DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 205-12
DROPS Design: Mynstur ai-224
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-600-650-700 g litur 17, gallabuxnablár

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Það er mikilvægt að hekla loftlykkjurnar í byrjun á stykkinu ekki of fast, ef kanturinn verður of stífur er hægt að nota grófari heklunál.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Allar mynsturteikningarnar eru ekki notaðar í öllum stærðum.

KÚLA – HEKLIÐ 5 ÞRÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN:
Heklið 1 þríbrugðinn stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin = 2 lykkjur á heklunálinni.
Heklið 4 þríbrugðna stuðla saman alveg eins = 6 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. Herðið vel að áður en heklað er áfram.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokinn, heklið 1 stuðul alveg eins. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Heklið 70-76-82-88-96-104 lausar loftlykkjur með heklunál 5 og Air – ef loftlykkjurnar eru ekki nægilega lausar þá kemur stykkið til með að dragast saman í kantinum – sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Heklið mynsturteikningu A.1-A.4 frá réttu þannig:
Heklið A.1 yfir 1-1-1-1-1-1 lykkju, heklið A.2 yfir 0-2-0-2-2-2 lykkjur, heklið A.3 þar til 1 lykkja er eftir (= 17-18-20-21-23-25 sinnum) og heklið A.4 yfir 1 lykkju.
Heklið mynsturteikningu svona 1 sinni á hæðina.

Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.5-A.10 frá réttu þannig:

STÆRÐ S: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.7 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 8 lykkjur), heklið mynsturteikningu A.6 yfir 2 lykkjur og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju.

STÆRÐ M: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 2 lykkjur eru eftir (= 9 sinnum), heklið mynsturteikningu A.6 yfir 1 lykkju og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju.

STÆRÐ L: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.9 þar til 1 lykkja er eftir (= 10 sinnum) og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju.

STÆRÐ XL: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 2 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.7 yfir 1 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 4 lykkjur eru eftir (= 10 sinnum), heklið mynsturteikningu A.6 yfir 3 lykkjur og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju.

STÆRÐ XXL: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 2 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.7 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 4 lykkjur eru eftir (= 11 sinnum), heklið mynsturteikningu A.6 yfir lykkjur og heklið mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju.

STÆRÐ XXXL: Heklið mynsturteikningu A.5 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.6 yfir 2 lykkjur, heklið mynsturteikningu A.7 yfir 1 lykkju, heklið mynsturteikningu A.8 þar til 4 lykkjur eru eftir (= 12 sinnum), heklið mynsturteikningu A.6 yfir 3 lykkjur og hekli mynsturteikningu A.10 yfir 1 lykkju.

ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið svona þar til stykkið mælist alls 38-39-40-41-42-43 cm.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
Nú á ekki lengur að hekla yfir ystu 2-2-3-3-3-3 lykkjur í hvorri hlið – hér á að sauma ermarnar niður síðar. Klippið því þráðinn frá og byrjið á næstu umferð með því að hekla í 3.-3.-4.-4.-4.-4. lykkju inn frá hlið og endið umferð þegar eftir eru 2-2-3-3-3-3 lykkjur í umferð = 66-72-76-82-90-98 lykkjur.
ATH! Passið uppá að kúlumynstrið haldi áfram eins og áður yfir hvert annað. Heklið eins og áður þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Nú eru ekki kúlurnar ekki lengur heklaðar, skiptið út 1 kúlu fyrir 1 stuðul. Heklið áfram með stuðlum þar til stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm (nú eru eftir 4 umferðir að loka máli). Nú er ekki lengur heklað yfir miðju 20-20-22-22-24-24 stuðla (= hálsmál) = 23-26-27-30-33-37 stuðlar á hvorri öxl. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 stuðul við hálsmál, sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu (= alls 2 úrtökur) = 21-24-25-28-31-35 stuðlar. Heklið þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm.
Heklið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Heklið nú eins og bakstykki fram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Nú eru kúlurnar ekki lengur heklaðar skiptið út 1 kúlu með 1 stuðli.
Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm (það er eftir 6 umferðir að loka máli). Nú er ekki heklað lengur yfir miðju 18-18-20-20-22-22 stuðlana (= hálsmál) = 24-27-28-31-34-38 stuðlar á hvorri öxl. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 stuðul við hálsmál, sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 2 næstu umferðum frá réttu (= alls 3 úrtökur) = 21-24-25-28-31-35 stuðlar. Heklið þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm.
Heklið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Heklið 52-54-56-58-62-66 lausar loftlykkjur með heklunál 5 og Air.
Heklið 2-2-3-3-3-3 umferðir með stuðlum fram og til baka (hér á að sauma síðar fram- og bakstykki niður við ermi). Heklið síðan stuðla fram og til baka, en hver umferð er sett saman með 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul sem var heklaður í umferð og stykkinu er snúið (þá verður áferðin alveg eins á allri erminni og þá þarf ekki að sauma saman í lokin). Heklið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 20-19-18-17-15-13 cm (nú eru eftir ca 34 cm að loka máli í öllum stærðum). Aukið nú út 2 stuðla neðan undir ermi, aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul innan við fyrsta og síðasta stuðul í umferð (= 2 stuðlar fleiri). Endurtakið útaukningu í 3. hverri umferð alls 8 sinnum = 68-70-72-74-78-82 lykkjur.
Heklið þar til stykkið mælist 48-47-46-45-43-41 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Í næstu umferð er lykkjum fækkað með því að hekla 2 og 2 stuðla saman út umferðina = 34-35-36-37-39-41 lykkjur. Heklið 1 umferð til viðbótar og fækkið 6-7-4-5-3-5 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Nú er kantur heklaður neðst á ermi frá réttu þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= kemur í stað 1. stuðul), heklið 1 stuðul um næsta stuðul frá framhlið á stykki, * heklið 1 stuðul um hvorn af næstu 2 stuðlum frá bakhlið á stykki, heklið 1 stuðul um hvorn af næstu 2 stuðum frá framhlið á stykki *, heklið frá *-* umferðina hringinn.
Haldið áfram að hekla svona þar til kanturinn mælist ca 4 cm, ermin mælist ca 54-53-52-51-49-47 cm. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið ermar í – það stykki sem er heklað fram og til baka efst á ermi, á að sauma niður við framstykki/bakstykki þar sem opið var gert fyrir handveg. Saumið hliðarsauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum allt opið í hálsi, byrjið frá réttu við öxl. Heklið ca 76-76-80-80-84-84 hálfa stuðla meðfram kanti í kringum allt opið við hálsmál (fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 4) og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 kemur í stað 1. stuðul), heklið 1 stuðul um næsta hálfa stuðul frá framhlið á stykki, * heklið 1 stuðul um hvorn af næstu 2 hálfu stuðlum frá bakhlið á stykki, heklið 1 stuðul um hvorn af næstu 2 hálfu stuðlum frá framhlið á stykki *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Heklið 1 umferð til viðbótar á sama hátt. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur, þær koma í stað 1. stuðuls í mynsturteikningu. Í næstu umferð er síðasti stuðullinn heklaður í þriðju á þessum loftlykkjum.

