DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 162-21
DROPS Design: Mynstur nr e-233
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
800-900-1000 gr litur nr 17, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf verði 10 x 10 cm. 1 heklaður ferningur mælist ca 22 x 22 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar með 1 kl í ll frá byrjun umf.
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

KÖGUR:
1 KÖGUR = Klippið 2 þræði ca 40 cm. Leggið þá saman tvöfalda og dragið lykkjuna í gegnum ll-bogann og dragið síðan þræðina inn í gegnum lykkjuna. Klippið kögrið þannig að það verði ca 19 cm langt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Heklið 34 ferninga, áður en þeir eru saumaðir saman til fram- og bakstykki. Heklið síðan netamynstur mismunandi eftir stærðum.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Heklið ferning þannig – sjá mynsturteikningu A.1:
Heklið 5 ll með Safran með heklunál nr 3,5 og tengið saman í hring með 1 kl.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), heklið síðan 2 st um ll-hringinn, * 3 ll, 3 st um ll-hringinn * endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar, 3 ll, 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, 1 kl í hverja af næstu 3 l (þ.e.a.s. 1 kl í 2. næstu st, 1 kl í næstu ll).
UMFERÐ 2: 3 ll (= 1 st), 2 st um ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* (= A.1) 2 sinnum til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, 1 kl í hverja og eina af 3 næstu l.
UMFERÐ 3: 3 ll (= 1 st), 2 st um ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* (= A.1) 2 sinnum til viðbótar, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, 1 kl í hverja af næstu 3 l.
UMFERÐ 4-9: Haldið áfram eins og útskýrt er í mynstri. Endurtakið A.1 alls 4 sinnum í umf, en endið eins og útskýrt er í mynstri. Þ.e.a.s. síðasti st-hópur í horni í A.1 er ekki heklaður í 4. Skiptið þegar A.1 er endurtekið. Endið hverja umf með 1 kl í 3. ll í umf og 1 kl í næstu 3 l.
UMFERÐ 10: Heklið 1 ll, 2 fl um ll-bogann, 3 ll, 2 fl um sama ll-boga, haldið síðan áfram eins og útskýrt er í A.1. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf, 1 kl í hverja og eina af 2 næstu l.
UMFERÐ 11: 8 ll (= 1 st + 5 ll), 1 st um ll-bogann, haldið síðan áfram eins og sýnt er í A.1. Endið á 1 kl í 3. ll í umf. Klippið frá og festið enda. Heklið 3 ferninga til viðbótar alveg eins (= 34 ferningar).

FRÁGANGUR:
Saumið saman hekluðu ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Nú er komið 1 bakstykki, 2 framstykki (gagnstæð/spegilmynd) og 2 lausir ferningar fyrir vasa.

VASAR:
Heklið styrktarkant í kringum ferninginn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR: Byrjið á 1 kl í horni á ferningi og heklið (1 fl, 4 ll, 1 fl) um ll-boga. Haldið síðan áfram þannig: * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* fram að næsta horni og endið á 1 ll. Haldið svona áfram í kringum allan ferninginn og endið á 1 kl í fyrstu l í umf. Saumið vasa á hvort framstykki, staðsetjið ofan á sauminn á milli fernings 20 og 21 – sjá teikningu! Saumið í gegnum bæði stykkin meðfram hliðum og botn á ferningum.

ÖXL:
Byrjið á 1 kl í ll-boga í horni á 5. ferningi – sjá mynsturteikningu.
S/M: Heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* yfir 5. -1. ferning. ATH: Nú er hekluð 1 fl í sauminn á milli ferninga. Endið á 1 ll og 1 fl um síðasta ll-boga í 1. ferningi.
L/XL – XXL/XXXL:
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* yfir 5.-1. ferning. ATH: Nú er heklaður 1 st í sauminn á milli ferninga. Endið á 1 ll og 1 st um síðasta ll-boga í 1. ferningi. Snúið við og heklið svona fram og til baka þar til netamynstur hefur verið heklað í 2-4 cm.
ALLAR STÆRÐIR: Hekli öxl alveg eins á báðum framstykkjum, þ.e.a.s. yfir 17.-15. ferning.
Saumið axlasauma. Saumið saman 2 síðustu ferninga í hvorri hlið á bakstykki með 2 síðustu ferningum á hvoru framstykki = 1 ferningur fyrir hálsmáli.

HLIÐAR:
Byrjið á 1 kl í ll-bogann í hroni á 14. ferningi – sjá mynsturteikningu.
S/M: Heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* yfir 14., 11. og 8. ferning og haldið síðan áfram undir ermum (= 5. ferningur).
L/XL – XXL/XXXL: Heklið 3 ll, * 1 ll, hoppið yfir 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið yfir 14., 11. Og 8. Ferning. Snúið við og heklið alveg eins fram og til baka þar til netamynstur hefur verið heklað í 4-8 cm.
ALLAR STÆRÐIR: Heklið alveg eins í hinni hliðinni, endurtakið í hlið á hvoru framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum. Heklið kant í kringum kanti að framan og hálsmáli: Byrjið á 1 kl í horni (A). Heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* meðfram kanti að framan og upp að horni (B), heklið 4 ll í horn (B) og haldið síðan áfram í kringum hálsmál. Heklið alveg eins meðfram hinum kantinum að framan. Klippið frá og festið enda. Setjið KÖGUR – sjá útskýringu að ofan, í annan hvern ll-boga frá röngu á milli 19. og 17. fernings. Endurtakið á hinu framstykki.

