DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 102-45
DROPS Design: Mynstur x-001-h
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

Stærð:
XS - S – M

Mál:
Yfirvídd: ca 28/30 – 40/44 – 48/52 cm
Lengd á bakstykki: ca 24/26 – 32/34 – 40/42 cm
Dæmi um hundategundir:
XS = Chihuahua, S = Bichon Frisé, M = Cocker Spaniel

GARN:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-150-250 g litur 11, vínrauður

Eða notið:
DROPS Nepal frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-150-250 g litur 2920, appelsína

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

TÖLUR:
DROPS TALA NR 535 eða 629: 4-4-4 st.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Aukið er út innan við 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Aukið út með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð og prjónið lykkjuna jafnóðum inn í stroffprjón.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá hálsmáli og niður – skipt er yfir á hringprjóna eftir þörf. Stykkinu er síðan skipt upp fyrir bakstykki og magastykki og prjónað er fram og til baka.

PEYSA FYRIR HUND:
Fitjið upp 40-55-70 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Alaska eða DROPS Nepal.
Prjónið stroffprjón 3 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið út umferðina í 4-6-8 cm.
Í næstu umferð eru allar 3 lykkjur slétt aukið út til 4 lykkjur slétt = 48-66-84 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 6-9-12 cm skiptist stykkið fyrir op fyrir framfætur þannig: Setjið fyrstu 10-16-22 lykkjur á þráð – það eiga að vera 4 lykkjur slétt í byrjun og í lokin á lykkjum á þræði.

BAKSTYKKI:
= 38-50-62 lykkjur.
Prjónið fram og til baka á sokkaprjóna. Haldið áfram í stroffprjóni með 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan – í hvorri hlið – jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið í annarri hverri umferð – lesið ÚTAUKNING: 1 lykkja alls 6-12-18 sinnum = 50-74-98 lykkjur (stykkið mælist ca 11-19-27 cm).
Haldið áfram í stroffprjóni þar til stykki mælist alls 12-20-28 cm,.
Nú er fellt af fyrir 1 hnappagati í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 miðjulykkjur slétt í ystu sléttu einingunni og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð.
Endurtakið affellingu fyrir hnappagati þegar stykkið mælist 16-25-34 cm.
Þegar stykkið mælist alls 20-28-27 cm eru lykkjur felldar af í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur alls 5-7-9 sinnum = 20-32-44 cm. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru.
Stykkið mælist ca 24-34-44 cm (ásamt hálsmáli).

MAGASTYKKI:
Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn, prjónið upp til viðbótar 2 lykkjur í hvorri hlið á bakstykki í 2 lykkjur garðaprjóni sem prjónaðar voru á bakstykki = 14-20-26 lykkjur. Prjónið stroffprjón fram og til baka með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af þegar magastykkið mælist ca 12-17-23 cm.

Saumið 4 tölur í magastykkið, 2 tölur í hvora hlið þannig að þær passi við hnappagötin á bakstykki.

LEIÐBEININGAR:
Mátið peysuna á hundinn, ef peysan er of víð er hægt að sauma 2 tölur í miðju á magastykki og tölum er hneppt í báðum hliðum í sömu hnappagötin.

HEKLAÐUR KANTUR:
Notið heklunál 4 og þráð með DROPS Alaska eða DROPS Nepal og heklið meðfram affellingarkanti á bakstykki þannig:
Festið þráðinn með 1 keðjulykkju, heklið 1 loftlykkju, hoppið fram ca ½-1 cm, * 1 fastalykkja, heklið 1 loftlykkju og hoppið fram ca ½-1 cm * heklið frá *-* út umferðina, endið með 1 fastalykkju – passið uppá að umferðin sé ekki hekluð of fast/laust.
Snúið stykkinu, * heklið 4 loftlykkjur, hoppið fram ca 1 cm, 1 fastalykkja um / í næstu loftlykkju / fastalykkju *, heklið frá *-* út umferðina, endið með 1 fastalykkju í fyrstu keðjulykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2023
Mynstrið hefur verið endurskoðað og umorðað.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 102-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Jocelyne Martin wrote:

Allô, si je comprends bien, la partie du ventre doit avoir au moins 17 cm de longueur pour le modèle XS étant donné que la deuxième série de boutonnière est à 16 cm de longueur. L’indication de 12 cm de hauteur avant de rabattre est donc en erreur selon ce que je comprends sinon on ne peut coudre les boutons pour correspondre à la 2e série de boutonnière. Merci.

10.03.2024 - 04:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martin, les 12 cm du côté ventre sont mesurés sans la première partie, autrement dit sans le col, juste la partie tricotée en allers et retours. Bon tricot!

