DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Misty Harbor Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk prjónuð ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-23
DROPS Design: Mynstur nr ks-117
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-150-175-200-200 g nr 10, grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – fyrir kant.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
DROPS PERLUTALA, bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út um 1 l með því að slá1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstri A.1 á fram- og bakstykki og þær eru prjónaðar í mynstri A.3 á ermum. ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum eins og kemur fram í útskýringu og í einhverjum umf þá er einungis aukið út í fram- og bakstykki en ekki í ermum.

TILFÆRSLA Í A.2 (á við um fram- og bakstykki eftir handveg):
A.2 á að færast til frá hlið undir ermi að miðju framan/miðja aftan.
Tilfærsla á lykkjum er alltaf gerð frá réttu eins og segir í útskýringu.

Á hægra framstykki og á hægri hlið á bakstykki er þetta gert þannig:
Prjónið eins og áður fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið a.2 eins og áður, en þegar síðasta l í A.2 er eftir er þessi l tekin eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3.

Á vinstra framstykki og í vinstri hlið á bakstykki er þetta gert þannig:
Prjónið eins og áður þar til 1 l er eftir á undan A.2, prjónið næstu l slétt saman með fyrstu l í A.2, prjónið A.2 eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið þær l sem eftir eru eins og áður. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í A.3.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 2 l mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 l á undan A.2, prjónið 2 l slétt saman, prjónið A.2 (= 8 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð).
Fellið af fyrir öllum hnappagötum frá röngu þannig: Prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). Fellið af fyrir hnappagati í fyrstu umf frá röngu á eftir kanti í hálsmáli, næstu 6-7 hnappagöt eru felld af með ca 8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 110-110-110-110-134-134 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Kid-Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20 l jafnt yfir í öllum stærðum (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 130-130-130-130-154-154 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf br frá röngu, en 5 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (= kantur að framan) – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 18-18-18-18-24-24 l (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar 6 l á vinstra framstykki), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.3 yfir næstu 8 lykkjur (= ermi), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.1 yfir næstu 36-36-36-36-48-48 l (= 6-6-6-6-8-8 mynstureiningar 6 l á bakstykki), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.3 yfir næstu 8 lykkjur (= ermi), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.1 yfir næstu 18-18-18-18-24-24 l (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar 6 l á hægra framstykki og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum þannig:
FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í hverri umf alls 0-6-5-12-10-16 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 18 sinnum í öllum stærðum og að lokum í 4. hverri umf alls 6-6-7-6-8-8 sinnum.
ERMAR: Aukið út í annarri hverri umf alls 14-19-27-30-33-32 sinnum og síðan í 4. hverri umf 8-7-4-3-3-5 sinnum.

Eftir alla útaukningu eru 314-354-374-406-442-470 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig (ef síðasta umf er prjónuð frá röngu, prjónið 1 umf frá réttu til að byrja nú frá röngu): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 47-53-53-59-65-71 l á hægra framstykki, haldið áfram með A.2 yfir 4 næstu l (= ½ mynstureiningar með A.2) og fitjið upp að auki 6-6-7-7-7-8 nýjar l í hliðum = 57-63-64-70-76-83 l á hægra framstykki. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þær l sem eru eftir eru settar á þráð eða bíða á öðrum prjóni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 57-63-64-70-76-83 l. LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir A.3, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, haldið áfram með A.1 eins og áður fram að kanti að framan og endið með 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar TILFÆRSLA Í A.2 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með tilfærslu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 36 sinnum – ATH: Þegar A.2 færist til þá verður heildarfjöldi lykkju að vera sá sami, en það verða færri l í A.1 við miðju að framan og fleiri l í A.3 við hlið. Lykkjur í A.1 sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar þær færast til eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga aftur upp í mynstri. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 l að innanverðu við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum = 60-66-67-73-79-86 l.
Eftir síðustu tilfærslu þá eiga að vera 1-2-2-3-4-5 mynstureiningar með A.1 á undan kanti við miðju að framan. Haldið áfram með mynstur fram og til baka án tilfærslu þar til stykkið mælist 30-30-31-30-30-30 cm frá prjónamerki (peysan mælist ca 52-54-56-56-58-60 cm frá öxl og niður).
Prjónið 1 umf br frá röngu þar sem aukið er út um 5-3-6-4-2-3 l jafnt yfir = 65-69-73-77-81-89 l – ATH: Þær 2 kantlykkjur í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan halda áfram í garðaprjóni og A.2 heldur áfram með sl yfir sl og br yfir br (þ.e.a.s. ekki er aukið út yfir A.2 eða l í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir í umf og endið með 2 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (passið uppá að stroffið gangi jafnt upp með stroffi í A.2). Haldið svona áfram með stroff, en í síðustu umf frá réttu eru allar 2 l br auknar út til 3 l br (aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn í skiptingunni á milli sl og br, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat) = 79-84-89-94-99-109 l.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-6-6-6 cm felið laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br (til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er fellt af með 2 þráðum Kid-Silk). Peysan mælist nú ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

