DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Mimosa Top

Heklaður toppur úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og sólfjaðramynstri. Heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1282
DROPS Design: Mynstur nr bs-097
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
250-250-300-350-350-400 g nr 2110, púðurgulur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st x 12 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.15.

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Þegar heklað er í hring:
Hver umf með st byrjar með 3 ll og endar með 1 kl í 3. ll.
Hver umf með fl byrjar með 1 ll og endar með 1 kl í fyrstu ll.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
Stykkið er heklað fram og til baka, en í hverri umf með st byrjar umf með 3 ll, stykkið er heklað saman í lok umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Snúið stykkinu.
Stykkið er heklað fram og til baka, en í hverri umf með fl byrjar umf með 1 ll, stykkið er heklað saman í lok umf með 1 kl í 1. ll í byrjun umf.
Snúið stykkinu.

ÚRTAKA:
Heklið þar til 5 st eru eftir á undan prjónamerki á hlið, heklið næstu 2 st saman, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið næstu 2 st saman, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið næstu 2 st saman (= 3 st færri við hvert prjónamerki = 6 st færri alls).

ÚTAUKNING:
Heklið þar til 4 st eru eftir á undan prjónamerki á hlið, heklið 2 st í næsta st, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st (= 3 st fleiri við hvert prjónamerki = 6 st fleiri alls).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður, fram og til baka í stykkjum, áður en það er heklað saman.

BAKSTYKKI:
HÆGRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1, 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.4a yfir fyrstu 4 st, endurtakið A.5a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), A.6a yfir síðustu 2 st. Þegar A.4a til A.6a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina (= síðasta umf er frá röngu). Geymið stykkið og heklið vinstri öxl.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

VINSTRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið síðan næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.2a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), A.3a yfir síðustu 4 st. Þegar A.1a til A.3a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið vinstri öxl saman við hægri öxl frá réttu þannig:

BAKSTYKKI:
STÆRÐ S-M:
Heklið A.1b yfir fyrstu 2 st á vinstri öxl, endurtakið A.2b yfir næstu 18-21 st, 1 st í síðasta st á vinstri öxl, heklið 39-39 ll fyrir hálsmál, heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st á hægri öxl, endurtakið A.2b yfir næstu 18-21 st og 1 st í síðasta st yfir hægri öxl eins og áður = 42-48 st og 39-39 ll í umf. Í næstu umf er mynstur heklað eins og áður, en í ll er heklaður 1 st í hverja ll = 81-87 st.

STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Heklið A.1a yfir fyrstu 2 st á vinstri öxl, endurtakið A.2a yfir næstu 24-24-27-30 st, 1 st í síðasta st á vinstri öxl, heklið 39-45-45-45 ll fyrir hálsmál, heklið 1 st í fyrsta st á hægri öxl, endurtakið A.5a yfir næstu 24-24-27-30 st og A.6a yfir 2 síðustu st á hægri öxl eins og áður = 54-54-60-66 st og 39-45-45-45 ll í umf. Í næstu umf er heklað mynstur eins og áður, en í ll er heklaður 1 st í hverja ll = 93-99-105-111 st. Þegar A.1a til A.6a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað frá réttu þannig: Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, endurtakið frá A.2b þar til 1 st er eftir, endið með 1 st í síðasta st. Endurtakið A.2b alls 1-1-2-2 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
= 81-87-93-99-105-111 st. Heklið frá réttu þannig: A.7c yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.8c yfir næstu 72-78-84-90-96-102 st (= alls 12-13-14-15-16-17 sinnum á breiddina), endið með A.9c yfir síðustu 7 st. Þegar A.7 til A.9 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.7 endurtekið yfir A.7c, A.8 yfir A.8c og A.9 yfir A.9c á hæðina.

