DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Vintage Rose

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPD Flora með hringlaga berustykki og rósamynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 165-9
DROPS Design: Mynstur nr z-715
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 9020, ljós perlugrár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 4305, fjólublár/grár/blár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 2921, kirsuber

Eða notið:
DROPS FLORA frá Garnstudio
250-300-350-350-400-450 g nr 03, ljós grár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 10, indigo
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 19, kórall

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 2,5 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum fyrir aðsnið við 4 prjónamerkin.
Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l á undan prjónamerki og takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út við 4 prjónamerki.
Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo ekki myndist gat.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Br yfir sl og sl yfir br.
Endurtakið umf 2.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum á eftir A.2: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan A.2 þannig: Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 208-224-240-272-288-320 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár/ljós grár.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.1 (= 13-14-15-17-18-20 mynstureiningar í umf). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umf sl þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 206-222-242-266-290-318 l. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 25-28-31-36-42-48 l, 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 53-55-59-61-61-63 l, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 50-56-62-72-84-96 l og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 53-55-59-61-61-63 l (nú eru 25-28-31-36-42-48 l eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki).
Í næstu umf er lykkjum fækkað við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 178-194-214-238-266-294 l. Þegar stykkið mælist 24 cm í öllum stærðum er aukið út við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-4.-.4.-6.-6. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 206-222-242-266-290-318 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-37-38-39-39-41 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-5-6-6-6 l fyrir handveg, prjónið 93-101-111-121-133-147 l sléttprjón (= framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 93-101-111-121-133-147 l sléttprjón (= bakstykki) og fellið af síðustu 5-5-5-6-6-6 l fyrir handveg, klippið frá. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-56-58-60-62-62 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár/ljós grár. Prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 3-3-3-4-4-4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-10-10-10-10-10 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-18 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 42-42-41-41-40-40 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki og prjónið með litnum ljós perlugrár/ljós grár þannig: Prjónið l af fyrri erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá framstykki, prjónið l frá hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið að lokum l frá bakstykki = 326-350-374-402-430-466 l í umf og 4 prjónamerki í stykkinu.
Prjónið síðan sléttprjón með A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri sýna l með prjónamerki í). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umf alls 5-6-7-7-8-8 sinnum = 286-302-318-346-366-402 l í umf. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf slétt þar sem fækkað er um 14-14-14-10-14-18 l jafnt yfir = 272-288-304-336-352-384 l á prjóni. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.3 (= 17-18-19-21-22-24 mynstureiningar 16 l). Haldið áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (endið á eftir umf merktri með ör í réttri stærð), eru 136-144-152-168-176-192 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt með kirsuberjarauður þar sem fækkað er um 22-28-30-42-50-56 l jafnt yfir = 114-116-122-126-126-136 l eftir á prjóni.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þannig: Byrjið frá réttu með litnum ljós perlugrár/ljós grár og prjónið l af hægra framstykki, prjónið síðan l frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá bakstykki, prjónið l af hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið til loka l frá vinstra framstykki = 335-359-383-411-439-475 l á prjóni og 4 prjónamerki í stykkið.
Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.2 í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri sýna l með prjónamerki í, 1. umf í A.2 byrjar í næstu umf frá réttu).
JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 5-6-7-7-8-8 sinnum = 295-311-327-355-375-411 l á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) er fækkað um 13-13-13-9-13-17 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 282-298-314-346-362-394 l á prjóni. Í næstu umf er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.3 þar til 5 l eru eftir á prjóni (= 17-18-19-21-22-24 mynstureiningar ca 16 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (endið eftir umf merktri með ör fyrir rétta stærð), eru 146-154-162-178-186-202 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu með litnum kirsuber (kantar að framan halda áfram í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 22-28-30-42-50-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 124-126-132-136-136-146 l eftir á prjóni.

UPPHÆKKUN AÐ AFTAN VIÐ HNAKKA:
Til þess að flíkið felli betur að þá er prjónuð upphækkun aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Prjónið 1 umf slétt með litnum fjólublár/grár/blár eða indigo. Prjónið síðan sl þar til prjónaðar hafa verið 10-11-12-12-12-13 l framyfir prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 20-22-24-24-24-26 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 30-33-36-36-36-39 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 40-44-48-48-48-52 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 50-55-60-60-60-65 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 60-66-72-72-72-78 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 70-77-84-84-84-91 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 80-88-96-96-96-104 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka frá miðju að aftan.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf sl með litnum fjólublár/grár/blár þar sem fækkað er um 10-10-10-12-12-12 l jafnt yfir = 104-106-112-114-114-124 l á prjóni. Prjónið nú mynstur hringinn eftir A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er fellt laust af með sl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.
----------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR:
Sjá DROPS 165-10.

Mynstur

symbols = slétt með litnum ljós perlugrár eða ljós grár í mynstri A.1-A.3, fjólublár/grá/blár eða indigo í mynstri A.4
symbols = brugðið með litnum ljós perlugrár eða ljós grár í mynstri A.1-A.3, fjólublár/grár/blár eða indigo í mynstri A.4
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman með grunnlit í mynstri
symbols = 2 lykkjur brugðið saman með ljós perlugrár eða ljós grár
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman með litnum ljós perlugrár eða ljós grár, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = 3 lykkjur brugðið saman með litnum ljós perlugrár eða ljós grár
symbols = slétt með litnum fjólublár/grár/blár eða indigo
symbols = slétt með litnum kirsuber eða kórall
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Britt-Inger Johansson wrote:

Jag förstår heller inte hur jag skall sticka första varvet med raglan och A2. Jag gör raglanintagningen på stycket innan första ärmen, stickar ihop 2 m rätt. Sedan visar A2 tre maskor där m med markering är i mitten .Hur löser jag detta, markeringsmaskan är ju ytterst på min ärm? Hoppas att ni förstår min fråga och kan hjälpa.