HÆGRI ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna.
Setjið næstu 60-68-78-82-88-90 l af þræði eða hjálparprjóni á stutta hringprjóna nr 3,5 og fitjið að auki upp 12-12-14-14-14-16 nýjar l mitt undir ermi = 72-80-92-96-102-106 l í umf. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.3 hringinn, en nú er A.2 einungis prjónað yfir miðju 8 l undir ermi.
Þegar ermin mælist 1½ cm fækkið um 1 l hvoru megin við A.2 – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri). Fækkið l alls 13-16-21-22-23-24 sinnum í stærð S: Í 7. hverri umf, í stærð M: Til skiptis í 5. og 6. hverri umf, í stærð L + XL: Í 4. hverri umf, í stærð XXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf og í stærð XXXL: Í 3. hverri umf = 46-48-50-52-56-58 l. Þegar ermin mælist 32-31-31-31-28-27 cm prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 14-16-18-16-16-14 l jafnt yfir = 60-64-68-68-72-72 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn yfir allar l (= 2 l sl, 2 l br, en passið uppá að stroffið haldi áfram yfir A.2 mitt undir ermi). Þegar stroffið mælist 8 cm eru allar 2 l br auknar út til 3 l br (aukið út eins og á hægra framstykki) = 75-80-85-85-90-90 l. Þegar stroffið mælist 12 cm (eða að óskaðri lengd, ermin mælist nú ca 44-43-43-43-40-39 cm), fellið af með sl yfir sl og br yfir br (til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er fellt af með 2 þráðum Kid-Silk).

BAKSTYKKI:
Byrjið frá röngu. Fitjið upp 6-6-7-7-7-8 l á hringprjóna nr 3,5, prjónið næstu 92-104-104-116-128-140 l af þræði/hjálparprjóni og fitjið upp 6-6-7-7-7-8 nýjar l í lok umf = 104-116-118-130-142-156 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir A.3, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, haldið áfram með A.1 yfir næstu 84-96-96-108-120-132 l, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, prjónið 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir A.3 og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þannig: JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar TILFÆRSLA Í A.2 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með tilfærslu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þar til eftir eru 6-8-8-10-10-12 mynstureiningar með A.1 í miðju (þ.e.a.s. 36-48-48-60-60-72 l með A.1). Síðan er haldið áfram með mynstur án tilfærsla á lykkjum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 l innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum = 110-122-124-136-148-162 l. Þegar stykkið mælist 30-30-31-30-30-30 cm frá prjónamerki (peysan mælist nú ca 52-54-56-56-58-60 cm frá öxl) prjónið 1 umf br frá röngu þar sem aukið er út um 8-8-6-6-6-8 l jafnt yfir – ATH: Þessar 2 kantlykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni og A.2 heldur áfram með sl yfir sl og br yfir br (þ.e.a.s. ekki er aukið út yfir A.2 eða l í garðaprjóni) = 118-130-130-142-154-170 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir á prjóni og endið með 2 l sl og 2 kantlykkjum í garðaprjóni (passið uppá að stroffið gangi jafnt upp með stroffi í A.2). Haldið svona áfram með stroff, en í næstu umf frá réttu eru allar 2 l br auknar til 3 l br = 146-161-161-176-191-211 l. Þegar stroffið mælist 4-4-4-6-6-6 cm felið laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br (til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er fellt af með 2 þráðum Kid-Silk).

