DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Watcher

Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund með hettu úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað frá skotti að hálsi í sléttprjóni með hettu. Stærð XS – M.

DROPS Extra 0-833
DROPS Design: Mynstur fa-189
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S – M

MÁL:
Lengd á bakstykki: ca 14 - 25 - 32 cm
Yfirvídd: ca 30 - 42 - 50 cm

Dæmi um hundategundir:
XS = Chihuahua, S = Bichon Frisé, M = Cocker Spaniel

GARN:
Litavalmöguleiki 1:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100 g litur nr 521, blár/brúnn
50-50-50 g litur nr 107, blár

Litavalmöguleiki 2:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100 g litur nr 604, yfir hafið
50-50-50 g litur nr 300, brúnn

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ XS:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ S - M:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp.

PEYSA FYRIR HUND:
Fitjið upp 78-110-130 lykkjur á hringprjóna 2,5 með litnum blár eða litnum brúnn í DROPS Fabel og prjónið sléttprjón í hring í 2,5 cm.
Skiptið yfir í litinn blár/brúnn eða litinn yfir hafið og haldið áfram hringinn þar til stykkið mælist 9-18-25 cm.
Prjónið næstu umferð þannig: 10-14-18 lykkjur slétt, fellið af 5 lykkjur fyrir opi fyrir framfót, 48-72-84 lykkjur slétt (= bakstykki), fellið af 5 lykkjur fyrir opi fyrir framfót, 20-28-36 lykkjur (= magastykki).
Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir síðustu 20-28-36 lykkjur, jafnframt er felld af 1 lykkja í byrjun á hverri umferð alls 4 sinnum = 16-24-32 lykkjur.
Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 5-7-9 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir opi fyrir framfót.
Aukið út um 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar alls 4 sinnum = 20-28-36 lykkjur, klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð/hjálparprjón.
Prjónið áfram fram og til baka yfir 48-72-84 lykkjur á bakstykki, jafnframt því sem felld er af 1 lykkja í byrjun á hverri umferð alls 4 sinnum = 44-68-80 lykkjur.
Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 5-7-9 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir opi fyrir framfót.
Aukið út 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar alls 4 sinnum = 48-72-84 lykkjur.
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 48-72-84 lykkjur slétt, fitjið upp 5 lykkjur, prjónið 20-28-36 lykkjur af þræði/hjálparprjóni, fitjið upp 5 lykkjur.
Prjónið 63-91-107 lykkjur, setjið eitt prjónamerki, þetta er núna byrjun á umferð.
Prjónið 1 umferð til viðbótar yfir allar 78-110-130 lykkjur.

HETTA:
Setjið eitt prjónamerki eftir 39-55-65 lykkjur = mitt aftan á hettu.
Haldið áfram í sléttprjóni með litnum blár/brúnn eða litnum yfir hafið fram og til baka jafnframt því sem lykkjur eru felldar af í hvorri hlið og síðar mitt aftan á hettu þannig:
HLIÐ: Fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, áfram 1 lykkja 7 sinnum (= 15 lykkjur færri í hvorri hlið). Haldið áfram án affellingar.
Þegar hettan mælist 7-11-15 cm er aukið út um 1 lykkju yst í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í 6. hverri umferð alls 3 sinnum.
MITT AÐ AFTAN: Jafnframt því sem hettan mælist 7-11-15 cm er lykkjum fækkað frá réttu með byrjun 2 lykkjum á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið út umferðina.
Endurtakið í hverri umferð frá réttu alls 8 sinnum = 16 lykkjur færri alls.
Eftir alla úrtöku eru 38-70-90 lykkjur, hettan mælist ca 12-16-20 cm. Fellið af.
Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið saman efst með lykkjuspori frá réttu.

FRAMFÓTUR:
Prjónið upp 40-52-64 lykkjur með litnum blár/brúnn eða litnum yfir hafið á sokkaprjóna 2,5 í kringum op fyrir annan framfótinn. Prjónið sléttprjón hringinn í 3-5-7 cm, skiptið yfir í litinn blár eða litinn brúnn og prjónið 6 umferðir. Fellið laust af.
Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt.

KANTUR Í KRINGUM HETTU:
Prjónið upp ca 70-88-100 lykkjur með hringprjón 2,5 og litnum blár eða litnum brúnn í kringum opið á hettunni, með byrjun neðst mitt að framan.
Prjónið 12 umferðir slétt fram og til baka jafnframt því sem aukið er út um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð. Fellið laust af.
Leggið hægri hlið á kanti í hálsmáli yfir vinstri hlið, saumið niður í garðaprjóns kanti í affellingarkanti mitt að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2023
Mynstrið hefur verið endurskoðað og umorðað.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-833

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Véronique Jacqmin wrote:

Bonjour, Je vous remercie pour votre réponse à ma précédente question. J en suis maintenant au moment de rabattre les mailles de la bordure de la question et je ne comprends pas comment procéder avec" 2 fils" comme indiqué. Merci de bien vouloir me l expliquer de façon plus claires. 😜.