11.03.2024 - 08:40

country flag C Laroche wrote:

Si mes chiens ont 35 cm & 37 cm de tour de poitrail. Quel grandeur devrais-je faire 28/32 cm ou bien 40/44 cm ??

28.12.2023 - 00:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Laroche, vous pouvez peut-être essayer la 2ème taille, et ajuster l'emplacement des boutons pour resserrer si besoin (les côtes ne seront alors pas trop étirées). Bon tricot!

02.01.2024 - 09:27

country flag Georgina Richard wrote:

Bonjour j’aimerais faire un pull pour yorkchire 2kilos en commansans par l’encolure et avec la laine 🧶fine de 27 m : 10 cm igor🐾🐾 vous remercie pour son futur pull

21.12.2023 - 19:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Richard, retrouvez tous nos modèles en taille XS ici, peut-être que l'un d'eux pourra vous inspirer. Bon tricot!

22.12.2023 - 08:19

country flag Frau Pfefferminz wrote:

Ich habe 2 Chihuahua , einer ist sehr Klein ,der andere etwas propper. Also habe ich den Pulli 2mal gestrickt 1mal xs und 1x S und beide sitzen Phänomenal ,ich bin begeistert.Die Anleitung ist sehr verständlich, leicht nach zu stricken.

30.11.2023 - 01:07

country flag LE LONG Bernawette wrote:

Bonjour Je me suis inpirèe du modèle 102-45 pour mon chien chihuahua de 3 KILO. J en ai composé une vidéo dans laquelle je site votre nom. Puis je l utiliser ? Merci d avance

31.10.2022 - 12:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Long, tout à fait, toutefois, vous devez mentionner qu'il s'agit de notre modèle et mettre le lien des explications sur notre site dans votre description; vous ne pouvez pas reproduire/recopier le modèle original en ligne, autrement dit les explications complètes + les diagrammes ne peuvent être dans la vidéo. Vous ne pouvez pas utiliser nos modèles pour promouvoir d'autres marques de laine/d'aiguilles/de boutons + les infos du copyright en bas de page. Taguez nous sur les réseaux pour que l'on puisse voir votre vidéo. Bon tricot!

31.10.2022 - 16:10

country flag Corinne EUSTACHE wrote:

Bonjour et tout d'abord merci pour ce joli modèle. Il me semble qu'il y a une erreur sur le tuto en français : ce n'est pas 1 mais 2 mailles qu'il faut rabattre pour faire une boutonnière et en remonter deux ensuite au rang suivant au même emplacement, comme indiqué...et il me semble aussi que ce serait plus simple d'écrire qu'il fautplacer cette boutonnière à 3 mailles du bord, à moins que je ne me trompe ...Bien cordialement.

21.09.2021 - 15:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Eustache, la correction de la boutonnière a été faite, merci pour votre retour. Ces boutonnières se font dans la 1ère section en maille endroit de chaque côté (1 x au début + 1 x à la fin = 2 boutonnières sur le même rang). Bon tricot!

23.09.2021 - 09:03

country flag Bernadette Gendebien wrote:

Je voudrais trouver un modèle qui se tricote à deux aiguilles

12.02.2021 - 08:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gendebien, vous trouverez ici, tous nos modèles pour animaux, - d'autre part, cette leçon vous donnera quelques explications sur les aiguilles circulaires. Bon tricot!

12.02.2021 - 11:35

country flag Janette Kruegel wrote:

In the top section is there a mistake? It says: see increasing tip a total of 16-12-18 times But I think it’s supposed to say 12-16-18. Otherwise the math doesn’t work out. I’m making the smallest size and was confused here

15.10.2020 - 18:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kruegel, there is a typo in the English pattern you are supposed to increase 6 times and not 16 times, thanks for your feedback, pattern will be edited (= 38 sts + 6x2 sts= 50 sts). Happy knitting!

16.10.2020 - 08:42

country flag Petra Lang wrote:

Ich würde gern für meinen kleinen Mischling stricken, leider passt keines der vorgegeben Maße. Hals 25 cm, Bauch 35 cm, Rücken 37 cm. Wie viel Wolle brauche ich da? Die Anleitung versuche ich dann entsprechend anzupassen

13.10.2019 - 15:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lang, die neuen Garnmenge wird also von den Änderungen abhängen, Ihr DROPS Laden kann Ihnen gerne damit weiterhelfen, auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

14.10.2019 - 10:27

Sharon wrote:

I don't understand placement of buttonhole. I have 2 purl stitches either end of row. How many stitches do I knit across row. And how many stitches do I cast off to create button hole

25.08.2018 - 00:55

DROPS Design answered:

Hi Sharon, You work 1buttonhole on each side of the piece, casting off the middle 2 stitches in the outermost knitted section on each side. On the next row, cast on 2 new stitches over the cast off stitches. Happy knitting!

25.08.2018 - 07:55