DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5808.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sand Valley

Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu, ¾ löngum ermum og klauf í hliðum með I-cord. Stærð XS - XXL.

DROPS 248-12
DROPS Design: Mynstur l-167
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 03, sandur

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-600-700-750 g litur 67, hveiti

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5808.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það á að myndast gat).

I-CORD:
FYRSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
SÍÐUSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða.
Stykkinu er skipt fyrir klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er brotin tvöfalt að röngu og saumaður niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-96-104-112-120-120 lykkjur á hringprjón 5. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (lykkjur eru fitjaðar upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 11 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5 cm.
Setjið 1 merki í þessa umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Merkiþræðirnir eru settir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu.
Setjið fyrsta merkiþráðinn í byrjun umferðar, teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur (hægri ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 28-28-32-32-36-36 lykkjur (framstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur (vinstri ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju – það eru 28-28-32-32-36-36 lykkjur í umferð á eftir síðasta merkiþræðinum (bakstykki).
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-6-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir á milli 2. og 3. merkiþráða (framstykki) og 2-6-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir á milli 4. og 1. merkiþráða (bakstykki) – lesið ÚTAUKNING = 100-108-116-124-132-136 lykkjur.
Síðan er prjónað sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki og í 4. hverri umferð á ermum (í fyrsta skipti sem aukið er út, er aukið út hvoru megin við alla merkiþræðina, í næsta skipti sem aukið er út, er einungis aukið út hvoru megin á framstykki/bakstykki).
Aukið svona út alls 22-20-20-24-24-26 sinnum á framstykki/bakstykki og 11-10-10-12-12-13 sinnum á ermum = 232-228-236-268-276-292 lykkjur.
Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en nú er aukið út hvoru megin við 4 merkiþræðina (bæði á framstykki/bakstykki og ermum) alls 0-3-4-2-4-4 sinnum = 232-252-268-284-308-324 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 20-21-22-24-25-27 cm frá merki.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 42-46-48-52-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermi (lykkjur á milli 1. og 2. merkiþráða), fitjið upp 8-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið 74-80-86-90-98-104 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 42-46-48-52-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermi (lykkjur á milli 3. og 4. merkiþráða), fitjið upp 8-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 74-80-86-90-98-104 lykkjur í sléttprjóni (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 164-176-192-204-224-240 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 8-8-10-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið fram að fyrri merkiþræði, umferðin byrjar hér. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 18-19-20-19-20-20 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina, þannig að það verður klauf í hvorri hlið og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 82-88-96-102-112-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 36-38-38-44-46-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 118-126-134-146-158-170 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur I-cord. Haldið svona áfram fram og til baka í 8 cm. Fellið af.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMAR:
Setjið 42-46-48-52-56-58 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-54-58-64-70-74 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-12-14-16 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 1-1-2-3-4-5 sinnum = 48-52-54-58-62-64 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 18-20-20-19-18-17 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 56-60-64-68-72-76 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 22-24-24-23-22-21 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.04.2024
Uppfærsla á berustykki: bakstykki á milli 4. og 1. merkiþráða

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Sia wrote:

Det står att man ska öka mellan andra och tredje markören ( framstycke ) och sedan mellan tredje och första markören ( bakstycke ). Dock så är väl bakstycket mellan fjärde och första markören?

22.04.2024 - 19:45

DROPS Design answered:

Hej Sia, du har højre ærme mellem 1. og 2. mærke - forstykket mellem 2. og 3. mærke - venstre ærme mellem 3. og 4. mærke - rygstykket mellem 4. og 1.mærke. Tak for info, det er opdateret :)

23.04.2024 - 14:42

country flag Berit Heggeseth wrote:

Hvordan får jeg tak i oppskriften, ser den er gratis men får ikke lastet den ned. Har bestilt garn hos dere.

05.04.2024 - 07:40

DROPS Design answered:

Hej Berit, jo den ligger online på nettet, så du går bare ind på selve opskriften. Du kan også klikke på symbolet for printer og laste den ned som pdf eller skrive ud hvis du hellere vil det :)

05.04.2024 - 10:48

country flag Juna wrote:

Voor de raglanmeerdering: ik vermoed dat je de omslag gewoon moet breien anders krijg je geen gaatje en dat is wel de bedoeling toch?

28.03.2024 - 16:25

country flag Leli wrote:

Ich liebe diesen Pulli. Er ist so hübsch. Kann es kaum erwarten ihn zu stricken!!

26.03.2024 - 20:22

country flag Henny Wijgerse wrote:

Van bomull lin heb ik 600 gram nodig voor een truitje, garengroep C. Maar ik kan ook garengroep a + a gebruiken. Hoeveel bollen heb ik dan nodig van a + a , want dat brei ik dan met 2 draden.

25.03.2024 - 16:11

DROPS Design answered:

Dag Henny,

Om dit te berekenen ga je uit van de looplengte. Dus je berekent eerst de totale looplengte (het benodigde aantal bollen X de looplengte per bol). Deze looplengte doe je keer 2, omdat je voor categorie A 2 draden nodig hebt. Dan deel je dat getal door de looplengte van het garen met categorie A.

27.03.2024 - 13:23

country flag Gianna Bernardi wrote:

Mi piace molto usare le vs spiegazioni 💐 grazie

25.03.2024 - 08:11

country flag Karin wrote:

Light breeze

21.01.2024 - 18:36

country flag Laura wrote:

Österlen

19.01.2024 - 09:09

country flag Felicitas Ribbrock wrote:

Ich finde das Model lässig und doch elegant.

18.01.2024 - 19:49

country flag Katja Salomies wrote:

Line love

18.01.2024 - 18:32