KANTUR NEÐST NIÐRI:
Heklið kant neðst niðri með byrjun frá réttu. Byrjið á 1 kl í ll-boga í horni á framstykki, haldið áfram yfir bakstykki og að lokum yfir seinna framstykki.
S/M: Heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið meðfram öllum neðri kanti.
L/XL – XXL/XXXL: Heklið 3 ll, * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kanti að neðan, snúið við og heklið alveg eins fram og til baka í 2-4 cm.

KANTUR Á ERMUM:
Heklið kant í kringum ermar. Byrjið á 1 kl fyrir miðju undir ermi og heklið frá réttu þannig:
S/M: 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið í kringum allan kantinn á ermi og endið á 1 ll, 1 kl í fyrstu ll í umf.
Endurtakið á hinni erminni alveg eins.
L/XL - XXL/XXXL: 3 ll, * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið í kringum allan kantinn á ermi og endið á 1 ll, 1 kl í 3. ll í umf. Haldið svona áfram þar til kanturinn mælist 2-4 cm. Endurtakið á hinni erminni alveg eins.

Mynstur

symbols = ll
symbols = kl
symbols = st um ll-boga
symbols = st í l
symbols = fl um ll-boga
symbols = fl í l
symbols = byrjið hér
symbols = byrjið hér þegar axlir eru heklaðar
symbols = byrjið hér þegar hliðar eru heklaðar
symbols = byrjið hér þegar kantur að neðan er heklaður
symbols = byrjið hér þegar kantur á ermum er heklaður
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Julie wrote:

Hi Can you tell me if you block the squares before you attach them together Many thanks Julie

30.05.2023 - 23:46

DROPS Design answered:

Dear Julie, some crocheters (and knitters) block everything, some other don't, so just find your own way to do as you rather; feel free to ask your yarn store for more advices, they will help you even per mail or telephone. Happy crocheting!

31.05.2023 - 08:20

country flag Hilde wrote:

Beste als ik op de diagram kijk zie ik voor de rug 5 vierkanten en een half voorpand 3 vierkanten. War mij dus voorkant in totaal op 6 vierkanten brengt en mijn vest dus niet uitkomt. Of ik moest iets verkeerd geïnterpreteerd hebben. Graag feedback. Met vriendelijke groeten Hilde

06.09.2022 - 18:34

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Bij het voorpand zit een overlap in het midden. Je naait vanaf de opening voor de mouwen richting de hals de vierkanten dicht over de schouder, over 2 vierkanten. Over de rug houd je dan 1 vierkant over. Over de voorpanden houd je ook 1 vierkant per pand over.

08.09.2022 - 17:03

country flag Eimante wrote:

Hello, can you specify how many yarn balls should I purchase for the s/m sized project? It would be great if you would include number of yarn balls necessary for a project. Thank you!

10.05.2022 - 13:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Eimante, you will always find the total amount of yarn required for each project under the header, together with sizes and crochet hook size/tension. So that you need for this pattern in size S/M 800 g DROPS Safran / 50 g a ball = 16 balls DROPS Safran in size S/M. Happy crocheting!

10.05.2022 - 14:07

country flag Ann E Deranleau wrote:

I'm sorry. There was a typo in my question below. I used the word you when it should have been use. I also have a question on the amount of squares that are to be used for the 3X size. All the instructions say is make 34 squares for both the back and front. I'm assuming that's for the normal size. How many square are to be made for the 3X size? Thanks

20.06.2021 - 19:15

DROPS Design answered:

Dear Ann, the number of the squares are the same for each size, the difference of the measurements will come from the addition at the shoulders and the sides. Happy Stitching!

21.06.2021 - 00:22

country flag Ann E Deranleau wrote:

Instead of sewing the squares together at the end, can you you the last round to attach the squares together as you go?

20.06.2021 - 19:06

DROPS Design answered:

Dear Ann, yes, you can. Happy Stitching!

21.06.2021 - 00:21

country flag Lotte wrote:

Hey, is het mogelijk om er een foto bij te zetten van een afgewerkt vierkantje? Dat zou mij enorm helpen. Alvast bedankt

05.06.2021 - 09:02

DROPS Design answered:

Dag Lotte,

Helaas hebben we geen foto van een los vierkantje, maar er is ook een sjaal waar dit vierkantje in verwerkt is en daar is het vierkantje wat beter te zien. Misschien heb je daar wat aan. Zie hier.

07.06.2021 - 20:03

country flag Urriza Maria Lorena wrote:

Hola! Ya tengo tejidos todos los cuadrados pero no entiendo como se hace la parte del escote. No lo encuentro en el patron, por favor me podrian indicar?

08.09.2020 - 00:45

DROPS Design answered:

Hola Urriza. La parte del escote esta explicada en el apartado ENSAMBLAJE (TERMINACIÓN), después del HOMBRO. Primero se unen todos los cuadrados formando la espalda y los delanteros, después se forma el escote/traslape.

09.09.2020 - 20:19

country flag Britt wrote:

Patroon netjes gevolgd zonder problemen alleen de hoeveelheid wol die je moet aanschaffen klopt niet als je de afwerking nog wilt doen. Dan mis je toch zeker nog 1 bol voor maat S/M. Ben ervaren haakster.

03.05.2020 - 14:18

country flag GRETCHEN wrote:

Hello, This is a beautiful kimono, but it is very heavy in crochet. It would be wonderful to have a lighter, knitted version. The style is absolutely timeless! Thankyou Drops!

02.06.2019 - 14:23

country flag Léana wrote:

Il y a des erreurs dans le rédactionnel explicatif des carrés. Il serait judicieux d'ajouter un schéma.... Merci

27.05.2019 - 10:54

DROPS Design answered:

Bonjour Léana, après vérification, les explications du carré correspondent à la version originale ainsi qu'au diagramme, où avez-vous repéré des erreurs? Merci! Bon crochet!

27.05.2019 - 13:08