DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Misty Harbor

Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk prjónuð ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-24
DROPS Design: Mynstur nr ks-116
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-150-175-200-200 g nr 10, grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – fyrir kant.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út um 1 l með því að slá1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstri A.1 á fram- og bakstykki og þær eru prjónaðar í mynstri A.3 á ermum. ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum eins og kemur fram í útskýringum og í einhverjum umf þá er einungis aukið út í fram- og bakstykki en ekki í ermum.

TILFÆRSLA Í A.2 (á við um fram- og bakstykki eftir handveg):
A.2 á að færast til frá hlið undir ermi að miðju framan/miðja aftan.

Í hægri hlið á fram-/bakstykki er þetta gert þannig:
Prjónið eins og áður fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið a.2 eins og áður, en þegar síðasta l í A.2 er eftir er þessi l tekin eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3.

Í vinstri hlið á fram-/bakstykki er þetta gert þannig:
Prjónið eins og áður þar til 1 l er eftir á undan A.2, prjónið næstu l slétt saman með fyrstu l í A.2, prjónið A.2 eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið þær l sem eftir eru eins og áður. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 l með því að slá1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í A.3.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 2 l mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 l á undan A.2, prjónið 2 l slétt saman, prjónið A.2 (= 8 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og er prjónað ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 100-100-100-100-124-124 l á hringprjóna nr 3 með Kid-Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 20 l jafnt yfir í öllum stærðum = 120-120-120-120-144-144 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Næsta umf er prjónuð þannig: A.2 (= 8 l í laskalínu), A.3 yfir næstu 8 lykkjur (= hægri ermi), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.1 yfir næstu 36-36-36-36-48-48 l (= 6-6-6-6-8-8 mynstureiningar 6 l á framstykki), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.3 yfir næstu 8 lykkjur (= vinstri ermi), A.2 (= 8 l í laskalínu) og A.1 yfir síðustu 36-36-36-36-48-48 l (= 6-6-6-6-8-8 mynstureiningar 6 l á bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum þannig:
FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í hverri umf alls 0-6-5-12-10-16 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 18 sinnum í öllum stærðum og að lokum í 4. hverri umf alls 6-6-7-6-8-8 sinnum.
ERMAR: Aukið út í annarri hverri umf alls 14-19-27-30-33-32 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 8-7-4-3-3-5 sinnum.

Eftir alla útaukningu eru 304-344-364-396-432-460 l í umf. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 4 l (= ½ mynstureining A.2), setjið næstu 60-68-78-82-88-90 l á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 12-12-14-14-16 l undir ermi, prjónið næstu 92-104-104-116-128-140 l (= framstykki), setjið næstu 60-68-78-82-88-90 l á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 12-12-14-14-16 l undir ermi og prjónið næstu 88-100-100-112-124-136 l (= bakstykki). Klippið frá.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 208-232-236-260-284-312 l í umf (byrjun umf = mitt á milli 12-12-14-14-16 nýju l undir ermi á hægri hlið á stykki). Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Næsta umf er prjónuð þannig: 2 l garðaprjón, 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir mynsturteikningu A.3, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, haldið áfram með A.1 yfir næstu 84-96-96-108-120-132 l framan á peysunni, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, prjónið 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir mynsturteikningu A.3, 4 l garðaprjón (setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 4 l = miðja í vinstri hlið), 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir mynsturteikningu A.3, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, haldið áfram með A.1 yfir næstu 84-96-96-108-120-132 l aftan á peysu, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, prjónið 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir mynsturteikningu A.3 og endið með 2 l garðaprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í næstu umf byrjar TILFÆRSLA Í A.2 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með tilfærslu í annarri hverri umf alls 24-24-24-24-30-30 sinnum – ATH: Þegar A.2 færist til þá kemur heildartala lykkjufjölda að vera sá sami, en það koma til með að vera færri l í A.1 við miðju að framan og fyrir miðju að aftan og fleiri l í A.3 í hliðum. Lykkjur í A.1 sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar það er fært til eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga aftur upp í mynstri.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 l hvoru megin við 4 l garðaprjón í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum = 220-244-248-272-296-324 l.
Eftir síðustu tilfærsluna þá eiga að vera 6-8-8-10-10-12 mynstureiningar með A.1 fyrir miðju að framan/miðja að aftan (þ.e.a.s. 36-48-48-60-60-72 l með A.1). Mynstrið heldur áfram án tilfærslna. Þegar stykkið mælist 22-22-23-24-24-24 cm frá prjónamerki (peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl) skiptist stykkið upp mitt í 4 l garðaprjón í hvorri hlið og framstykki og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 110-122-124-136-148-162 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-30-31-30-30-30 cm frá prjónamerki (peysan mælist ca 52-54-56-56-58-60 cm frá öxl). Prjónið 1 umf br frá röngu þar sem aukið er út um 8-8-6-6-6-8 l jafnt yfir = 118-130-130-142-154-170 l – ATH: Þær 2 kantlykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni og A.2 heldur áfram með sl yfir sl og br yfir br (þ.e.a.s. ekki er aukið út yfir A.2 eða l í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðarpjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir í umf og endið með 2 l sl og 2 kantlykkjum í garðaprjóni (passið uppá að stroffið gangi jafnt upp með stroffi í A.2). Haldið svona áfram með stroff, en í næstu umf frá réttu eru allar 2 l br auknar út til 3 l br (aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn í skiptingunni á milli sl og br, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat) = 146-161-161-176-191-211 l. Þegar stroffið mælist 4-4-4-6-6-6 cm fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br (til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er fellt af með 2 þráðum Kid-Silk). Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
= 110-122-124-136-148-162 l. Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna.
Setjið næstu 60-68-78-82-88-90 l af þræði eða hjálparprjóni á stutta hringprjóna nr 3,5 og fitjið að auki upp 12-12-14-14-14-16 nýjar l mitt undir ermi = 72-80-92-96-102-106 l í umf. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.3 hringinn, en nú er A.2 einungis prjónað yfir miðju 8 l undir ermi.
Þegar ermin mælist 1½ cm fækkið um 1 l hvoru megin við A.2 – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri). Fækkið l alls 13-16-21-22-23-24 sinnum í stærð S: Í 7. hverri umf, í stærð M: Til skiptis í 5. og 6. hverri umf, í stærð L + XL: Í 4. hverri umf, í stærð XXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf og í stærð XXXL: Í 3. hverri umf = 46-48-50-52-56-58 l. Þegar ermin mælist 32-31-31-31-28-27 cm prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 14-16-18-16-16-14 l jafnt yfir = 60-64-68-68-72-72 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn yfir allar l (= 2 l sl, 2 l br, en passið uppá að stroffið haldi áfram yfir A.2 mitt undir ermi). Þegar stroffið mælist 8 cm eru allar 2 l br auknar út til 3 l br (aukið út eins og á hægra framstykki) = 75-80-85-85-90-90 l. Þegar stroffið mælist 12 cm (eða að óskaðri lengd, ermin mælist nú ca 44-43-43-43-40-39 cm), fellið af með sl yfir sl og br yfir br (til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er fellt af með 2 þráðum Kid-Silk).

