DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 172-36
DROPS Design: Mynstur nr ml-018
Garnflokkur D eða A + A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 g nr 10, bleikvínrauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 12 l x 14 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 7 fyrir stroff- eða þá stærð sem þarf til að 13 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðal.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um ermi):
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 2 l sl og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um kraga):
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í skiptingunni á milli sl og br. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram – og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 90-102-102-114-114-126 l á hringprjóna nr 7 með Melody. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 0-1-1-2-2-3 sinnum (þ.e.a.s. í stærð S er ekki prjónaðar 3 l sl, 3 l br), prjónið stroff eftir mynstri A.1 (= 21 l), prjónið stroff eftir mynstri A.2 (= 42 l), prjónið br kant eftir mynstur A.1 (= 21 l), * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 0-1-1-2-2-3 sinnum (þ.e.a.s. í stærð S eru ekki prjónaðar 3 l br, 3 l sl) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 12 cm.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sl yfir fyrstu 0-6-6-12-12-18 l JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-1-4-1-4 l jafnt yfir þessar l, prjónið og fækkið l eftir mynstri A.3 (einu sinni), prjónið og fækkið l eftir mynstri A.4 (einu sinni), prjónið og fækkið l eftir mynstri A.3 (einu sinni), prjónið sl yfir næstu 0-6-6-12-12-18 l JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-1-4-1-4 l jafnt yfir þessar l og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni = 70-74-80-86-92-98 l.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið til baka frá röngu með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón, en l í A.4 eru prjónaðar eins og sýnt er í mynstri. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-2-5-8-11-14 l sléttprjón, prjónið og aukið út eftir mynstri A.5 (= 15 l sem auknar eru út til 21 l), A.6 (= 34 l sem auknar eru út til 46 l), A.5 (= 15 l sem auknar eru út til 21 l), 0-2-5-8-11-14 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 94-98-104-110-116-122 l á prjóni. Prjónið til baka frá röngu með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-2-5-8-11-14 l sléttprjón, A.7 (= 21 l), A.8 (= 46 l), A.7 (= 21 l), 0-2-5-8-11-14 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm fellið af fyrstu 0-2-3-6-8-11 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 94-94-98-98-100-100 l (í stærð S er ekki felld af nein lykkja, en setjið eitt prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-0-2-2-3-3 l sléttprjón, haldið áfram með A.7, A.8 og A.7 eins og áður, prjónið 0-0-2-2-3-3 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til 1 umf er eftir og stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Prjónið nú l í kaðli í A.8 saman 2 og 2 (= 12 l færri). Í næstu umf eru felldar af miðju 20-20-22-22-24-24 fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 30-30-31-31-31-31 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Prjónið l í þeim köðlum sem eftir eru saman 2 og 2 (= 6 l færri). Í næstu umf eru felldar af þær 25-25-26-26-26-26 l sem eftir eru á öxl (mikilvægt er að affellingarkanturinn á öxl verði ekki stífur). Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 64-66-67-69-70-72 cm. Prjónið nú l í kaðli í miðju A.8 saman 2 og 2 (= 12 l færri). Í næstu umf eru miðju 14-14-16-16-18-18 l settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 30-30-31-31-31-31 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Prjónið l í þeim köðlum sem eftir eru 2 og 2 (= 6 l færri). Í næstu umf eru felldar af þær 25-25-26-26-26-26 l sem eftir eru (mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Endurtakið á hinni öxlinni.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf.
Fitjið upp 30-30-36-36-36-36 l á sokkaprjóna nr 7 með Melody. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff hringinn (= 3 l sl, 3 l br) í 10 cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 2-2-6-6-4-4 l jafnt yfir = 28-28-30-30-32-32 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 11-11-11-13-13-11 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 3½-3-3-2-2-2 cm millibili alls 10-11-11-13-13-14 sinnum = 48-50-52-56-58-60 l. Þegar stykkið mælist 45-44-42-41-40-39 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan stykki fram og til baka á hringprjóna þar til ermin mælist 45-46-45-46-47-48 cm (þ.e.a.s.ca 0-2-3-5-7-9 cm frá prjónamerki), fellið af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma kant í kant – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur (passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur), EN endið þegar ca 20 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf). Leggið ermarnar inn undir kant í garðaprjóni meðfram handveg (prjónamerki á ermi á að passa við hlið á fram- og bakstykki við prjónamerki). Saumið niður meðfram handveg (kantur í garðaprjóni meðfram handveg á að liggja ofan á ermi) og í botni handvegs frá prjónamerki og inn að stykkinu.

KRAGI:
Prjónið upp frá réttu ca 50 til 64 l í kringum hálsmál (meðtaldar l frá þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 7. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er jafnt út til 66-66-72-72-78-78 l. Prjónið stroff hringinn (= 3 l sl, 3 l br). Þegar kraginn mælist 10 cm eru allar 3 l sl auknar út til 4 l sl – LESIÐ ÚTAUKNING-2 = 77-77-84-84-91-91 l. Þegar kraginn mælist 20 cm eru allar 4 l sl auknar til 5 l sl = 88-88-96-96-104-104 l. Þegar kraginn mælist 22 cm eru allar 3 l br auknar út til 4 l br = 99-99-108-108-117-117 l. Haldið áfram með stroff með 5 l sl, 4 l br þar til kraginn mælist 27-27-28-28-29-29 cm. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br – ATH: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er slegið uppá prjóninn á eftir 9. hverri l JAFNFRAMT er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.08.2017
BAKSTYKKI:..JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-1-4-1-4 l jafnt yfir þessar l og endið með 3 kantlykkjum með garðaprjóni = 70-74-80-86-92-98 l.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið til baka frá röngu með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón, en l í A.4 eru prjónaðar eins og sýnt er í mynstri.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 3 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Carolyn wrote:

I am working on back to the point of ...”Now work sts in cables in A.8 tog 2 by 2 (= 12sts dec)” I’m confused - can you clarify ? Of the 6 cables in A8 I should knit 2tog twice in each cable? Thanks!