symbols = stuðull í lykkju
symbols = heklið 1 stuðul um næsta stuðul frá bakhlið á stykki

symbols = heklið 1 stuðul um næsta stuðul frá framhlið á stykki
symbols = KÚLA – HEKLIÐ 5 ÞRÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Kelly wrote:

It’s beautiful but is the jumper boxy fit?

25.12.2023 - 15:27

DROPS Design answered:

Dear Kelly, you can see the measurements of the jumper in cm in the size chart. This pattern has a lot of ease/ it's oversized, but depending on the type of fit that you want you can make one size or another. Happy crochetting!

28.12.2023 - 23:26

country flag Lise wrote:

Kan man byta garn till Drops Nepal?

16.11.2023 - 17:32

DROPS Design answered:

Hej Lise, ja du kan bruge DROPS Nepal, brug vores omregner for at se garnforbruget i din størrelse :)

17.11.2023 - 10:38

country flag Mariela Torciviski wrote:

Hola, estoy haciendo el patrón, no logro entender como realizar las mangas si me podrían ayudar le agradecería

16.05.2021 - 20:30

country flag Elena Gomez wrote:

Estoy realizando este patrón talla M y queda como si fuese la talla XXl o XXl. Llevaba la mitad y midiendo la a lo ancho, media 74. A pesar que lo deshaga y lo haga más tenso no creo que esté bien el número de puntos. No se como hacerlo, gracias.

07.01.2021 - 23:56

DROPS Design answered:

Hola Elena! Mira la leccion AQUI. Buen trabajo!

08.01.2021 - 11:35

country flag Amanda wrote:

Om man ska minska från 70 till 35 stolpar genom att virka två och två tillsammans och den första stolpen är 3 luftmaskor. Hur gör man då med den första minskningen då?

19.09.2020 - 17:58

country flag Amanda wrote:

Har ni något tips på hur man ska sy ihop delarna?

06.09.2020 - 16:55

DROPS Design answered:

Hei Amanda. Om du syr stykkene kant i kant slik at det ikke blir en tykk søm er nok det peneste. Ta gjerne en titt på våre videoer som ligger under Instruksjonsvideo/Montering/Sy sammen. God Fornøyelse!

07.09.2020 - 14:03

country flag Chantal Martineau wrote:

Dans le texte: A.2 au-dessus des 0-2-0-2-2-2 mailles suivantes qu'est ce que les mailles 0-2-0-2-2-2 svp

02.02.2020 - 22:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martineau, en taille S et L on ne tricote pas A.2, on taille M, XL, XXL et XXXL on va crocheter A.2 au-dessus des 2 mailles suivantes (= 1 fois A.2 en largeur). Bon crochet!

03.02.2020 - 10:29

country flag Cidalia Vintém wrote:

Adoraria ter as explicações de este lindo modelo. Para quando sai o patrão?

24.09.2019 - 23:16

country flag Irene wrote:

Me encanta!! Cuándo habrá patrón?

16.09.2019 - 22:41

country flag Jelena wrote:

Beautifull

16.09.2019 - 12:12