DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Snowflake

Prjónuð peysa úr DROPS Air eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 249-4
DROPS Design: Mynstur ai-476
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-700-800-850 g litur 17, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (= ermi) og A.2 (= framstykki og bakstykki). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).
Jafnóðum sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1 og A.2, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til nægilega margar lykkjur eru í heilt gatamynstur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar aukið er út, eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 1 lykkju sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (það er 1 merki í hverri af þessum lykkjum = 4 merki. Síðan í mynstri eru þessar 4 lykkjur með merki í kallaðar laskalykkjur). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 2 lykkjur í umferð með því að fækka um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðju af þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað ofan frá og niður frá hægri öxl að aftan og allt stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Prjónaður er upp tvöfaldur kantur í hálsmáli áður en berustykkið er prjónað. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 90-94-94-102-106-112 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air eða DROPS Paris. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (lykkjur eru fitjaðar upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið sléttprjón hringinn í 3 cm. Í næstu umferð er prjónaður kantur í hálsmáli (= uppábrot) þannig: Prjónið (2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn) umferðina hringinn. Síðan er prjónað sléttprjón hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist 7 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú er kanturinn í hálsmáli brotinn inn að röngu, þannig að kanturinn verði tvöfaldur. Síðan er næsta umferð prjónuð í sléttprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja í umferð er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli sem mælist ca 3 cm. Setjið 1 merkiþráð í þessa umferð, berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 6-2-2-14-10-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 96-96-96-116-116-116 lykkjur.
Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Merkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 15-15-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 31-31-31-39-39-39 lykkjur (= framstykki), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 31-31-31-39-39-39 lykkjur (= bakstykki), setjið 4. merki í síðustu lykkju.

Nú á að prjóna MYNSTUR jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA, fyrsta umferð er prjónuð þannig: Aukið út 1 lykkju fyrir LASKALÍNA á eftir 4. merki – lesið útskýringu að ofan, prjónið MYNSTUR A.1 – lesið útskýringu að ofan (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 1. merki, prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið A.2C (= framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2. merki, prjónið A.1 (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 3. merki, prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið A.2C (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu á undan 4. merki, prjónið lykkju með 4. merki í sléttprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkur í annarri hverri umferð alls 16-16-18-22-20-12 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er í fyrstu umferð) = 224-224-240-292-276-212 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Haldið síðan áfram með útaukningu þannig:
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri). Endurtakið þessa útaukningu alls 4-8-10-6-8-20 sinnum á framstykki og bakstykki og 2-4-5-3-4-10 sinnum á ermum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 248-272-300-328-324-332 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-22-25-25-25-29 cm frá merkiþræði eftir kant í hálsmáli.
Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-25-25-26-29 cm frá merkiþræði. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Setjið fyrstu 51-55-61-67-65-61 lykkjur á þræði fyrir ermi (= lykkjur á milli 4. og 1. merkis), fitjið upp 7-7-7-7-15-23 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-81-89-97-97-105 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 51-55-61-67-65-61 lykkjur á þráð fyrir ermi (= lykkjur á milli 2. og 3. merkis), fitjið upp 7-7-7-7-15-23 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 73-81-89-97-97-105 lykkjur í mynstri eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-176-192-208-224-256 lykkjur. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki, í miðju 7-7-7-7-15-23 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkin fylgja áfram með í stykkinu, merkin eru notuð þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón fram að fyrra merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring.
Haldið áfram með A.2 hringinn yfir allar lykkjur – passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki. Prjónið þar til stykkið mælist ca 22-22-21-21-22-21 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar hafa verið minnst 5 umferðir sléttprjón eftir umferð með gatamynstri. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið við hvort merki, framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 80-88-96-104-112-128 lykkjur, síðan er prjónað fram og til baka á prjóninn.
Í fyrstu umferð (= rétta), byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 35-37-41-45-47-55 lykkjur jafnt yfir í umferð = 115-125-137-149-159-183 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning), þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með ítalskri affellingu, eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMAR:
Setjið 51-55-61-67-65-61 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-7-15-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-62-68-74-80-84 lykkjur.
Setjið 1 merki í miðju á 7-7-7-7-15-23 nýjum lykkjum undir ermi.
Byrjið umferð við merki og haldið áfram með A.1 hringinn á erminni – passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 0-0-0-5-6-7 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 2 cm alls 4-5-8-5-6-6 sinnum = 50-52-52-54-56-58 lykkjur.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 39-38-36-36-35-32 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar séu nokkrar umferðir sléttprjón eftir umferð með gati. Það eru eftir ca 6-6-6-7-7-7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á undan stroffi. Í næstu umferð byrjar stroffið jafnframt því sem aukið er út um 8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð = 58-60-62-64-66-68 lykkjur – prjónað er þannig:
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-44-42-43-42-39 cm frá skiptingunni.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það á að myndast gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Annette Fischer wrote:

Hej Er det muligt at strikke blusen i en bomuldsgarn og i så fald, hvilken er bedst:) Mvh Annette

11.04.2024 - 09:36

DROPS Design answered:

Hei Annette. Du kan bruke DROPS Paris (som også står i oppskriften), ellers så kan du bruke 2 tråder DROPS Safran. Bruk vår garnkalkulator for å regne ut hvor mye garn du da må bruke. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 10:16

country flag Iris wrote:

Bedankt, weet nu hoe ik verder kan breien.

