DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Red Sky

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 197-23
DROPS Design: Mynstur sk-015
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-400-400 g litur 09, rauður múrsteinn

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stykkið/fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 12.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá jafnt yfir þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og að berustykki verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-100-104-112-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 88-92-96-100-108-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka eða farið beint áfram og prjónið berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur slétt framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur brugðið frá röngu, snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-21-21-24-24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-49-49-56-56 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-56-56-64-64 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Klippið frá. Byrjið næstu umferð (þ.e.a.s. á berustykki) eftir fyrstu 13-14-14-15-16-17 lykkjur í umferð.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið jafnframt er prjónað sléttprjón hringinn frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt (= 3 lykkjur á bakstykki), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið næstu 32-34-34-36-38-40 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið síðustu 29-31-31-33-35-37 lykkjur (= bakstykki) á eftir síðasta prjónamerki (nú eru eftir 3 lykkjur að fyrsta prjónamerki).
Næsta umferð er prjónuð þannig: 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-6-8-8-10-10 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 26-28-28-30-32-34 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-6-8-8-10-10 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 26-28-28-30-32-34 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 23-27-29-32-34-39 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan).
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 272-308-328-356-380-424 lykkjur í umferð.
Haldið áfram í sléttprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist 20-22-23-26-28-31 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 4-3-4-5-7-7 lykkjur sléttprjón (= á bakstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 80-88-94-104-114-126 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir síðustu 76-85-90-99-107-119 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 176-192-208-228-252-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 17 cm frá skiptingu = 184-200-216-236-260-284 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 27-27-28-26-26-25 cm frá skiptingu (ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-284-312-340 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, fellið af með prjón 4,5. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 56-66-70-74-76-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 64-74-80-84-88-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi og byrjið á umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í 7.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 13-17-19-20-21-25 sinnum = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 39-37-37-35-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 44-42-42-40-38-36 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjónum 4,5.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.08.2018
BERUSTYKKI:..Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 4-3-4-5-7-7 lykkjur sléttprjón (= á bakstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjur á 1 band fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 80-88-94-104-114-126 lykkjurnar (= framstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjurnar á 1 band fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir síðustu 76-85-90-99-107-119 lykkjurnar (= bakstykki).

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Red Sky meets Mint Sky

Eva Eckhoff, Germany

Red Sky with my twist

Bobbelur & Perlemor, Norway

Red Sky

Ana, Romania

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag May-Brit Hjelén Isaksen wrote:

Hei. Jeg lurer på; på bæresytykket, når jeg er ferdig med raglandsøkninger, skal jeg strikke videre til korrekt lengde uten å øke, men 'med hull', altså to rett sammen før/etter kastet, eller er det kun glattstrikk fra endt økning til deling av armer/bol?

07.02.2024 - 06:48

DROPS Design answered:

Hei May-Britt, Ja, du strikker videre til riktig lengden på bærestykke. Det blir finest å fortsette hullene langs hver raglanlinje. God fornøyelse!

08.02.2024 - 07:16

country flag Eva wrote:

Working on yoke increases and did first row fine. 2 questions- do we follow these same instructions to get our 8 increases every other row? It seems like we are increasing 4 stitches in sleeve area front and back every increase row? And when we knit the next row do we knit all the YO so that we do have the hole? Thank you for your assistance

15.10.2023 - 00:28

DROPS Design answered:

Dear Eva, you will increase 8 stitches on every increase round 22 times (+ the first one already worked = 23), just as explained for the first increase round. Since it's every other round you will increase on alternate rounds (1 round with increases, next one with no increases, next one with increases, e.t.c). You increase on each side of the marker thread as explained in RAGLAN. You increase 2 stitches in each sleeve section (=4 in total), 2 stitches in the back piece and 2 stitches in the front piece. As indicated in RAGLAN, the yarn overs are knitted so that holes are left. Happy knitting!

15.10.2023 - 23:54

country flag Eva wrote:

I am not going to do the elevation for for back of neck and went to yoke. If I place a marker at BOR The way pattern reads that does not place BOR at center back? Am I missing something?

11.10.2023 - 00:36

DROPS Design answered:

Hi Eva, The beginning of the round is 3 stitches before the sleeve (so 3 stitches left on the back piece and the remaining back piece stitches are at the end of the round). Happy knitting!