20.12.2023 - 13:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jacqmin, il s'agit ici simplement d'utiliser le fil en double = 2 fils en même temps pour rabattre les mailles et ainsi obtenir un bord plus souple. Dans cette vidéo nous montrons comment monter les mailles avec 2 fils, puis comment les rabattre avec 2 fils, entretemps, on a tricoté avec 1 seul fil. Bon tricot!

20.12.2023 - 15:59

country flag Véronique wrote:

Bonjour, je tricote ce modèle avec des aiguilles doubles pointes et arrivée à la capuche, je ne comprends pas les explications 😔. Je réalise la taille S. 110 mailles réparties comme suit : 28m, 27m, 28m, 27 m. Pouvez vous m aider s il vous plaît ?😊 J ai aussi une petite suggestion : pouvoir traduire facilement les commentaires des autres tricoteuses. Merci infiniment pour votre réponse et aide. Bravo pour vos modèles ils sont 👍

05.12.2023 - 23:25

DROPS Design answered:

Bonjour Véronique, la capuche se tricote maintenant en allers et retours, plus en rond; placez votre marqueur après 55 mailles (la moitié = milieu dos du pull/de la capuche), et tricotez maintenant alternativement sur l'endroit et sur l'envers en rabattant les mailles comme indiqué: 4 mailles au début des 2 rangs suivants (soit 8 mailles sous le cou), puis 2 mailles au début des 4 rangs suivants (2 fois 2 m de chaque côté) et 1 maille au début des 14 rangs suivants (7 fois 1 m de chaque côté). Bon tricot!

06.12.2023 - 08:35

country flag Angelique wrote:

Volgens mij klopt de helft van het patroon niet...?

24.01.2022 - 01:13

country flag Inga Lundbäck wrote:

Hej, var hittar jag diagram till mönster DROPS Extra / 0-833 ?

08.09.2020 - 09:32

DROPS Design answered:

Hej Inga. Det finns inget diagram till detta mönster utan det är det print-färgade garnet som skapar mönstret. Det står i texten när du ska använda det blåa (enfärgade) garnet och när du ska använda det blå/bruna (printfärgade) garnet. Mvh DROPS Design

08.09.2020 - 11:21

country flag Dalva wrote:

Amei tudo. Obrigada

09.08.2019 - 18:08

country flag Camilla Fritsborn wrote:

Jag har kommit så långt att jag stickat de 39 maskorna och satt en markör för att sen börja med huvan. Fattar ingenting om hur jag gör. Står att man ska sticka fram och tillbaka på stickan men över vilka maskor då? Tacksam för förtydligande ang detta. Mvh Camilla

08.08.2019 - 14:17

DROPS Design answered:

Hej Camilla, du börjar mitt fram och stickar alla 78 maskor fram och tillbaka, samtidigt som maskar av i varje sida enligt beskrivningen. Lycka till :)

09.08.2019 - 08:42

country flag Nicole wrote:

Hello, I am working on the biggest size of the pattern with a130 total st. I am know at the point to do the leg decreases. The stitch count doesn't seem to work. I seem to be missing 18 stitchest? Can you help please. Thank you

03.03.2019 - 12:53

DROPS Design answered:

Dear Nicole, on the dividing row you work the first 18 sts (front piece), then cast off the next 5 sts for leg, work the next 84 sts for back piece, cast off the next 5 sts for 2nd leg, then 18 sts remain on needle, work these 18 sts (= 130 sts) then the first 18 sts from beg of round = 36 sts for front piece. Work now these 36 sts back and forth decreasing 1 st at the beg of each row a total of 4 times = 32 sts remain. Happy knitting!

04.03.2019 - 10:11

country flag Helle Froberg wrote:

Jeg savner opskrift til sfinks-katte.

18.02.2019 - 12:42

DROPS Design answered:

Hei Helle. Ditt ønske er videreformidlet til vår designavdeling. Hilsen DROPS

21.02.2019 - 09:12

country flag Amber wrote:

Hi there, I believe that the recommended yarn colour (521 blue/brown) has now been discontinued. Can you recommend an alternative? Thanks in advance

04.04.2018 - 10:43

DROPS Design answered:

Dear Amber, for any assistance choosing a colour you are welcome to contact your DROPS store, even per mail, telephone or on social medias so that they can give you personnal service. Happy knitting!

04.04.2018 - 11:51

Leslie J. McCreath-Hunneman wrote:

Thank-you so much for your fast reply! As I continued knitting, I realized that was exactly how the pattern read😊! Calvin the Chihuahua is going to be the best dressed dog around...thank-you for such a cute pattern! Fabel Print 151 is adorable, in addition to being a lovely yarn to work with! Blessings...Leslie 😃

02.01.2017 - 18:59