JAFNFRAMT er aukið ú í stærð L-XL-XXL-XXXL þannig:
Þegar stykkið mælist 17-18-16-16 cm er aukið út um 1 st hvoru megin á stykki með því að hekla 2 st í fyrsta og síðasta st (= 2 st fleiri). Endurtakið útaukningu í hverri umf 1-1-5-6 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-12-14 st fleiri). Útauknir stuðlar eru heklaðir jafnóðum inn í mynstur. Eftir útaukningu mælist stykkið ca 19-20-21-22 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, passið að næsta umf sé frá réttu og að það sé umf með st (í mynstri A.8), klippið frá og festið enda. Geymið stykkið og heklið framstykki.

FRAMSTYKKI:
HÆGRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja og eina af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja og eina af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið síðan næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.2a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), A.3a yfir síðustu 4 st. Endurtakið A.1a til A.3a á hæðina alls 1-1-2-2-2-2 sinnum. Heklið síðan A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a og A.3b yfir A.3a. Endurtakið A.1b til A.3b á hæðina alls 1-1-1-1-2-2 sinnum. Heklið A.1c yfir A.1b, A.2c yfir A.2b og A.3c yfir A.3b. Heklið þar til síðasta umf í mynstri A.1c-A.3c er eftir. Geymið stykkið og heklið vinstri öxl.

VINSTRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið síðan næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.4a yfir fyrstu 4 st, endurtakið A.5a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), A.6a yfir síðustu 2 st. Endurtakið A.4a til A.6a á hæðina alls 1-1-2-2-2-2 sinnum. Heklið síðan A.4b yfir A.4a, A.5b yfir A.5a og A.6b yfir A.6a. Endurtakið A.4b til A.6b á hæðina alls 1-1-1-1-2-2 sinnum. Heklið A.4c yfir A.4b, A.5c yfir A.5b og A.6c yfir A.6b. Í síðustu umf í mynstri A.4c til A.6c er vinstri öxl hekluð saman við hægri öxl frá röngu þannig: heklið síðustu umf á A.6c til A.4c eins og áður yfir vinstri öxl, heklið 23-23-23-29-29-29 ll fyrir hálsmáli, heklið síðustu umf á A.3c til A.1c eins og áður = 58-64-70-70-76-82 st og 23-23-23-29-29-29 ll (= alls 81-87-93-99-105-111 l).

Heklið frá réttu þannig A.7c yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.8c yfir næstu 72-78-84-90-96-102 st (= alls 12-13-14-15-16-17 sinnum á breiddina), endið með A.9c yfir síðustu 7 st. Þegar A.7c til A.9c hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.7 endurtekið yfir A.7c, A.8 yfir A.8c og A.9 yfir A.9c á hæðina.

JAFNFRAMT er aukið út í stærð L-XL-XXL-XXXL þannig:
Þegar stykkið mælist 17-18-16-16 cm, stillið af við bakstykki, aukið út um 1 st hvoru megin á stykki með því að hekla 2 st í fyrsta og síðasta st (= 2 st fleiri). Endurtakið útaukningu í hverri umf 1-1-5-6 finnum til viðbótar (= alls 4-4-12-14 st fleiri). Útauknir stuðlar eru heklaðir jafnóðum inn í mynstur. Eftir útaukningu mælist stykkið ca 19-20-21-22 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, stillið af eftir bakstykki.

Heklið nú stykkin saman frá framstykki að bakstykki frá réttu JAFNFRAMT í stærð M-XL-XXXL er aukið út um 6 st jafnt yfir í umf. Heklið þannig: Heklið A.7-A.9 yfir framstykki eins og áður, heklið 9-9-11-11-15-16 lausar ll fyrir handveg (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = handvegur), heklið A.7-A.9 yfir bakstykki eins og áður, heklið 9-9-11-11-15-16 lausar ll fyrir handveg (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = handvegur), endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2 = 162-180-194-212-234-256 st og 9-9-11-11-15-16 ll í hvorri hlið á stykki (= alls 180-198-216-234-264-288 l).

