DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Hugs and kisses

Prjónuð peysa með ferhyrningum úr DROPS Paris í garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 146-2
DROPS Design: Mynstur nr w-477
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M – L/XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
600-650-750-800-900 gr litur nr 23, ljós grár

DROPS PRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 30 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MÆLING:
Stykkið er mælt þegar því er haldið uppi. Vegna garðaprjóns og þyngdar á garninu kemur ermin til með að teygjast. Ef óskað er eftir léttari ermi eru prjónaðar 8 umf garðaprjón neðst niðri á ermi, síðan er prjónað sléttprjón með rönguna út.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 2 stykkjum frá miðju baki/miðju að framan í ferhyrning. Fitjið upp og prjónið á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjón eftir þörf. +Í lokin eru ermar prjónaðar.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 8 l með Paris og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 )= 2 l á hvern prjón). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu l (= 4 prjónamerki).
Prjónið nú í hring með GARÐAPRJÓN – yfir allar l – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í annarri hverri umf er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 útaukningar í annarri hverri umf), í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Haldið svona áfram þar til 240-264-288-320-344 l eru á prjóni (= 29-32-35-39-42 útaukningar og 60-66-72-80-86 l á öllum 4 hliðunum). Endið á 1 umf brugðið. Setjið nú miðju 16-16-18-18-18 l á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð fyrir hálsmáli, prjónið nú stykkið fram og til baka. Haldið áfram með garðaprjón og útaukningu, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað við hálsmáli í annarri hverri umf þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum. Haldið áfram með útaukningu þar til 284-308-330-362-386 l eru á prjóni (= 38-41-44-48-51 útaukningar, 78-84-90-98-104 l á milli prjónamerkja, 25-28-30-34-37 l hvoru megin við hálsmál). Haldið eftir lykkjum á milli 3. og 4. prjónamerkis á prjóni, fellið af þær l sem eftir eru = 78-84-90-98-104 l á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka yfir þessar l. Fellið af. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Þetta merkir hvar sauma á ermina í.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 8 l með Paris og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 (= 2 l á hvern prjón). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu l (= 4 prjónamerki). Prjónið nú í hring með garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í annarri hverri umf er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við prjónamerki (= 8 útaukningar í annarri hverri umf), í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Haldið svona áfram þar til 288-312-336-368-392 l á prjóni (= 35-38-41-45-48 útaukningar og 72-78-84-92-98 l á milli prjónamerkja). Fellið nú af miðju 28-28-30-30-30 l á milli 1. og 2. prjónamerkis fyrir hálsmál, prjónið nú stykkið fram og til baka = 260-284-306-338-362 l. Haldið áfram með útaukningu þar til 284-308-330-362-386 l eru á prjóni (= 38-41-44-48-51 útaukningar, 78-84-90-98-104 á milli prjónamerkja, 25-28-30-34-37 l hvoru megin við hálsmál). Haldið eftir lykkjum á milli 3. og 4. prjónamerki á prjóni, fellið af þær l sem eftir eru = 78-84-90-98-104 l á prjóni. Prjónið 30 umf garðaprjón fram og til baka yfir þessar l. Fellið af. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Þetta merkir hver sauma á ermina í.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. LESIÐ MÆLING!
Fitjið upp 37-38-41-44-45 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með Paris. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 5-4½-4½-4-3½ cm millibili 7-8-8-8-9 sinnum til viðbótar (alls 8-9-9-9-10 útaukningar) = 53-56-59-62-65 l. Fellið af þegar stykkið mælist 49-48-47-45-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið ermar í niður að prjónamerki á fram/bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju, skiljið eftir neðstu 10 cm á bakstykki = klauf.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 66 til 74 l (meðtaldar l af þræði) á stutta hringprjóna (40 cm) í kringum hálsmál. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.08.2019
FRAMSTYKKI: ... (= 29-32-35-39-42 útaukningar og 60-66-72-80-86 l á öllum 4 hliðunum).

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (140)

country flag SJ wrote:

I’m really struggling to start this, finding it very fiddly just 2 stitches on each of the double pointed needles but I’m trying again now on my 10th attempt. It’s extra fiddly with adding markers. So… with the markers when it says add to the 1st, 3rd, 5th etc stitch does it mean between the 1st and 2nd stitch etc or before the 1st, 3rd, 5th stitch?

04.04.2024 - 23:44

DROPS Design answered:

Dear SJ, you should put the markers in the stitches, as later the yarnovers are done on both sides of the marked stitch. I hope this helps, Happy Knitting!

