DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4290.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 156-34
DROPS Design: Mynstur nr ks-097
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75-75-100-100-100-125 gr litur nr 05, bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) nr 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4290.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Til að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið, prjónið 1. umf í mynstri í lok 1. umf frá réttu og í lok 2. umf frá röngu. Þ.e.a.s. að allar umf þar sem uppsláttur og l er prjónað saman, verður að prjóna í lok umf. Lykkjufjöldinn í mynstrinu breytist frá 7 til 12 l.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónið 6 umf yfir allar l, * prjónið fram að prjónamerki í annarri hliðinni, snúið við, herðið á þræði og prjónið út umf. Prjónið 1 umf yfir allar l, snúið við, prjónið fram að prjónamerki í annarri hliðinni, snúið við, herðið á þræði og prjónið út umf. Prjónið 5 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-*. Þ.e.a.s. prjónið 6 umf garðaprjón yfir miðju 90-96-102-106-112-116 l og 8 umf garðaprjón yfir l hvoru megin við hverja mynstureiningu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á hægri ermi, aukið út fyrir bakstykki og kraga í báðum hliðum á stykki, fellið af fyrir vinstri ermi. Brjótið síðan stykkið saman tvöfalt og erma- og hliðarsaumarnir eru saumaðir saman.

BOLERO:
Fitjið upp 74-78-82-88-92-96 l með 2 þráðum af Kid-Silk á hringprjóna nr 3,5.
Takið annan þráðinn frá og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17 cm (= ermi) fitjið laust upp 34-37-40-41-44-46 nýjar l í hvorri hlið í lok 2 næstu umf = 142-152-162-170-180-188 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið 26-28-30-32-34-36 l inn frá hvorri hlið (= 90-96-102-106-112-116 l á milli prjónamerkja). Prjónið síðan A.1 yfir síðustu 7 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ MYNSTUR – og garðaprjón yfir þær l sem eftir eru – JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan!
Þegar stykkið mælist ca 71-73-75-77-79-81 cm (frá uppfitjunarkanti), stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1, fellið laust af 34-37-40-41-44-46 l í hvorri hlið í byrjun á 2 næstu umf = 74-78-82-88-92-96 l. Haldið áfram í garðaprjóni yfir ermar. Þegar ermin mælist 17 cm er fellt laust af með 2 þráðum. Stykkið mælist ca 88-90-92-94-96-98 cm.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman tvöfalt. Saumið erma- og hliðarsauma yst í lykkjubogann, passið að saumurinn verði ekki of stífur.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, sl frá röngu (= garðaprjón)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt
symbols = 2 l slétt saman
symbols = fellið af þessa l
symbols = prjónastefna
symbols = brot
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Louise wrote:

I would like to knit Mathilda. I understand how to measure for size for a regular construction, however this is not regular construction. How can I determine what size to make without guessing, knitting the whole piece and finding it doesn’t fit?

15.03.2024 - 15:22

DROPS Design answered:

Dear Louise, we generally suggest that try to find a piece that is similar to what the piece is, and compare sizes, that you can see on the schematic drawings below the pattern. This piece is pratically atube, that is opened on its side, that is flared out a bit, this is where you take it on (these measurments can be seen at the bottom of the dravings. Happy Knitting!

17.03.2024 - 09:41

country flag Natalia wrote:

Guten Tag! Den Bolero habe ich schon einmal gestrickt und er ist bei mir erstaunlich klein ausgefallen. Jetzt bin ich zufällig auf die Anleitung DROPS 109-42 gestoßen, die dieser sehr ähnlich ist, sieht aber auf dem Bild enger aus, obwohl der Verbrauch dort größer ist - 125 g bei der Größe S, genauso die Maßangaben auf der Skitze. Wo liegt mein Fehler? Jetzt habe ich mir noch Wolle gekauft und möchte den Bolero nochmal stricken, will aber nicht, dass er wieder so eng ist. Danke!

03.10.2023 - 14:41

DROPS Design answered:

Liebe Natalia, das Modell 109-42 ist auch etwas grösser: breiter bei den Ärmeln und bei der totalen Breite, und wegen das Muster braucht man sicher auch mehr Wolle dafür. Viel Spaß beim stricken!

05.10.2023 - 09:03

country flag Karin Svensson wrote:

Är de 6v som inleder beskrivningens "Förkortade varv" överordnade A1? När 17cm ärm är klar nya maskor upplagda och markörerna utsatta, ska man sticka 6v över alla maskor INNAN man börjar m A1? Eller börjar A1 direkt efter nya maskorna och SAMTIDIGT sticka förkortade varv?

