DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Northern Lights

Prjónuð peysa úr DROPS Big Delight og DROPS Nepal með stuttum umferðum, röndum og garðaprjóni, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 158-17
DROPS Design: Mynstur nr db-037
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
450-500-550-600-700-750 gr litur nr 8903, svartur
og notið:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
400-400-400-500-500-500 gr litur nr 09, atlantis

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 24 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HORNATALA DÖKK, NR 536: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
* 2 umf slétt með Big Delight (= 1 rönd), 2 umf slétt með Nepal (= 1 rönd) *, endurtakið frá *-*.

LEIÐBEININGAR-1:
Þegar skipt er um lit í röndum verða þræðirnir alltaf að vera á röngunni við stykkið.

LEIÐBEININGAR-2:
Til þess að litaskiptingin í Big Delight verði falleg þegar byrjað er á nýjum þræði verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með.

KRAGI:
* 1 umf slétt yfir allar l, snúið við, 1 umf slétt yfir allar l, snúið við, 1 umf slétt yfir fyrstu 17-17-17-18-18-18 l, snúið við, 1 umf slétt til baka, snúið við *, endurtakið frá *-*.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægra framstykki. 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (frá öxl):
STÆRÐ S: 29 og 37 cm
STÆRÐ M: 30 og 38 cm
STÆRÐ L: 31 og 39 cm
STÆRÐ XL: 32 og 40 cm
STÆRÐ XXL: 33 og 41 cm
STÆRÐ XXXL: 34 og 42 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 4 hlutum, vinstra og hægra bakstykki er saumað saman við miðju að aftan í lokin. Teknar eru upp l í kringum ermar og prjónað er stroff frá olnboga og niður. Prjónað er fram og til baka á hringprjóna svo að stykkið getur verið flutt til að gagnstæðri hlið og prjónað frá hvorri hlið á prjóni. LESIÐ LEIÐBEININGAR-2!

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 8 með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, kraginn er prjónaður ofan frá og niður.
Fitjið upp 22-22-22-24-24-24 l með Nepal og prjónið KRAGA – sjá útskýringu að ofan (1. umf = ranga).
Þegar kraginn mælist 8-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur eru fitjaðar upp 49-53-53-55-57-61 nýjar l fyrir ermi frá kraga þar sem hann er stystur = 71-75-75-79-81-85 l.
Setjið nú 1 prjónamerki í þessa umf – héðan er nú mælt.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú er stykkið prjónað með MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, skipting á garnenda er gerð í hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað frá röngu innan við 1 kantlykkju við miðju að framan þannig: 1 l í 6. hverri umf alls 2 sinnum, 1 l í 4. hverri umf alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 0-0-3-4-2-2 l 1 sinni, síðan eru felldar af 5 l í annarri hverri umf alls 5-5-4-4-4-4 sinnum = 40-44-46-48-52-56 l á eftir alla affellingu. Mundið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm – passið að næsta umf sé frá RÉTTU og með Nepal.

Kafli 1
UMFERÐ 1: Takið 2 fyrstu l óprjónaðar yfir á hægra prjón, leggið þráðinn bakvið þessar 2 l – LESIÐ LEIÐBEININGAR-1 sjá útskýringu að ofan, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 2 l sem teknar voru óprjónaðar yfir, snúið við.
UMFERÐ 3: Takið 2 fyrstu l óprjónaðar yfir á hægra prjón, leggið bandið bakvið þessar 2 l, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 4 l sem teknar voru óprjónaðar yfir, snúið við.
Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til prjónað hefur verið yfir 2 umf yfir síðustu 2 l. Klippið frá. Prjónið nú 1 rönd yfir allar l með 1. umf frá réttu.

Kafli 2
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS.
STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 4 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka.
Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á hægri prjóni.

ÚRTAKA:
Prjónið 3-3-3-2-2-2 rendur. Fækkið lykkjum í byrjun á næstu rönd þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 6-7-8-8-8-10 sinnum, síðan er fækkað um 0-1-0-0-0-0 sinnum í næstu rönd = 34-36-38-40-44-46 l.

Kafli 3
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG AUKIÐ ÚT SAMTÍMIS.
STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1: Prjónið yfir 4 fyrstu l, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 4 l, snúið við.
UMFERÐ 3: Prjónið yfir 6 fyrstu l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir þessar 6 l, snúið við.
Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf – endurtakið þar til prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l.

