DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 170-41
DROPS Design: Mynstur nr w-597
Garnflokkur C + C eða E
----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd: 61 - 73 cm.
Lengd: 100 - 123 cm.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
800-900 g litur nr 101, ljós blár

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 st x 6 umf verði 10 x 10 cm með 2 þráðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st eru heklaðar 3 ll til að snúa við með. Þessar 3 ll koma ekki í stað fyrsta st.
Í byrjun á hverri umf með tbst eru heklaðar 4 ll til að snúa við með.
Þessar 4 ll koma ekki í stað fyrsta tbst.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

MOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

MOTTA:
Heklið 87-104 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 6 með 2 þráðum af Paris.
Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 1 st og 3 ll til að snúa við með), heklið 1 st í hverja af næstu 6-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 10-13 sinnum til viðbótar = 73-87 st. Heklið nú mynstur frá umf 2 í mynsturteikningu þannig – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.1 (= 2 st), A.2 (= 14 st) 5-6 sinnum á breidd, A.3 (= 1 st). Þegar allt A.1-A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina eru haldið áfram frá 1. umf með A.4 yfir A.1, A.5 yfir A.2 og A.6 yfir A.3.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.X hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.X 1-2 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 77-101 cm. Haldið síðan áfram með 9 umf í A.4-A.6. Heklið nú 2 síðustu umf í A.X, heklið nú 2 umf með 1 st í hvern st. Stykkið mælist ca 100-123 cm á lengd. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 st í st
symbols = 1 st um ll/ll-boga
symbols = Heklið 2 st í einn st þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st til viðbótar í sama st, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
symbols = fyrsta umf er útskýrð í uppskrift
symbols = byrjið hér!
symbols = Heklið 1 st um ll-bogann á undan st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í st, en þegar bandið er dregið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni (= 1 l á heklunálinni), heklið 1 st í sama st, en bíðið með að draga bandi í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st um næsta ll-boga, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni.
symbols = Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrsta st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í næsta st, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni.
symbols = 1 tbst
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Lotta wrote:

Det är fel i A.X rad 5–10. I stället för 14 maskor så är det 15. Det är samma på rad 20, ovanför A.X. Vad gäller min fråga nedan så hittade jag svaret i en annan kommentar :)

18.03.2024 - 23:38

country flag Lotta wrote:

Hej, stämmer det verkligen att det ska vara 87 lm (lilla storleken)? När jag virkar 6 lm och hoppar över en, så blir det bara 72 st totalt, och inte 73. Vad gör jag för fel?

15.03.2024 - 19:04

DROPS Design answered:

Hej Lotta, det er svært at gætte sig til hvad som går fel, men du kan faktisk bare hækle 1 st mere, så du har hvad du skal bruge for at fortsætte :)

19.03.2024 - 12:29

country flag DUMONT Maryline wrote:

Modèle 170-41 Bonjour, apparemment vous ne mettez pas à combien de brides commencer le diagramme afin que cela soit bien répartit afin de centrer le point fantaisie Merci pour votre réponse

28.02.2023 - 16:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dumont, suivez bien les explications pour bien placer les motifs sur vos 73-87 brides, autrement dit, crochetez ainsi: A.1 (= 2 brides), répétez ensuite 5-6 fois les 14 brides de A.2 et terminez par la bride de A.3 . Sur l'envers, lisez les diagrammes de gauche à droite en commençant par A.3, puis A.2 et terminez par A.1. Bon crochet!

28.02.2023 - 17:55

country flag Astrid wrote:

Bonjour, J'ai fait 104 mailles en l'air, puis j'ai fait une bribe dans les deux mailles suivantes et sauté une maille, pour ensuite recommencer. Je l'ai fait 34 fois (jusqu'à la fin) et je me retrouve avec seulement 71 brides. Je ne comprends pas ce que je suis censée faire. SI vous pouviez m'aider. Merci beaucoup.

06.07.2022 - 11:44

DROPS Design answered:

Bonjour Astrid, procédez ainsi: 1 bride dans la 4ème ml à partir du crochet (= 1 bride/4 ml), 1 bride dans chacune des 2 ml suivantes (= 2 brides/2 ml), puis répétez 14 fois (sautez 1 ml, 1 bride dans chacune des 6 ml suivantes), vous avez ainsi crocheté: 4+2+ (7*14)=104 ml et vous avez 1+2+ (14*6)=87 brides. Bon crochet!

