DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1235
DROPS Design: Mynstur nr x-409
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
600-700-800-900-1000-1100 g nr 02, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

MYNSTUR-1:
Prjónið A.1 alls 2-2-2-3-3-4 sinnum á hæðina.
Prjónið A.4 alls 1 sinni á hæðina.
Prjónið A.5 alls 1 sinni á hæðina.
Prjónið A.1 alls 1 sinni á hæðina.
Prjónið A.5 alls 1 sinni á hæðina.
Prjónið A.6 alls 1 sinni á hæðina JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 1 l.

ÚTAUKNING:
Aukið alltaf út frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 83-91-99-107-115-123 l á hringprjóna nr 5 með Alaska.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið A.1 með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Endurtakið A.1 alls 3 sinnum á hæðina. Prjónið A.2 þannig (fyrsta umf = ranga): 1 l garðaprjón, A.2 þar til 2 l eru eftir (= 10-11-12-13-14-15 sinnum), prjónið fyrstu l í A.2 (svo að það verði alveg eins í báðum hliðum á stykki), endið á 1 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.3 yfir A.2 þannig (fyrsta umf = rétta): 1 l garðaprjón, A.3 þar til 2 l eru eftir, prjónið fyrstu l í A.3, endið á 1 l garðaprjón. Lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið A.3 þar til stykkið mælist 20-21-22-22-23-23 cm, passið uppá að síðasta umf sé frá réttu. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki í 7 cm, passið síðan að síðasta umf sé frá réttu. Prjónið 1 umf br frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l = 82-90-98-106-114-122 l. Prjónið A.7 með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Prjónið síðan MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm fellið af 3-3-5-5-7-7 l fyrir handveg í hvorri hlið á stykki í byrjun á 2 næstu umf. Þegar fellt hefur verið af fyrir handveg og mynstur-1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 77-85-89-97-101-109 l á prjóni. Prjónið A.3 þar til eftir eru 5-5-1-1-5-5 l, prjónið fyrstu 5-5-1-1-5-5 l af A.3. Haldið áfram með mynstur til loka. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, passið uppá að næsta umf sé frá réttu, setjið miðju 25-25-27-27-29-29 l á þráð fyrir hálsmáli (= 26-30-31-35-36-40 l eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsimáli = 25-29-30-34-35-39 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 51-53-53-55-57 cm, passið uppá að næsta umf sé frá réttu, setjið miðju 11-11-13-13-15-15 l á þráð fyrir hálsmáli (= 33-37-38-42-43-47 l eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 2 l í hverri umf frá hálsi 3 sinnum, síðan er felld af 1 l í hverri umf frá hálsmáli 2 sinnum = 25-29-30-34-35-39 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 42-42-42-50-50-50 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.1 alls 3 sinnum á hæðina. Kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka. Prjónið A.2 (fyrsta umf = ranga) alls 5-5-5-6-6-6 sinnum á breiddina með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.3 til loka. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið útum 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING. Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Endurtakið útaukningu með 5-4-3½-4-3½-3 cm millibili 8-10-11-9-11-12 sinnum til viðbótar = 60-64-66-70-74-76 l. Fellið af þegar stykkið mælist 51-50-50-49-48-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið vinstri axlasaum.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp frá réttu ca 70-85 l (meðtaldar l af þræði) meðfram hálsmáli á hringprjóna nr 5. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið hægri axlasauma (meðtalinn kant í hálsmáli). Saumið ermar í. Saumið hliðar- og ermasauma innan við 1 kantlykkju.

KÖGUR:
Klippið 3 þræði ca 34 cm, þræðið þá í gegnum götin (í A.7), hnýtið einn LAUSAN hnút, þ.e.a.s. hnúturinn hangir ca 1 cm niður frá gati. Setjið 1 kögur á milli 2 gata.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1235

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Tina wrote:

For the front, pattern says to bind off on neck edge every row (forming shoulder). How can I do every row? Is it meant as every other row?

17.02.2023 - 16:10

DROPS Design answered:

Dear Tina, the cast off for neck will be worked at the beginning of every row starting from neck (= from RS on right shoulder and from WS on left shoulder), this means on every other row. Happy knitting!

17.02.2023 - 16:21

country flag MURIEL MARTIN wrote:

Pour la manche vous marquez 6 fois A2 alors que sur le modèle il n'y est qu'un fois. pourquoi?

01.02.2021 - 12:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martin, on tricote A.2 6 fois au total en largeur (avec 1 maille lisière au point mousse de chaque côté) et une seule fois au total en hauteur. Bon tricot!