ÚTAUKNING:
Prjónið 2 rendur. Aukið síðan út í byrjun á næstu rönd þannig:
Prjónið 2 l í fyrstu l, endurtakið útaukningu í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 6-8-8-8-8-10 sinnum = 40-44-46-48-52-56 l. Klippið frá.

Kafli 4
Takið fyrstu 38-42-44-46-50-54 l óprjónaðar yfir á hægir prjón. Síðan er prjónað þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 l, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 2 l, snúið við.
UMFERÐ 3: Takið 2 l af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 4 l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjóni til baka yfir 4 l.
Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar til allar l hafa verið teknar á sama prjón og prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l.

Neðsti hlutinn á peysunni:
Nú er prjónað áfram í mynstri. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm er auki út í hlið þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l frá réttu alls 4 sinnum með 4 cm millibili = 44-48-50-52-56-60 l. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm – stillið af að síðasta röndin sé með Nepal og fellið laust af með Nepal.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt, kraginn byrjar frá réttu, fellið ekki af fyrir hnappagötum – endaskipti fyrir rendur byrja við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm passið uppá að næsta umf sé frá RÉTTU og með Nepal.

Kafli 5
STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 4 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka.
Haldið áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 2 l.
Prjónið eina rönd yfir allar l.

Kafli 6
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS
UMFERÐ 1: Takið 2 fyrstu l yfir á hægri prjón, leggið þráðinn aftan við þessar 2 l – munið eftir LEIÐBEININGAR-1 sjá útskýringu að ofan, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir þær 2 l sem teknar voru af prjóni, snúið við.
UMFERÐ 3: Takið 2 fyrstu l yfir á hægri prjón, leggið þráðinn aftan við þessar 2 l, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir þær 4 síðust l, snúið við.
Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á vinstri prjóni. Klippið frá.

ÚRTAKA:
Prjónið 3-3-3-2-2-2 rendur. Fækkið lykkjum í lok næstu randar þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 6-7-8-8-8-10 sinnum, fækkið nú lykkjum 0-1-0-0-0-0 sinnum í næstu rönd = 34-36-38-40-44-46 l.

Kafli 7
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG AUKIÐ ÚT SAMTÍMIS
Fyrstu 32-34-36-38-42-44 l eru á hægri prjóni. Síðan er prjónað þannig:
UMFERÐ 1: Takið 2 l af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 4 l, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 4 l.
UMFERÐ 3: Takið 2 l af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 6 l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir 6 l.
Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar til allar l hafa verið teknar af prjóni yfir á sama prjóni og prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l.

ÚTAUKNING:
Prjónið 2 rendur. Aukið síðan út í lok næstu randar þannig:
Prjónið 2 l í síðustu l, endurtakið útaukningu í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 6-8-8-8-8-10 sinnum = 40-44-46-48-52-56 l.

Kafli 8
UMFERÐ 1: Prjónið yfir 2 fyrstu l, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 2 l, snúið við.
UMFERÐ 3: Prjónið yfir 4 fyrstu l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir þessar 4 l, snúið við.
Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf – endurtakið þar til prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l.

Neðri hluti á peysu:
Prjónið nú áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm aukið út á hlið þannig: Prjóni 2 l í síðustu l frá réttu alls 4 sinnum með 4 cm millibili = 44-48-50-52-56-60 l. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm – stillið af að síðasta röndin sé með Nepal og fellið laust af með Nepal.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 8 með mynstri, endaskipti er gert frá hlið og prjónað er ofan frá og niður. Fitjið upp 49-53-53-55-57-61 l með Nepal. Prjónið 2 umf (1. umf = rétta). Fitjið síðan upp í lok 2 næstu umf frá réttu fyrir hálsmál þannig: 1 l 1 sinni og 7-7-7-8-8-8 l 1 sinni = 57-61-61-64-66-70 l. Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm fellið af fyrir handvegi þannig: Fellið af 0-0-3-4-2-2 l 1 sinni, síðan eru felldar af 5 l í annarri hverri umf alls 5-5-4-4-4-4 sinnum = 32-36-38-40-44-48 l.
Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm passið að næsta umf sé frá RÉTTU og með Nepal.

Prjónið kafli 1 – sjá HÆGRA FRAMSTYKKI.

Prjónið nú 4-3-4-3-4-3 rendur yfir allar l. JAFNFRAMT í annarri hverri rönd er aukið út um 1 l í byrjun á umf frá réttu og felld er af 1 l í lok umf frá réttu. Þetta er gert til þess að stykkið fái rétt horn.