06.07.2022 - 14:20

country flag Mirella wrote:

Non riesco a capire come devo procedere con il primo giro, cosa significa Lavorare la prima riga come segue: 1 m.a nella 4a cat dall’uncinetto (= 1 m.a e 3 cat per girare il lavoro), 1 m.a in ognuna delle 6-2 cat successive, . Cosa significa il -2cat.? Grazie infinite

08.12.2021 - 11:32

DROPS Design answered:

Buongiorno Mirella, i numeri doppi tipo 6-2 indicano i numeri di maglie per le diverse taglie, in questo caso 6 catenelle per la taglia più piccola e 2 catenelle per quella più grande. Buon lavoro!

08.12.2021 - 18:10

country flag Pirjo wrote:

Bonjour, Je voudrais réaliser ce modèle avec Drops loves you 7. Combien de pelotes me faudrait-il pour avoir à peu près la même épaisseur ? Je vois que dans ce modèle on utilise Drops Paris en double avec un crochet n°6. Me faudrait-il tripler Drops loves you7 pour la crocheter avec le n°6? Amicalement Pirjo

17.06.2021 - 18:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pirjo, comme DROPS loves you 7 est du groupe A (= 2 fils groupe A = 1 fil groupe C), vous remplacerez ici 2 fils DROPS Paris par 4 fils DROPS loves you 7, vous trouverez ici comment calculer la nouvelle quantité. Bon crochet!

18.06.2021 - 07:40

country flag DENEVE Marie-Ange wrote:

Bonjour, je suis en train de crocheter ce tapis j'ai un problème avec le diagramme A1 A2 A3, comment dois je les répartir sur les 73 mailles pour obtenir un motif identique à votre modèle, le souci se trouve sur le V à l'envers du motif, combien de mailles restent entre chaque V en haut du travail. Merci pour votre réponse. Cordialement

15.03.2021 - 15:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Deneve, vous devez crocheter les 73 brides ainsi: A.1 (= début de rang sur l'endroit/fin de rang sur l'envers) = 2 brides, puis vous répétez 5 fois les 14 brides de A.2 et terminez par A.3 (1 bride) en fin de rang sur l'endroit (début de rang sur l'envers). autrement dit: 2 + 5x14 + 1 = 73 brides. Bon crochet!

15.03.2021 - 15:21

country flag Hilde Demolder wrote:

Beste, Ik wil het karpetje maken in de kleinste maat (61cm breed, 100cm lang). Op de foto zie ik een tapijtje met 4 patronen in de breedte. Als ik de instructies volg voor de kleinste maat, bekom ik een breedte van 73cm, (zoals de grootste maat) en met 5 patronen naast elkaar. Ik ben herbegonnen. Ik heb zelf omgerekend voor 4 patronen, en nu is mijn werkstuk 61 cm breed, zoals ik het wou. Er zit dus een foutje in de beschrijving.

31.08.2020 - 20:33

country flag Megan wrote:

Hi! I have noticed something: the fact that the pattern starts with two trebles and finishes with just one fits very well with the double trebles row, but on rows with the lace pattern, the first repetition in particular is very tight because the pattern requires to fit the two initial trebles on the one treble that ended the previous row. Any suggestions? Thanks for your amazing patterns. Megan

07.05.2020 - 21:01

DROPS Design answered:

Dear Mega, I'm not sure to understand properly your question sorry, but have you watched the video to A.1, A.2, A.3? This might help you to get the pattern right. Make sure to check and keep correct tension. Happy crocheting!

08.05.2020 - 09:00

country flag Lucia DAndrade wrote:

No entiendo porqué pide saltar 1 cad en la primera vuelta (* skip ch 1, work 1 dc in each of the next 6 ch *, repeat from *-* ).... espero su respuesta Gracias!

07.10.2019 - 17:53

DROPS Design answered:

Hola Lucia! Los puntos de cadena son ligeramente más angostos que otros puntos, y para evitar trabajar la orilla de montaje demasiado apretada, simplemente montamos más puntos para comenzar. El número de puntos será ajustado en la hilera siguiente para corresponder con el patrón y el esquema de medidas. Buen trabajo!

08.10.2019 - 18:36