11.10.2023 - 06:41

country flag Gigi wrote:

What are the bust sizes for small, medium, in the patterns listed

13.04.2022 - 20:24

DROPS Design answered:

Dear Gig, you can see the measurements in cm corresponding to each size in the schematic of the garment after the pattern instructions. Happy knitting!

14.04.2022 - 17:45

country flag Anna wrote:

Ohjeen alussa luetellaan tarvittavat välineet, mm. DROPS SUKKAPUIKOT JA PYÖRÖPUIKKO NRO 3,5: Pituus 80 cm, joustinneuleeseen. 80 cm on aivan liian pitkä pääntien reunuksen 96 silmukalle, joista vielä osa kavennetaan. Tähän riittää 40 cm pitkä pyöröpuikko. Olisi hyvä mainita jo alkuun, ettei tule ostettua turhaan väärän kokoisia puikkoja.

11.02.2022 - 12:49

country flag Ana wrote:

Insertar 1 hilo marcador en el centro de los 8-8-10-10-12-12 puntos nuevos que fueron montados bajo la manga a cada lado. Comenzar la vuelta en uno de los hilos marcadores y mover los hilos marcadores a medida que se teje. Continuar en punto jersey. Cuando la pieza mida 8 cm a partir de la división, aumentar 1 punto a cada lado de los dos hilos marcadores .Cada cuantas vueltas se realizan estos aumentos?

07.05.2020 - 00:37

DROPS Design answered:

Hola Ana, Dos veces: cuando la pieza mida 8 i 17 cm a partir de la división debes aumentar 1 punto a cada lado de los dos hilos marcadores. Buen trabajo!

20.11.2020 - 10:57

country flag Annie wrote:

Bonjour, en tricotant le dos et le devant de ce pull, il est mentionné:  "Quand l’ouvrage mesure 27 cm depuis la séparation, tricoter 1 tour endroit en augmentant en même temps 36 mailles à intervalles réguliers = 220 mailles " Ma question: « Est-ce que je dois faire ces 36 jetés sur le même rang? Merci!

10.04.2020 - 04:22

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, tout à fait, vous devez augmenter ces 36 mailles sur un même rang, cette leçon explique comment faire. Bon tricot!

14.04.2020 - 10:11

country flag Bärbel wrote:

Hallo, das Bündchen, zwei recht zwei links am unteren Rumpfteil rollt sich auf. Was kann ich tun?

13.10.2019 - 03:30

DROPS Design answered:

Liebe Bärbel, Sie können den Pullover mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich die untere Kante nicht mehr rollen. Viel Spaß beim stricken!

14.10.2019 - 10:12

country flag Momina Here wrote:

Hey. I followed all the instructions. However, upon binding off the sweater, I realised that the sleeves are not in the middle of the raglan. They’re tilted towards a side which had made the sweater look uneven. I don’t know what to do. I have gone over the instructions several times. Please tell me what I can do now or what went wrong.

28.09.2019 - 16:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Here, depending on the size you may have to knit some of the 6 stitches from the raglan into the back piece/front piece, but sleeves should be placed correctly. Make sure you increased for the raglan on each side of the 6 sts for raglan line (= after the first 6 sts at the beg of the row, on either side of the 6 sts x 3 times + at the end of the row). Happy knitting!

30.09.2019 - 09:25

country flag Naty wrote:

Buongiorno, continuo ad avere difficoltà con le linee raglan, penso che l'errore sia nella sospensione delle maniche, alla fine della lavorazione dello sprone infatti una linea in entrambe le parti finisce sulla manica....non intendo una cosa: Vi è una correzione ma le maglie indicate nella correzione e nel testo sono perfettamente uguali. ... Vi ringazio molto per l'attenzione e la solerzia delle vostre risposte.

21.09.2019 - 11:56

DROPS Design answered:

Buongiorno Naty. Verifichi di avere lo stesso numero di maglie sul davanti e sul dietro e sulle due maniche. Deve aumentare 3 maglie prima e 3 maglie dopo il segnapunti. Le correzioni che vengono fatto vengono evidenziate nella sezione apposita e inserite nel testo per averlo sempre corretto. Buon lavoro!

21.09.2019 - 21:02