Kafli 9
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG FELLT AF SAMTÍMIS.
STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1: Prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 4 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka.
Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á hægri prjóni.

ÚRTAKA:
Prjónið 1-0-0-2-0-0 rendur. Fækkið lykkjum í byrjun á næstu rönd þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 28-30-32-34-38-40 l.

Kafli 10
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – ÞAÐ ER SNÚIÐ VIÐ OG AUKIÐ ÚT SAMTÍMIS.
STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1: Prjónið yfir 4 fyrstu l, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir þessar 4 l, snúið við.
UMFERÐ 3: Prjónið yfir 6 fyrstu l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið tilbaka yfir þessar 6 l, snúið við.
Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf – endurtakið þar til prjónuð hefur verið 1 rönd yfir allar l.

ÚTAUKNING:
Prjónið 2 rendur. Aukið síðan út í byrjun á næstu rönd þannig:
Prjónið 2 l í fyrstu l, endurtakið útaukningu í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 32-36-38-40-44-48 l. Klippið frá.

Prjónið nú 4 rendur yfir allar l. JAFNFRAMT í annarri hverri rönd er aukið út um 1 l í byrjun á umf frá réttu og felld af 1 l í lok umf frá réttu. Þetta er gert til að stykkið fái rétt horn. Klippið frá.

Prjónið kafla 4 – sjá HÆGRA FRAMSTYKKI.

Neðsti hluti á peysu:
Prjónið nú áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm er aukið út í hlið þannig: Prjónið 2 l í síðustu l frá réttu alls 4 sinnum með 4 cm millibili = 36-40-42-44-48-52 l. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm – stillið af að síðasta röndin sé með Nepal og fellið laust af með Nepal.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstra bakstykki nema gagnstætt – endaskipti við rendur er gert frá miðju að aftan. Prjónið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm stillið af að næsta umf sé frá RÉTTU og með Nepal.

Prjónið kafla 5 – sjá VINSTRA FRAMSTYKKI.

Prjónið nú 4-3-4-3-4-3 rendur yfir allar l. JAFNFRAMT í annarri hverri rönd er felld af 1 l í byrjun á umf frá réttu og aukið er út um 1 l í lok umf frá réttu. Þetta er gert til þess að stykkið fái rétt horn.

Kafli 11
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG LYKKJUM FÆKKAÐ SAMTÍMIS.
UMFERÐ 1: Takið 2 fyrstu l yfir á hægri prjón, leggið þráðinn aftan við þessar 2 l – MUNDIÐ EFTIR LEIÐBEININGAR-1, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 2 l sem teknar voru af prjóni, snúið við.
UMFERÐ 3: Takið 2 fyrstu l óprjónaðar yfir á hægri prjón, leggið þráðinn aftan við þessar 2 l, prjónið yfir þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka en prjónið ekki yfir 4 síðustu l, snúið við. Haldið svona áfram með 2 l færri í annarri hverri umf þar til 2 l eru eftir á hægri prjóni. Klippið frá.

ÚRTAKA:
Prjónið 1-0-0-2-0-0 rendur. Fækkið lykkjum í lok næstu randar þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 28-30-32-34-38-40 l.

Kafli 12
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG AUKIÐ ÚT SAMTÍMIS
Fyrstu 26-28-30-32-36-38 l eru á hægri prjóni. Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Takið 2 l af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 4 l, snúið við.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka yfir 4 l.
UMFERÐ 3: Takið 2 l af hægri prjóni óprjónaðar yfir á vinstri prjón, prjónið yfir 6 l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið tilbaka yfir 6 l.
Haldið svona áfram með 2 l fleiri í annarri hverri umf þar til allar l hafa verið teknar yfir á sama prjón og prjónið 1 rönd yfir allar l.

ÚTAUKNING:
Prjónið 2 rendur. Aukið síðan út í lok næstu randar þannig: Prjónið 2 l í síðustu l, endurtakið útaukningu í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 32-36-38-40-44-48 l.

Prjónið nú 4 rendur yfir allar l. JAFNFRAMT í annarri hverri rönd er felld af 1 l í byrjun á umf frá réttu og aukið út um 1 l í lok umf frá réttu. Þetta er gert til að stykkið fái rétt horn.

Prjónið Kafli 8 – sjá VINSTRA FRAMSTYKKI.