01.03.2023 - 11:42

DROPS Design answered:

Hei Karin. Du strikker A.1 og forkortete pinner samtidig. A.1 startes å strikkes når det er lagt opp masker i hver side og de 2 merkene er satt inn fra hver side. mvh DROPS Design

06.03.2023 - 13:02

country flag Pernille Frøstrup wrote:

Jeg er er i gang med boleroén og den spidser til som følge af at der lukkes 5 masker af i slutningen af hver mønsterrapport. Jeg kan blive i tvivl om om opskriften er korrekt. Hvordan jeg jeg få hjælp? Kan jeg sende billede til drops?

05.07.2022 - 16:28

DROPS Design answered:

Hej Pernille, jo hulmønsteret i kanten bliver små spidser for hver 10.pind hvor man lukker 5 masker af. De 5 masker tages ud på de 4 pinde med hulmønster, det vil sige at diagrammet altid starter med 7 masker og slutter med 12 masker. God fornøjelse!

06.07.2022 - 07:52

country flag Gesine wrote:

Hallo, meine Frage ist: Wenn A1 einmal in der Höhe gestrickt wurde, beginne ich dann wieder mit einer Krausrippe (=2 Reihen rechts ohne Spitzenmuster am Ende), oder lasse ich diese beiden Reihen aus und beginne mit der ersten Reihe, die das Spitzenmuster am Ende hat?

09.04.2021 - 12:28

DROPS Design answered:

Liebe Gesine, A.1 wird über 10 Reihen gestrickt und wiederhlot, dh nvon der 1. Reihe wieder anfangen. Viel Spaß beim stricken!

09.04.2021 - 13:08

country flag MEUNIER wrote:

Bonjour, J'aimerais réaliser ce boléro mais en coton. Que me conseillez-vous ?

10.11.2019 - 23:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Meunier, vous pouvez utiliser un autre fil du groupe A - utilisez notre convertisseur pour avoir des suggestions. plus d'infos sur les alternatives ici. Bon tricot!

11.11.2019 - 11:40

country flag Donna wrote:

The pattern is done at the end, not the beginning of the row?

08.10.2019 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear Donna, you will work A.1 on each side = over the first 7 + the 7 last stitches on piece, in order to make it same on each side, you work first row in diagram at the end of 1st RS row and at the end of 2nd WS row, ie all rows in pattern with yarn overs and Ktog are worked at the end of the row - see PATTERN. Happy knitting!

08.10.2019 - 17:07

country flag Donna wrote:

Hello, I am beginning this pattern but am a bit confused by this step in the pattern: ( 8 rows (4 ridges) over sts in each side in every repetition.) it is part of the short rows. What does the repetition refer to? and are the side sts, where the new sts were added on? thanks for the help.\'

08.10.2019 - 01:01

DROPS Design answered:

Dear Donna, when you work 1 repeat of the short rows, you repeat from * to *: so that you have worked 6 rows over the middle stitches and 8 rows over the stitches on each side (= short rows, when you work to the marker turn and work return row). Happy knitting!

08.10.2019 - 10:52

country flag CHAMPIGNY wrote:

Bonjour, je voudrais savoir combien de fois je dois répéter les rang raccourcis je ne comprend pas très bien. merci de votre réponse

17.04.2018 - 15:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Champigny, une fois que vous avez monté les mailles des manches, vous tricotez A.1 de chaque côté et les rangs raccourcis en même temps jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 71-73-75-77-79-81 cm de hauteur totale depuis le rang de montage (= c'est-à-dire depuis le tout début) - mesurez bien au milieu de l'ouvrage - terminez après un motif A.1 complet en hauteur de chaque côté et rabattez ensuite les mailles des manches de chaque côté et continuez la 2ème manche. Bon tricot!

17.04.2018 - 15:57

country flag Dorothea wrote:

Hallo, eine Frage zu verkürzten Reihen. Lt Anleitung stricke ich nach den Ärmelzunahmen 6 Reihen kraus über alle Maschen und beginne dann mit den verkürzten Reihen: *1. R hin bis Markierung, 2. R zurück bis Ende, 3. R hin über alle Maschen, 4. R zurück bis Markierung, 5. R hin bis Ende = 5 R verkürzt + anschließend 5 R über alle Maschen*. Das ergibt 10 R, doch es heißt dann, es sind 6 R über die Mitte und je 8 R an beiden Seiten = 6+8+8 R = 22 R. Wie komme ich auf die 22 Reihen?

11.04.2018 - 09:55

DROPS Design answered:

Liebe Dorothea, wenn Sie von *-* stricken, haben Sie 8 Reihen über die Maschen bis zum Markierer auf beiden Seiten und nur 6 Reihen über die mittleren Maschen: 2 Reihe bis zum 1. Markierer (rechts von der Vorderseite gesehen), 1 Reihe über alle Maschen, 2 Reihe über die Maschen zum Markierer (= links von der Vorderseite gesehen) und 5 Reihe über alle Maschen. Viel Spaß beim stricken!

11.04.2018 - 11:43