06.03.2024 - 13:03

country flag Iris wrote:

Ik heb nog even een aanvulling op mijn vraag hieronder, Ik ben nu bij het stukje(Ga verder met meerderen als volgd )maat s . Moet ik als ik bij de naald van de gaatjes breien ben, ook weer van rechts helemaal naar links het patroon breien, en als ik dan nog steken over heb nog een keer weer van links naar recht breien tot aan de raglan. Want als ik dat doe dan komen op het einde richting de raglan de omslagen niet goed in het midden van de voorgaande gaatjes die ik heb gebreid. V.g iris

02.03.2024 - 13:58

country flag Iris wrote:

Hallo, ik heb nog een vraag over over het telpatroon. Als ik het hele patroon in de hoogte heb gebreid, begin ik dan weer onderaan opnieuw. En bij het breien van het lijf staat ga verder met A2, zijn dat de 3 kolommen samen?. V.g iris

01.03.2024 - 11:12

DROPS Design answered:

Dag Iris,

Ja, het telpatroon herhaalt zich inderdaad in de hoogte, dus je begint gewoon opnieuw onderaan. Als je op het lijf bent zet je het gecreëerde patroon voort, maar je hebt geen meerderingen meer door de raglan, dus komt het neer op het steeds herhalen van A.2B.

05.03.2024 - 23:01

country flag Lali wrote:

Ciao, ho appena finito di lavorare questo modello. È venuto benissimo, spiegazioni perfette! Vi ringrazio di cuore, complimenti!

20.02.2024 - 17:44

country flag Iris wrote:

Hallo drops team. Ik brei maat s. Ben nu bezig met de pas 69 steken, heb mijn markeer draden geplaatst en ben in patroon gaan breien en heb 1 keer gemeerderd voor raglan. Maar ik kom er nu niet meer uit. Mijn vraag is: als ik in patroon brei moet ik mijn meerderingen voor de raglan ook meetellen in het patroon( dus de omslagen die ik brei voor raglan) of begint het patroon na de meerderingen voor de raglan. V.g iris

19.02.2024 - 14:03

DROPS Design answered:

Dag Iris,

Je begint steeds op dezelfde plek met het patroon, dus je meerdert 1 steek voor de raglan aan elke kant van de markeerdraad en daarna brei je in patroon. In het patroon is rekening gehouden met de meerderingen. Gelijk na de meerdering begint het patroon dus.

21.02.2024 - 21:13

country flag Susana Araujo wrote:

Thank you for responding to my previous question. And what happens to those stitches? Are worked in stockinette stich all the time (knit)? Shall I move the marker up to the stitch just knitted in every row? I am sorry but I am a bit confused can't find mention in the pattern about what is done with the markers.

19.02.2024 - 09:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Auraujo, the 4 stitches with each a marker are worked in stocking stitch, ie these stitches are knitted every round, you can move markers up to these sts on every round. Happy knitting!

19.02.2024 - 15:13

country flag Veronique wrote:

Bonjour, j'ai déjà recommencé 2 fois et mon col ne ressemble absolument pas à celui de votre photo. Le mien ressemble plus à un col roulé... Savez vous ou je pourrais me tromper ? Merci

19.02.2024 - 03:41

DROPS Design answered:

Bonjour Véronique, vous devez procéder comme dans cette vidéo, sauf que vous allez tricoter 3 cm jersey avant le tour (2 m ens à l'end, 1 jeté), et quand votre ouvrage mesure 7 cm, pliez en double sur l'envers et toutes les 4 mailles, relevez 1 maille du montage pour la tricoter avec la maille suivante sur l'aiguille gauche. Dans la vidéo, on coud à la fin, ici, pour éviter la couture, on tricote les mailles ensemble. Bon tricot!

19.02.2024 - 09:46

country flag Susana Araujo wrote:

I am knitting the smaller size. On the first line for the Yoke says to increase 6 times so we have 96 stitches total but when working the first line of raglan with pattern the count is only for 92 stitches. Work 2X sleeves (Pat 1) = 30 stitches, + work A.2A 2X total = 12 + work A2.B 4X total = 32 + A.2C another 2X in total = 18. The final count (excluding the increases just done) is 92 stitches. What happened to the other 4 stitches from the 96?

19.02.2024 - 01:49

DROPS Design answered:

Hi Susana, The 4 missing stitches are your marker-stitches - the markers are inserted in the next stitch (not between stitches) when you are counting out for the different pieces and inserting the markers. Happy knitting!

19.02.2024 - 06:40

country flag Charmaine wrote:

Ik brei de trui in maat L. Ik heb nu 240 st en moet meerderen tot 300 st. Dat zijn 60 st, maar de meerderingen bestaan uit 10 x 4st (voor- en achterpand) en 5 x 8 st. ( mouwen). Dat is samen 80 st. Wat klopt er niet?

18.02.2024 - 11:31

DROPS Design answered:

Dag Charmaine,

Je meerdert 10x4 steken op de panden en 5x4 (niet 8) steken op de mouwen, waarmee je op 60 meerderingen in totaal komt.

28.02.2024 - 20:58