Neðsti hluti á peysu:
Prjónið nú áfram með mynstri. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm er aukið út í hlið þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l alls 4 sinnum með 4 cm millibili = 36-40-42-44-48-52 l. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm – stillið af að síðasta röndin sé með Nepal og fellið laust af með Nepal.

FRÁGANGUR:
Saumið hægra bakstykki við vinstra bakstykki við miðju að aftan. Saumið axla- og hliðarsauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið niður við hálsmál að aftan.

HÆGRA STROFF:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Takið upp 42-44-46-50-52-54 l með hringprjóna nr 8 í kringum ermi með Nepal. Stykkið er prjónað í mynstri. Fellið af þegar stykkið mælist 17-16-16-15-13-11 cm – passið að fella af með Nepal.

VINSTRA STROFF:
Takið upp lykkjur og prjónið á sama hátt og hægra stroff.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma á stroffi saman. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.09.2016
Kafli 9 ÚRTAKA: Prjónið 1-0-0-2-0-0 rendur. Fellið nú af í byrjun á næstu rönd þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 28-30-32-34-38-40 l.
Kafli 11 ÚRTAKA: Prjónið 1-0-0-2-0-0 rendur. Fellið nú af í lok næstu randar þannig: Prjónið 2 l slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri rönd (= í 4. hverri umf) alls 4-6-6-6-6-8 sinnum = 28-30-32-34-38-40 l.
Kafli 12 LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – SNÚIÐ ER VIÐ OG AUKIÐ ÚT SAMTÍMIS Fyrstu 26-28-30-32-36-38 l eru á hægri prjóni. Prjónið nú þannig:

Mynstur

symbols = prjónastefna
symbols = kafli 1-8 sjá mynstur
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Sandra Morgan-Griffiths wrote:

Can I buy a Drops Colour Chart and if so where please Thank You

19.05.2023 - 16:42

DROPS Design answered:

Dear Sandra, we have no DROPS Colour Charts. You can print the yarn info page, alongside the colours of each yarn, by accessing to the specific yarn page and clicking on the button "print".

21.05.2023 - 18:14

country flag Justyna wrote:

Dobry wieczór. Zastanawiam się gdzie popełniam błąd, bo niezależnie od tego jak robię kołnierz, to zawsze wychodzi mi ta sama wersja (a muszę zrobić odwrotność do lewego przodu...). Już próbowałam na wszystkie sposoby i za każdym razem, nawet jak zaczynam na lewej stronie robótki, moja mniejsza część kołnierza jest po tej samej stronie. Więc mam dwa "lewe przody"... Proszę o pomoc bo już nie wiem jak się za to zabrać.

23.03.2023 - 00:11

DROPS Design answered:

Witaj Justyno, ważne jest aby rzędy skrócone były przerabiane od środka przodu, czyli z tej strony, z której kołnierz jest dłuższy. De facto te dwie części możesz wykonać tak samo, a następnie kołnierz drugiej strony obrócić (jedna część kołnierza będzie widoczna na prawej stronie, a druga na lewej), aby później z odpowiedniej strony nabrać oczka na ramiona. Pozdrawiamy!

23.03.2023 - 16:23

country flag Sophie wrote:

Bonjour, ce modèle peut il être feutré? Et si oui, quelle taille faut il tricoter pour obtenir une taille S après feutrage. Merci d'avance

16.04.2021 - 11:51

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie, il n'est pas prévu de feutrer la veste terminée. Nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Merci de bien vouloir contacter votre magasin, même par mail ou téléphone, pour toute assistance complémentaire - ou éventuellement à un forum spécialisé. Merci pour votre compréhension.

16.04.2021 - 14:43

country flag Carla wrote:

Hola, Nepal va tejido con doble hebra o simple? porque he notado que es mucho mas fino que big delight.

09.06.2020 - 14:58

DROPS Design answered:

Hola Carla. Ambos hilos pertenecen al mismo grupo de lanas (grupo C) y la chaqueta se trabaja con un hilo.

13.06.2020 - 20:43

country flag Wendy wrote:

Ik ben begonnen om dit model in maat XXL te breien. Maar nog voor deel 1 zou je 52 steken moeten overhouden. Als ik in het patroon tel kom ik uit op 50. Bij 81 steken minder/kant je 31 steken. (Minder 2x1 en 5x1 st, en kant 2x2 en 4x5 st af) M.vr.gr. Wendy

06.11.2019 - 09:50

DROPS Design answered:

Dag Wendy,

Het patroon is gecontroleerd en er zat inderdaad een fout in de vertaling. Er is nu een correctie gemaakt in het aantal minderingen voor de mouw op het voorpand.