FRAM OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið þetta prjónamerki sitja eftir í stykkinu, hin prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Endurtakið A.8 yfir allar l (= alls 30-33-36-39-44-48 sinnum á breiddina). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm, stillið af að næsta umf sé með st, fækkið um 3 st við hvert prjónamerki á hlið – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í 6. hverjum cm 2 sinnum til viðbótar = 162-180-198-216-246-270 st í umf. ATH: Í hvert skipti sem l er fækkað er A.8 endurtekið 1 sinni færri á breiddina. Þegar stykkið mælist 18 cm frá prjónamerki, passið uppá að næsta umf sé umf með st, aukið út um 3 st við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING, endurtakið útaukningu í 3. hverjum cm 3 sinnum til viðbótar = 186-204-222-240-270-294 st.

ATH: Í hvert skipti sem aukið er út er a.8 endurtekið 1 sinni oftar á breiddina. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm frá prjónamerki, passið uppá að síðasta umf sé umf með st frá röngu, heklið í næstu umf frá réttu þannig: Endurtakið A.8a yfir allar l (= alls 31-34-37-40-45-49 sinnum á breiddina). Klippið frá og festið enda þegar A.8a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm alls.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmál þannig (byrjið við miðju að aftan): Heklið 1 fl í fyrsta st, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmál, passið uppá að kanturinn verði ekki of stífur, passið uppá að endað sé með 1 fl í síðasta st. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fl á milli 2 st
symbols = fl um ll
symbols = st í l
symbols = st um ll
symbols = fyrsta umf er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð, hún sýnir bara hvernig hekla á næstu umf í l
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1282

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Fia Älander wrote:

"Virka 1 st i var och en av de första 2 st, upprepa A.2b tills det återstår 1 st, avsluta med 1 st i sista st. Upprepa A.2b totalt 1-1-2-2 ggr på höjden." Ska jag ha virkat A.2 b totalt 2 eller 3 ggr i stl.XXL?

05.09.2022 - 23:12

DROPS Design answered:

Hej Fia, du skall ha virkat A.2 b totalt 2 ggr :)

07.09.2022 - 09:20

country flag Gea wrote:

Aanvullend voor de duidelijkheid. Ik maak maat XXL, dan heb ik vierbtoeren verschil tussen voorben achterpand..

03.08.2022 - 16:26

country flag Gea wrote:

Tip: look in pattern 1285. It is different about A7b A8b and A9b. They use there A7c, A8c A9c. Seems better to me.

03.08.2022 - 16:24

country flag Gea wrote:

Ik weet niet goed hoe ik beide panden op dezelfde hoogte in het zelfde patroon moet krijgen. Als het de beschrijving precies volg, zit er vier toeren verschil tussen achter en voorpand. Als je ze dan bij 22 cm aan elkaar maakt , heb je een onregelmatigheid in het patroon. Hoe kan ik dat oplossen? Liefst in het gedeelte waar ik net de schouders aan elkaar heb gemaakt. Ik hoor het graag.

03.08.2022 - 16:21

country flag Gea wrote:

Ik denk dat er een fout in het patroon zit. Als je de rechter en Iinkerschouder aan elkaar gehaakt hebt bij voorpand en achterkant, dan wordt aangegeven dat A7b, A8b, A9b gehaakt moet worden. Dat is raar. b delen staan niet aangegeven in het patroon. In een eerdere reactie schrijft u ook dat b niet gehaakt wordt. Ik denk dat het daar A7c,, A8c en A9c moet zijn. Dat zie je ook staan in patroon 1285. Klopt het wat ik denk?

03.08.2022 - 16:17

DROPS Design answered:

Dag Gea,

Het moet inderdaad A.7c tot en met A.9c zijn in plaats van b. Dus je had gelijk dat er een fout in zit. Het is nu aangepast. Hopelijk kun je nu verder.

