DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Vintage Rose Cardigan

Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu með hringlaga berustykki og rósamynstri sem og handstúkum með rósamynstri úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL

DROPS 165-10
DROPS Design: Mynstur nr z-716
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 9020, ljós perlugrár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 4305, fjólublár/grár/blár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 2921, kirsuber

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 8 stk í allar stærðir.

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - L/XL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50 gr litur nr 9020, ljós perlugrár (32-36 gr)
50-50 gr litur nr 4305, fjólublár/grár/blár (8-10 gr)
50-50 gr litur nr 2921, kirsuber (3-3 gr)

Tölurnar í (-) sýna ca hversu mörg grömm þarf af hverjum lit ef prjónað er með afgangs garni.

DROPS SOKKPARJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26, 34, 41, 48 og 55 cm
STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 57 cm
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 59 cm
STÆRÐ XL: 2, 10, 19, 27, 36, 44, 53 og 61 cm
STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 55 og 63 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 56 og 65 cm

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum fyrir aðsnið við 4 prjónamerkin. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út við 4 prjónamerki. Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Br yfir sl og sl yfir br.
Endurtakið umf 2.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir A.2: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan A.2 þannig: Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 217-233-249-281-297-329 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár.
Prjónið 3 umf sl, skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf br frá röngu, en síðustu 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar slétt.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 20 l eru eftir á prjóni, prjónið 15 fyrstu l í A.1 (svo að mynstrin verði alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 215-231-251-275-299-327 l (lykkjum er ekki fækkað/aukið út yfir kant að framan). Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerkið er sett eftir fyrstu 31-32-34-35-35-36 l, 2. prjónamerkið er sett á eftir næstu 50-56-62-72-84-96 l, 3. prjónamerkið er sett á eftir næstu 53-55-59-61-61-63 l og 4. prjónamerkið er sett á eftir næstu 50-56-62-72-84-96 l (nú eru 31-32-34-35-35-36 l eftir á prjóni eftir síðasta prjónamerkið).
Í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 187-203-223-247-275-303 l. Þegar stykkið mælist 24 cm í öllum stærðum er aukið út við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-4.-4.-6.-6. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 215-231-251-275-299-327 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-37-38-39-39-41 cm.
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 51-55-60-65-71-78 l (= vinstra framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 93-101-111-121-133-147 l sléttprjón (= bakstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg og prjónið síðustu 51-55-60-65-71-78 l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-56-58-60-62-62 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 3-3-3-4-4-4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-10-10-10-10-10 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-18 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 42-42-41-41-40-40 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þannig: Byrjið frá réttu með litnum ljós perlugrár og prjónið l af hægra framstykki, prjónið síðan l frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá bakstykki, prjónið l af hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið til loka l frá vinstra framstykki = 335-359-383-411-439-475 l á prjóni og 4 prjónamerki í stykkið.
Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.2 í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri sýna l með prjónamerki í, 1. umf í A.2 byrjar í næstu umf frá réttu).
JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 5-6-7-7-8-8 sinnum = 295-311-327-355-375-411 l á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) er fækkað um 13-13-13-9-13-17 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 282-298-314-346-362-394 l á prjóni. Í næstu umf er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.3 þar til 5 l eru eftir á prjóni (= 17-18-19-21-22-24 mynstureiningar ca 16 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (endið eftir umf merktri með ör fyrir rétta stærð), eru 146-154-162-178-186-202 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu með kirsuberjarauður (kantar að framan halda áfram í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 22-28-30-42-50-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 124-126-132-136-136-146 l eftir á prjóni.