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.03.2017
FRAM- OG BAKSTYKKI:= 208-232-236-260-284-312 l í umf (byrjun umf = mitt á milli 12-12-14-14-16 nýju l undir ermi á hægri hlið á stykki)...
Yfirfarið á vefsvæði: 24.04.2018
Leiðrétting: Berustykki.. prjónið A.3 yfir næstu 8 lykkjur (= ermi)

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = prjónið 3 l sl, steypið fyrstu l sem var prjónuð yfir hinar 2, þannig að þessi l er utan um 2 síðustu l á hægri prjóni (= 1 l færri)
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 2 l slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 2 l slétt, 1 l slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónastefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Chris wrote:

Bonjour, Comment convertir un TOP DOWN en un BAS en HAUT comme pour ce modèle que je convoite ? Merci d'avance Chris

22.08.2022 - 16:12

DROPS Design answered:

Bonjour Chris, vous pouvez le lire à l'envers, autrement dit: montez le nombre de mailles rabattues en bas, et augmenter au lieu de diminuer + diminuer au lieu d'augmenter - il sera toutefois peut-être plus simple de suivre les explications telles quelles, une leçon et une vidéo sont là pour vous guider dans la technique si besoin. Bon tricot!

22.08.2022 - 16:29

country flag Alberte Olivia Bank wrote:

Hej. Jeg tænkte på om man kunne lave en lille højhals på istedet for den runde åbne hals - i en 2 r, 2 v rib så den matcher ærmerne - i givet fald, hvad vil så være det anbefalede antal masker - det samme (ribben trækker jo arbejdet lidt sammen)?

28.02.2022 - 12:22

DROPS Design answered:

Hej Alberte, du kan evt bruge samme hals som DROPS 217-22 eller 228-6 eller 227-35 og justere maskeantallet efter halsen og fortsætte med denne model :)

02.03.2022 - 12:08

country flag Ida Eikaas wrote:

Hei, Går det an å strikke denne oppskriften nedenfra og opp i stedet for omvendt? Og hva skulle jeg i så fall være særlig obs på? På forhånd tusen takk!

19.10.2021 - 13:06

DROPS Design answered:

Hej Ida, tror det vil være for kompliceret at vende diagrammerne... Men se vores video hvor let det er at strikke ovenfra og ned :)

21.10.2021 - 09:21

country flag Helene wrote:

Merci pour votre explication. Comme je ne trouve d’aiguilles circulaires de 40 cm dans ma ville. Je vais appliquer le magic loop que je ne connaissais pas. Super site!