06.08.2022 - 11:06

country flag Katharina wrote:

Sehr geehrtes Drops-Team, So, wie ich die Anleitung verstehe, ist man beim Zusammenhäkeln von Vorder- und Rückenteil an unterschiedlichen Stellen des Musters A7-A9, da dieses Muster im Vorderteil ja später beginnt. Wird dies irgendwie ausgeglichen, oder bleiben beide Teile im Muster getrennt? Zudem scheint es, als müsse man mitten im Muster zunehmen. Ist dies korrekt und wenn ja, wo nimmt man da am besten zu? Liebe Grüße

27.04.2021 - 20:05

DROPS Design answered:

Liebe Katharina, Rückenteil häkeln Sie bis die Arbeit 17-18-19-20-21-22 cm misst (= daran angepassen, dass die nächste R eine Hin-R ist und dass es eine R mit Stb ist (in Diagramm A.8) ) - beim Vorderteil häkeln Sie bis 17-18-19-20-21-22 cm - an das Rückenteil angepassen, dh, die nächste Reihe muss genau die selbe beim beiden Teilen sein. Viel Spaß beim häkeln!

28.04.2021 - 07:48

country flag Therese Lahn wrote:

Har litt problemer med å forstå dette med at man avslutter med kj i 3.luftmaske om arbeidet skal hekles frem og tilbake... (skulder bakstykk) vil det si at siste stav/fm på omgangen erstattes med en kjedemaske i 3.luftmaske fra starten på raden under?

03.02.2021 - 16:05

DROPS Design answered:

Hei Therese. Nei, du hekler radene sammen med 1 kjedemaske i masken p begynnelsen av raden. Det hekles frem og tilbake, men arbeidet hekles sammen bak, slik at det kan se ut som om man hekler rundt. Om du starter med 3 luftmasker på begynnelsen av raden (erstatter 1. stav), så skal det avsluttes med 1 kjedemaske i 3. luftmasken på begynnelsen av raden (= arbeidet er heklet sammen). Snu arbeidet og start med 3 luftmasker (erstatter 1. stav), hekle raden ut og avslutt raden med 1 kjedemaske i 3. luftmaske på starten av raden ( arbeidet er heklet sammen). Snu arbeidet og fortsett på samme måte. God Fornøyelse!

08.02.2021 - 13:05

country flag Victoria Amundsen wrote:

Jeg har akkurat heklet sammen venstre skulder med høyre skulder på forstykket slik: «På siste rad i diag A.4c til A.6c hekles venstre skulder sammen med høyre skulder fra vrangen slik: Hekle siste rad av A.6c til A.4c som før over venstre skulder, hekle 23-23-23-29-29-29 lm til hals, hekle siste rad av A.3c til A.1c som før». Men når jeg så snur og skal hekle igjen første rad i A7c til A9c fra retten, stemmer ikke mønster. Det ser ut som jeg skal hekle A9c-A7c. Hvor gjør jeg feil?

05.06.2020 - 20:34

country flag Ophelia wrote:

Wenn es beim Rückenteil heißt man soll: Wenn A.7c bis A.9c 1 x in der Höhe gehäkelt wurden, A.7 über A.7c, A.8 über A.8c und A.9 über A.9c in der Höhe wdh; Soll dann das komplette Muster von A7, A8, A9 bis A7c, A8c, A9c in der Höhe gehäkelt werden?

15.08.2019 - 14:40

DROPS Design answered:

Liebe Ophelia, ja genau, nach dem A.7c bis A.8c einmal in der Höhe gehäkelt wurde, häkeln Sie A.7 von der 1. Reihe (= die 1. Reihe in A.7a). Viel Spaß beim häkeln!

15.08.2019 - 15:21

country flag Carmen González wrote:

Espero terminarlo satisfactoriamente, en general creo que deberían hacer patrones donde las blusas no traigan costuras laterales. Los sigo y he tejido un par de bolsos y sombreros, voy por mi primer prenda

27.06.2019 - 06:22