UPPHÆKKUN AÐ AFTAN Í HNAKKA:
Byrjið frá réttu með litnum fjólublár/grár/blár og prjónið sl þar til 18-18-20-22-22-24 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 18-18-20-22-22-24 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 28-28-30-32-32-34 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 28-28-30-32-32-34 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 38-38-40-42-42-44 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 38-38-40-42-42-44 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 48-48-50-52-52-54 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 48-48-50-52-52-54 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl út umf.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf sl frá röngu með litnum fjólublár/grár/blár þar sem fækkað er um 10-10-10-12-12-12 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 114-116-122-124-124-134 l á prjóni.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 þar til 5 l eru eftir á prjóni og endið á 5 kantlykkjum að framan. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er fellt laust af með sl frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.5.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Til að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn sl í næstu umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 65-70 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 3 l br). Eftir 4 umf stroff eru allar 3 l br fækkaðar til 2 l br með því að prjóna 2 fyrstu l í hverri br mynstureiningu br saman = 52-56 l. Haldið áfram með stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 5-6 cm. Prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 7-11 l jafnt yfir = 45-45 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið sléttprjón með litnum ljós perlugrár. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11 cm er prjónað mynstur í hring á eftir mynstri A.5 (= 3 mynstureiningar í umf í báðum stærðum). Þegar stykkið mælist 14-14 cm byrjar útaukning á opi fyrir þumal. Aukið út um 1 l hvoru megin við næst síðustu l í umf (þ.e.a.s. innan í lófa) – LESIÐ ÚTAUKNING (útauknar lykkjur eru prjónaðar með litnum ljós perlugrár). Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknu l í 3. hverri umf, alls 6-7 sinnum = 13-15 þumal-l og 57-59 l alls. Þegar stykkið mælist 19-20 cm er þumal-l + 1 l sett hvoru megin við þessar lykkjur á þráð (= 15-17 l á þræði). Fitjið upp 3 nýjar l aftan við þumal í næstu umf = 45-45 l á prjóni. Prjónið A.5 til loka. Prjónið síðan 1 umf sl með litnum kirsuber þar sem aukið er út um 11-15 l jafnt yfir = 56-60 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og litnum fjólublár/grár/blár. Prjónið 6-8 umf stroff hringinn (= 1 l sl, 1 l br). Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Handstúkan mælist ca 25-26 cm.

ÞUMALL:
Allur þumallinn er prjónaður með litnum ljós perlugrár. Setjið til baka l af þræði á prjóna nr 3 og prjónið að auki upp 5-7 l í kant á bakhlið á þumallykkjum = 20-24 l á prjóni. Prjónið 3 umf sléttprjón hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið 6 umf stroff (= 1 l sl, 1 l br). Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

VINSTRI HANDSTÚKA:
Prjónið á sama hátt og hægri handstúka, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við hina l í umf (í stað hvoru megin við næst síðustu l í umf).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.10.2016
UPPHÆKKUN AÐ AFTAN VIÐ HNAKKA:
Byrjið frá réttu með fjólubláum/gráum/bláum og prjónið sl þar til 18-18-20-22-22-24 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 18-18-20-22-22-24 l eru eftir á hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 28-28-30-32-32-34 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 28-28-30-32-32-34 l eru eftir á hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 38-38-40-42-42-44 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 38-38-40-42-42-44 l eru eftir á hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 48-48-50-52-52-54 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið br til baka þar til 48-48-50-52-52-54 l eru eftir á hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl út umf.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með litnum ljós perlugrár í mynstri A.1-A.3, fjólublár/grár/blár í mynstri A.4
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu með litnum ljós perlugrár í mynstri A.1-A.3, fjólublár/grár/blár í mynstri A.4
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman með grunnlit í mynstri
symbols = 2 lykkjur brugðið saman með litnum ljós perlugrár
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman með litnum ljós perlugrár, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = 3 lykkjur brugðið saman með litnum ljós perlugrár
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með litnum fjólublár/grár/blár
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með litnum kirsuber
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Yvonne Bengtsson wrote:

Hej igen! Löste problemet genom att läsa, läsa och läsa igen..... det står inte i beskrivningen att man skall göra A2 tills alla intagningar i raglan. Men, så är det förstår jag nu....

16.05.2022 - 08:44

DROPS Design answered:

Hei hei. God fornøyelse videre med koftan. mvh DROPS Design

16.05.2022 - 10:30

country flag Yvonne Bengtsson wrote:

Hej! Ang raglan: Det står minska vart 4:e varv (d v s på vartannat v från rätsidan) totalt 7 ggr (gäller min storlek). Då har jag alltså minskat 3 ggr och jag är klar med A2. Men då återstår det 4 minskningar för att få rätt antal. Ser på bilden att mönstret A3 kommer direkt efter A2. Skulle jag alltså ha minskat 7 ggr i A2? Alltså varje rätt varv i stället för vartannat rätt varv?

15.05.2022 - 11:22

DROPS Design answered:

Hei Yvonne. Så bra at du fant ut av det selv. Da ble det ingen stopp i strikkingen i helgen. mvh DROPS Design

16.05.2022 - 10:30

country flag Christine wrote:

Hi,I have joined the sleeves and have started the yoke. I think I understand that A2 and decrease for the raglan have to be done in the same row. Then it says decrease for raglan every 4 rows but A2 is 2 row repeat. Please explain where the every 4 row decrease for the raglan is required. I have looked at the photo and worked out the number of stitches but can't understand.

10.02.2022 - 17:14

DROPS Design answered:

Dear Christine, A.2 has to be worked at each transition between body and sleeves, but you don't decrease in A.2 you just work some eyelets at each transition of the raglan; then you decrease for the raglan on each side of A.2 - see RAGLAN on every 4th row, ie every other row from RS (= every other row with a lace pattern in A.2). You will then decrease evenly and now work A.3. Happy knitting!