VINSTRI ERMI:
Setjið næstu 60-68-78-82-88-90 l af þræði/hjálparprjóni á stutta hringprjóna nr 3,5 og fitjið að auki upp 12-12-14-14-14-16 nýjar l mitt undir ermi = 72-80-92-96-102-106 l á prjóni. Prjónið síðan í hring ásama hátt og hægri ermi.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu, fitjið upp 6-6-7-7-7-8 l á hringprjóna nr 3,5, haldið áfram með A.2 yfir næstu 4 l (= ½ mynstureiningar með A.2) og prjónið eins og áður yfir síðustu 47-53-53-59-65-71 l af þræði/hjálparprjóni = 57-63-64-70-76-83 l á vinstra framstykki. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir næstu 42-48-48-54-60-66 l, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, prjónið 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir mynstri A.3 og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og prjónið á sama hátt og á hægra framstykki, nema spegilmynd. Þegar stroffið neðst niðri á framstykki er prjónað er fyrsta umf prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir á prjóni og endið með 2 l sl og 2 kantlykkjum í garðaprjóni.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið kant í kant yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið þegar ca 12 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf). Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.04.2018
Leiðrétting: A.3 yfir næstu 8 lykkjur (= ermi)

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = prjónið 3 l sl, steypið fyrstu l sem var prjónuð yfir hinar 2, þannig að þessi l er utan um 2 síðustu l á hægri prjóni (= 1 l færri)
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 2 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 1 l sl af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Camilla K wrote:

Flot opskrift. Min strikke prøve i retstrik passer perfekt med 10x10, men når jeg strikker A1 måler samme maskeantal kun 8,5 i bredden men 10 cm i højden - hvad skal jeg gøre? På forhånd tak for hjælpen.

03.09.2023 - 16:46

DROPS Design answered:

Hei Camilla. Mønsterstrikk og glattstrikk vil få ulike strikkefastheter. I denne oppskriften er strikkefastheten oppgitt i glattstrikk og så lenge du får riktig strikkefasthet i glattstrikk skal det være OK. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 14:48

country flag Nadine wrote:

How many strands are being knit at once? I can not see where it is mentioned anywhere on the pattern, and it looks like it is more then just one.

25.12.2022 - 19:44

DROPS Design answered:

Dear Nadine, you use just 1 strand of Kid-Silk. Due to the lace pattern, just 1 strand is enough to obtain this kind of garment. Happy knitting!

25.12.2022 - 20:04

country flag Carol McMillan wrote:

Pattern uses gauge of 23 sts x 30 rows in st-st on 3.5mm = 4". Can I use a yarn with a gauge of 22 sts x 30 rows in st-st on 4.0 needles if I get the same 4" gauge? Should I then use a 3.5mm instead of the 3mm for the edges?

22.02.2022 - 23:28

DROPS Design answered:

Hi Carol. Yes, our needle sizes are only a guide and the important thing is to get the swatch right. If size 4 mm is right for the tension with this second yarn then use 3.5 mm for the edges. Happy knitting!

23.02.2022 - 06:52

country flag Nicole Kröber wrote:

Hallo liebes DROPS Team, ich hab mal eine Frage. Ich möchte diese Strickjacke gerne mit der Drops Puna Wolle stricken, komm aber mit dem umrechnen nicht zurecht. Wieviel Gramm benötige ich denn von Puna? Vielen Dank im Voraus. Liebe Grüße, Nicole

02.01.2022 - 23:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kröber, diese Jacke wird mit Kid-Silk, dh mit einem Garn der Garngruppe A gestrickt, wenn Sie Puna (=Garngruppe B) benutzen, bekommen Sie nicht die richtige Maschenprobe 23 M x 30 R = 10 x 10 cm und nicht die fertigen Maßen. Hier finden Sie, Jacken mit Lochmuster und Garngruppe B. Viel Spaß beim stricken!

