sie mit der Luftmaschenring, dann (siehe Pfeil und lesen Sie rechts nach links), 4 Luftmaschen und dann: 4 Luftmaschen, 3 Stb, 4 Lufmtaschen, 3 Stb, 4 Luftmaschen, 1 Doppelstäbchen um Ring; bei der 2. Reihe lesen Sie links nach rechts, und so weiterhäkeln. Viel Spaß beim häkeln!

08.03.2022 - 22:13

country flag ZP wrote:

I love so many of your designs, but your instructions are so confusing. If your designers could provide complete written instruction as well as their nicely drawn charts it would probably make a lot of people happy. I would be happy to pay for the,.

04.02.2022 - 00:05

country flag Karen wrote:

Thank you for the link to instructions, but after reading them, I am even more confused than before. I haven't the faintest clue how this new crochet language works. I have given up on this. Please put warnings on the front page of your crochet patterns so people don't waste money on yarn they can't use.

13.10.2021 - 00:17

country flag Karen wrote:

This is a lovely pattern and was looking forward to making the shawl. I thought it would be reasonably straightforward and I bought the yarn. Very disappointed now as I am completely baffled by the pattern drawings. I am an experienced crocheter, but the pattern drawing makes as much sense to me as a technical drawing to build a rocket. Is there perhaps a case for having written crochet instructions in Drops patterns, so those not literate in these patterns could also make the garments?

12.10.2021 - 00:11

DROPS Design answered:

Dear Karen, there are only diagrams to this pattern, but this lesson should be able to help you to understand how to work/follow the diagrams. Hope this can help, happy crocheting!

12.10.2021 - 08:56

country flag Lola wrote:

Buenas tardes, ¿Cómo puedo descargar el patron?

04.10.2021 - 16:40

DROPS Design answered:

Hola Lola, en la pagina del patron tienes una opcion IMPRIMIR el patron. Buen trabajo!

04.10.2021 - 16:49

country flag Christine Tremblay wrote:

Dans le modèle DROPS211-21, on parle de rayures. Est ce que vous entendez par ce terme le changement de couleur? Le châle se tricote t-il en une fois ou plusieurs morceaux de diagrammes à joindre à la fin. Je ne comprends pas comment continuer de A.1 à A.2a et suis-je encore dans la rayure 1? J’espère vraiment que vous pourrez m’aider. Merci

25.09.2020 - 17:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, les rayures s'entendent en changement de couleur - cf RAYURES au début des explications. Ce châle se tricote en une seule partie, de bas en haut, on va crocheter les diagrammes comme indiqué (plus d'infos sur les diagrammes ici) et augmenter de chaque côté et au milieu pour obtenir le triangle à la taille souhaitée. Bon crochet!

28.09.2020 - 07:47

country flag Christina wrote:

Danke für die Info, das heißt, die Reihen enden mit 4 Luftmaschen und einem Doppelstäbchen und beginnen mit 4 Luftmaschen und dann nochmal 4 Luftmaschen für den Bogen?

27.08.2020 - 16:27

DROPS Design answered:

Liebe Christina, alle Reihen beginnen mit 4 Luftmaschen (1. Reihe beginnt am Pfeil in A.1 = 4 Luftmaschen = 3. Symbol bei der Beschreibung) und enden mit 1 Doppelstäbchen (= siehe letzte Symbol bei der 1. Reihe in A.1 = 4. Symbol), z. B. 1. Reihe in A.1 häkeln Sie so: 4 Luftmaschen (= 1. Doppelstb), 4 Luftmaschen (= 1. Luftmaschenbogen), 3 Stb + 4 Lfm + 3 Stb um den Luftmaschenring, 4 Lfm, 1 Doppelstb um den Luftmaschenrign, wenden, 2. Reihe: 4 Lfm (= 1. Doppelstb), 4 Lfm, 3Stb um Luftmaschenring.... und enden Sie mit 1 Doppelstb in die 4. Luftmaschen am Anfang der vorrigen Reihe. Viel Spaß beim häkeln!

28.08.2020 - 08:00