11.02.2022 - 08:59

country flag Martine Fournière wrote:

Bonjour, super merci beaucoup pour vos explications, j'ai enfin compris je vais pouvoir faire mes jolies mitaines. Cordialement Martine

07.09.2021 - 10:33

country flag Martine Fournière wrote:

Bonjour, je vous remercie pour la réponse, mais cela ne répond pas à ma question... Hors mis le 3 mailles de départ du pouce, Je n'ai que 44 mailles pour mon dessin alors qu'il en faut 45 ! Alors dois-je rajouter une maille ? Merci pour votre réponse. Cordialement Martine

06.09.2021 - 21:39

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, vous ne rajoutez pas de mailles, vous tricotez le motif comme avant, mais sur ces 44 mailles, Autrement dit, vous avez 44 mailles en jacquard absolument comme avant et la 45ème m (= l'avant-dernière maille du tour) en jersey pour le pouce. Dans le dernier motif du tour, vous allez donc tricoter les 13 premières mailles en jacquard (la 14ème m = celle du pouce; la 15ème = la dernière m du tour à tricoter soit en jacquard, soit en jersey si vous le préférez), autrement dit, cette dernière rose ne sera pas complète. Bon tricot!

07.09.2021 - 08:22

country flag Martine Fournière wrote:

Bonjour, pour les mitaines lorsque l'on commence les augmentations du pouces j'ai'l'avant dernière mail plus une augmentation de chaque côté, donc 3 mailles il me reste donc 44 mailles pour mon dessin et la ça tombe pas juste car le diagramme A5 se fait sur 45 mailles. Merci pour votre aide. Cordialement Martine

05.09.2021 - 22:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fournière, les augmentations pour le pouce se tricotent en jersey gris perle clair, pas en jacquard, autrement dit, vous continuez votre jacquard comme avant sur les autres mailles, mais les mailles du pouce vont se tricoter elles toujours à l'endroit, sans jacquard. Bon tricot!

06.09.2021 - 08:05

country flag Camilla Nyholm wrote:

Hej! Hittar ingen beskrivning i diagramförklaringen vad tecknet tjockt snedstreck från vänster nedre hörn upp till höger övre hörn över 2 maskor, vad det betyder. Hur skall detta tecken läsas? Hittar inget omslagstecken där heller. Detta streck finns i diagram A.1 och här fastnar jag. Tacksam för svar.

10.11.2020 - 07:31

DROPS Design answered:

Hej Camilla. Det är den 4:e symbolen i symbolförklaringen som betyder "2 m räta tills med bottenfärgen i mönstret". Mvh DROPS Design

10.11.2020 - 11:25

country flag Ricci wrote:

Bonjour, j ai fini le pull Vintage Rose, tres sympa à réaliser malgré quelques hésitations, mais vous m avez bien guidé et conseillé et surtout éclairé. Merci encore ! Je voudrais me lancer dans les mitaines mais je souhaiterais les faire en gants plutôt. Est-ce possible ? Si oui pourriez-vous m orienter vers un modèle de gants que je pourrais adapter à ce modèle pour faire les doigts ! Je vous remercie de vos conseils toujours tres précieux.

31.01.2020 - 14:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ricci et merci. Vous pouvez probablement les transformer en gants, pensez à ajuster les rayures de la fin des mitaines en conséquence (si vous souhaitez les conserver ou non), vous pouvez vous inspirer d'un modèle avec la même tension (24 m = 10 cm). Bon tricot!

31.01.2020 - 14:48

country flag Agathe wrote:

Bonjour, Lorsqu'il est indiqué "tricoter ensuite les 15 premières m de A.1 (pour que le motif soit identique de chaque côté)" dans les instructions du corps, est-ce qu'il faut lire le diagramme à l'envers (de gauche à droite)? Ou plutôt tricoter les 15 dernières mailles de A1. J'ai l'impression que le motif ne serait pas symétrique si on commence toujours au début (à droite) de A1. J'espère que ma question est compréhensible! Merci pour votre aide

21.07.2019 - 17:15

DROPS Design answered:

Bonjour Agathe, vous allez lire le diagramme tous les rangs de droite à gauche (sur l'endroit) et de gauche à droite (sur l'envers), et tricoter ainsi: répétez les 16 m de A.1 et terminez par les 15 premières mailles de A.1 seulement, autrement dit, dans le dernier A.1 sur l'endroit, on va terminer par 2 m end au lieu de 3 au premier rang (= ainsi on a 2 m end de chaque côté des bordures des devants). Bon tricot!

06.08.2019 - 09:06

country flag Mila G. wrote:

Danke Euch allen vielmals!!!😀 So dachte ich mir auch, wollte aber sicher gehen!

24.01.2019 - 10:57