06.01.2022 - 17:06

DROPS Design answered:

Hej Britt-Inger, du minskar på varje sida om A.2, se RAGLAN: Det minskas till raglan på varje sida av A.2 i varje övergång mellan fram- och bakst och ärmar. Minska så här efter A.2: Lyft 1 m som om den skulle stickas rät, 1 rm, drag den lyfta m över. Minska så här före A.2: Börja 2 m före A.2 och sticka 2 m räta tills.

17.01.2022 - 10:17

country flag Anne Munkebyaune wrote:

Ups! Nå ser jeg at det står jo 3 cm med perlestrikk. Beklager at jeg overså dette først. :)

30.10.2021 - 22:24

country flag Anne Munkebyaune wrote:

Ermene startet med perlestrikk, men det står ikke hvor langt man skal strikke dette. I forklaringen til perlestrikk står det at man skal "gjenta 2. omg." Menes det at man skal gjenta de to omgangene, altså 4 omganger til sammen? Jeg synes det ser ut som at feltet med perlestrikk er lenger på bildet.

30.10.2021 - 20:29

DROPS Design answered:

Hei Anne. I oppskriften under ERME står det: "Deretter strikkes det PERLESTRIKK – se forkl over i 3-3-3-4-4-4 cm." Avhengig av hvilken str du strikker, men 3 eller 4 cm. For å strikke perlestrikk, gjentas forklaringen til perlestrikk (som består av 2 omganger) til arbeidet måler enten 3 cm eller 4 cm. mvh DROPS Design

01.11.2021 - 11:40

country flag Anne-Mari Birkeland wrote:

Vanskelig å forstå A2 (mønster 3 masker + 1 kast på hver side). Blir det f.eks 1 kast og 1 maske på ermen og videre 2 maske +1 kast på bolen??. Har lest mange oppskrifter men denne ble for vanskelig for meg å tolke.

13.10.2021 - 16:05

DROPS Design answered:

Hej Anne-Mari. A.2 är raglanlinje mellan styckena. Så när du ska felle till raglan gör du det på hver side av A.2. Mvh DROPS Design

15.10.2021 - 12:19

country flag Anne Cooley wrote:

Thank you for your very prompt response. However it did not answer my question re Vintage Rose pullover. I know where to place the markers but need to know what to do when starting to do the A2 and raglan decreases as the psso happens around the marker and I can’t work out where it should be replaced. I have tried twice and had to rip many rows out as it doesn’t look right at all. Sorry I didn’t give more information last time. Many thanks.

06.09.2021 - 18:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cooley, you will decrease for the raglan on each side of A.2, work until 2 sts remain before A.2, K2 tog, work A.2 as before, slip 1 as if to K, K1, psso = you have decreased 1 stitch on each side of A.2 - repeat at each A.2 /each transiton between body and sleeve. Can this help?

07.09.2021 - 08:17

country flag Anne Cooley wrote:

Hi I am struggling with the rows after joining the sleeves to the body. I follow the instructions but I think placing the marker is confusing me. Do you have a tutorial on this.

05.09.2021 - 15:01

DROPS Design answered:

Dear Anne, you need to place a stitch marker in the first and last stitch of each sleeve, where you will work the decreases for the yoke later on. Happy knitting!

05.09.2021 - 16:49

country flag Martine Fournière wrote:

Bonjour, Je suis en train de réaliser ce modèle et je prend grand plaisir à le réaliser. Une fois terminé cela va être superbe et je pense qu'il aura un beau rendu. Merci pour tout vos magnifiques modèles. Cordialement Martine

03.01.2021 - 23:26

country flag Karin wrote:

Habe gerade Pulli angefangen. Wenn ich Muster A1 stricke, dann ist das doch zweifarbig. Warum ist der Anfang des Rumpfes auf dem Foto einfarbig gestrickt. Danke für Antwort

20.11.2020 - 22:47

DROPS Design answered:

Liebe Karin, wenn Sie A.1 stricken, lesen Sie die 2 ersten Symbol wie erklärt = leeres Kästchen = 1 M re mit hell perlgrau / kreuz = 1 M li mit hell perlgrau. - Kreuz wird dunkel indigo/indigo nur wenn Sie A.4 stricken. Viel Spaß beim stricken!

23.11.2020 - 08:23

country flag Véronique Kuyle wrote:

RE Bonjour , Je vous pose la même question pour le diagramme A3 ! En fait , je ne souhaite pas avoir de "jours , trous " dans mon pull !!!! Merci encore ;

12.08.2020 - 12:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kuyle, pour éviter les jours de A.3 tricotez en jersey les 3 m des jours (= 1 jeté, glissez 1 m, 2 m ens à l'end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée, 1 jeté) - autrement dit, tricotez toutes les mailles à l'endroit au 15ème tour de A.3 et au 35ème rang de A.3, commencez chaque A.3 par 2 m ens à l'end (= diminution pour l'empiècement), mais ne tricotez pas les jours comme au 15ème tour. Bon tricot!

12.08.2020 - 13:50

country flag Véronique Kuyle wrote:

Bonjour , Pour le raglan , puis éviter de faire le A2 afin de ne pas avoir les trous ? Donc , tricoter les diminutions prévues à chaque marqueur ? En vous remerciant par avance , Véronique .

12.08.2020 - 12:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kuyle, vous ne voulez pas les jours de A.2 à chaque raglan? Tricotez simplement les 3 mailles de A.2 en jersey, ainsi vous n'aurez pas les trous - et diminuez de chaque côté de chaque A.2 = des 3 mailles jersey à chaque transition. Bon tricot!

12.08.2020 - 13:46