DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Daisy Fields Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Safran eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 249-8
DROPS Design: Mynstur e-366
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-450-450-500 g litur 17, hvítur

Eða notið:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-450 g litur 01, hvítur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 6-6-6-7-7-7 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd með gatamynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Jafnóðum sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til nægilega margar lykkjur eru í heilt gatamynstur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar aukið er út, eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja).

AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU:
Á undan merkiþræði: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja aftan frá, setjið yfir á vinstri prjón og prjónið slétt (= 1 lykkja fleiri).
Á eftir merkiþræði: Prjónið 1 lykkju fram hjá merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja framan frá, prjónið snúið slétt (= 1 lykkja fleiri).

AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR.
Á undan merkiþræði: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja aftan frá, setjið yfir á vinstri prjón og prjónið slétt. Prjónið 1 lykkju slétt, takið upp þráðinn á milli lykkja aftan frá, setjið yfir á vinstri prjón og prjónið slétt (= 2 lykkjur fleiri).
Á eftir merkiþræði: Prjónið 1 lykkju fram hjá merkiþræði, takið upp þráðinn á milli lykkja framan frá, prjónið snúið slétt. Prjónið 1 lykkju slétt, takið upp þráðinn á milli lykkja framan frá, prjónið snúið slétt (= 2 lykkjur fleiri).

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir kant í hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir næstu 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8-8½ cm millibili. Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og stroffs.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Hálsmál og berustykki er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 138-138-146-154-162-170 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Baby Merino. Prjónið stroff þannig, fyrsta umferð er frá röngu: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff fram og til baka. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-4-4-4 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Setjið eitt merki innan við kantlykkjur að framan í annarri hliðinni, berustykkið er mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Lesið ÚTAUKNING-2 og HNAPPAGAT í útskýringu að ofan.
Prjónið síðan með hringprjón 3,5 með byrjun frá réttu, jafnframt eru settir 4 merkiþræðir þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og aukið út 3-4-7-4-1-1 lykkjur jafnt yfir næstu 20-20-16-20-24-24 lykkjur, 2 lykkjur í sléttprjóni og setjið 1 merkiþráð á milli þessa lykkja, prjónið sléttprjón og aukið út 5-5-3-3-3-5 lykkjur jafnt yfir næstu 18-18-26-26-26-30 lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 merkiþráð á milli þessa lykkja, prjónið sléttprjón og aukið út 4-6-4-6-8-8 lykkjur jafnt yfir næstu 42 lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 merkiþráð á milli þessa lykkja, prjónið sléttprjón og aukið út 5-5-3-3-3-5 lykkjur jafnt yfir næstu 18-18-26-26-26-30 lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 merkiþráð á milli þessa lykkja, prjónið sléttprjón og aukið út 3-4-7-4-1-1 jafnt yfir næstu 20-20-16-20-24-24 lykkjur og prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Það eru 158-162-170-174-178-190 lykkjur í umferð (48-50-48-50-52-52 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki, 30-31-30-31-32-32 lykkjur á hvoru framstykki og 25-25-31-31-31-37 lykkjur á milli merkiþráða á ermum). Prjónið 1 umferð frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón fram þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Nú á að prjóna sléttprjón á framstykki/bakstykki og mynstur á ermum, jafnframt því sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu mismunandi eftir stærðum. Útaukning er mismunandi á ermum og á framstykki/bakstykki.

STÆRÐ S og M:
Lesið LASKALÍNA í útskýringu að ofan og afgang af kafla, áður en prjónað er áfram.
Í næstu umferð (= rétta) er prjónað sléttprjón á framstykkjum/bakstykki og mynsturteikningu A.1 á ermum jafnframt því sem aukið er út um 1 lykkju fyrir laskalínu á undan/eftir 2 laskalykkjum (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð).
Fyrsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= vinstra framstykki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði (= bakstykki), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki) = 166-170 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu.
Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur í annarri hverri umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar aukið hefur verið út 22-25 sinnum fyrir laskalínu er útaukningu lokið á ermum. ATH! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, haldið áfram með mynstur eins og áður, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilt mynstur í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni.
Haldið áfram með útaukningu á framstykkjum/bakstykki og í annarri hverri umferð alls 2-1 sinnum til viðbótar, þar til aukið hefur verið út alls 22-25 sinnum á ermum og 24-26 sinnum á framstykkjum/bakstykki = 342-366 lykkjur. Það eru 96-102 lykkjur á bakstykki, 54-57 lykkjur á hvoru framstykki og 69-75 lykkjur á hvorri ermi.

STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL:
Lesið LASKALÍNA í útskýringu að ofan og afgang af kafla, áður en prjónað er áfram.
Í næstu umferð (= rétta) er prjónað sléttprjón á framstykkjum/bakstykki og mynsturteikningu A.1 á ermum jafnframt því sem aukið er út um 1 lykkju fyrir laskalínu á undan/eftir 2 laskalykkjum.
Fyrsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði (= vinstra framstykki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði (= bakstykki), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið A.1 (= ermi), AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU fyrir laskalínu á undan og á eftir merkiþræði, prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki) = 178-182-186-198 lykkjur.
Prjónið 1 umferð frá röngu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú er prjónað áfram jafnframt því sem aukið er út mismunandi á framstykkjum/bakstykki og ermum eins og útskýrt er að neðan, lestu báða kaflana áður en þú prjónar áfram!

ÚTAUKNING ERMAR:
Haldið áfram að auka út 1 lykkju fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-28-27-22 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er að ofan), síðan er aukið út um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 6-2-4-7 sinnum. Aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 24-30-31-29 sinnum á ermum.
ATH! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, heldur mynstur áfram, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilt mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Í næstu umferð (= rétta) er aukið út um 2 lykkjur fyrir lasaklínu á framstykkjum/bakstykki – lesið AUKIÐ ÚT 2 LYKKJUR í útskýringu að ofan.
Síðan er aukið út 1 LYKKJA fyrir laskalínu í annarri hverri umferð eins og áður, en í hverri 10-12-6-6 umferð sem er prjónuð (þ.e.a.s. í 5-6-3-3 hvert skiptis sem aukið er út), aukið út 2 LYKKJUR í stað 1 LYKKJA. Prjónið svona þar til aukið hefur verið út alls 29-30-34-36 sinnum (6-5-11-12 af þessum skiptum er aukið út um 2 lykkjur í stað 1 lykkju) = 406-434-482-498 lykkjur. Nú eru 118-120-142-148 lykkjur á bakstykki, 65-66-77-80 lykkjur á hvoru framstykki og 79-91-93-95 lykkjur á hvorri ermi.

ALLAR STÆRÐIR:
= 342-366-406-434-482-498 lykkjur.
Prjónið síðan án þess að auka út þar til berustykkið mælist 17-18-20-21-23-25 cm frá merki eftir kant í hálsmáli og næsta umferð er prjónuð frá réttu.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Prjónið fyrstu 55-58-66-67-78-81 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 67-73-77-89-91-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 98-104-120-122-144-150 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 67-73-77-89-91-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 55-58-66-67-78-81 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki). Síðan er fram- og bakstykki og ermar prjónað hvert fyrir sig, stykkið er nú mælt héðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 224-236-268-276-320-336 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi, látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, þeir eru notaðir þegar auka á út lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist ca 5 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverjum 4½-5-4½-5-5-4½ cm alls 4 sinnum í öllum stærðum = 240-252-284-292-336-352 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 26-27-26-27-27-26 cm frá skiptingunni og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 38-38-46-46-54-54 lykkjur jafnt yfir í umferð = 278-290-330-338-390-406 lykkjur, prjónað er þannig: Prjónið með hringprjón 2,5, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – munið eftir útaukningu) þar til eftir eru 8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður.
Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl.

ERMAR:
Setjið 67-73-77-89-91-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 75-81-85-99-101-105 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið hringinn í mynstri eins og áður, passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt yfir mynstur sem prjónað var á berustykki, nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni – síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi er mynstrið stillt af í samræmi við það. Þegar ermin mælist ca 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 3-5-5-7-7-8 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í ca hverjum11-10-7-3-3-2½ cm alls 4-4-5-9-9-9 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-42-41-40-39-38 cm – stillið af þannig að prjónuð sé 1 umferð án mynsturs. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 3-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 64-68-72-72-76-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-46-45-44-43-42 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það á að myndast gat

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Alice wrote:

Voor de steekverhouding wordt 24 steken en 22 naalden opgegeven voor 10x10 cm. De wikkel van het garen geeft 24 steken en 34 naalden aan. Dit zou kunnen kloppen met mijn proeflapje.

20.03.2024 - 18:14

country flag Marjan wrote:

Hallo, Wat is de 2e naald? Is dat heen en weer gebreid en dan de 2e naald. Of is heen en weer gebreid 1 naald?

09.03.2024 - 19:01

DROPS Design answered:

Dag Marjan,

Heen en weer gebreid is 2 naalden.

10.03.2024 - 09:47

country flag Erna wrote:

Cool breezes

22.01.2024 - 08:32

country flag Heike wrote:

Kamillentraum

18.01.2024 - 17:40

country flag Ann-Christine Corneliusson wrote:

Super snygg

18.01.2024 - 16:33

country flag Ann-Christine Corneliusson wrote:

Vill jag äga

18.01.2024 - 16:32