24.01.2019 - 14:30

DROPS Design answered:

Dear Carolyn, you have to decrease 12 stitches over the cables in A.8: there are 8 sts in each cable in A.8, K these 8 sts tog (= K2 tog x 4 ) = 4 sts remain and 4 sts have been decreased, repeat this over all 3 cables in A.8 = 12 sts have been decreased. Happy knitting!

24.01.2019 - 16:57

country flag Ellen Anne Sormerud wrote:

Hvor kommer rettelsen inn? Rett etter 12 cm vr. bord?

24.08.2018 - 09:55

DROPS Design answered:

Hej Ellen, opskriften på nettet er rettet, så hvis du har skrevet den ud efter 25/8-2017 så er opskriften rigtig. God fornøjelse!

30.08.2018 - 13:59

country flag Marie wrote:

Bonjour, je me demandais si avant le 70 cm de longueur (taille medium) si on pouvais diminuer dans les torsade de A.8 2 par 2 à n'importe quel rang ou si cela est à un rang spécifique parce que diminuer dans un rang ou on est rendu a faire un torsade cela ne doit pas être évident. merci a l'avance.

27.09.2017 - 19:51

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, oui, peu importe le rang, ce qui compte c'est de diminuer le nombre de mailles de la torsade pour conserver la bonne largeur quand on va rabattre les mailles (si on ne diminuait pas, les épaules seraient trop larges). Bon tricot!

28.09.2017 - 09:39

country flag Marie wrote:

Bonjour, une petite question, est-ce quand A.8 est fini en hauteur, on recommence en bas. merci

05.09.2017 - 19:52

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, oui tout à fait, on reprend au 1er rang. Bon tricot!

06.09.2017 - 09:05

country flag Marie wrote:

Bonjour, j'ai tricoter 3 m POINT MOUSSE , 3 m end, 3 m env, A.1 (= 21 m), puis celles du diagramme A.2 (= 42 m), puis celles de A.1 (= 21 m), 3 m env, 3 m end , et terminer par 3 m point mousse pour la taille médium , est- ce correct que le rang du retour soit 3 mailles end ./ 3 mailles env. et finir par 3 mailles env. / 3 mailles end. car après mes 12 cm je me retrouve avec 9 maille point mousse de chaque coté de A1

03.09.2017 - 23:55

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, les 3 m end/3 m env après les 3 premières mailles point mousse et avant les 3 dernières mailles point mousse se tricotent en côtes, vous avez ainsi bien 3 m point mousse de chaque côté. Bon tricot!

04.09.2017 - 11:00

country flag France wrote:

Bonjour, je ne comprend pas c'est écrit: tricoter et diminuer en suivant le diagramme A3 (une fois) tricoter et diminuer en suivant le diagramme A4 (une fois) .. ou faut-il diminuer?? il y a quand même 28 diminutions.

25.08.2017 - 17:18

DROPS Design answered:

Bonjour, les diminutions sont inclues dans les schemats A.3 et A.4. Donc tricoter (et diminuer) en suivant le diagramme A.3 (1 fois), tricoter (et diminuer) en suivant le diagramme A.4 (1 fois), tricoter (et diminuer) en suivant le diagramme A.3 (1 fois)... Bon tricot!

25.08.2017 - 22:37

country flag MARIE wrote:

Bonjour,, je ne sais pas trop ou diminuer apres les 12cm. diminuer au dessus de ces mailles, au dessus de quelles mailles , merci

25.08.2017 - 14:43

DROPS Design answered:

Bonjour Marie. Par example, dans la taille M, en même temp que vous tricotez 6 m end,  vous diminuez 4 m dans ces 6 m (le 6 m end deviennent donc 2 m end). Bon tricot!

25.08.2017 - 15:13

country flag Ingeborg wrote:

Hvilken størrelse har modellen på seg? Bruker alle garnstudio modeller den ene størrelsen? mvh Ingeborg

25.04.2017 - 00:40

DROPS Design answered:

Hei Ingeborg. Vanligvis blir plaggene strikket opp i størrelse S (eller M). For å finne hvilken størrelse som du ønsker, må man se på målskissen helt nederst på siden. Om det er flere modeller som bruker det samme plagget, er det som regel den ene størrelsen som er blitt strikket opp.

25.04.2017 - 08:14

country flag Castagna wrote:

Oup's !!! j'ai trouvé !!! Désolée

13.04.2017 - 09:12

country flag Castagna wrote:

Bonjour, J'ai bien regardé.... je ne trouve pas la composition de la laine? Par avance, merci pour votre réponse

13.04.2017 - 08:48

DROPS Design answered:

Bonjour Castagna! Composition de la laine Melody DROPS: 71% alpaga, 25% laine, 4% polyamide. Bon tricot!

13.04.2017 - 09:29