22.11.2019 - 10:57

country flag Ilka wrote:

Hallo, ich habe alle Teile fertig. Verstehe aber nicht, wie der Kragen zusammengenäht werden soll. Wenn ich ihn in der Mitte zusammennähe sieht es komisch aus und es steht dort ja auch"an den rückwärtigen Halsausschnitt nähen." Der ist doch aber schon fest. (ist es richtig, dass bei den Rückenteilen kein Kragen gestrickt wird?) Es ist leider weder durch die Zeichnung noch durch die Bilder zu sehen, da keine richtige Rückseite gezeigt wird...... und irgendwie erklärt es sich mir nicht..

15.09.2019 - 16:48

DROPS Design answered:

Liebe Ika, die angeschlagenen Maschen für den Kragen für beiden Vorderteile werden zusammengenäht, dann nähen Sie den Kragen (= die kleinste Länge) am Halsausschnitt vom Rückenteil. Viel Spaß beim fertigstellen!

16.09.2019 - 11:18

country flag Ilka Fricke wrote:

Stricke ich bei Abschnitt 1 Vorderteil die 1 R. In der Hin-oder Rückreihe. Wenn ich es wie laut Anleitung str. sind bei mir die verkürzungen auf der falschen Seite. Kann man die Kommentare in meinem Fall "deutsch" ändern? Manche Fragen würden dann evtl. nicht doppelt gestellt. Ich kann z. B. kein norwgisch, spanisch etc. würde aber gerne die Kommentare lesen...

25.07.2019 - 18:21

DROPS Design answered:

Liebe Ilka, die Kommentare können wir leider nicht übersetzen. - Den Kragen (längere Seite des Kragens) beginnen Sie ja mit einer Rück-Reihe. Die kürzere Seite (die, die Sie ab der Hin-Reihe stricken), liegt in Richtung Seite der Jacke, dort schlagen Sie auch die Maschen für den Ärmel an. Die Abnahmen erfolgen am vorderen Rand der Jacke, das Abketten der Maschen für den Ärmel an der Seite (d.h. ab der Rück-Reihe). Wenn Sie dann Abschnitt 1 ab der Hin-Reihe stricken, werden die Reihen in Richtung Seite der Jacke kürzer als in Richtung vorderer Rand. Gutes Gelingen weiterhin!

27.07.2019 - 09:25

country flag Cecilie Skovbjerg wrote:

Jeg undrer mig over at der anbefales pind 8 til garntyper, der normalt strikkes på pind 5? Er der fejl?

19.07.2019 - 21:30

DROPS Design answered:

Hei Ceccilie. På denne jakken skal det strikkes løs og derfor større pinner enn det vi vanligvis bruker til Nepal og Big Delight. Men husk å sjekke din strikkefasthet. mvh Drops design

09.09.2019 - 14:58

country flag FEDERICA wrote:

Buonsera, vorrei realizzare questo cappotto con un filato diverso e con un numero di ferri n.4 siccome sono una taglia XXL non vorrei che il filato messo in descrizione e il n.8 di ferri giochi a mio sfavore facendo un cappotto che risultasse per me .... una 4XXL :) Che filato mi consigliate per poter effettuare questo cappotto con i ferri n.4??? Grazie

05.05.2019 - 14:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Federica. Se vuole un filato sfumato, può considerare Delight. Ci permettiamo di far presente che la costruzione del capo è molto particolare. Modificare il filato e soprattutto la tensione del lavoro, comporterebbe rivedere interamente le spiegazioni del modello. Le suggeriamo di mettersi in contatto con il suo rivenditore Drops di fiducia per una assistenza più personalizzata. Buon lavoro!

05.05.2019 - 16:18

country flag Ute wrote:

Ich habe ein Rechts-Links-Problem: Wie ist das RECHTE Vorderteil gemeint: rechts, wenn ich es trage oder rechts, so wie ich es auf dem Diagramm sehe (das wäre dann getragen, ja das LINKE Vorderteil. 2. Frage: wird der Kragen NUR in Nepal oder schon abwechseln Nepal-Big Delight gestrickt? Herzlichen Dank sagt Ute

24.04.2019 - 16:18

DROPS Design answered:

Liebe Ute, Rechte Vorderteil ist gemeint wenn die Jacke getragen wird - der Kragen wird nur mit Nepal gestrickt (siehe 2. Foto). Viel Spaß beim stricken!

25.04.2019 - 09:40