01.02.2021 - 14:52

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, "Tricoter ensuite 1 rang end sur l'envers et continuer en jersey avec 1 m point mousse de chaque côté pendant 7 cm, ajuster pour que le dernier rang soit sur l'endroit. Tricoter 1 rang env sur l'endroit," Je ne comprends pas, il faut terminer le jersey par un rang ENDROIT, et ensuite tricoter un rang envers, sur l'ENDROIT ??? Merci de votre aide

14.10.2020 - 10:22

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, désolée pour la réponse tardive - vous terminez A.3 par un rang sur l'endroit, au rang suivant = sur l'envers, vous tricotez à l'endroit. Puis, vous continuez en jersey pendant 7 cm. Bon tricot!

24.11.2020 - 10:02

country flag Constantin wrote:

Le grammage ne correspond pas à la taille . Pour un s vous proposez 12 pelotes soit 600g et ca ne suffit pas du tout .j ai tout juste pu tricoter 1 manche le devant avec les points indiqués et pour le dos j ai du faire du jersey. J en suis a 30cm et il ne me reste que 3 pelotes. Donc pas assez pour terminer mon pull et de plus je ne trouve plus le même bain de laine. PS mes mesures et aiguilles correspondent. Pensez à revoir a la hausse le nombre de pelotes

02.10.2019 - 15:17

DROPS Design answered:

Bonjour Constantin, tricotez-vous bien avec DROPS Alaska? Comme vous pouvez le voir nous n'avons pas encore eu de tel retour sur ce modèle. C'est donc effectivement étrange, merci de bien vouloir contacter votre magasin en lui faisant parvenir une photo de votre ouvrage, pour qu'il puisse nous transmettre toutes ces informations, merci. Bon tricot!

02.10.2019 - 16:05

country flag Francis wrote:

Korrektur: Hallo! Ich verstehe nicht ganz wie a2 in der Hinreihe gestrickt wird. In der Rückreihe hat man das Muster X-Male bis man 2 Maschen hat, die eine Masche strickt wie die erste Masche der Reihe und die letzte wie immer kraus rechts. Die Hinreihe strickt man genauso oder fängt man mit der 1. Masche sozusagen zwei Mal an, sodass es symmetrisch im Muster ist. Bitte um Erklärung der Hinreihe! Liebe Grüße :)

24.08.2017 - 12:08

country flag Francis wrote:

Hallo! Ich verstehe nicht ganz wie a2 in der Rück-Reihe gestrickt wird. In der Hin-Reihe hat man das Muster X-Male bis man 2 Maschen hat, die eine Masche strickt wie die erste Masche der Reihe und die letzte wie immer kraus rechts. Die Rückreihe strickt man genauso oder fängt man mit der 1. Masche sozusagen zwei Mal an, sodass es symmetrisch im Muster ist. Bitte um Erklärung der Rückreihe! Liebe Grüße :)

24.08.2017 - 12:04

DROPS Design answered:

Lieber Francis, bei der Rückreihe stricken Sie die erste M in A.2 und dann A.2 stricken aber Diagram von links nach rechts bein allen Rückreihen lesen. Viel Spaß beim stricken!

28.08.2017 - 13:03

country flag Bellion Béatrice wrote:

Merci beaucoup pour vos réponses rapide

05.01.2017 - 16:37

country flag BELLION wrote:

Bonjour, ok merci de votre réponse rapide ce qui m'a enduit en erreur c'est que pour le dos il est noté tricoter ensuite A2 ( ier rang = sur l'envers) Merci

05.01.2017 - 14:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bellion, vous avez raison, le 1er rang de a.2 se fait sur l'envers donc au 3ème rang, on lit également de gauche à droite (= 7 m env, 1 m end), et au 4ème rang, de droite à gauche donc on aura: 2 m env, 5 m end, 1 m env. Bon tricot!

05.01.2017 - 16:24

country flag BELLION wrote:

Bonjour, Je voudrais savoir pour le le diagramme A2 si j'ai bien compris 1er rang = env 2eme rang = end 3eme rang = env c'est là que l'on commence avec le 1er point noir 4eme rang = end on commence avec 2 points noirs mise à part le point mousse du début Cordialement merci

04.01.2017 - 17:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bellion, lisez bien les diagrammes en commençant en bas à droite: de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers, ainsi au 3ème rang = sur l'endroit, on aura 1 m env, 7 m end. Au 4ème rang = sur l'envers: 1 m end, 5 m env, 2 m end et ainsi de suite. Bon tricot!

04.01.2017 - 17:29

country flag Anna Maria wrote:

I diagrammi A6 e A5 dove vanno inseriti? Grazie

15.09.2016 - 00:13

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna Maria. Dopo aver lavorato il diagramma A.7, lavora il motivo-1, come spiegato all'inizio del testo. In questo motivo-1 trova quando lavorare i diagrammi A.5 e A.6. Buon lavoro!

15.09.2016 - 07:09