03.01.2022 - 13:01

country flag Margit wrote:

Vielen Dank für Ihre rasche Antwort. Es tut mir leid, aber ich weiß nicht, was Sie meinen. Welche sind "die 2 ersten"? LG Margit

10.07.2020 - 23:20

DROPS Design answered:

Liebe Margit, oops entschuldigung, es meinte: die 6 Maschen in A.3 + die 2 ersten Maschen in A.3, dh Sie stricken das ganze Diagram einmal in der Breite, dann stricken Sie die 2 nächsten Maschen wie die 2 ersten Maschen im Diagram = so haben Sie 8 Maschen wie in A.3 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

13.07.2020 - 09:41

country flag Margit wrote:

Liebes Drops-Team, ich teile gerade die Maschen (nach dem Halsbündchen) in Vorder- Rückenteil und Ärmeln ein. Für einen Ärmel sind 8 Maschen in A3 gedacht, A3 sind aber nur 6 Maschen , Ist das ein Fehler, oder habe ich einen Denkfehler? Freue mich auf eine Antwort. LG Margit

10.07.2020 - 11:25

DROPS Design answered:

Liebe Margit, Sie stricken die 6 Maschen in A.3 + die 2 ersten = jetzt haben Sie 8 Maschen im A.3 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

10.07.2020 - 11:39

country flag Paulet Hélène wrote:

Merci pour votre réponse. J’ai tricoté des châles avec cette laine mais jamais de vêtements. Est ce que la tenue sera aussi bonne après un lavage, car la laine est fine ? Qu’en pensez-vous ? Cordialement

25.05.2020 - 14:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Paulet, nous utilisons souvent DROPS Kid-Silk pour des vêtements femme, seule, doublée ou accompagnée d'une autre laine - si vous l'avez déjà tricotée, vous la connaissez déjà bien, pour toute assistance supplémentaire, votre magasin pourra vous orienter - même par mail ou téléphone. Bon tricot!

25.05.2020 - 14:45

country flag PAULET Hélène wrote:

Bonjour, je suis actuellement dans la lecture et compréhension des explications. je n'ai jamais commencé un tricot par le haut, ça sera une grande première ! je souhaiterais tricoter ce modèle en Kid Silk mais avec 2 brins , je crains qu'en simple file la tenue soit médiocre. J'ai acheté 16 pelotes Qu'en pensez vous et avec quelle aiguille ? merci de votre réponse

24.05.2020 - 13:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Paulet, ce modèle se tricote avec 1 seul fil Kid-Silk et un échantillon de 23 m x 30 rangs = 10 x 10 cm; si vous tricotez avec le fil en double, vous n'aurez pas cette tension, il vous faudra alors soit tout recalculer soit trouver un modèle se tricotant avec 2 fils Kid-Silk (ou 2 fils du groupe A/1 fil du groupe C). Vous trouverez ici plus d'infos sur les alternatives 25.05.2020 - 09:48

country flag Gwenaëlle David wrote:

Bonjour. Je n'ai pour l'instant que placé les différentes parties sur l'endroit puis réalisé les 1eres augmentations des devants et dos (pas les manches) sur l'envers et là je bloque complètement pour le rang suivant sur l'endroit, comment réaliser les différentes augmentations tout en suivant le décalage des raglans? Pourriez-vous me détailler ce rang motif par motif? Merci pour votre attention et votre aide.

31.03.2020 - 12:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme David, je ne suis pas sûre de bien comprendre où vous en êtes, quelle taille tricotez-vous et qu'avez-vous fait exactement? De quelles augmentations parlez-vous? Celles du raglan? Elles se font en même temps sur le dos/les devants et les manches mais juste à un rythme différent. Vous tricotez en même temps les diagrammes comme indiqué. Les augmentations des raglans se tricotent en suivant A.1 sur le dos/les devants et A.3 sur les manches - cf RAGLAN. Merci pour toutes ces informations complémentaires indispensables pour bien comprendre où vous en êtes.

31.03.2020 - 12:56