17.08.2020 - 11:55

country flag Helene wrote:

Je ne comprends pas comment tricoter en rond 100 mailles avec l’aiguille circulaire. Le fil est trop long pour faire un tour Merci pour votre éclairage

15.08.2020 - 21:43

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, utilisez une petite aiguille circulaire de 40 cm ou bien utilisez la longue aiguille de 80 cm et la technique dite du magic loop. Bon tricot!

17.08.2020 - 08:31

country flag Lisa wrote:

Hej, jag blev lite förbryllad av hur många varv som stickas totalt innan man ska sätta av maskor för ärmhålen. Tänker jag rätt att det är 25 varv för storlek S?

07.01.2020 - 21:08

DROPS Design answered:

Hej Lisa, följ även måttet som står i beskrivningen (och måttskissen) så du får rätt mått i din storlek :)

15.01.2020 - 16:03

country flag Lisa wrote:

Hej, jag ställde en fråga angående ökningen på F&B respektive ärmar men förstod tyvärr inte svaret. Ställer därför frågan igen och hoppas på ett förtydligande: FRAM- OCH BAKST: Öka på varje v totalt 0-6-5-12-10-16 ggr, sedan på vartannat v totalt 18 ggr i alla stl och till slut på vart 4:e v totalt 6-6-7-6-8-8 ggr. ÄRMARNA: Öka på vartannat v totalt 14-19-27-30-33-32 ggr och sedan på vart 4:e v totalt 8-7-4-3-3-5 ggr.

10.04.2019 - 10:44

DROPS Design answered:

Hei Lisa. Det økes på begge sider av de 4 merkene, men ikke alltid på de samme omgangene. Hver gang du øker på for/bakdel økes 2 masker på fordel og 2 masker på bakdel. Hver gang du øker på ermene økes 2 masker på hvert erme. På for/ bakdel øker du hver 2. omg totalt 18 ganger. Samtidig øker du hver 2. omg på ermene totalt 14 ganger. Dvs: de første 14 gangene du øker, økes det på både ermene og for/ bakdel. Videre økes det hver 4. omg på ermene (dette skal gjøres 8 ganger), mens du fortsetter å øke hver 2. omg på for/bakdel. Når du har økt 18 ganger på for/bakdel går du over til å også øke hver 4. omg her (dette skal gjøres 6 ganger). God fornøyelse

10.04.2019 - 14:43

country flag Lisa wrote:

Hej, jag undrar över beskrivningen: FRAM- OCH BAKST: Öka på varje v totalt 0-6-5-12-10-16 ggr, sedan på vartannat v totalt 18 ggr i alla stl och till slut på vart 4:e v totalt 6-6-7-6-8-8 ggr. ÄRMARNA: Öka på vartannat v totalt 14-19-27-30-33-32 ggr och sedan på vart 4:e v totalt 8-7-4-3-3-5 ggr. Första ökningen på F&B i S ökas noll och sedan 18 maskor fördelat på fram- och bakdel? Alltså tex 9 maskor för framdel och 9 maskor för bakdel?

09.04.2019 - 23:06

DROPS Design answered:

Hei Lisa. Du øker ved hver raglan på for- og bakstykket hver 2. omgang totalt 18 ganger. Dvs, 18 omganger der du øker 2 masker på forstykket og 2 masker på bakstykket (1 maske i hver side). Etter de 18 økingene er det altså 36 masker økt på forstykket og 36 masker økt på bakstykket. Videre øker du hver 4. omgang 6 ganger (12 masker økt på forstykket og 12 masker økt på bakstykket). Det samme gjelder på ermet: du øker ved hvert merke (i hver side av ermet) på hver 2. omgang 14 ganger. Altså 2 masker økt på hvert erme hver økning. God fornøyelse

10.04.2019 - 07:37

country flag Amelia wrote:

When it says divide the piece in the middle and finish back and front separately, does it mean that from that point it is knitted back and forth and then front and back are joined together in the round for the rib? I am confused because I don’t see front and back assembly instructions. Thank you!

14.07.2018 - 01:09

DROPS Design answered:

Hi Amelia, The piece is divided into front and back pieces so that you end up with a split in both sides. If you do not wish to have this split, you can continue in the round. Happy knitting!

14.07.2018 - 11:28

country flag Scoobie wrote:

Ich kenne die Methode des Abkettens mit zwei Fäden nicht und bin leider weder bei Ihren Anleitungen noch bei der Internetsuche fündig geworden. Gibt es ein Synonym dazu, oder könnten Sie es noch einmal erklären? Liebe Grüße aus Norddeutschland

16.03.2018 - 12:08

DROPS Design answered:

Liebe Scoobie, einfach der Faden von innen der Knäuel und der Faden von aussen der Knäuel zusammen nehmen und die Maschen wie normaleweise aber mit diesen beiden Fäden abketten. Viel Spaß beim stricken!

16.03.2018 - 14:15