05.04.2024 - 01:56

country flag Verena wrote:

Habe den Pullover genau nach Angaben mit DROPS Paris gestrickt für eine Freundin, hat alles gut geklappt und sah super aus, aber seit dem ersten mal Tragen ist der Pulli mindesten 3 Nummern größer und erinnert eher an einen Sack - sehr schade, aber liegt an der Strickweise und am Gewicht. Ein bisschen hatte ich ja erwartet, aber so deutlich? Vielleicht sollte in der Anleitung nochmals genauer darauf hingewiesen werden. Die Freundin trägt den Pulli nun nur zu Hause...

06.02.2023 - 14:02

DROPS Design answered:

Liebe Verena, vergessen Sie nicht, die Pfegehinweise zu folgen - bei der Banderolle sowie bei der Farbkarte sowie hier - also Paris können Sie in der Waschmaschinen waschen und beachten Sie, daß der Pullover schön liegend trocknet (um so was zu vermeiden). Viel Spaß beim stricken!

06.02.2023 - 16:11

country flag Kari Lottrup wrote:

Kan blusen laves i uld, hvis ja, hvilken garn vil I så anbefale?

08.01.2023 - 15:08

DROPS Design answered:

Hej Kari, Ja du kan strikke den i DROPS Nepal eller DROPS Alaska eller 2 tråde fra garngruppe A (strik den IKKE i Merino, den kan ikke strikkes så løst) Prøv garnomregneren, vælg Paris, vælg antal gram i din størrelse og vælg 1 tråd :)

10.01.2023 - 13:40

country flag Marion wrote:

Hallo, ich komme mit der Strickprobe nicht zurecht. Ich musste, um 10 cm in der Breite zu erreichen, eine Nadel Nr. 7 verwenden. Nach 30 Reihen habe ich nicht 10 cm sondern fast 13 cm. Was kann ich tun oder worauf muss ich achten?

15.08.2021 - 13:44

DROPS Design answered:

Liebe Marion, hier lesen Sie mehr über die Maschenprobe, gerne wird Ihnen Ihr Laden, wo Sie das Garn gekauft haben, weiterhelfen (auch telefonisch oder per E-Mail). Viel Spaß beim stricken!

16.08.2021 - 07:43

country flag Anna wrote:

Scusatemi non i ferri corti ma i ferri a doppia punta. Grazie di nuovo

24.05.2021 - 22:22

country flag Anna wrote:

Grazie mille. Forse sarà la volta buona per imparare a usare i ferri corti

24.05.2021 - 22:20

country flag Anna wrote:

Buonasera ho delle difficoltà con i ferri a doppia punta posso iniziare direttamente con i ferri circolari corti? Grazie mille

23.05.2021 - 22:08

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, non può partire subito con i ferri circolari corti perchè non ci sono abbastanza maglie all'inizio per usarli; potrebbe provare con i ferri circolari con il cavo lungo e la tecnica del magic loop. Buon lavoro!

24.05.2021 - 22:06

country flag Claudia wrote:

En el delantero talla S, cuando hay 78 puntos entre marcadores, no me salen las cuentas de los puntos que hay a cada lado de los 16 puntos del cuello, me salen 28 puntos a cada lado, no 25

23.04.2021 - 00:45

DROPS Design answered:

Hola Claudia. El patrón está correcto. El delantero, talla S: 16 puntos deslizados para el cuello, 6 puntos cerrados a cada lado para la forma del cuello = 12 puntos; quedan 25 puntos a cada lado = 50 puntos. Es decir, 50 +12+16= 78 puntos del delantero.

24.04.2021 - 19:31

country flag Ina wrote:

Wenn ich auf jeder Seite am halsrand 6 maschen abnehme komme ich aber nicht auf die vorgegebene maschenanzahl\r\nDie ich am Ende haben muss

18.04.2021 - 07:56

DROPS Design answered:

Liebe Ina, wenn Sie für den Hals abketten sollen Sie immer noch 8 Maschen bei jeder Hinreihe zunehmen, nach allen Abketten für den Hals, stricken Sie noch 6 Reihen (3 Mal 8Zunahmen) dann sollen Sie 284--386 M haben. Viel Spaß beim stricken!

19.04.2021 - 08:25

country flag Anna wrote:

Hi there! I'm confused about this instruction: "bind off towards the neck on every other row as follows: 2 sts 2 times and 1 st 2 times." Trying to understand - am I binding off 2 stitches at the beginning of one row, then repeat for the next row, then 1 stitch at the beginning of the row after, repeat, then start over? Also confused about this: "Cast on 37-38-41-44-45 sts (incl 1 edge st in each side)" - does this mean I should cast on more than 41 stitches? Thanks!

25.05.2020 - 18:51

DROPS Design answered:

Hi Anna, You are only binding off on the neck-side of the row - so every other row you bind off 2 stitches x 2 (so 4 rows), then bind off 1 stitch x 2 (another 4 rows). Your other question, the cast-on stitches include the edge stitches, so you cast on 41 stitches. Happy knitting!

26.05.2020 - 07:58